Morgunblaðið - 09.09.1986, Page 49

Morgunblaðið - 09.09.1986, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 49 Bandaríkin munu ekki styðja ríki svörtu Afríku — verði gripið til refsiaðgerða geg-n Suður-Afríku Lundúnaborg, AP. HATTSETTUR bandarískur embættismaður sagðist á mið- vikudag efast um að Bandarikja- stjórn myndi aðstoða þau ríki i suðurhiuta Afríku, sem yrðu fyr- ir barðinu á refsiaðgerðum gegn Suður-Afríku yrði til þeirra grip- ið. Sem kunnugt er hafa mörg ríki svartra krafist efnahagslegra refsi- aðgerða gegn Suður-Afríku, en yfirvöld í Pretoríu hafa hótað að svara þeim í sömu mynt, þar sem Suður-Afríka er aðal viðskiptaland þeirra. Embættismaðurinn, sem ekki vilda láta nafns síns getið sagði m.a.: „Ég hef ekki orðið var við að mikils áhuga gæti meðal banda- rískra þingmanna, eða hins al- menna skattborgara, á því að Bandaríkin haldi uppi heilum heimshluta, vegna undarlegra efna- hagsráðstafana, sem leiðtogar svæðisins hafa] kallað yfir sig.“ Hann sagði Bandaríkjastjórn vænta meiri árangurs af eigin aðferðum, sem felast í því að beita þrýstingi án hótana. Embættismaðurinn sagði einnig að sór myndi ekki koma á óvart þó að bandarískir embættismenn kæmu til fundar við Oliver Tambo, forseta Afríska þjóðarráðsins. Hann vildi þó engu spá um hvenær af slíkum fundi gæti orðið. Eygerður Ingimundardóttir, Helga Rósa Ragnarsdóttir og Aðalheiður Hafliðadóttir starfsstúlka. Verslunin Skotið opnar á nýjum stað' VERSLUNIN Skotið hefur nú hafið starfsemi á nýjum stað. Verslunin, sem áður var til húsa á Laugavegi 26 hefur nú verið opnuð í nýju umhverfi á horni Laugavegs og Klapparstígs. Skotið er vefnaðarvöruverslun, þar sem boðið er upp á vefnaðar- vöru, rúmfatnað, smávöru tii sauma- og pijónaskapar, herra- og dömunærföt og snyrtivörur og skartgripi af ýmsu tagi. Verslunin sendir í póstkröfu um allt land. Hvað et lusf I h'Mi«>r libð•A.nrívi..? ! r«m. v,ci'k..imu-,. 1.1 . <(.I.rj.ji tojynKlif: l lAfin'Uis. (i.Miu ••■íjfl.jdus. I l.)i'i<S!>iviií>r;.l.«>r.}Ui.s!i«: l.ii' ein i l.«tr<m> ,i h-i.y in.iiui.t. i i.íii .*».»-» js; .< IrirAii. uw* htin sý»;!ii iii Itríiiiiui.iiu Húniiiu i 70 -■.í.uitiiin;,. viupiru Ji.b 1 i-r;v.!i!!>: in' .'.liagiv.K'J" kuiim«M:i»tl.iy.i\i<S!v»isv«yf.iim Nitii) kl.'ksl ttl «>l!ir i> !<> •.ol.'iiirmg.i. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur hefur gefið út bækling þar sem gefin eru ráð um það hvernig megi útrýma lúsinni. Varað við lús Heilsuverndarstöð Reykjavík- ur vill beina þeim tilmælum til foreldra og forráðamanna skóla- barna að þeir geri sitt besta til að hefta útbreiðslu lúsar meðal skólabarna og hefur einnig verið gefinn út bæklingur þar sem gefin eru ráð um það hvemig forðast megi þennan óvelkomna gest. Á undanfömum árum hefur borið á lús meðal skólabama, sérstaklega í upphafi skólaárs. Til að hefta út- breiðslu lúsarinnar þarf að fínna þau böm sem smituð em áður en skólastarf byrjar. Það em því vinsamleg tilmæli heilbrigðisstarfsmanna til foreldra og forráðamanna allra skólabama að athugað verði áður en skóla- ganga hefst, hvort börn þeirra kunni að hafa lúsasmit. Finnst lús eða nit skal notað lyf sem fæst án lyfseðils í lyfjabúð og fara nákvæmlega eftir þeim leið- beiningum sem fylgja. Brýnt er, að heilbrigðisstarfs- menn, nemendur og foreldrar leggist á eitt um að ráða niðurlögum þessa vágests, og má enginn skor- ast úr leik. Á því veltur árangurinn því að lúsin gerir sér ekki mannamun. Enginn þarf að skammast sín fyrir að fá á sig lús. Við það verður ekki ráðið. Á hinn bóginn verður það að teljast vítavert óhreinlæti að láta lúsina þrífast eftir að henn- ar verður vart. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! CATHIODERMIE! andlitsmeðferð brjóstameðferð augnmeðferð hálsmeðferð minnst 3 skipti 10 skipta kúr 6 skipta kúr 6 skipta kúr CATHIODERMIE húðmeðferðtr eru byggðar á árangri 30 ára rannsókna sérfrœðinga í efnafræði snyrtivara við René Guinot rannsóknarstofurnar í Frakklandi sem eru meðal þeirra allra fremstu á sínu sviði. Við meðferðirnar er notað sérstakt hydradermie tœki (sem er ekki lasertœki) til að þrýsta þar til gerðum jóniskum gelum niður í húðina. Gelin hafa mismunandi efnasamsetningu eftirþví til hvers þau eru ætluð. Yfir 2500 snyrtistofur víða um heim bjóða þessa viðurkenndu þjónustu og selja jafnframt René Guinot snyrtivörur til heimanota. 15% kynningarafsláttur út september CATHIODERMIE: ★ örvar efnaskipti húðarinnar, þannig örvast endurnýjun húðfruma og húðinfær aukin raka og mýkt. ★ þéttir húðina og gefur henni fallegri áferð. ★ djúphreinsar húðina (disincrustation). Mjög góður árangur fæst með slæma acne-húð. ★ stuðlar að rakajafnvœgi og réttu sýrustigi húðarinnar. Allir snyrtifræðingar sem gefa CATHODERMIE meðferðir verða að fara á þjálfunarnámskeið sem lýkur með prófi. UTSOLUSTAÐIR: Snyrtistoján Arsól, Grimsbie \jBústadaveg R. Snyrtistofan Asýnd, Garóastrceti 4, R Snvrtistofan Salon Rit:, Laugavegi 66, R Snyrtistof'an Fegrun, Búóagerdi 10, R Snyrtistofa Viktorín, EddufeHi 2—4, R Snyrtistofan Andrómeda, lónbúd 4, Garöahtr S: 21262 Snyrtistofun Þema, Reykjavikurvegi 64. Hajharf. S: 29669 Snyrtistqfa Lilju, Engiijaila 8, Kópavogi S: 22460 Snyrtistofan Dana, Hafnargötu 49, Kejlavik S: 22205 Snyrtistofa Nönnu, Strandgöju 22, Akurevri S: 79525 SnvrtihúsiöÁrsölum. Eyravegi 2, Selfossi S: 42755 Snyrtistofa Ágústu Guónad., Miöstr. 14, Vestm. Snyrtislofan Hótel Örk, Breióumörk, Hveragcröi S: 99-4700 S: 51928 S: 46620 S: 92-2617 S: 96-26080 ■ S: 99-2566 S: 98-2268 Cathiodermie húðmeðferðir —■ * I PARIS1 Heilbrigðari húð! «* 4*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.