Morgunblaðið - 07.09.1986, Page 44
V *
The Color Purple“, nýj-
asta mynd Stevens
Spielberg, hlaut ærið
misjafnar viðtökur við
frumsýningxi í desember
1985 og deilurnar urðu há-
værari eftir því sem leið á
þetta ár; náðu svo hámarki
er Oskarsverðlaunin voru
afhent í mars.
Kynþátta-
fordómar?
Kvenréttindakonur segja að
myndin geri kynjum mishátt
undir höfði, svertingjar segja að
mjmdin lítillækki og smáni svert-
ingja, en svo eru aðrir sem segja
að myndin sé léttvæg þar sem
hún forðist að fjalla um raun-
verulegan vanda svertingja í
Bandaríkjunum. Spielberg hefur
nefnilega verið harðlega gagn-
rýndur fyrir að kvikmynda
skáldsögu Alice Walkers, sem er
átakanleg saga ungrar konu og
breytt henni í hálfgert Disney-
ævintýri. Að minnsta kosti
kemur myndin illa út í saman-
burði við bókina.
Það vakti mikla athygli þegar
Spielberg ákvað að kvikmynda
„The Color Purple". Spielberg
hefur einbeitt sér að heimi barn-
anna síðustu árin. Alice Walker
sjálf var ákaflega ánægð þegar
Spielberg setti sig í samband við
hana, hún bjóst ekki við leik-
stjóri úr Hollywood hefði áhuga
á bókinni. Það er líka talið víst
að engin mynd hefði verið gerð
ef Spielberg hefði ekki sýnt
áhuga.
Arið 1985 var mjög lélegt
hvað varðar listræn afrek í
bandarískri kvikmyndagerð,
enda voru flestar myndimar
gerðar með böm og unglinga í
huga. „The Color Purple" var ein
þriggja sem stóðu upp úr, hinar
voru „Out Of Afríca" með Meryl
Streep og „Heiður Prizzis" með
Jack Nicholson. En þegar „Color
Purple" var loks tekin til sýninga
þótti ljóst að Spielberg var ekki
rétti leikstjórinn fyrir svo erfítt
og viðkvæmt efni. En það hefur
verið sagt að Spielberg sé að
reyna að hrista af sér þann nei-
kvæða stimpil sem hann hefur
fengið á sig: höfundur bama-
mynda. Það er virðingarvert í
sjálfu sér, en heistu andstæðing-
ar Spielbergs segja að æðsta
takmark hans sé að næla sér í
Óskar, hvað sem það kosti. „Col-
or Purple“ var því kjörið verk-
efni. Myndin hlaut síðan hvorki
fleiri né færri en ellefu Óskarút-
nefningar, en það sem vakti
mesta athygli var að Spielberg
sjálfur var ekki útnefndur. Það
var mikið áfall fyrir hann, engu
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
Saga
kúgaðrar
svertingjakonu
Nokkur orð um nýjustu
mynd Spielbergs, „The Color Purple“
okkur,“ eins og Whoopi Goldberg
gerði. Er ekki sá möguleiki fyrir
hendi að „The Color Purple" og
allir sem að henni stóðu hafí
bara verið óheppnir að lenda í
samkeppni við jafn góðar ef ekki
betri myndir og listamenn?
Leikstjórar lqósa leikstjóra,
leikarar leikara. Alls em um það
bil 4.000 manns í kvikmyndaaka-
demíunni sem veitir Óskarsverð-
launin. Er hægt að segja að þetta
fólk hafí verið ófijálslynt er það
veitti verðlaunin í mars?
Besta erlenda myndin var kos-
in „The Offícial Story", arg-
entínsk mynd sem fjallar um
fómarlömb hersins þar í landi.
Myndin er sögð líkjast „Missing“
eftir Costa-Gavras.
William Hurt var kosinn besti
karlleikari í aðalhlutverki, hann
lék homma í „Kossi köngulóar-
konunnar“ og er það í fyrsta
skipti sem slíkt hlutverk er verð-
launað af akademíunni.
Arið áður var Haing Ngor,
kambódískur flóttamaður og
læknir, verðlaunaður fyrir „The
Killing Fields“, ogárið 1983
hlaut „Gandhi“ flest verðlaunin,
alls átta. Þess má geta að tveir
svertingjar hafa fengið Óskarinn,
Sidney Poitier fyrir „Liljur vallar-
ins“ árið 1963 og Louis Gossett
fyrir „Foringjar og fyrirmenn"
árið 1982. Og ekki má gleyma
henni Hattie McDaniel, sem fékk
Óskar fyrir aukahlutverk í „Á
hverfandi hveli" árið 1939.
(„Hvað viljið þið að ég leiki“?
að síður var hann viðstaddur at-
höfnina og mátti þola þá niður-
lægingu að tapa öllum útnefn-
ingunum. „The Color Purple"
hlaut ekki einn einasta Óskar.
Var myndin fómarlamb kyn-
þáttafordóma? Þijár leikkonur
myndarinnar, Whoopi Goldberg,
Margaret Avery og Öprah Win-
frey, allar óþekktar og að sjálf-
sögðu þeldökkar, voru útnefndar.
Ein þeirra sagði eftir að úrslitin
lágu fyrir: „Það er ekkert leynd-
armál að meirihluti þeirra sem
kusu em hvítir og það er ljótt
að hugsa til þess að sú hafí ver-
ið ástæðan fyrir útkomunni, en
það er spumingin sem brennur
á vörum allra.“
Staðreyndir
málsins
En það er ekki nóg að fóma
höndum og hrópa: „Þið hatið
Whoopi Goldberg, nýliði
í kvikmyndaleik, fer með
stærsta og mikil vægasta
hlutverkiðí
„The Color Purple".
Hún er 35 ára og hef-
ur getið sér gott orð
fyrir gerð sjónvarps-
þátta, en það má búast
við miklu af henni á
næstu árum. Hún er
sjálfstæð kona eins og
persónan sem hún
leikur, er einstæð
móðir, sem nú nýtur
frægðar og frama.