Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 59
MOPGUNBLAflltl, EKHUUJjAQVjBpg, S^PT^gSR^.6 59 Kveðjuorð: Helgi Guðmunds- son frá Brekku Fæddur 22. október 1899 Dáinn 16. mars 1986 Einn af elstu og mætustu íbúum Mýrarhrepps í Vestur-ísafjarðar- sýslu, Helgi Guðmundsson frá Brekku á Ingjaldssandi, lést 16. mars sl. á Sjúkrahúsi Isafjarðar. Árið 1909 fluttist hann að Brekku með foreldrum sínum, Guðrúnu Magnúsdóttur og Guðmundi Ein- arssyni, refaskyttu, sem bæði voru borgfirskrar ættar. Helgi var elsta bam foreldra sinna, en þeim fædd- ust 17 böm ogaf þeim lifa nú 14. Frá níu ára aldri þekktumst við sem góðir nábúar, jafnaldrar, leik- bræður, saman alla tíð í bamaskóla. Fermingar- og ungmennafélags- bræður í UMF. Vorblómi á Ingj- aldssandi, alla ævi til hans hinsta dags. Enda var það svo, að á æsku- ámm treystum við hvor öðrum fyrir því sem inni bjó í huga, og með okkur var gott vinasamband. Hafði ég á þeim ámm stuðning af greind hans og bóklestri, en það gerði hann mikið alla ævi, að lesa góðar bækur og hlaut staðgóða þekkingu fyrir, á íslenskri sögu og máli og einnig hveiju því er fyrir bar í heimsmálunum, landafræði og stjómmálum. Helgi var sístarfandi, þótt hann hefði eigi fasta búsýslu. Fyrstu æskuárin vann hann með foreldmm sínum við búskap þeirra, en eins og flestir unglingar þeirra tíma leit- aði hann atvinnu á sjónum. Lengst vann hann við kúfiskveiðar að afla beitu handa öðmm sjómönnum. Traust hafði hann allra manna, sem þekktu hann fyrir iðni og góða umgengni við hvað eina sem hann tók að sér. Heima í UMF Vorblómi vann Helgi heils hugar hvert starf, var lengi leiðandi formaður þess og öt- ull til samvinnu í verkefnum félags- ins, svo sem byggingu félagsheimil- isins okkar, Vonalands, vegagerð fýrrum og garðrækt til öflunar bókasafni þess. Einnig hafði hann áhuga á skógrækt sýslunnar og Mýrarhrepps. I því skyni fór hann í skógræktarför til Noregs. Margar hugnæmar hugvekjur mælti hann fram til unga fólksins á félags- fundum og sendi margar góðar og athyglisverðar greinar í félagsblað- ið okkar, Ingjald. Styrkur var hann í bindindismálunum og vék eigi af ásetningsvegi sínum frá bemskuár- unum. Helgi lagði gjörva hönd á margt, var t.d. tólf ár í hreppsnefnd og álíka lengi eða lengur eftirlitsmaður hjá nautgripafélögum í Vestur- ísafjarðarsýslu við sýnatöku til að fylgjast með fitumagni mjólkur og nythæð kúa til skýrsluhalds, og um leið til að afla þekkingar um bestu kýrnar. Um miðjan aldur tekur hann að vinna við að byggja og mála íbúðarhús bænda og einnig að byggja fjárhús og votheyshlöður og fleira. Ástundunar og snyrtimennsku Helga vildu allir fá að njóta. I bændafélagi okkar Sandmanna, Einingu, vann hann með okkur og styrkti mestu fjárátök þess, jarðýtu- kaup. Safnaðarkirkju sinni og okkar, að Sæbóli, unni hann af góðhug og vann af miklum dugn- aði, var fyrstur til að koma og mála hana utan og innan, ásamt girðingunni umhverfis grafreit hennar. Þá var hann meðhjálpari í kirkjunni nokkur ár. Sömu sögu er að segja af hlut hans í aðstoð við félagsheimilið Vonaland í hverju sem var og þurfti. Ötull var Helgi og tillögugóður á fundum ungmennafélagshreyfing- arinnar, hvort heldur sem var heima eða UMF Vestfjarða. Til að njóta æskutryggðar sinnar við heima- byggð og til að gleðjast með börnum og fullorðnum, var hann viðstaddur allar jólatréssamkomur UMF Vor- blóms allt til 85 ára aldurs. Helgi gat fylgt glöðum áhuga sínum eft- ir, á hverjum tíma sem var, því hann var ekki fjölskvldumaður, giftist ekki og átti ekki börn. „Því miður,“ sagði ég oft við hann að gamni mínu á liðnum dögum. Vinn- an, bækurnar og myndavélin voru bömin hans. Herbergið í húsi Krist- jáns bróður hans að Brekku á Ingjaldssandi var heimili hans og yndi, þótt hann dveldi stund og stund hjá öðrum systkinum sínum og á heilsuhælum. Fyrrum dreymdi hann drauma um nám og lærdóm en varð eigi af. „Mest mínu eigin kjarkleysi að kenna,“ sagði hann við mig í síðustu samdvöl okkar á Heilsuhælinu í Hveragerði. Nú eru 77 ára síðan við byrjuðum að leika okkur saman og nú er hann farinn, og þótt ég eigi ef til vill enn eftir að líta yfir á bæjar- hólinn hans, frá Hrauninu á mót Brekku eins og fyrrum, sé ég hann ekki lengur. Hann er farinn, alfar- inn til hæða hans, sem sigurinn gefur. Vini mínum sendi ég kærar kveðjur og þakkir fyrir liðnu árin og alla vinsemdina við mig og heimabyggðina, og einnig allir heima. Fylgi honum friður Guðs og góður hugur góðra manna. Guðmundur Bernharðsson fráÁstúni. ísfirðingar gerðu sér glaðan dag á 200 ára afmæli sínu 18. ágúst, eins og fleiri. Hátíðarhöldin fóru fram á Silfurtorgi þar sem 1.000 til 1.200 manns skemmtu sér hið besta í blíðskapar- veðri. Stærsta útigrillveisla sem haldin hefur verið á ísafirði var síðdegis. 10 íjallalambaskrokkar voru grillaðir í heilu lagi og 1.500 pylsur. Nokkrir tugir lítra af appelsínusafa voru drukknir með. Um kvöldið skemmtu svo skemmtikraftar á torginu og að því loknu var flugeldasýning og dans stiginn að henni lokinni. Ljósmynd/Gfsli Úlfarsson Um kvöldið var margt til skemmtunar. Hér er það M.í.-kvartettinn sem lætur bæjarbúa njóta söng- hæfileika sinna, en kvartettinn skipa f.v. Heimir Jónatansson, Hjalti Karlsson, Baldur Hreinsson og Steinþór Kristjánsson. SVAR MITT eftir Billy Graham Ótti við dauðann Ég hef fram að þessu lifað áhyggjulausu lífi. En aldur- inn færist yfir mig og ég óttast dauðann meira og meira. Hvernig get ég sigrast á þessum ótta? Dauðinn er veruleiki sem enginn fær umflúið. Það er hörmulegt hversu við mennirnir notum langan tíma til alls konar undirbúnings, t.d. undir framtíðarstarf - og eyðum þó kannski ekki einu sinni fimm mínútum til að búa okkur undir mestu örlagastund okkar, er við deyjum. Við skjótum okkur undan því að hugsa um þetta í alvöru. Það er því gleðiefni að þú gerir þér grein fyrir þeirri staðreynd að þú átt líka að standa frammi fyrir dauðanum. Þú hefur fulla ástæðu til að óttast dauðann. En taktu nú vel eft- ir. Dauðinn er ekki endalokin, segir Biblían, heldur upphaf algjörlega nýrrar tilveru. Biblían kennir að allir menn munu halda áfram að lifa eftir dauðann. Við verðum ekkert spurðir um það. (Því er það, að sjálfsmorð leysir í rauninni engan vanda.) Allt er undir því kom- ið hvar við munum vera í eilífðinni. Annað hvort verðum við að eilífu hjá Guði eða í glötun fjarlæg Guði, ein og yfírgefin. Helvíti er veruleiki, og gildir einu þótt fólk hlægi að því eða noti það sem blótsyrði. Biblían segir að þar sé „glötun" (Matt. 7,13), „eldur“ (Matt. 13,50), „myrkrið fyrir utan“ (Matt. 22,13). Öll um- mæli Biblíunnar um þetta hníga í þá átt að þar sé hræðilegt að vera. Enginn ritningarstaður gefur neitt annað í skyn. En í fagnaðarerindinu segir, að þú getir frelsast og öðlast vissu um það að þú sért á leið til himins. Bam Guðs er ákvarðað til að fara til himins. Þú getur orðið barn Guðs fyrir trú á Jesúm Krist. Þú átt skilið vítisvist vegna synda þinna, en Jesús Kristur tók á sig refsing- una sem þú hefur unnið til, þegar hann dó á krossinum. „Því að Kristur leið líka einu sinni fyrir syndir, réttlátur fyrir rangláta, til þess að hann gæti leitt oss til Guðs“ (1. Pét. 3,18). Settu nú allt traust á hann, að hann sé drottinn þinn og frelsari. Bjóð honum að koma inn í líf þitt, og þú munt frelsast. Hann þráir að þú komir til sín. Hann hefur gert allt sem unnt er til að ryðja þér braut, ekki aðeins til þess að þú verðir hólpinn einhvem tíma í framtíðinni, heldur til þess að þú getir öðlast nýtt líf nú þegar. „Hver sem ákallar nafnið drottins mun hólpinn verða“ (Róm. 10,13). O O O O O ící$f- rsííd®^ a .. f et að *?£*»*** , k vW<"d/'a9 Bet» h'V , etu ¥®31 SVJW®S 3íuð''etV^ \e9at oa&íi Siðumúla32 Sími 38000 V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.