Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 32
m
MORGUNBLABH); -ÞRIÐJUDA6UR ■». ;SEPTEMBER 1986
Sprengmg í ráð-
húsinu 1
París, AP.
SPRENGJA sprakk í ráðhúsi
Parísarborgar í gaír. Að minnsta
kosti einn maður lét lífið en ekki
er vitað hversu margir særðust.
Enn hefur enginn lýst ábyrgðinni
á hendur sér.
Jean Paolin, yfírmaður lögregl-
unnar í París, sagði að sprengjunni
hefði verið komið fyrir undir bekk
í f)ósthúsi byggingarinnar. I til-
kynningu frá slökkviliðinu sagði að
þrír væru alvarlega særðir og að
minnsta kosti tólf hefðu hlotið
minniháttar meiðsli.
Hálfri klukkstund áður en
París
sprengjan sprakk höfðu 11 kúrdar,
sem tekið höfðu skrifstofu írakska
flugfélagsins á sitt vald, gefíst upp.
Franska ríkisstjórnin gaf í
síðustu viku skipun um hertar ör-
yggisaðgerðir vegna sprengjuhót-
ana frá samtökum, sem beijast fyrir
frelsi þriggja hermdarverkamanna,
sem sitja í fangelsi í Frakklandi.
Orðrómur var á kreiki um að ríkis-
stjómin hygðist láta einn mannanna
lausan til að flýta fyrir frelsun
franskra gísla í Líbanon. Sagt er
að Bandaríkjastjóm hafi lagst ein-
dregið gegn þessari hugmynd.
Njósnahnett-
ir í einkaeign
Enn stækkar einkageirinn
UNDANFARNA áratugi hafa
njósnagervihnettir stórveldanna
sveimað umhverfis jörðu ogtekið
myndir af hveiju því sem vekur
áhuga eigenda þeirra. Fáu er
hægt að leyna, því bæði eru tekn-
ar myndir á ýmsum bylgjulengd-
um ljóssins og hitamyndir, svo
ský og myrkur skýla litlu. Til
þessa hefur ávallt hvílt mikil
leynd yfir hnöttunum og vitn-
eskja almennings byggð á
getgátum. En nú eru gervihnett-
ir í einkaeign famir að skyggn-
ast um hnattkúluna og einokun
stórveldanna á upplýsingum af
þessu tagi virðist lokið.
Tæknin sem liggur að baki þessa
hefur verið í einkaeign frá 1972,
en þá bárust myndir frá fyrsta
Landsat-gervihnettinum, en hann
er í bandarískri eigu. Þær myndir
voru þó nær einungis notaðar í
vísindaþágu, en ákvörðun banda-
rískra stjómvalda um að koma
Landsat í einkaeigu og tilkoma
franska gervihnattarins SPOT em
að breyta þessu.
Mark Brender, sem er frétta-
stjóri hjá bandarísku sjónvarpsstöð-
inni ABC, er sannfærður um að
þetta muni breyta miklu í frétta-
flutningi og Paul Stares, fræðimað-
ur á sviði hernaðargildis geimsins,
segir, að gervihnattanjósnir einka-
aðila muni breyta miklu á næstu
ámm. „Fjölmiðlar eiga eftir að ve-
fengja stjórnvöld meira en áður.
Þeir munu geta tekið gervihnattar-
myndir af meintum brotum á
vígbúnaðarsamningum og fengið
sjálfstæða sérfræðinga til þess að
meta þær og segja til um hvort þar
V estur-Þýskaland:
sé um brot að ræða eða ekki.“
Sem fyrr segir hafa Landsat-
hnettimir aðallega verið notaðir í
vísindaskyni, en oiíufélög, skógar-
höggsfyrirtæki, iandbúnaðarfyrir-
tæki og fleiri hafa nýtt sér þjónustu
hnattarins.
Gervihnettirnir, sem sveima í um
800 km hæð yfir jörðu, komust í
sviðsljósið í vor, þegar fyrstu gervi-
hnattarmyndirnar af slysinu í
Chemobyl komu frá þeim og sáust
þá rústir versins og sviðin jörðin í
kring í fyrsta skipti.
Hinn 25. ágúst var birt gervi-
hnattarmynd í New York Times,
sem sýndi Baikonur-geimferðastöð-
ina í Mið-Asíu og kom fram á
myndinni að verið er að bæta við
hana svo skjóta megi geimskutlu á
loft þaðan. Þá má minnast á gervi-
hnattarmyndir þær sem birtar hafa
verið af hemaðamppbyggingunni á
Kola-skaga, en Morgunblaðið birti
þær fyrir skemmstu.
Myndir af þessu tagi hafa til
þessa einungis legið á borðum í
Washington og Kreml, en kunnugir
segja að njósnahnettir stórveldanna
geti greint bílnúmer.
Lagasetningin árið 1984, sem
leyfði sölu Landsat 4 og 5 til „Earth
Observation Satellite Co.“, kvað á
um að Ijósmyndir hnattarins skyldu
standa hvetjum sem væri til boða,
svo framarlega sem greitt væri fyr-
ir þær. EOSAT er fyrirtæki í eigu
flugvélaframleiðandans Hughes og
íjölmiðlafyrirtækisins RCA.
Þessi tækni, sem nú stendur al-
menningi til boða, gerir fjölmiðlum
kleift að sannreyna óstaðfestar
fregnir og hrekja ósannindi ríkis-
stjóma, sem starfa af óheilindum
og aðhyllast ieyndarhyggju.
AP/Símamynd
Neeija Mishra, indversk flugfreyja í Pan Am-þotunni, var meðal þeirra, sem féllu fyrir kúlum hryðju-
verkamannanna. Hér liggur lík hennar í flugstöðinni í Karachi en hún var grafin í gær í heimaborg
sinni, Bombay, með mikilli viðhöfn. Mishra hefði orðið 23 ára sl. sunnudag.
Hryðjuverkið í Pakistan:
Flest fórnarlömbin
voru frá Indlandi
Karachi, Frankfurt, AP.
YFIRHEYRSLUR fara nú fram
yfir Palestínumönnunum fjórum
sem myrtu 18 manns um borð í
bandarískri þotu á flugvellinum
í Karachi í Pakistan. 100 manns
særðust og enn er einn farþeg-
anna þungt haldinn.
Yfírheyrslur yfir þremur hryðju-
verkamannanna fara fram í herstöð
skammt frá Karachi en sá fjórði er
í sjúkrahúsi vegna sára sem hann
fékk þegar pakistanskir öryggis-
verðir réðust inn í vélina. Pakistan-
skir embættismenn sögðu í gær að
ef hryðjuverkamennimir reyndust
sannir að sök biði þeirra ekkert
nema dauðinn.
Þeir sem létust í flugvélinni vom
af þrennu þjóðemi a.m.k., 13 Ind-
veijar, tveir Bandaríkjamenn, tveir
Pakistanar og lítið bam en um þjóð-
emi þess var ekki vitað.
Eins og sagt hefur verið frá í
fréttum komust flugstjórar Pan
Am-þotunnar á brott úr vélinni eft-
ir að hryðjuverkamennimir höfðu
náð henni á sitt vald og hefur flótti
þeirra sætt nokkurri gagnrýni.
Segja sumir að sú gamla regla eigi
að gilda að skipsijórinn eða fiug-
stjórinn verði ávallt síðastur til að
yfirgefa fleyið en aðrir telja flug-
mennina hafa farið rétt að. Á
blaðamannafundi í New York í gær
sagði Martin R. Shugrue, varafor-
seti Pan Am, að flugmennimir
hefðu hagað sér í samræmi við
stefnu flugfélagsins í svona málum.
„Þeim bar að tryggja að ekki væri
hægt að fljúga flugvélinni," sagði
Shugrue.
Fjölskylda
flýr að austan
Lttbeck, Vestur-Þýskalandi, AP.
AUSTUR-þýsk fjölskylda, hjón
og tvö börn þeirra, komst á föstu-
dag heilu og höldnu yfir til
Vestur-Þýskalands. Synti fólkið
yfir á á landamærunum eftir að
hafa komist óséð framhjá vopn-
uðum vörðum við „einskis manns
Iandið“.
Vestur-þýskir landamæraverðir í
Lubeck segja, að austur-þýska fjöl-
skyldan hafí klifrað yfir girðingam-
ar austan megin í skjóli myrkurs
og komist yfir þær án þess að verð-
imir tækju eftir. Síðan hefði fólkið
synt yfir Wakenitz-ána á landa-
mærunum. Þá tókst einnig austur-
þýskum karlmanni að flýja yfir til
Vestur-Berlínar með því að synda
yfir Sakower-vatnið.
Talsmaður vestur-þýsku stjóm-
arinnar skýrði frá því í gær, að
austur-þýskur efnafræðingur,
Hasso Meinert að nafni, hefði flúið
vestur. Notaði hann tækifærið þeg-
ar hann fékk að sækja vísindaráð-
stefnu í París fyrir nokkmm dögum.
Kína:
Tregir að leggja fé í
Kjósa frekar að sofa á sparifénu
ÞRÁTT FYRIR ítrekaðar tilraunir kínverskra stjórnvalda til þess
að færa efnahagskerfið í vestrænna horf ætlar það að ganga
erfiðlega. Til dæmis virðist meðal-Kínveijinn lítt treysta bönkum
landsins. Samkvæmt könnun, sem gerð var af blaðinu Economic
Information eru u.þ.b. 20 milljarðar júana (216 milljarðar ísl.
króna skv. opinberri gengisskráningu) geymdir á einkaheimilum
i Kína. 1 Kína eru skráðar um 12 milljónir fjölskyldufyrirtækja,
en aðeins 6% þeirra eiga bankareikninga og í þeim eru aðeins
um 500 milljónir júana.
Aðalástæða þessa virðist vera
sú að Kínveijar eru ekki vissir
um að efnahagsúrbætur Dengs
vari um alla eilífð. Er það síst
undarlegt þegar litið er til þess
pólitíska hringlandaháttar sem
gætt hefur í Kína þau 37 ár sem
liðin em frá byltingunni. Þrátt
fyrir margendurtekin loforð
Dengs og félaga um að breyting-
amar séu varanlegar, þá líður
flestum Kínveijum betur viti þeir
af sparifé sínu í dýnunni, frekar
en í bankanum. Jafnvel þó að
sparifjáreigendum sé lofað tals-
verðum vöxtum virðist það ekki
duga. „Þeir óttast að ef ríkis-
stjómin ákveði að ráðast gegn
kapítalismanum að nýju verði
innistæður þeirri frystar eða gerð-
ar upptækar," segir blaðamaður
Economical Information.
Fleiri ástæður liggja að baki,
t.d. er auðveldara að komast hjá
skattgreiðslum ef hvergi er hægt
að fá upplýsingar um sparifé.
Skattakerfí Kína er mjög flókið
og breytist oftar en tölu á festir,
því er erfitt að áfellast menn fyr-
ir að reyna að komast hjá skattá-
lögum. Auk þess virðast
embættismenn kínversku skatt-
stofunnar ekki ábyrgir gagnvart
neinum nema sjálfum sér og um
margt svipaðir tollheimtumönnum
Nýja-testamentisins.
Með því að geyma fjármunina
heima komast Kínveijar líka hjá
því að fara í bankann, sem er
musteri kínverskrar skriffinnsku.
I öllum bönkum eru langar raðir
viðskiptavina, sem bíða þess eins
að komast í tæri við skrifkerana,
banka
svo hægt sé að leggja fram beiðni
um að fá að taka út eigin peninga.
Stjómvöld hófu útgáfu banka-
ávísana og ferðatékka í Shanghai
fyrir tveimur árum og notkun
þeirra hefur breiðst út til fleiri
stórborga. Kínverskir verslana-
eigendur neita þó oft að taka við
ávísunum og krefjast beinharðra
peninga. Ávísanir gefnar út af
einstaklingum yrðu líklega jafn
gagnslausar, jafnvel þó svo að
fólk fengist til þess að legga fé
sitt í banka. Embættismaður við
Kínverska alþýðubankann benti
t.a.m. á að í landi jafnstóru Kína
væri erfítt að ganga úr skugga
um hvort innistæða væri fyrir
ávísun eða ekki. Enn er því langt
í land með að efnahagsmál Kína
komist í frjálslegra horf.