Morgunblaðið - 09.09.1986, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
57
216 stig, en fast á hæla hans kom
annar draugur, Páll Valdimarsson
með 205. Röð næstu manna varð:
Magnús Ólafsson 191, Sigfús Þórð-
arson 180, Ásthildur Sigurgísla-
dóttir og Lárus Arnórsson 154,
Baldur Ásgeirsson og Magnús
Halldórsson 126, Magnús Aspelund
og Steingrímur Jónasson 116, Al-
bert Þorsteinsson og Sigurður
Emilsson 112 og Júlíana Isebarn
og Margrét Margeirsdóttir 103.
Og minnt er á að Sumarbrids
1986 lýkur í næstu viku, þriðjudag
og fímmtudag. Spilað er í Skipholti
50A.
Opna Þjóðviljamótið
20. september
Það hefur víst ekki farið framhjá
mörgum bridsspilurum, að Þjóðvilj-
inn stendur fyrir Opnu Stórmóti í
Brids laugardaginn 20. september
nk., í tilefni 50 ára afmælis blaðs-
ins (það eiga fleiri afmæli en hún
Reykjavík).
Skráning hefur gengið afar vel
fram að þessu, enda um að ræða
létt og lipurt fyrirkomulag, sem
hentar flestum. Spilaður verður
tvímenningur með Mitchell-fyrir-
komulagi, sem þýðir í mæltu máli,
að venjubundin tvímenningskeppni
er á ferðinni, með tveimur spilum
milli para. í upphafi sest helmingur
af pörum í N/S átt og hinn helming-
ur á A/V átt. Síðan sitja N/S pörin
fast (áfram við sama borð út um-
ferðina) en A/V pörin fara á röltið
og taka andstæðinga í röð. Síðan
er skorin úr viðkomandi setu skráð
á þartilgert skorblað sem keppnis-
stjóri innheimtir að lokinni hverri
setu og komið til tölvuherbergis,
þar sem skrásetjari mun „mata“
elskuna sína, og í lok umferðar mun
allt heila „klabbið" vera skráð og
þá tekur þessi sama elska sig til
og spáir í niðurstöður. Svona geng-
ur þetta fyrir sig í tvær umferðir,
sú fyrri hefst kl. 13 á laugardag
og sú síðari sama dag, eftir smá-
matarhlé um kvöldið. Spiiað verður
um góð verðlaun, auk silfurstiga.
Keppnisgjald verður með allra
lægsta móti, aðeins kr. 600 pr. spil-
ara. Ólafur Lárusson, sem mun
annast leiðsögn í mótinu, sér einnig
um skráningu. Hans má vitja á
skrifstofu Bridssambandsins, í
Sumarbrids eða einfaldlega heima
í s. 16588. ítrekað er, að þátttaka
í þessu móti er öllum opin sem
áhuga hafa á, en minnt er á að
sökum húsnæðisskorts getur þurft
að takmarka þátttöku (það er verið
að vinna í því að fá allan kofann
að Gerðubergi þennan laugardag
undir mótið okkar). Því fyrr sem
væntanlegir þátttakendur láta skrá
sig því betra. Hinir fyrstu verða
fyrstir.
Frá Bridssambandi
Islands
Mótadagskrá Bridssambandsins
fyrir næsta starfsár liggur nú fyrir.
Meðal helstu nýjunga í henni er að
finna m.a. breytingu á spiladögum
í úrslitakeppni Islandsmótsins í
sveitakeppni. í stað hinnar hefð-
bundnu páskaspilamennsku færist
keppnin til um eina viku (eftir
páska) og hefst á miðvikudags-
kvöld. Síðan tveir og hálfur leikur
á fimmtudag og einnig á föstudag
og einn leikur (síðari) á laugardags-
eftirmiðdegi. Síðan verða mótslok
um kvöldið með tilheyrandi mat og
öðrum aðföngum. Er það von
stjórnar BSÍ að þessi breyting
mælist vel fyrir, enda páskaspila-
mennska löngum verið óvinsæl.
Islandsmót í tvenndarkeppni
(blönduðum flokki) í tvímenning,
færist nú yfir á vorið, enda verið
kvartað yfir því að hafa það að
haustlagi, spyrnt saman við ís-
landsmót kvenna í tvímenning. í
staðinn hefur verið ákveðið að
hleypa af stokkunum, á sama tíma
pg Islandsmót kvenna í tvímenning,
Islandsmóti í yngri flokki í tvímenn-
ing. Slík keppni hefur ekki verið
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn fimmtu-
daginn 11. september kl. 20.30 að Síðumúla
35, uppi.
Allir velkomnir.
★ Námskeiöið getur hjálpaö þér aö:
★ Öðlast HUGREKKI
og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann-
færingarkrafti í samræöum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst aö um-
gangast aöra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
— heima og á vinnustaö.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum
og draga úr kvíöa.
Fjárfesting í menntun
gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
Q
STJÓRIMUIMARSKÓLIIXIIM
% Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin"
haldin til þessa. Aldursmark kepp-
enda verður í þessa keppni, spilarar
fæddir 1962 og síðar. Það er sami
aldur og verður gjaldgengur í lands-
lið næsta árs, en eins og fram
kemur í mótadagskrá mun Brids-
samband íslands halda Norður-
landamót í flokki yngri spilara 1987
að Hrafnagili í Eyjafirði. Má því í
framtíðinni búast við, að þetta mót
færist til og verði haldið eftir ára-
mót í framtíðinni, þannig að lands-
liðsaldur gildi til þátttöku.
Tölvuvædd tvímenningskeppni,
landsbikarkeppni í tvímenning, er á
dagskrá BSÍ í október. Hún verður
með því sniði, að ÖLL félög á
landinu taka þátt í þessari keppni,
fá sent til sín tölvugjöf með spilum
(númerum) 1—33 og sjái síðan um
að fjölfalda þau í viðeigandi riðils-
stærðir (8-10-12-14-16 para) eftir
því sem við á og fyrirfram skrái
pör til þátttöku, þannig að vitað sé
hvað þarf að gefa í marga riðla (og
hve stóra). Félögin spila þessa
keppni á sínum EIGIN spiladegi,
frá mánudegi til fímmtudags (er
flestöll félögin spila) einhveija
ákveðna viku í október. Síðan verði
skorblöðum komið til útreiknings,
sem þeir Vigfús Pálsson og Ásgeir
P. Ásbjörnsson sjá um. Fljótlega í
næstu viku liggja síðan fyrir úrslit,
sem koma þannig út, að allt landið
hafi spilað í einum STÓRUM riðli,
enda hafi sömu spil verið spiluð um
land allt. Einfalt?
Bikarkeppni Bridssam-
bandsins
Tveir síðustu leikirnir í 4. umferð
Bikarkeppni Bridssambandsins
voru spilaðir í vikunni. Sveit Sam-
vinnuferða/Landsýnar sigraði sveit
Ásgeirs P. Ásbjörnssonar með 17
stiga mun. í sigursveitinni eru:
Helgi Jóhannsson, Þorgeir P. Ey-
jólfsson, Valur Sigurðsson,
Guðmundur Pétursson, Jón Bald-
ursson og Sigurður Sverrisson.
Sveit Jóns Hjaltasonar gekk yfir
sveit Sigtryggs Sigurðssonar, og
varð þar með ljórða sveitin til að
tryggja sér sæti í undanrásum Bik-
arkeppninnar. Með Jóni eru í
sveitinni: Hörður Arnþórsson, Jón
Ásbjörnsson, Stefán Guðjohnsen og
Símon Símonarson.
Og einsog menn rekur minni til
hafði verið ákveðið að draga í und-
anrásum á keppnisstað á laugar-
daginn, en því hefur verið breytt.
Þessi mætast:
Sveit Jóns Hjaltasonar mætir
Samvinnuferðum/Landsýn og sveit
Pólaris mætir Sigfúsi Erni Árna-
syni. Allar eru þessar sveitir úr
Reykjavík.
Undanrásir verða spilaðar á Hót-
el Hofi v/Rauðarárstíg nk. laugar-
dag og hefst spilamennska kl. 10
árdegis. Spiluð verða 43 spil. Sigur-
vegararnir úr þessum tveimur
leikjum mætast svo í hreinum úr-
slitaleik daginn eftir, sunnudaginn
7. september, á sama stað og hefst
sá leikur einnig kl. 10 árdegis. Þá
verða spiluð 64 spil. Keppnisstjóri
verður Agnar Jörgensson.
EROBIK
BALLETT
JASS
BOLIR
BUXUR
SAMFESTINGAR
SOKKABUXUR
LEGGHLÍFAR
BELTI
UPPHITUNAR-
BUXUR
Sportval Bikarínn
Laugavegi 116. Sími 14390. Skólavörðustíg 14. Sími 24520.