Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 15
dnet ÍEJSM3T«138 (? HIÍ3AOTJIQIH4 ÍÍIÖA_J3M?ÍOflOM MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 Fjöregg í höllinni Haustfagnaður mikill verður haldinn í Laugardalshöll næstkom- andi föstudag, 12. september, á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Verður þar hinu fræga fjöreggi kastað á loft og því haldið á lofti allt kvöldið. Þeir sem sjá um að halda flöregginu á lofti eru, fyrst til að nefna, hin ástsæla hljómsveit Stuðmenn. Þetta verða með allra síðustu tónleikum þeirra á þessu ári, en við tekur hjá þeim upptökur fyrir næstu breiðskífu þeirra. Skriðjöklarnir mæta líka frá Akureyri í sína aðra opinberu heim- sókn, en þeir hafa sem kunnugt er haldið miklu fjöreggi á lofti milli sín og vinsældalista þessa lands. Sykurmolarnir er ný hljómsveit með þekktu tónlistarfólki innan borðs og spilar molafólk eldhresst rokk. Til að halda dampi mæta þeir fóstbræður Langi Seli & Stutti Kommi og kyija nokkur búggí- vúggí lög og viðlög. Kórónan verður svo bókmennta- fræðingurinn og húmanistinn Leoncie Martin sem verður sér- stakur gestur kvöldsins. Hún mun stíga léttklæddan dans undir eigin undirleik og söng. Auk þess munu Sniglar sjást á vappi og jafnvel taka lagið síðar um kvöldið. Óvæntir kynnar munu sjá um að kynna dagskrá kvöldsins. Af ofangreindri dagskrá má sjá að stórt er Fjöreggið. Verður því ekki úr vegi að mæta í Höllina og rifja upp skólaljóðin og fleiri þekkta slagara við eggjandi undirleik og breytast í fjörmenni í eina kvöld- stund eða svo, áður en vetur konungur gengur í garð. Fjöregg í Höllinni hefst klukk- an 21.00 og stendur til 01.00. Miðaverð er krónur 500. Metsölublað á hverjum degi! Skattkerfisbylting í Bandaríkj unum eftir Birgi ísl. Gunnarsson Að undanförnu hefur mikið verið ritað í erlend blöð um nýjar tekju- skattsreglur í Bandaríkjunum og menn ganga svo langt að tala um byltingu í skattalögum. Þann 16. ágúst sl. afgreiddi sameiginleg nefnd Öldungadeildar og Fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings frumvarp um ný skattalög, sem talið er næsta víst að báðar þingdeildir muni síðan samþykkja og forsetinn undirrita. Skattar einstaklinga En hvað fela þessar nýju reglur í sér? Megineinkenni þeirra er að allar skattareglur eru gerðar mun einfaldari. Samkvæmt eldri reglum eru skattstigar á einstaklinga 15 að tölu á bilinu frá 11%—50%. Sam- kvæmt nýju reglunum verða skatt- stigarnir 2, 15% og 28%. Skattar hátekjumanna geta þó farið upp í 33%. Rétt er að geta þess að ein- stök ríki hafa einnig tekjuskatt, sem er mismunandi eftir ríkjum og er hann frá 0% upp í 10%, sem bætist þá við alríkisskattinn. Talið er að ljórir af hveijum fimm skattgreið- endum muni greiða skatta eftir lægri skattstiganum. Áður en skatt- ur er lagður á fá menn persónufrá- drátt. Á móti þessari lækkun skattstig- ans eru afnumdar ýmsar frádráttar- heimildir, en þeim hefur fjölgað undanfarin ár. Þó er áfram heimilt að draga frá tekjum, áður en skatt- ar eru íagðir á, skatt þann sem greiddur er til einstakra ríkja og sveitarfélaga, vexti af veðlánum vegna fyrsta og annars heimilis og lækniskostnað, sem fer fram yfír 7,5% af tekjum. Ýmsar aðrar frá- dráttarheimildir eru afnumdar sem fyrr segir og má þar nefna vexti, af öðrum lánum en til íbúðarhúsa- kaupa. Eignatekjur, t.d. vextir af skuldabréfum eða arður af hluta- bréfum eða söluhagnaður, verða skattlagðar eins og aðrar tekjur en voru áður með hámarksskattstiga, sem var 20%. Eins og fyrr segir er aðalkostur Birgir ísl. Gunnarsson „Hér á íslandi fer nú fram mikil umræða um nauðsyn þess að endur- skoða okkar skattalög rækilega. Sjáifstæðis- flokkurinn vill afnema tekjuskatt af almenn- um launatekjum“. þessara nýju tekjuskattsreglna vegna einstaklinga hin mikla ein- földun í öllu kerfinu og að þetta kerfi verður réttlátara en hið eldra, þar sem tekjumeiri einstaklingar eiga erfíðara með að komast hjá því að greiða skatt með því að nota sér ýmsar frádráttarheimildir. í heild er talið að skattbyrðin á ein- staklinga muni minnka og að um 6 milljón tekjulægri einstaklingar muni engan tekjuskatt greiða eftir breytinguna. Skattur fyrirtækja Skattreglum fyrirtækja er einnig breytt. Skattstiginn er lækkaður úr 46% af hagnaði í 34%. Á hinn bóginn eru afnumdar skattundan- þágur vegna nýrra fjárfestinga, afskriftarreglur eru hertar og settar eru skorður við frádráttarbærum risnukostnaði fyrirtækja. I heild er talið að skattbyrði á fyrirtæki muni þyngjast sem nemur því, er ein- staklingurinn fær í sinn hlut. Þess ber þó að geta að 34% tekjuskattur er ekki hár skattur, ef miðað er við ýmis Evrópulönd. Umræða í Evrópu Eins og fyrr segir fer nú fram mikil umræða í fjölmiðlum í Banda- ríkjunum um þessar nýju skattregl- ur og sýnist sitt hveijum eins og gengur og skal það ekki rakið frek- ar hér. Þessi umræða er einnig hafin í Evrópu og telja margir að Banda- ríkin hafi hér vísað veginn um nýtt skattkerfi, sem OECD-löndin verði að taka tillit til, ef þau eiga að geta keppt við Bandaríkin. Athygl- isverð eru þau ummæli í breska vikuritinu „The Eeonomist", að slíkt skattfrumvarp hefði aldrei náð svo langt að sjá dagsins ljós á borði ríkisstjórnarinnar í Bretlandi vegna þess að skriffinnarnir í breska fjár- málaráðuneytinu halda á pennan- um, þegar verið sé að setja ný skattalög og slíkar breytingar séu einfaldlega of róttækar fyrir þá. Bandaríkjamenn hafi farið aðra leið. Hinir kjörnu þingmenn hafí sjálfir sest niður fyrir opnum tjöld- um og samið nýtt skattafrumvarp og að sérfræðingar fjármálaráðu- neytisins hafi á hvetju stigi undir- búningsins haft sér til aðhalds þekkta prófessora og endurskoð- endur utan úr þjóðlífinu. Hér á Islandi fer nú fram mikil umræða um nauðsyn þess að endur- skoða okkar skattalög rækilega. Sjálfstæðisflokkurinn vill afnema tekjuskatt af almennum launatekj- um. Það er hins vegar nauðsynlegt að mínu mati að íslendingar kynni sér nú rækilega hið nýja skattkerfí í Bandaríkjunum og athugi hvort ekki megi eitthvað af því læra, sér- staklega ef það mætti verða til að gera skattkerfíð einfaldara og rétt- látara. HaustnámskeiÖin okkar hefjast 15. september nk. 3ja mánaða námskeiðin kosta: 2 sinnum í viku kr. 5.500 3 sinnum í viku kr. 7.000, Stúdíókort kr. 8.000, VIÐ KENNUM: JAZZ-MODERN-BALLET OG AEROBIK Mánaðarltort í aerobik kostar kr. 1.840, Dæmi: Jazz-modern-ballet 3 sinnum í viku Jazz-modern 3 sinnum í viku ^ Jazz-ballet 3 sinnum í viku Jazz 2 sinnum í vikn - Innritun hefst 8. sept.frá kl. 11—18 isíma 687801 og 687701. Sóley Jóhannsdóttir EINNIG HADEGIS- TÍMAR ÍAEROBIKAÐ OKKAR HÆTTI SÓLEYJAR Sigtúni 9, s: 687701 —687801 ’ Shirlene Alicia Blake
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.