Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 4
vr
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
Pólýfónkórinn. Myndin er tekin á tónleikum i Langholtskirkju í febrú-
ar 1985, rétt áður en kórinn fór í söngför til Ítalíu.
Pólýfónkórinn undirbýr vetrarstarf
og ræður þekktan ítalskan kennara:
Flytur Messías
með Sinfóníu-
hljómsveit Islands
í Hallgrí mskirkj u
VETRARSTARF Pólýfónkórsins
hefst að þessu sinni með söng-
námskeiði þar sem frægur ítalsk-
ur kennari þjálfar kórfélagana
til undirbúnings fyrstu tónleik-
um kórsins og Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands í Hallgrimskirkju,
segir í frétt frá kórnum. Maestro
Mauro Trompeta, þekktur söngv-
ari, kennari og þjálfari kóra við
óperurnar í Torino og Milano
kemur til landsins síðar í þessum
mánuði í þeim tilgangi að fríska
upp raddirnar áður en hinar
föstu kóræfingar hefjast.
Söngnámskeiðið hefst mánudag-
inn 22. september kl. 6 síðdegis og
fer kennslan fram í hópum til kl.
11 á kvöldin. Kennt verður í Vörðu-
skóla á Skólavörðuholti, þar sem
kórinn heldur æfingar sínar, og
stendur námskeiðið í 10 daga. Það
er einungis ætlað kórfélögum. sem
starfað hafa í kómum áður, svo og
nýjum kórfélögum, sem nægan
undirbúning hafa til að hefja starf
með kómum nú, þrátt fyrir að und-
irbúningur næstu hljómleika hæfist
síðastliðinn vetur. Stofnandi kórs-
ins, Ingólfur Guðbrandsson, heldur
enn sem fyrr um stjómvölinn. Mik-
il eftirvænting ríkir vegna þessa
fyrsta stórverkefnis Pólýfónkórsins
og Sinfóníuhljómsveitar íslands í
Hallgrímskirkju, sem verður í senn
stærsta kirkja landsins og vegleg-
asta hljómmusteri til flutnings
fagurrar tónlistar á íslandi. Nú
þegar em margir famir að falast
eftir aðgöngumiðum að tónleikun-
um hinn 11. des., enda líta margir
svo á, að hér verði um sögulegan
viðburð að ræða.
Innritun nýrra kórfélaga er hafin
og fer fram í síma 26611 á daginn
og 72797 og 84610 á kvöldin og
um helgar.
Grimmsævintýri
í pappírskilju
í sýningarbás Fjölva á Heimil-
issýningunni kynnir Þorsteinn
Thorarensen nýstárlega bókaút-
gáfu, þ.e.a.8. Grimmsævintýri í
pappirskilju.
Að sögn Þorsteins er þetta fyrsta
bindi af sex, en það er Vasaút-
gáfan, sem stendur að þessari
útgáfu og er þetta fyrsta bók út-
gáfunnar. Fyrsta bindi Grimmsæv-
intýra fæst á kynningarverði á
sýningunni og kostar þrjú hundruð
krónur. Bókin er myndskreytt og
aftan við hvert ævintýri eru skýr-
ingar höfundar, þar sem hann raeðir
m.a. um uppruna ævintýrisins, þró-
un og sagnasamanburð. Sum
ævintýranna hefur Þorsteinn einnig
lesið inn á hljóðsnældu.
Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem
slíkt heildarsafn kemur út í pappírs-
kiljutn.
Evrópukeppni
landsliða
Laugardalsvelli
miðvikudaginn 10. sept.
kl. 18.00
Flestar stjörnur íslenskrar knattspyrnu mæta
til leiks í tilefni verðugra andstæðinga
Heiðursgestur á leiknum
verður landslið íslands 1946
Fánaberar:
Fegurðardrottning
íslands
Fegurðardrottning
Reykjavíkur
Aðrir gestir: ^
Diddú
Magnús Kjartansson
Grétar Örvarsson
Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts
Unglingalandslið íslands sýnir
knattspyrnuþrautir frá kl. 17.00
4-
Hringurinn í haust-
ferð í Þórsmörk
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn fer
í dagsferð í Þórsmörk þriðjudag-
inn 16. september nk.
Lagt verður af stað frá Umferð-
armiðstöðinni klukkan 8 árdegis og
verður komið heim um kvöldið.
Snæddur verður hádegisverður f
Þórsmörk, en þátttakendur eru
beðnir að taka með sér eigin veit-
ingar.
Þátttaka í haustferðina tilkynnist
Kristine í síma 38660, Sigríði í síma
611540 eða Þórunni í sfma 11916.
ísafoldarprentsmidja
Vagga íslenskrar knattspyrnu
Fiskbúðin Sæbjörg
HÓTEL LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA /BT HÓTEL
$peinnHÖafeari
grensAsvec;i .«
SlMI 81618
BAKARl — KONOITORI — KAFFI
jm^llffa
28400
«Ull Se feilfur
b/f