Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 57

Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 57 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Dansarar! Viljum ráða sviðsvana dansara af báðum kynjum til að taka þátt í skemmtiatriðum í haust og vetur. Upplýsingar í síma 36141 í dag og á morgun kl. 17-19. Borgartúni 32 ^IRARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Auglýst er laust til umsóknar starf yfirvið- skiptafræðings við hagdeild. Starfið er m.a. fólgið í umsjón með daglegum rekstri deildar- innar, gerð fjárhagsáætlana, umsjón með gjaldskrármálum og orkuviðskiptum auk hag- rænna athugana. Reynsla í stjórnunarstörf- um er æskileg. Upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður fjármálasviðs. Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf sendist deildarstjóra starfsmannadeild- ar fyrir 30. þ.m. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík. Offsetprentara vantar mikla og vellaunaða vinnu. Allar nán- ari upplýsingar í síma 681454. Bifreiðaumboð Viljum ráða nú þegar sölumann, fyrir nýjar og notaðar bifreiðar. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fljót- lega. Tilboð sendist aulgýsingadeild Mbl. merkt: „Áhugastarf — 8072“. £±>' Mosfellshreppur — afgreiðslugjaldkeri Starf afgreiðslugjaldkera er laust til umsókn- ar. Starfið er fólgið í móttöku á greiðslum opinberra gjalda (tölvuskráning) og annarra greiðslna til sveitarsjóðs, uppgjöri sjóðs o.fl. Laun samkvæmt samningum Stamos og Mosfellshrepps. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri Mosfellshrepps í síma 666218. Umsóknum með upplýsingum um fyrri störf skal skilað til Skrifstofu Mosfellshrepps fyrir 13. sept- ember. Sveitarstjóri. Starfsfólk óskast í fataverslun í miðbænum. Hálfsdagsstörf, fyrir og eftir hádegi. Umsóknir sendist augld. Morgunblaðsins merktar: „Þ — 3196“ fyrir 11. september. Tónmenntakennara vantar að Barnaskólanum á Selfossi. Tón- mennt yngri barna og kórstarf. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 99-1498. Skólanefnd. Augljós markaðsþjónusta auglýsir eftir snillingum Við erum að leita að teiknurum og textagerð- armönnum til starfa á auglýsinga- og hönnunardeild okkar. Við viljum ráða: Teiknara sem — geta unnið sjálfstætt, — eru fjölhæfir og hugmyndaríkir, — hafa reynslu í auglýsingateiknun, — eiga auðvelt með að vinna með öðrum. Textagerðarmenn sem — eru hugmyndaríkir og orðhagir, — hafa mjög góða íslenskukunnáttu, — geta unnið sjálfstætt, — hafa reynslu af textasmíði, — eiga auðvelt með að vinna með öðrum. Nauðsynlegt er að viðkomandi aðilar séu mjög hæfir á sínu sviði. Þeir sem áhuga hafa á ofangreindum störfum sendi skrifstofu okkar skriflegar umsóknir sem tilgreini menntun og fyrri störf. Með allar umsóknir verður farið sem trúnað- armál og öllum umsóknum verður svarað. MARKAÐSÞJÓNUSTA Hamraborg 12, 200 Kópavogur, sími 42255 ALHLIÐA MARKAÐSÞJÓNUSTA OG AUGLÝSINGAGERÐ DÖGUN S.F. BYGGINGAFÉLAG Öldugötu 29, Bílasími 985-21811. Verkamenn óskast Óskum að ráða 2 verkamenn í nýbyggingu okkar við Skógarás 13-17. Upplýsingar veitir Eiríkur Jónsson á staðnum kl. 13.00-14.00 daglega. Einnig 2 verkamenn í endurbyggingu „Bjarnaborgar" (Hverfisgötu 83). Upplýsingar veitir Hjörtur Aðalsteinsson á staðnum kl 13.00-14.00 daglega og í síma 985-2184. Trésmiðir Trésmiðir óskast í mótauppslátt. Upplýsingar í síma 72972 á kvöldin. Rafeindavirkjar Okkur vantar tvo rafeindavirkja til almennrar viðgerðavinnu á radíóverkstæði og viðgerða- vinnu og þjónustu á siglingartækjum. Upplýsingar gefur Guðjón Bjarnason í síma 94-3092, heimasími 94-3703. PÓLLINN HF. ÍSAFJÖRÐUR Útibú: Reykjavík Auglýsingastjóri Frjálst framtak óskar að ráða auglýsinga- stjóra fyrir eitt af tímaritum sínum. Starfið krefst: 1. Samviskusemi og nákvæmni. Mikilvægt er að viðkomandi sé samvisku- samur og nákvæmur í orðum sínum og gjörðum. 2. Söluhæfileika. Viðkomandi verður að hafa til að bera áhuga og hæfni í sölumennsku. Helst er leitað að einstaklingi með reynslu. Það er þó ekki skilyrði. 3. Sjálfstæðis. Starfið er í eðli sínu sjálfstætt. Því þarf við- komandi að hafa skipulagshæfileika og sjálfstæði. Starfið býður upp á: 1. Góð laun. Viðkomandi verður greitt í samræmi við af- köst. Góður starfsmaður hefur þannig góð laun. 2. Vinnu í frísku fyrirtæki. Starfið býður upp á vinnu í hraðvaxandi fjöl- miðlafyrirtæki með hressu og duglegu fólki. Þeir sem hafa áhuga á að sækja um ofan- greint starf eru vinsamlegast beðnir að leggja inn skriflega umsókn sem tilgreini ald- ur, menntun, starfsreynslu og annað það sem til greina gæti komið við mat á hæfni. Með allar umsóknir verður farið sem trúnað- armál og öllum verður svarað. Skilafrestur umsókna er til 12 á hádegi föstudaginn 12. september. Frjálst framtak, Ármúla 18, 108 Reykjavik. Afgreiðsla Óskum að ráða nú þegar duglegt og áreiðan- legt starfsfólk til eftirfarandi starfa í verslun okkar Laugavegi 59 (Kjörgarði): 1. Heilsdagsstarf í skódeild og á kassa. 2. Hálfsdagsstarf eftir hádegi í upplýsingar. 3. Heilsdagsstarf fyrir ungling í vörumóttöku o.fl. Við leitum að fólki sem hefur góða og ör- ugga framkomu og á létt með að veita viðskiptavinum okkar sem besta þjónustu. Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri (ekki í síma) mánudag og miðvikudag frá kl. 14.00 til 18.00. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfsmannahaldi Skeifunni 15. HA6KAUP Skeifunni 15.— Starfsmannahald. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJAVlK Laus staða Auglýst er til umsóknar staða þroskaþjálfa á nýju sambýli fyrir fatlað fólk í Reykjavík. Æskilegt er að viðkorhandi geti hafið störf nú þegar. Unnið er á vöktum. Laun samkvæmt launakjörum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist fyrir 15. sept. nk. Svæðisstjórn málefna fatlaðra Hátúni 10, 105 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.