Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 Afurðalánakerfi loðskinnafram- leiðslunnar sprakk við verðfallið: SEÐLABANKINN og viðskiptabankarnir tóku afurðalánakerfi loð- dýraræktarinnar til sérstakrar athugunar í vor. Kom þá í Ijós að af um 100 milljónum króna sem þeir höfðu lánað út á framleiðsluna voru 60 milljónir kr. ógreiddar en mest öll skinnaframleiðsla ársins seld. Það kom fram á aðalfundi loðdýrabænda sem haldinn var í Varmahlíð í Skagafirði fyrir nokkru að þessi staða hefur sett sam- skipti loðdýrabænda og bankanna í hnút. Við afgreiðslu afurðalánanna var þess sem bankamir munu taka miðað við skinnaverð árið á undan, sem var 2.700 krónur, og var al- gengt lán 2.000 krónur út á hvert skinn. Síðan gerðist það að skinna- verðið féll niður í 1.400 til 1.500 krónur og greiddist því ekki nema hluti afurðalánanna með söluand- virði skinnanna. Bankamir hafa einnig ásakað suma loðdýrabændur fyrir að hafa svindlað á kerfínu, með því að veðsetja fleiri hvolpa en þeir áttu og að skila ekki afurða- lánum af lífdýrum. Haukur Hall- dórsson formaður SÍL mótmælti því að of mörg dýr hefðu verið veðsett, en taldi að brögð hefðu verið að því að lán vegna lífdýra hefðu ekki verið greidd. Bankamir hafa nú boðað strang- ara aðhald í lánveitingum auk þess sem afurðalánakerfínu hefur verið breytt. Útborgun lánanna á nú að verða í meira samræmi við kostnað- armyndun í rekstri búanna. Lánað er út á hvem framleiðsluferil fyrir sig. Lánshlutfail yerður svipað og áður miðað við skinnaverð, en það setur bændur í vanda að lánin verða lág vegna verðfallsins í vetur auk megnið af nýju lánunum upp í van- skil á afurðalánunum frá því í fyrra, ef ekki tekst að semja við þá. Aðalfundur loðdýrabænda lýsti jrfir ánægju sinni með nýja afurða- lánakerfið. Jafnframt var talið óraunhæft að eftirstöðvar afúrða- lána greiddust allar af afurðalánum 1986, það hefði í för með sér óyfírstíganlega rekstrarörðugleika loðdýrabænda, hefti þróun loðdýra- ræktarinnar í landinu og myndi valda miklum vanda hjá fóðurstöðv- unum. Lagði fúndurinn til að leyst yrði úr þessum vanda að hluta með því að jafnvirði 30% afurðalána frá 1985 verði skuldbreytt til þriggja ára með jöfnum afborgunum, hinni fyrstu 1987. Morgunblaðið/Arinbjöm Sigurgeirsson Borgarstarfsmenn við borinn, sem notaður er við töku jarðvegssýna á Bárulóðinni. Borað við Tj örnina Á VEGUM borgarverkfræðings hófust nýlega jarðvegsathug- anir á Bárulóðinni á mótum Tjamargötu og Vonarstrætis. Tilgangur þessara jarðvegsat- hugana er að kanna möguleika á byggingu ráðhúss borgarinn- ar á þessum stað. í því húsi er fyrirhugað að verði skrifstofur borgarstjóra og fundaaðstaða fyrir borgarstjórn. Að sögn Hjörleifs Kvaran verð- ur innan skamms efnt til sam- keppni um hönnun hússins. Dómnefnd var nýlega skipuð og er hún nú að semja útboðslýsingu fyrir væntanlega þátttakendur í samkeppninni. Formaður dóm- nefndarinnar er Davíð Oddsson borgarsljóri, en aðrir sem sitja í nefndinni fyrir hönd borgarstjóm- ar em Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi og Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt og forstöðu- maður Borgarskipulags. Af hálfu Arkitektafélagsins eiga þeir Guðni Pálsson og Þorsteinn Gunn- arsson arkitektar sæti í nefndinni. Aðalfundur Skógræktarfélags íslands: „Tímabært að móta lang- 60 milljónir ógreiddar en skinnin seld Tekið upp nýtt kerfi sem ekki á að vera hægt „að spila á“ tímaáætlun fyrir skógrækt“ — segir dr. Vilhjálmur Lúðvíksson Mývatni, frá Kristínu Gunnarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. HVAÐ ER ÞAÐ sem Skógrækt ríkisins ætlar sér í starfi sínu? Hver eru markmiðin? Hvernig skilur almenningur og þá stjórnmálamenn ætlunarverk skógræktarinnar? Þessum spurningum leitaðist dr. Vil- hjálmur Lúðvíksson við að svara í erindi sínu „Hugleiðingar um markmið skógræktar á íslandi", sem hann flutti á aðalfundi Skóg- ræktarfélags íslands í Reynihlíð í Mývatnssveit í gær. Siglufjörður: Togarar komu með sjúklinga Sigiufirði. TOGARINN Siglfirðingur SI 150 kom til hafnar á Siglufirði um kl. 15 á föstudag með mann, sem þjáður var af botnlangabólgu og var hann samstundis fluttur i sjúkrahús. Togarinn Sigluvík SI2 kom einn- ig óvænt til hafnar um kl. 19, en þar hafði einn skipveija slasast á handlegg. Togaramir fóru fljótlega aftur út á miðin eftir að sjúklingamir höfðu verið fluttir í land. Dómkirkjan Messutími í dag, sunnudag, er hinn hefðbundni tími kl. 11, en ekki kl. 10 eins og stendur í messutilkynn- ingunni hér í blaðinu í gær. HJÁ Þjóðhagsstofnun hefur að undanfömu verið unnið að end- urskoðun þjóðhagsáætlunar fyrir yfirstandandi ár, samhliða þjóðhagsspá fyrir árið 1987. Að sögn Jóns Sigurðssonar forstjóra stofnunarinnar er búist við að endurskoðuninni Ijúki fyrir helg- ina og að niðurstöðumar verði birtar á mánudag. I erindi sínu rifjar Vilhjálmur upp lög um markmið skógræktar á Is- landi og gerir að umtalsefni laga- greinina „Að græða upp nýja skóga þar sem henta þykir". Imynd sú sem Skógrækt ríkisins hefur skapað sér í hugum landsmanna með málflutn- ingi og verkum sínum er á þá lund að þéttklæða eigi landið hávöxnum, beinvöxnum tijám af heppilegum innfluttum tegundum, sem af tæknilegum ástæðum hljóta að vera barrtré. Enda verði þetta nytja- skógar og skógrækt þannjg arðbær og nytsöm fjárfesting. Á þessum Jón vildi ekki greina frá einstök- um atriðum áætlunarinnar, en sagði að ný spá um breytingar á þjóðar- framleiðslunni sýndi betri tölur en gert var ráð fyrir í vor. Einnig væri gert ráð fyrir minnkandi við- skiptahalla. Kaupmáttur atvinnu- tekna á mann er áætlaður meiri í ár en fyrri spár gerðu ráð fyrir og hefur verið rætt um 2% aukningu forsendum, segir Vilhjálmur, virðist leikmanni að lagt hafí verið út í skógrækt á ekki færri en 65 stöðum á alls 60 ferkílómetrum um allt land. Að fenginni reynslu við frem- ur erfið ræktunarskilyrði virðist honum sem verið sé að vinna að miklu fleiri markmiðum samtímis en af er látið og að aðstandendum sé alls ekki alltaf ljóst hvaða mark- miðum er verið að ná í hveiju tilviki. Vilhjálmur bendir á að ef ætlunin er að rækta nytjaskóg af arðsemis- og atvinnulegum ástæðum, þá sé hrein fásinna að dreifa kröftum á umfram fyrri áætlun í því sam- bandi. í spánni fyrir árið í ár var gert ráð fyrir 4 til 5% kaupmáttar- aukningu, en samkvæmt endur- skoðuninni er gert ráð fyrir að aukningin geti orðið 7%. í nýju þjóð- hagsáætluninni eru einnig nýjar áætlanir um verðþróun, erlenda skuldabyrði og hag atvinnuveg- anna. 65 litlar stöðvar. Þá er það og umhugsunaratriði að miðað við þann viðarvöxt sem hér hefur mælst, má rækta allan þann timb- urvið sem landsmenn þurfa á um 400 ferkílómetrum lands. Með tilliti til þess að hér á landi er um 14 þúsund ferkílómetrar af algrónu ræktarlandi undir 200 metra hæð yfír sjó og aðeins einn tíundi hluti þess, 1400 ferkílómetrar, undir ræktun í dag, segir Vilhjálmur að erfítt sé að skilja af hveiju ekki hafí verið byijað fyrir löngu á nytja- skógrækt af alvöru og spyr um leið af hveiju verið sé að blanda saman nytjaskógrækt við þá hugsjón að klæða landið skógi? Síðar í erindinu segir hann að ekki fari saman nema að takmörk- uðu leyti ræktun nytjaskógar og umhverfis- og útivistarékógar. Ein- hæfni nytjaskógar, sem ræktaður er með hagkvæmustu tækni, er ekki aðlaðandi umhverfí nema með því skjóli sem hann getur skapað á opnum svæðum. í umhverfis- og útivistarskógi er flölbreytni og sam- spil tegunda mikilvægara sjónar- mið. Landgæði og hagstæð skilyrði til vaxtar er ekki meginatriði við val á skógræktarsvæði í þessu skyni. Höfuðverkefnið er að finna tegundir sem henta mismunandi skilyrðum. Viljhálmur vék síðan að nauðsyn þess að gerð verði langtímaáætlun fyrir skógrækt þar sem markmið verði skilgreind, hvaða verkefni, vinnubrögð og starfshætti verði að viðhafa. „Ég held að kominn sé tími til þess að endurskoða markmið og starfshætti Skógræktar ríkisins og kannski Skógræktarfélags íslands samtímis og gera langtímaáætlun um starfsemi skógræktarinnar í landinu," sagði Vilhjálmur. Benti hann á þær róttæku breytingar sem nú væru í þjóðfélaginu, samdráttur í hefðbundnum búgreinum, sem hafa mun víðtæk áhrif á landnýt- ingu í framtíðinni. Þá er reynsla sem Skógrækt ríkisins, skógrækt- arfélög og einstaklingar hafa aflað orðin svo yfírgripsmikil að hægt er að gera nokkuð marktækar áætlan- ir um skógrækt. Endurskoðun Seðlabankans: Niðurstöð- ur í byrjun október SEÐLABANKINN vinnur að endurskoðun bankakerfisins og er búist við niðurstöðum í byrjun október, að sögn Jóhannesar Nordal Seðlabankastjóra. Meðal þeirra mála, sem fjallað er um, er vandi Útvegsbankans, en eins og fram hefur komið í fréttum vantar bankann hundruðir milljóna króna til að geta staðið við skuld- bindingar sínar. Einnnig verður fjallað um aðrar hugmyndir um endurskipulagningu bankakerfis- ins, sem verið hafa á döfínni á undanfömum ámm. Betri horfur í endur- skoðaðri þjóðhagsáætlun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.