Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Kristján Haraldsson hefur hér sloppið framhjá Helga Björgvinssyni og þá er reynt að koma Agli Emi
Einarssyni úr jafnvœgi með gabbhreyfingu. Þessi mynd ertekin úr leik drengja- og unglingalandsliðanna.
Drengjalandsliðsmennirnir Axel Vatnsdal, Gunnar Másson og Anton Markússon fengu viðurkenningu
fyrír að hafa gengið best um vistarverur sfnar.
Knattspyrnuskóli KSÍ á Laugarvatni:
Úrvalshópur
úr 4. flokki
— dvaldi þar í knattspyrnubúðum í eina viku
DAGANA 22.-29. ágúst var 24
manna hópur 14 ára gamalla
stráka á Laugarvatni og gerðu
þeir fátt annað en sparka f bofta.
Þeir voru þama f Knattspymu-
skóla KSÍ og höfðu veríð valdir
til þessara œfinga þar sem þeir
þóttu hafa skaraðfram úrísínum
aldursflokki í sumar.
Þetta er í fyrsta skiptið sem
valinn er úrvalshópur úr 4. flokki,
en þessir piltar leika í þeim aldurs-
flokki, og þeir kailaðir saman til
æfinga. Markmiðið er að búa tii
landsliðskjarna sem síðan myndar
piltalandsliðið á næsta ári. Knatt-
spymuskólinn er nýjung í starfi KSÍ
og verður vonandi árviss atburður
framvegis.
Rófur og agúrkur
seldust upp
Þátttakan í knattspyrnuskólan-
um býður ekki uppá neitt letilrf
enda óvíst að strákunum mundi
líka það. Morgunmatur var klukkan
níu á hverjum morgni en áður var
Hinn harðskeytti drengjalands-
liðsmaður Ámi Kvaran leggur sig
hér allan fram til að koma boltan-
um framhjá unglingalandsliðs-
manninum Helga Björgvinssyni
og fyrír markið.
Krístján Haraldsson, Krístján Finnbogason og Áki Sveinsson harðir
af sér f rigningunni.
Þeir eru sterkir
— sögðu drengjalandsliðsmennirnir Kristján
Haraldsson, Kristján Finnbogason og Áki
Sveinsson um mótherja sína í Evrópukeppninni
Drengjalandsliðsmennirnir
Krístján Haraldsson KR, Kristján
Finnbogason KR og Jörundur Áki
Sveinsson Stjörnunni voru að
sjálfsögðu mættir f æfingarbúð-
irnar á Laugarvatni og voru þeir
spurðir hvernig haustlandsleík-
irnir við Austur-Þjóðverja legðust
í þá.
„Þeir eru sterkir og því veitir
okkur ekki af þeirri samæfingu sem
við höfum fengið hérna. Annars
getum við vel unnið þá á góðum
degi, við sýndum það á Norður-
landamótinu að við erum til margs
líklegir þrátt fyrir dálitla óheppni á
því móti," svöruðu þeir, greinilega
ákveðnir að koma vel útúr hinum
erfiðu leikjum sem framundan eru.
Páll Gíslason og Helgi Björgvinsson:
Ágætt að fá
tilbreytingu
Unglingalandsliðsmennirnir
Páll Gíslason og Helgi Björgvins-
son eiga ásamt félögum sfnum
erfiðan vetur fyrír höndum við
þrotlausar æfingar til undirbún-
ings leikjunum gegn Póllandi,
Danmörku og Belgíu næsta vor.
Þeir félagar sögðust vera nokk-
uð ánægðir með riðilinn sem þeir
hefðu lent í á Evrópumótinu því
þeir hefðu svo oft lent á móti ensk-
um liðum og það væri ágætt að
fá tilbreytingu.
Páll sem leikur með Þór Akur-
eyri er orðinn allreyndur í lands-
leikjabransanum því hann á 9
landsleiki að baki og sagði hann
að þaö væri nú skemmtilegra að
spila með landsliöinu en félagslið-
inu. „Fyrir norðan eru nefnilega
mörg liðin ansi slök og mótspyrnan
Irtil," bætti hann við til skýríngar.
Páll og Helgi Ifta bara snyrtilega út þrátt fyrír að vera nýbúnir að
spila erfíðan leik þegar þessi mynd var tekin.
Þorsteinn Jónsson:
Fyrsti lands-
liðshópsmað-
ur Magna
EINN þeirra stráka sem voru
valdir í unglingalandsliðshópinn
sem dvaldi á Laugarvatni er Þor-
steinn Jónsson en hann er
leikmaður með Magna, Grenivík.
Þetta er í fyrsta skipti sem leik-
maður með því félagi er valinn
til landsliðsæfinga og þvf spurði
ég Þorstein hvernig honum hefði
orðið við þegar hann frétti af
þessu.
„Ég varð alveg orðlaus. Fram-
kvæmdastjóri Magna hringdi í mig
en þá var ég alveg búinn að af-
skrífa þetta. Það voru margir
heima á Grenivík sem óskuðu mér
til hamingju þannig að það var
tekið eftir þessu heima," svaraði
Þorsteinn. Að sögn Þorsteins eru
allir strákar á Grenivík í fótbolta
enda lítið annað við að vera. Þó
er aðstaða til æfinga ekki sem
best að hans mati og á vetuma
fara æfingar fram í danssai þar
sem súlurnar skaga fram á gólfið.
Knattspyrnukóngur Grenvíkinga
undi hag sínum vel á Laugarvatni,
hann sagði strákana vera
skemmtilega og mun meira spil
væri i knattspyrnunni sem þeir
spiluðu en hann ætti að venjast.