Morgunblaðið - 09.09.1986, Page 55

Morgunblaðið - 09.09.1986, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 55 SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Á að selja golf- ferðir til Islands Helstu söluaðilar: Bókaversl. Jónasar Tómassonar (safiröi • Bókaversl. Þórarins Stefánssonar Húsavík • Bókval Akureyri • E.Th. Mathiesen Hafnarfirði • Fjölritun s.f. Egilsstöðum • Kaupfél. Árnesinga h.f. Selfossi • Kjarni Vestmannaeyjum • Penninn Hallarmúla — sagði R. Van Erven Dorens frá Hollandi SÍÐASTLIÐINN fimmtudag komu um 20 ræðismenn íslands, víðs vegar að úr heiminum, saman í golfskála Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholtinu til þess að leika golf. M6t þetta var sett á í tilefni ráðstefnu ræðismanna hér á landi og það var Einar Benediktsson sendiherra í Lundúnum sem átti hugmyndina að þessu móti. Það viðraði ekki vel til golfíðkun- ar þegar fók bar að garði snemma á fímmtudagsmorgun en engu að síður mættu flestir þeir sem til- kynnt höfðu þátttöku sína og má þar á meðal nefna sendiherrafrúna frá Mexíkó, ræðismanninn í Tókíó, Spáni og Bankok að ógleymdum Hollendingnum R. Van Erven Dor- ens en hann var um margra ára skeið einn fremsti kylfingur Holl- ands og liðsstjóri landsliðs þeirra í mörg ár. Mótið fór hið besta fram og gekk mönnum ótrúlega vel þrátt fyrir leiðinlegt veður, lánskylfur og að flestir voru óvanir vellinum. Ekki Það mætti auglýsa golf- ferðir hingað — segir Dauide C. Ryeland frá Dover EINN þeirra ræðismanna sem þátt tók í golfmótinu var Dauice C. Ryeland en hann er ræðismað- ur íslands í Dover. Við spurðum hann fyrst hvað ræðismaður ís- lands á surðurströnd Englands gerði. „Starfið felst mest í því hjá mér að líta eftir hagsmunum íslenskra ferðamanna sem fara um Dover en þaðan eru feijur til Frakklands og Belgíu og mikill flöldi ferðamanna fer þar um á hveijum degi. í fyrra fóru þar um 60 milljónir ferða- manna og það er því oft mikið um að vera þar. Ég veit ekki hversu margir íslenskir ferðamenn fara þar um árlega því það er ekki skráð sérstaklega hvaðan ferðamennimir em en það er þó nokkur fjöldi. Ég hef verið ræðsimaður íslands í Dover frá því árið 1968. Ég veit eiginlega ekki hvers vegna ég varð ræðismaður en ætli það hafi ekki verið vegna þess að fyrirtæki mitt hafði umboð fyrir íslenska fískibáta á þessum tíma. Það er ekki mikið um að ég þurfí að skipta mér af íslendingum sem em á ferðalagi en það em þó alltaf nokkur tilfelli á ári. Ég hef komið hingað tvisvar áður og í bæði skiptin var það í sam- bandi við ræðismannafundi en þeir hafa alla verið haldnir þrisvar." — Hvemig er að leika golf hér í Grafarholtinu? „Það er mjög gaman. Þessi völlur kemur mér mjög á óvart. Hann er ekkert verri en margir vellir í Eng- landi. Flatimar em að vísu ekki eins góðar og heima en brautimar em skemmtilegar og mjög góðar. Þetta er mjög skemmtilegur völlur til að koma á og ég er ekki í nokkr- um vafa um að ferðamenn sem hingað koma hefðu gaman af því að leika hér golf og það mætti vel auglýsa golfferðir hingað til lands. Völlurinn er alveg þess virði." Hverfisgötu 33-Sími 91 -20560 er að efa að þetta mót á eftir að skila sér að því leytinu til að sendi- herrar þeir sem hér kepptu vom allir á því að það væri vel þess virði að reyna að auglýsa ísland sem golfland en það tíðkast mjög meðal kylfínga að komast sem víðast um heiminn til að leika golf. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Hér ræða menn málin áður en lagt er af stað. Veðrið hefur örugglega verið ofarlega á baugi þvi það var slæmt en allir létu sig þó hafa það að leika golf og líkaði vel. „Þetta er mjög góður völlur sem þið hafíð hér,“ sagði Erven Dorens í mótslok og hefur hann þó séð þá marga um ævina. „Þetta er enn furðulegra ef haft er í huga við hvaða aðstæður hann er byggður hér. Geysilega erfíð uppbygging er að skila sér og þetta framtak sýnir að það má gera ýmislegt með sjálf- boðavinnu þó svo við gætum það aldrei í Hollandi. Golfíþróttin er í mikilli sókn hér á landi og ber árangur Sigurðar Péturssonar og Ragnar Ólafssonar í fyrra þess gleggst merki og auðvitað má ekki gleyma hinum unga íslandsmeist- ara, Úlfari Jónssyni, sem á örugg- lega eftir að ná mjög langt. Þetta allt stefnir í sömu átt. Það á vel að vera hægt að selja golfferðir hingað til lands. Vellimir, fólkið, veðrið og dagsbirtan leggjast á eitt um það,“ sagði Dorens að lokum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þessir urðu í öðru sætí: Thomson frá Edinborg púttar, Konráð Bjarnason forsetí GSÍ heldur á flagginu og Erven Dorens frá HoIIandi fylgist með og heldur á sínum bolta. MINNI FYRIRHÖFN - MEIRI YFIRSÝN Yfir 60% af seldum afgreiöslukössum á íslandi á síðasta ári voru af gerðinni OMRON. OMRON afgreiðslukassarnir fást í yfir 15 mismunandi gerðum, allt fráeinföldum kössum upp í fullkomnartölvutengdar afgreiðslusamstæður. Þeireru því sniðnir fyrir hvers konar verslunar- rekstur, eru búnir sjálfvirkri tölvuútskrift, veita möguleika á stækkun og stuðla að meiri yfirsýn og markvissari rekstri. Þess vegnafinnurðu OMRON afgreiðslukassa í íslenskum sjoppum, bakaríum, sérverslunum, stórmörkuðum, veitingahúsum, sundlaugum - já, víðar en nokkra aðra afgreiðslukassa. OMRON AFGREIÐSLUKASSAR VERÐ FRÁ KR. 19.900.- ÍMÉffx ' ^ 4 & ■ $! / ' / V 'J i • • — XJöfðar til XXfólksíöllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.