Morgunblaðið - 07.09.1986, Page 7

Morgunblaðið - 07.09.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTBMBER 1986 1 Heimilið ’86: Heimsmeistari í töfrabrögðum SÝNINGUNNI Heimilið ’86 lýkur í kvöld, sunnudagskvöld, klukk- an 23. Töframaðurinn Shahid Malik og fjöllistaflokkurinn Commodores eru líklega eitt af þeim atriðum sem hafa vakið hvað mesta athygli og hrifningu gesta sýningarinnar. Shahid Malik, sem er fæddur í Pakistan, er þekktastur í heima- landi sínu, Englandi, fyrir að bijótast út úr ýmiss konar spenni- treyjum, hlekkjum og öðru þess háttar. Hann hefur sett tvö heims- met í þeim efnum. Annarsvegar fyrir að losa sig úr hlekkjum í mestu hæð, 600 metrum fyrir ofan yfir- borð jarðar og hinsvegar fyrir að losa sig á skemmstum tíma, 13 sekúndum, úr spennitreyju hang- andi nokkra tugi metra upp í loftið. Shahid hefur oft verið hætt kom- inn. 1975 reyndi hann, í beinni sjónvarpsútsendingu BBC, að flýja úr „Kínverska vatnspyntingarklef- anum“ sem er eitt hættulegasta flóttaatriði sem til er og varð reynd- ar hinum fræga Houdini að bana árið 1926. Shahid rétt marði að losa sig úr spennitreyjunni og síðan úr klefanum sem hékk efst í krana, áður en leið yfir hann. „Öll flóttaatriðin eru utanhúsat- riði og ekki var pláss til að fram- kvæma þau í Laugardalshöllini," sagði Shahid Malik í samtali við Morgunblaðið. „Við erum með margar tegundir af sýningum og þessi sem við sýnum hér á Islandi núna er innanhússýning án flóttaat- riða. En hver veit nema að við verðum með þannig sýningu hér á næsta ári?“ Aðspurður sagðist Sha- hid því miður ekki hafa hitt neina íslenska töframenn ennþá. Hann vildi þó gjarna hitta einhveija og spjalla um töframannafagið. Eitt það skemmtilegasta atriði sem hann hafði sýnt, að hans eigin mati, var fyrir Peugeot-bílaverksmiðjumar nýlega í Monte Carlo. „Eiginkona mín fór ofan í búr sem síðan var sett teppi yfir, þegar ég tók teppið af var komið ljón í búrið, en það er merki Peugeot. Teppið var síðan aftur sett yfir búrið og þegar það var tekið af að nýju var ljónið horf- ið en í stað þess kominn splunkunýr bíll.“ Á myndinni sést Shahid á Heimil- inu ’86, framkvæma hið sígilda atriði þar sem aðstoðarkona hans hefur farið ofaní kassa sem hann síðan stingur spjótum í án þess að henni verði á nokkum hátt meint af. Þórskaffi 40 ára: Einnar viku hátíðardagskrá ÞÓRSKAFFI á 40 ára afmæli um þessar mundir. Aðstandendur skemmtistaðarins hyggjast minnast þessara tímamóta með veglegum hætti og stendur afmælishátíðin í viku, þar sem reynt verður að gera sem flestum til hæfis. í dag, sunnudaginn 7. septem- ber, verður samsæti í Þórskaffi til heiðurs Ieigubílstjórum og vilja eig- endumir þannig sýna þakklæti sitt fyrir þá þjónustu, sem leigubílstjór- ar hafa sýnt gestum staðarins undanfarin ár. Hljómsveitin Santos leikur fyrir dansi og Ómar Ragnars- son og Haukur Heiðar flytja skemmtidagskrá. Þriðjudagskvöldið verður sér- staklega tileinkað ellilífeyrisþegum úr ýmsum verkalýðsfélögum tengd- um veitingahúsarekstri. Boðið verður upp á kaffiveitingar, Jónas Þórir og Helgi Hermannsson leika fyrir dansi, ásamt Sigurði Ólafssyni söngvara og Karvel og Helgi Seljan flytja gamanmál. Á miðvikudeginum verður ungl- ingakvöld, þar sem unglingahljóm- sveitin Rauðir fletir, kemur fram, Herbert Guðmundsson syngur nokkur lög og Dansnýjung sýnir nokkur dansatriði. Á fimmtudeginum verðu dag- skránni áfram haldið. Dansnýjung og Herbert koma þá aftur fram. Heiðar Jónsson kynnir tískusýningu frá Tískuhúsinu Inu og hljómsveitin Kikk kemur fram. Á föstudaginum verður sérstök skemmtidagskrá, sem Ómar Valdi- marsson kynnir. Carl Möller leikur fyrir matargesti, Karl Ágúst Úlfs- son, Örn Ámason og Sigurður Sigurjónsson skemmta, hljómsveit- in Santos leikur fyrir dansi, Sonja B. Ólafsdóttir og Ragnar Bjamason syngja með. Á laugardeginum verður sama dagskrá á boðstólum, nema að því leyti að Stefán Jónsson bætist í hóp söngvaranna. Á lokadegi hátíðardagskrárinn- ar, á sunnudeginum, verður fjöl- skylduskemmtun og er húsið opið, meðan húsrúm leyfir. Ómar Ragn- arsson og Haukur Heiðar verða með skemmtidagskrá og Dansnýj- ung sýnir. LONDON 3ja daga helgarferð. Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með baði og morgunmat á Scanhotel. Auk þess afsláttarkort I fjölmargar verslanir, veitingahús ogskemmtistaði. . Verðfrákr. 12.505 GLASG0W 4ra daga helgarferð. (frá15.september). Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með baði og morgunmat á Hotel Crest. Verðfrákr. 12545 ijj» & jjf- /i AMSTERDAM 3ja daga helgarferð. Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með baði og morgunmat á Hotel Owl og sigling um síkiAmsterdam. AAonn Verðfrákr. 14.600 * • § HAMB0RG 5 daga helgarferð. Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með morgunmat á Hotel Graf Molke. . Verðfrákr. 17.110 Samvinnuferdir - Landsýn Austurstræti 12 • Símar 91-27077 & 91-28899 Hótel Sögu við Hagatorg • 91-622277 Akureyri: Skipagötu 14 • 96-21400 NWSIMANUMER Afl-OO

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.