Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 24

Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 Fer ðamannaþj ónusta er vaxandi# atvinnugrein eftír Matthías Bjarnason samgönguráðherra Ferðamál verða með ári hveiju æ ríkari þáttur í efnahags- og menningarlífi þjóða. Það eru ekki lengur hin grónu Evrópulönd sem leggja kapp á ferðamál. Sú skoðun, að ferðalög séu munaður sem aðeins nokkr- ir útvaldir megi og geti leyft sér, heyrir fortíðinni til. Orlof öllum til handa og ferða- frelsi eru þær félagsbætur sem öll menning- arríki kosta kapps um að veita þegnum sínum ásamt sókn mannsins til bjartara og betra lífs. Tala þeirra sem ferðast á milli landa fer vaxandi. Margvíslegar ástæður liggja til þessarar aukningar ferðaþjónustu. Aukin velmegun, samgöngutækni sem byggist á stórum þotum í millilandaflugi og sérfar- gjöld hafa gert almenningi mögulegt að ferðast meira og lengra en áður. Nú er svo komið að atvinnugrein ferða- mála hefur stórum aukist í íslenskum þjóðarbúskap og hefur skilað auknum gjald- eyristekjum til þjóðarinnar. Þótt stefnt hafi í rétta átt undanfarin ár virðist enn skorta á að þjóðin átti sig nægilega á því að hér er um veigamikinn atvinnuveg að ræða. Atvinnuvegir okkar eru einhæfir en einn- ig háðir stórkostlegum sveiflum. Einmitt þessi einhæfni gerir það að þjóðarnauðsyn fyrir íslendinga, að gera atvinnulíf okkar fjölbreyttara til að skapa meira jafnvægi og öryggi. Líf þjóðarinnar er undir því kom- ið að við nýtum skynsamlega þær auðlindir sem við eigum. Jafnt fiskinn í sjónum, ork- una í failvötnunum, jarðhitann og landið sjálft til landbúnaðar og útilífs. Ferða- mannaþjónusta á íslandi byggist á þeirri auðlind sem hýsir fámenna þjóð, með jöklum sínum, eldfjöllum, ám og vötnum. Með fámennri þjóð býr nokkur uggur í sambandi við erlend áhrif. Vissulega kann misjafnt að skolast með auknum ferða- mannastraumi. í þessum málum er þörf á aukinni upplýsingastarfsemi, fyrirbyggjandi aðgerðum og auknu samstarfí. Hér eiga Ferðamálaráð og náttúruvemdarmenn sam- eiginlegt takmark að vinna. Vemd náttúm, umhverfis og sögulegra minja er takmark allra Islendinga. Fjöldi erlendra ferða- manna til landsins Árið 1960 komu tæplega 13 þúsund er- lendir ferðamenn til íslands. Næstu 13 árin fjölgaði erlendum ferðamönnum ár frá ári og árið 1973 var talan komin upp í 74 þús- und. Árið 1974 dró verulega úr komum er- lendra ferðamanna til landsins, sem rekja má til olíukreppunnar. Það var ekki fyrr en árið 1978 að mettalan frá 1973 náðist að nýju. Árið 1980 nam talan aðeins 66 þúsundum. Síðustu þijú árin hefúr færst mikill vöxt- ur í komu erlendra ferðamanna til landsins. Árið 1983 vom þeir tæplega 78 þúsund. Árið 1984 nam talan rúmlega 85 þúsund. Árið 1985 var mesta ferðamannaár hingað til, þá sóttu rúmlega 97 þúsund ferðamenn landið heim, en það er um 14% aukning miðað við árið 1984. Á sl. þrem ámm hefúr erlendum gestum fjölgað rúmlega 34% og horfur em á vemlegri aukningu á þessu ári. Auk þess komu 19 skemmtiferðaskip til landsins árið 1985 og með þeim 10.823 farþegar. Þessi þróun er stómm meiri en gert var ráð fyrir í faglega unninni skýrslu um ferða- mál sem samgönguráðuneytið lét gera. Þar var gert ráð fýrir 3,5% meðaltalsaukningu á ári frá 1984—1992. Komur íslendinga frá útlöndum árið 1960 vom 9.500. Árið 1973 nam talan nálægt 45 þúsundum. Afturkippur kom í utanlands- ferðir íslendinga árið 1975 sem rekja má til olíukreppunnar. Enn hafa þær aukist á Matthías Bjarnason ámnum 1984 og 1985. Nú em utanlands- ferðir Islendinga fleiri en komur erlendra ferðamanna. Samfara þessu hefur ferðum Islendinga um eigið land fjölgað vemlega. Margt kem- ur til, Ferðamálaráð hefur á undanfomum ámm lagt áherslu á ferðalög landsmanna um eigið land. Veruleg breyting hefur orðið á síðustu ámm til þess að auðvelda fólki að komast um landið á eigin farartækjum. Skal nefna stórbættar samgöngur, bæði í Iofti og á landi, betri vegi, fjölgun einkabif- reiða og bættan aðbúnað til næturgistingar og annarrar ferðamannaþjónustu víða um land. Fjölgun orlofsheimila, lengri sumar- leyfi og batnandi lífskjör. 6 Framboö gistiaðstöðu og veitingastaða Mikil aukning hefur átt sér stað í veit- inga- og gistihúsamálum í landinu á sl. ámm eins og á öðrum sviðum sem snerta ferða- mál. Enn getum við aukið tekjumar af heimsóknum ferðamanna, en möguleikar þessir takmarkast m.a. af flug- og gisti- möguleikum á hveijum tíma. Mikið munar um hvert hótel á jafnlitlum markaði og þeim íslenska. Bygging hótelanna Sögu, Holts og Loftleiða réði miklu um þá þróun sem átti sér stað um miðjan sjöunda áratuginn. Hótelrými á Reykjavíkursvæðinu hefur aukist á sl. fjórum árum. Utan Reykjavíkur hafa risið nokkur vönduð hótel undanfarin ár og auk þess hefur sumargistihúsum fjölg- að. Sumarhótelin eru flest á heimavistar- skólum undir samheitinu Edduhótel, sem rekin eru af Ferðaskrifstofu ríkisins. Á síðustu árum hefur framboð aukist mjög á gistirými á sveitabæjum. Samtök bænda hafa sýnt þessari nýju atvinnugrein áhuga og stofnað Ferðaþjónustu bænda, sem hefur milligöngu milli ferðaskrifstofa og ferðamanna. Ymist er um að ræða sér- herbergi á sveitabæjum eða svefnpokapláss, eða jafnvel sérstök smáhýsi. Talsverður vöxtur í gisti- og hótelrekstri virðist enn vera framundan. En jafnframt er ljóst að hótel verða ekki reist til að mæta þörfum sumarmánaðanna. Þau rísa aðeins af grunni ef rekstrargrundvöllur er fyrir hendi. Eftir því sem næst verður komist voru í júlí 1986, 1492 rúm í 808 herbergjum í heilsárshótelum og 167 rúm í 84 herbergjum í sumarhótelum í Reykjavík. Utan Reykja- víkur voru í heilsárshótelum 2012 rúm í 1006 herbergjum og í sumarhótelum 2619 rúm í 1334 herbergjum, sjá eftirfarandi töflu. Fjöldi herbergja og rúma eftir kjördæmum í júlí 1986. Fjöldi herbergja. Árs- hótel Sumar- hótel Vetrar- hótel Alls Reykjavík 808 84 892 Reykjanes 43 43 Vesturland 119 242 361 Vestfirðir 103 147 250 Norðurland 325 476 n 812 Austurland 169 201 370 Suðurland 247 268 515 Landið alls 1814 1418 n 3243 Fjöldi rúma Árs- hótel Sumar- hótel Vetrar- hótel Alls Reykjavík 1492 167 1659 Reykjanes 86 86 Vesturland 228 442 670 Vestfirðir 205 300 505 Norðurland 626 958 22 1606 Austurland 332 419 751 Suðurland 535 500 1035 Landið alls 3504 2786 22 6312 í landinu er fjöldi herb. í landinu er ijöldi herb. í landinu er fjöldi herb. Landið herbergi alls í landinu er fjöldi rúma í landinu er fjöldi rúma f landinu er fjöldi rúma Landið rúm alls á heilsárshótelum á sumarhótelum á vetrarhótelum á heilsárshótelum á sumarhótelum á vetrarhótelum 1814 1418 11 3243 3504 2786 22 6312 Eftir því sem næst verður komist var fjöldi veitingastaða á íslandi í júlí 1986 þessi: Veitingastaðir Alls Þar af með vínveitingum Rvík og nágrenni 86 30 Reykjanes 9 2 Vesturland 33 10 Vestfirðir 24 5 Norðurland vestra 21 17 Norðurland eystra 31 12 Austurland 29 9 Suðurland 38 12 Landið alls 271 97 Flest hótel og gististaðir reka veitingastarfsemi. Auk þess eru fjölmörg og góð veitingahús rekin sjálfstætt. Eftir því sem næst verður komist eru veitingastaðir á öllu landinu, þar með talin hótel með veitingaþjón- ustu, almenn kaffihús og skyndibitastaðir, i Reykjavík 86 þar af 30 með vínveitingar. Úti á landi eru alls 185 veitingastaðir þar af 67 með vínveitingar. Hérna er um verulega aukningu að ræða á síðustu árum. Mannafli í ferðamálum Til þess að fá einhveija hugmynd um mikilvægi ferðamálastarfsemi á vinnumark- aði hefur Þjóðhagsstofnun skilgreint hana sem allt, sem snertir hótel og gististaði, helming þess sem gerist á veitingastöðum, allan flugrekstur, helming af rekstri lang- feðabíla og strætisvagna, fjórðung annarrar starfsemi og loks allt sem viðkemur ferða- skrifstofum o.þ.h. Þessi skilgreining sem hér er notuð er ef til vill nokkuð þröng, en hún er hagkvæm að því leyti að auðvelt er að fylgjast með þróuninni á grundvelli talna sem teknar eru saman á ári hveiju. Samkvæmt þessu störfuðu 700 manns að ferðaþjónustu árið 1940, eða innan við 1,5% af mannaflanum. Á sjöunda áratugn- um fjölgaði starfsfólki í ferðaþjónustu ört. Árið 1963 störfuðu 1805 manns við ferða- þjónustu eða 2,7% af mannaflanum. í upphafi áttunda áratugarins, árið 1973, voru ársverk þeirra sem störfuðu að ferða- málum um 2859 eða 3,2% af mannaflanum. Árið 1983 nam þesi tala 3228. Á síðastliðnu ári má ætla að ársverk þeirra sem störfuðu að ferðamálum hafi verið um 3500 og enn stefnir í aukningu. Til þess að fá saman- burð við aðrar atvinnugreinar má t.d. nefna að vægi ferðaþjónustu á vinnumarkaði er heldur meira en allrar bankastarfsemi í landinu. Þessum ferðalögum og ferðaþjónustu fylgir mikill fjárflutningur, en það á einnig við um aðrar atvinnugreinar í misjafnlega ríkum mæli. Skal nefna stórbætta gjaldeyr- isstöðu, auknar tekjur flugfélaganna, sem eru nær ein um hituna hvað varðar flug til og frá Islandi, gisti- og veitingastaði, sér- leyfis- og hópferðaakstur, leigubifreiðaakst- ur, framleiðslu og sölu matvæla, minjagripi og fatnað. Erlendir ferðamenn eru því eins- konar viðbót við neytendur landsins. Þjóð sem hefur ekki fleiri íbúa en 240 þúsund, munar mikið um 100 þúsund ferða- menn sem bætast við markaðinn. Framlag ferðaþjónustu í verðmætasköpun verður því aldrei tíundað til fulls og gildi hennar fyrir afkomu þjóðarinnar. Þá hefur koma erlendra ferðamanna til landsins verið mikilvæg fyrir þá þróun í samgöngukerfi, sem þjóðinni hefur tekist að byggja upp við umheiminn. Hið sama á við um samgöngur innanlands, ekki síst um innanlandsflugið og stóran hluta af sam- göngum á landi. Á þessu ári eru starfandi 28 ferðaskrif- stofur í landinu og leggja þær aukna áherslu á að selja ferðamönnum ferðir til íslands. Gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum Enn hefur ekki verið vikið að þeim hluta ferðaþjónustunnar sem vegur ef til vill þyngst, en það eru gjaldeyristekjur af ferða- mönnum. Samkvæmt tölum frá Þjóðhagsstofnun hafa gjaldeyristekjur farið ört vaxandi sl. ár. Árið 1980 námu gjaldeyristekjur af ferðamönnum 231 millj. kr. eða um 4,0% af útflutningstekjum og nálægt 1,5% af þjóðarframleiðslunni. Árið 1984 nam talan 2 milljörðum króna eða um 5,8% af útflutn- ingstekjum og 2,5% af þjóðarframleiðslunni. Á sl. ári reyndust gjaldeyristekjumar vera 3 milljarðar króna eða rúmiega 6,3% af útflutningstekjum og nálægt 2,8% af þjóðar- framleiðslunni. Aukningin frá árinu 1984 er 19,3% og hafa þessar tölur verið umreikn-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.