Morgunblaðið - 07.09.1986, Page 63
MOBGUNBLASH), SUNNUDAGUR-7,, SgRTEMBER lðS6
UMSJÓN/Vilmar Pétursson
Þegar unglingalandsiiðið, drengjalandsliðið og strákamir sem voru í knattspyrnuskólanum, hittust ailir á
Laugarvatni, voru þar samankomnir um 60 af efnilegustu knattspyrnumönnum þjóðarinnar.
stuttur fundur þar sem farið var
yfir dagskrá komandi dags. Tvær
aefingar voru á hverjum degi, önn-
ur í einn og hálfan tíma en hin í
tvo. Auk þessa voru töfluæfingar,
farið í gufu og sund, kvöldvökur
og dálítið kjaftað inná herbergjum
til að ná upp liðsandanum.
Auk alls þessa komu í heimsókn
ýmsir aðilar og fræddu strákana
um ýmislegt sem er gott fyrir fót-
boltamenm að vita. Einn þessara
manna var Jón Gíslason matvæla-
fræðingur og sagði hann meðal
annars að mikið hamborgara- og
sælgætisát auk hemjulausrar gos-
drykkjadrykkju væri ekki mjög
heppileg fyrir þá sem ætluðu sér
að ná langt sem knattspyrnumenn.
Skipti engum togum að sala á öll-
um slíkum varningi datt niður í
kaupfélaginu á Laugarvatni en
þess í stað seldust rófur, agúrkur
og annaö grænmeti upp á auga-
bragði. Strákar sem aldrei höfðu
fengist til að boröa kartöflur fóru
nú að taka sér tvær frekar en eina.
Að sögn Lárusar Loftssonar
yfirþjálfara knattspyrnuskólans,
sem manna best þekkir til ungl-
ingaknattspyrnu á íslandi sfðasta
áratug eöa lengur, sagðist einmitt
hafa orðið var við mikla breytingu
til hins verra í mataræði drengja á
síðustu árum. „í dag er ég senni-
lega með stráka sem eru leiknari
og fara betur með bolta en strákar
gerðu almennt hér áður en þeir
eru líkamlega veikbyggðari og ekki
eins hraustir," sagði Lárus. Þetta
taldi Lárus vera það alvarlegt mál
að KSÍ þyrfti að taka á málinu og
taka mataræði inní sem hluta af
uppbyggingu strákanna.
Aðrir fyrirlesarar voru þeir Sig-
urjón Sigurðsson íþróttalæknir
sem fræddi strákana um íþrótta-
meiðsl og Guðmundur Haraldsson
sem talaði um dómgæslu og sam-
skipti dómara við leikmenn.
Drengja- og unglinga-
landsliðin mœttu líka
Fjórða flokks strákarnir voru
ekki eini hópurinn sem dvaldist á
Laugarvatni þessa viku á vegum
KSÍ því drengja- og unglingalands-
liðið dvöldu þar hálfa vikuna hvort
lið. Bæði eiga þessi lið erfiða og
spennandi leiki fyrir höndum í Evr-
ópukeppnum og var dvöl þeirra á
Laugarvatni liður í undirbúningi
fyrir þá leiki.
Drengjalandsliðið á að leika við
Austur-Þjóðverja þann 4. október
hér heima en 28. okt. úti og skera
þeir leikir úr um hvaða lið fer í
úrslitakeppni Evrópumótsins.
Unglingalandsliðið á leiki gegn
Póllandi, Danmörku og Belgíu fyrir
höndum næsta vor og munu þeir
æfa stíft í vetur fyrir þá leiki. Að
sögn Lárusar Loftssonar þjálfara
er mjög mikilvægt að þessir dreng-
ir sem skipa landsliðin hittist oft.
Bæði væri það vegna þess að liðin
tækju miklum framförum í æfinga-
búðum sem þessum og eins væri
mikilvægt fyrir leikmenn sem
kannski eru áberandi bestir í sínu
félagi að æfa með leikmönnum
sem eru svipaðir eða betri að getu
en þeir sjálfir til að ná nægum
þroska í íþróttinni.
Auk Lárusar sáu Sigfried Held
landsliðsþjálfari, Atli Helgason og
Guðmundur Helgason um þjálfun
strákanna og er markmið starfs
þeirra að byggja upp samhæfða
landsliðsstefnu fyrir öll landslið
íslands þannig að uppúr unglinga-
landsliðunum komi piltar sem eru
tilbúnir að ganga inn í A-landsliðiö
og það leikskipulag sem þar er
þegar að þeim kemur að taka við.
ArnarGrétarsson:
Maður fær
minni tíma
EINN piltur sem tók þátt í Knatt-
spyrnuskóla KSÍ hafði þá reynslu
fram yfir félaga sína að hafa ver-
ið valinn í 18 manna hóp sem
æfði fyrír Norðuríandamót
drengjalandsliða í sumar. Þetta
er Arnar Grétarsson UBK og var
hann spurður hvort hann fyndi
einhvern mun á knattspyrnunni
hjá þessum tveimur hópum.
Já, hjá drengjalandsliðinu er
tekið meira á og maður fær minni
tíma þannig að maður verður að
vera fljótari að skila boltanum frá
sér," svaraði Arnar. „Allir sem eru
hérna á Knattspyrnuskólanum
ætla sér náttúrlega að reyna að
komast í drengjalandsliðið næsta
sumar og ég er engin undantekn-
ing og úr þessum hópi ætti að
vera hægt að mynda góðan
kjarna," bætti hann við.
Þrátt fyrir að vera með þessa
reynslu fram yfir félaga sína taldi
Arnar að hann hefði haft mikið
gagn af dvöl sinni í Knattspyrnu-
skólanum. „Allir strákarnir hérna
eru mjög góðir og að spila með
svona leikmönnum hefur góð áhrif
á mann," sagði Arnar að lokum.
Verðum að æfa sjálfir fvetur
— sögðu Kristófer og Jóhann
Bjóst ekki við
að verða valinn
— sagði Kjartan Gunnarsson
ÍSFIRÐINGURINN Kristófer Sig-
Urgeirsson og Eskfirðingurinn
Jóhann Harðarson voru senni-
lega einna lengst að komnir á
Knattspyrnuskólanum og voru
þeir inntir eftir verunni þar.
„Þetta er búið að vera dálítið
strangt, tvær æfingar á dag, þann-
ig að maður hefur verið þreyttur á
kvöldin. Sigi Held var með æfing-
una í morgun og lagði mikla
áherslu á æfingar með bolta. Hér
er leikin mun betri knattspyrna en
við eigum að venjast og við höfum
lært mikið um hvernig á að lesa
leikinn og hreyfingar án bolta en
Lárus þjálfari leggur mikla áherslu
á þessi atriði," svöruðu þeir.
Um möguleika sína á að komast
í 16 manna drengjalandsliðshóp
sögðu þeir að það hefðist ekki
átakalaust og þeir þyrftu að leggja
hart að sér. „Æfingar hjá félögum
okkar byrja ekki aftur fyrr en eftir
áramót og strákarnir í bænum æfa
miklu meira þannig að maður verð-
ur að æfa sjáifur í vetur til að eiga
möguleika," sögðu Kristófer og
Jóhann að lokum.
hef lært mikið um leikskipulag,
uppstillingar, hlaup án bolta o.fl.,“
sagði Kjartan þegar hann var befi-
inn að bera saman það sem fram
fór í Knattspyrnuskólanum og þaö
sem hann væri vanur.
Kjartan var ánægður með þá
fyrirlesara sem höfðu komið og
frætt strákana og sagði að sér
hefði komið á óvart upplýsingar
næringarfræðingsins um hve mat-
aræðið skipti miklu máli fyrir
knattspyrnumenn.
Selfyssingurinn Kjartan Gunn-
arsson var sá eini úr sinni
heimabyggfi sem tók þátt í Knatt-
spyrnuskóla KSÍ á Laugarvatni
og sagðist hann vera mjög
ánægfiur mefi afi hafa fengifi
tækifærí til afi taka þátt í þessu
ævintýri þvf hann hefði alls ekki
búist vifi afi hann yrfii til þess
valinn.
Morgunblaðið/VIP
Krístófer og Jóhann voru ánægfiir mefi dvfilina á Laugarvatni.
„Strákarnir hérna eru betri leik-
menn, æfingarnar öðrvísi og ég
____________________63
Júgóslavía:
Hneykslast
á Gaddafi
Bclgrad, AP.
RÍKISFJÖLMIÐLAR í Júgó-
slaviu, einni stofnþjóða Samtaka
óháðra ríkja, fóru sl. föstudag
hörðum orðum um Moammar
Gaddafi, Líbýuleiðtoga. Sögðu
þeir að honum hefði tekist að
gera samtökin að athlægi í aug-
um umheimsins.
Tito heitinn Júgóslavíuforseti og
ieiðtogar Egypta og Indveija stofn-
uðu á sínum tíma Samtök óháðra
ríkja og hlutleysið er einn af hym-
ingarsteinunum í utanríkisstefnu
Júgóslava. Hingað til hefur það
ekki verið venja þeirra að hallmæla'
Gaddafi en ræðunni sem hann flutti
á þingi Samtaka óháðra ríkja í
Harare í Zimbabwe, geta þeir ekki
kyngt orðalaust.
„Gaddafi virtist halda, að hann
væri þátttakandi í tvísýnum knatt-
spyrnuleik en ekki á fundi stærstu
stjómmálasamtaka í heimi," sagði
í Belgraðblaðinu Vecernje Novosti
og „Uppákoma ofurstans" va_r fyrir-
sögnin í Politika Ekspres. í ræðu
sinni óð Gaddafí úr einu í annað
og sagði m.a. um Samtök óháðra
ríkja, að þau væm „mistök", sem
hann ætlaði að segja skilið við.
Ítalía:
Stefnt að
3% hagvexti
Rómaborg, AP.
STJÓRNIN á Ítalíu, sem er sam-
steypustjórn fimm flokka,
samþykkti sl. fimmtudag fjár-
hagsáætlun, þar sem greint er
frá markmiðum hennar í efna-
hagsmálum, þar á meðal minni
halla á ríkisrekstrinum og
minnkandi verðbólgu. Áætlun
þessi verður lögð fram 9. sept-
ember við upphaf fjárlagaum-
ræðunnar.
Markmið stjómarinnar er að
koma verðbólgunni í landinu niður
fyrir 4% á næsta ári, en hún er nú
5,9% á ári. Þá gerir stjórnin sér
vonir um, að hagvöxtur á næsta
ári verði ekki minni en 3%.
í fjárhagsáætluninni em enn-
fremur lögð fram drög að fjárlögum
fyrir næsta ár, sem þjóðþingið verð-
ur að samþykkja fyrir árslok. Gert
er þó ráð fyrir, að vemlegar breyt-
ingar verði þar á í meðferð þingsins.
Filippseyjar:
Gruna Enrile
um græsku
Manila, Filippsejjum, AP.
EINN af ráðherrum ríkisstjóm-
arinnar á Filippseyjum hefur
sakað Juan Ponce Enrile, varnar-
málaráðherra, um að reyna að
spilla fyrir friðarsamningiun við
skæruliða kommúnista. Hvatti
hann Enrile til að segja af sér
ef hann gæti ekki stutt stefnu
Corazon Áquino.
Aquilino Pimentel, sveitar-
stjómaráðherra, sagði í gær á
blaðamannafundi, að Enrile hefði
reynt að leggja stein í götu viðræðn-
anna milii skæmliða og stjómvalda
með því að saka skæruliða stöðugt
um tvöfeldni og óheiðarleika. Skor-
aði hann á Enrile að segja af sér
ef hann gæti ekki stutt Corazon
Aquino.
Enrile, vamarmálaráðherra,
dregur enga dul á, að hann vilji
ekki semja við skæmliða, og marg-
ir samráðherrar hans gmna hann
um græsku. Enrile átti einnig sæti
í stjóm Marcosar.