Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 25 Leysihnífur þessi var framleiddur af vísindamönnum við Bell rann- sóknarstofnunina. Með hinum hreyfanlega armi er auðvelt að leiða geislann að þeim stað sem á að skera í. leiðari innan sjónpípunnar leiðir ljós inn í líkamann og lýsir upp þann hluta sem á að athuga en annar Ijósleiðari leiðir myndina til baka til læknisins. Á þennan hátt er hægt að greina sjúklegar breyting- ar á innri líffærum. Ef mögulegt er að meðhöndla greindan sjúkdóm með leysi er hægt að festa leysitæk- ið við jdri enda sjónpípunnar og læknirinn getur tekið sjúklinginn til meðferðar án þess að fram- kvæma skurðaðgerð. Miklar vonir eru bundnar við notkun leysigeisla til meðhöndlunar á blæðandi magasárum. Slík sár geta verið erfið viðureignar og ár- angur hefðbundinna aðferða er iðulega ekki nema í meðallagi góð- ur. Hægt er að brenna slíkt sár og stöðva blæðingu með leysigeisla sem ferðast eftir ljósleiðara sem þræddur hefur verið ofan í maga sjúklingsins. Það er trú margra að með aukinni reynslu og frekari þró- un þessarar aðferðar komi hún til með að skila betri árangri í með- ferð á blæðingum í maga og meltingarfærum. Það er augljós kostur við þessa aðferð að ekki þarf að „opna“ sjúklinginn og leggja á hann óþægindi sem slíkri aðferð fylgja. Krabbameins- lækningar Um nokkurra ára skeið hafa ley- sigeislar verið notaðir til meðhöndl- unar ákveðinna tegunda krabbameins. Er hér um að ræða hvoru tveggja, tilraun til lækningar á sjúkdómum eða mildun á óþæg- indum af hans völdum. Vitað er að leysigeislar geta á árangursríkan hátt grandað krabbameinsfrumum í þvag- blöðrunni. Engin sönnun er þó fyrir því að leysimeðhöndlun blöðru- krabba gefi betri árangur en hefðbundnar aðferðir handlæknis- fræðinnar. Einungis margra ára samanburður getur skorið úr um það hvor aðferðin er betri. Hjá sjúklingum með lungna- krabbamein getur það gerst að æxli loka fyrir eðlilegt flæði lofts til lunguanna, en slíkt hefur veruleg óþægindi í för með sér. Leysigeislar hafa verið notaðir á árangursríkan hátt til að eyða slíkum æxlum. Hægt er þannig að minnka vanlíðan sjúklingsins og stytta dvöl hans á ■j----------------------— sjúkrahúsum. Krabbamein í briskirtli er iðulega mjög iilt og erfitt viðureignar. Skurðaðgerðir til að fjarlægja mein- semdina eru umfangsmiklar og áhættusamar fyrir sjúklinginn. Vonir standa til að einhvem tíma geti reynst mögulegt að meðhöndla þennan sjúkdóm án skurðaðgerðar með því að þræða nál með ljósleið- ara, sem leysigeisli verður leiddur eftir inn í briskirtilinn. Leysirinn getur með staðbundinni hitavirkni grandað krabbameinsfrumum eða „Ijósörvað" meðul sem safnast hafa fyrir í líffærinu. Niðurstöður Enn sem komið er hefur notkun leysis í læknisfræðinni engan veg- inn valdið byltingarkenndum breyt- ingum og einungis í fáum tilfellum hefur hún sýnt óyggjandi yfírburði fram yfir hefðbundnar aðferðir. Til þess að leysilækningar geti öðlast almenna viðurkenningu og út- breiðslu þarf að þróa þær til það mikillar fullkomnunar að augljóst sé að notkun þeirra sé til hagsbóta fýrir sjúklinga, lækna og fjárveit- ingaraðila. Uppsetning leysitækja til lækn- inga er dýr og því er mikilvægt að þau nýtist sem best. I þessum til- gangi hefur uppsetningu tækjanna verið hagað á þann hátt að þau nýtist sem flestum og það jafnvel vísindamönnum sem ekki starfa beint að lækningu sjúklinga. Slíkt leiðir ekki einungis til hámarks nýtingar í mældum vinnustundum, heldur leiðir til árangursríkrar sam- vinnu fræðimanna á mismunandi sviðum, en slíkt er algjör forsenda þess að góður árangur náist á jafn flóknu og umfangsmiklu sviði sem notkun leysis til lækninga er. Nýlega hefur nokkuð verið rætt um notkun leysigeisla til skurðað- gerða á einstökum frumum og erfðaefni þeirra. Hægt er að beina leysigeisla að ótrúlega litlum bletti, sem í stærð samsvarar ekki nema hálfri bylgjulengd geislans. Ef not- ast er við stuttbylgjuleysi er því ekki útilokað að hægt sé að „gera að“ einstökum genum krómó- sómanna. Takist slíkt, mun lækna- vísindunum opnast nýjar mögulegar leiðir til að leiðrétta ýmsa erfða- galla sem enn hefur ekki tekist að lækna né fyrirbyggja. Til ungra myndlistarmanna 35 ára og yngri í tilefni af 20 ára afmæli IBM á íslandi, hyggst fyrirtækið standa fyrir sýningu á verkum ungra myndlistarmanna, 35 ára og yngri. Yfirskrift sýningarinnar er „Áhrif tölvuvæðingar í 20 ár“. I tengslum við sýninguna hyggst fyrirtækið veita verðlaun einum listamanni að upphæð kr. 100.000,- og jafnframt áskilja sér rétt til kaupa á sýningarverkum. Ætlast er til að send séu inn ekki færri en þrjú verk eftir hvern listamann og geta þau verið úr hvaða listgrein sem er innan myndlistar- innar. Miðað er við að verkunum sé skilað inn fyrir 10. janúar 1987 til IBM, Skaftahlíð 24. Sýningarnefnd skipa: Gunnar M. Hansson forstjóri, formaður Daði Guðbjörnsson, myndlistarmaður Einar Hákonarson, listmálari Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Halldór B. Runólfsson, listfræðingur SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVÍK SÍMI 27700 MEGRUN AN MÆÐU EÐLILEG LEIÐ TIL MEGRUNAR NYTT NYTT NYTT NYTT TREFJAB/ETT FIRMALOSS Kemur I stað máltlöar/máltlöa. Útilokar megrunarþreytu, þar eö næg vltamln, steinefni og prótein fyrir þarfir llkamans eru I FIRMALOSS. Fullgild, seójandi og ófitandi næring. Þúsundir íslendinga og milljónir manna um allan heim hafa nú sannreynt gildi FIRMALOSS grenningarduftsins i baráttunni við aukakilóin. Flrmaloss er náttúrulegt efni sem neytt er I stað venjulegrar máltlðar. Þvl er t.d. blandaö I léttmjólk, undanrennu eða ávaxtasafa og útkoman er frábær drykkur sem ekki er bara saðsamur — heldur inniheldur hann öll þau vltamln,steinefni og eggjahvltuefnl sem llkamlnn þarfnast, einmitt það útilokar megrunarþreytu á tlmabilinu. Firmaloss pakkinn inniheldur 20 skammta ásamt Islenskum lelðbeiningabæklingi um skynsamlega megrunaráætlun. Pakklnn kostar 495 kr.,eöa aðelns 24,75 kr. I hverja máltlö. Útsölustaölr: Apótek, heilsuræktarstöövar, sólbaðsstofur, Iþróttavöruverslanir eða samvæmt pöntunarseðli Ég vil gjanan fá eftirfarandi vöru heimsenda i pöstkröfu: D Firmaloss:........................pakka á 495 kr. stk. Nafn_____________________________________________________ Helmili ________ Póstnr./staður . wm If f f fji / "Ég þakka \ ' ' ' *f) ■ FIRMALOSS grennlngarduftinu mMilim að ég get haldiö mér » Mv}i í I J 1 I grannri og hraustri jjj én fyrirhafnar." Marcia Goebel. (Sendingarkostnaöur er ekki innlfallnn I verói.) NÓATÚN 17, sími: 19900 „Okkur er annt um heilsu þína“ AROUS/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.