Morgunblaðið - 09.09.1986, Qupperneq 66
9361 fl38M3T<I38 .6 HUOAaUIÖIÍM .GIGÍAJaPíTJ080M
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
„Aufe>v\tc& noundi ég eH\r afmaelisde^inum
þinum.' ég £hk.k mér cdrykk m<£> sirdkunum í
Inádeg'irxu."
ást er...
1-to
. .. að vera ekki eins og á
krossgötum.
TM Reg. U.S. Pat. Off.—alt rights reserved
® 1986 Los Angeles Times Syndicate
Þetta móttökutæki er
óhemju gott og með ótrú-
legu langdrægi.
-r/KRNOVJSrsl
Vegna ómaklegra um-
mæla Securitas um Vara
Til Velvakanda. mæla sem Securitas lét birta í 1986 um öryggisþjónustu Varaget
Vegna þeirra ómaklegu um- blöðum og útvarpi 29. og 30. ágúst ég ekki orða bundist.
Burt með ósómann
Það eru margir sem taka undir
skrif „kjósanda" í dálkum Velvak-
anda Morgunblaðsins á dögunum
um ljótleika Hagkaupshússins, það
er meira en ljótt, það er forljótt og
illa staðsett, sem og önnur hús í
þessum nýja miðbæ Reykjavíkur.
Þama eru engin bein stræti, heldur
einhvetjir krókar og kimar, og lok-
aðir húsagarðar. Ldtið er um græna
bletti en þess meir er af stein-
steypu. Er dapurlegt að sjá hve illa
hefur tekist til um skipulag á þessu
nýja hverfi.
Svo er það þessi ömurlegi
útimarkaður á Lækjartorgi og
Austurstræti, einhver mesta van-
virða og Ijótleiki Reykjavíkurborg-
ar. Margir vonuðu í lengstu lög að
honum yrði hætt fyrir 200 ára af-
mæli borgarinnar, en því miður,
hann er þama ennþá flestum Reyk-
víkingum til hinnar mestu armæðu,
eins og tuminn, og svo ekki sé tal-
að um gtjótgarðinn.
Aður fyrr héldu „rónamir" sig á
Amarhólstúninu og Hafnarstræti
og þótti mörgom nóg um það, en
viti menn, nú má þessi lýður flat-
maga sig á miðri aðalgötu borgar-
innar og þar má selja allskonar
geymsludrasl og viðbjóð. Það er nóg
um aðra staði í miðbænum til
útimarkaðar og má þar nefna
Gijótaþorpið, Hlaðvarpaportið og
Grófartorg svo eitthvað sé nefnt.
Borgarráðsmenn, í öllum bænum
látið ekki við svo búið standa, í
burtu með ósómann hið snarasta.
Umhverfisunnandi.
Bið um að birt verði mín reynsla
af öiyggisþjónustu Vara, sem ég
hef notið í nærri 4 ár, eða frá 30.
mars 1983 og alltaf síðan.
Eg er fyrsta manneskja á ís-
landi sem hef notið neyðarþjónustu
fyrir sjúka og aldraða, og það var
hjá Vara. Ég votta hér með, að
ég hef notið alveg sérstaklega
góðrar þjónustu hjá Vara.
Það er sama hvort það er á
nótt eða degi sem ég hef sent út
neyðarkall, þá eru starfsmenn
Vara strax komnir á vettvang mér
til hjálpar, prúðir, traustir og góð-
ir. Vegna slysa og sjúkdóma hef
ég þurft mikið á öryggisþjónustu
Vara að halda.
Tvisvar hefur neyðarþjónusta
Vara bjargað lífí mínu, þar sem
ég datt niður vegna hjartaáfalls
og gat ekki hreyft mig, nema lítið
hægri hendi til að styðja á „Litla
lífvörðinn" eins og við köllum
hjálpartækið frá Vara, sem ég ber
stöðugt á bijóstinu. Það varð mér
til lífs. Ég komst ekki í síma þó
hann væri í íbúðinni. Það veitir
manni svo mikið öryggi, að vita
og hafa reynslu af því að öryggis-
þjónusta Vara vakir yfír manni
nótt sem dag, traust og örugg, og
kemur manni strax til hjálpar ef
að maður þarf á hjálp að halda.
Reykjavík 5. september 1986.
Guðrún Ingibjörg Jónsdóttir.
Yíkverji skrifar
Sumarið kveður senn. Ekki er
hægt að segja annað en það
kveðji Sunnlendinga með glæsileg-
um hætti. Önnur eins veðurblíða
og verið hefur síðustu daga er
dæmafá.
Víkveiji dvaldi í góðu yfírlæti í
sumarbústað í Biskupstungum um
helgina. Náttúran skartaði sínu feg-
ursta og um kvöldið og nóttina var
svo stjömubjart að Víkveiji hefur
ekki séð annað eins í áratugi.
Þegar ekið var heim á leið á
sunnudeginum var umferðin gífur-
lega mikil. Hún gekk greitt fyrir
sig allt þar til komið var á Hellis-
heiðina. Þá tóku við langar bílalestir
sem töfðu eðlilega umferð. Nokkrir
sjálfskipaðir „lestarstjórar" höfðu
tekið að sér að halda hraðanum á
bilinu 50—60 km og stundum allt
niður í 40 km. Þetta hafði það í för
með sér að margir reyndu ótíma-
bæran framúrakstur. Litlu munaði
að slys yrði við Geitháls. Mercedes
Benz bifreið var að aka framúr
þegar önnur bifreið ætlaði að skella
sér framúr lfka. Engu munaði að
hún þröngvaði Benzinum alveg útaf
veginum en snarræði bílstjóranna
kom í veg fyrir aivarlegt slys.
Engin lögreglubifreið var sjáan-
leg alla leiðina. Lögreglan á skilyrð-
islaust að vera á ferðinni á miklum
umferðardögum og stöðva bæði
ökufanta og þá sem skapa stór-
hættu með of hægum akstri.
XXX
Norðlenzkir knattspymuáhuga-
menn hafa brosað breitt um
helgina. Tvö norðlenzk lið, KA frá
Akureyri og Völsungur frá
Húsavík, unnu sér rétt til að leika
i_ 1. deild næsta ár og Leiftur frá
01afsfirði_ varð Islandsmeistari 3.
deildar. Arangur Völsungs er at-
hyglisverðastur, því liðið hefur ekki
áður leikið í 1. deild. Eflaust mun
þessi áfangi verða íþróttalífí á
Húsavík mikil lyftistöng.
XXX
Hvalkjötsneysla íslendinga hef-
ur stóraukist, eins og fram
hefur komið í fréttum. Víkveiji
snæddi á dögunum í Veitingahöll-
inni og prófaði hvalasteik á mat-
seðlinum. Var hún ákaflega ljúffeng
og vel fram borin.
Veitingahöllin er mjög athyglis-
vert veitingahús. Sérstaklega eru
fískréttimir þar áhugaverðir. Jó-
hannes Stefánsson veitingamaður
er mikill veiðimaður og oftast býður
hann upp á físk sem hann hefur
sjálfur veitt í Flóanum. Hann stend-
ur gjama sjálfur og tekur við
pöntunum og gefur gimilegustu
réttunum meðmæli sín.
XXX
Strætisvagnar Reykjavíkur hafa
borið í hús í Reykjavík sérstakt
blað, sem kynnir leiðakerfí vagn-
anna. Blað þetta er til mikillar
fyrirmyndar, en ef eitthvað má út
á það setja, má kannski segja að
það sé í helzt til of stóru broti.
Nauðsynlegt hefði verið að hafa það
í vasabókarbroti, svo að menn gætu
haft það á sér.
En þar sem Strætisvagnar
Reykjavíkur em til umfjöllunar, þá
má benda á að nauðsynlegt er að
hafa réttar klukkur í vögnunum.
Telja má til undantekninga, ef
klukkur fremst í vögnunum em
réttar eða yfírleitt ganga. Það er í
hæsta máta undarlegt, að á tímum
kvartsúra, sem ganga svo rétt, að
ekki skeikar nema sekúndubroti á
heilu ári, skulu strætisvagnamir
ekki getað fengið klukkumar í
vögnunum til þess að ganga rétt.
Það er heldur ekki vanzalaust að
fyrirtæki sem ekur eftir strangri
tímaáætlun, skuli vera með ónýtar
eða vitlausar klukkur í vögnunum.
XXX
Athygli vekur könnun, sem
Samband íslenzkra auglýs-
ingastofa lét gera á útvarpshlustun.
Þar kom í ljós að fleiri hlustuðu á
hina nýju útvarpsstöð Bylgjuna, en
báðar rásir Ríkisútvarpsins til sam-
ans, er könnunin var gerð. Nú kann
að vera að nýjabrumið af Bylgjunni
hafí þama eitthvað að segja og að
niðurstöður könnunarinnar séu ekki
fyllilega marktækar um hlustun,
fyrr en jafnvægi verður komið á.
Ur því fæst væntanlega skorið,
þegar könnun sem þessi verður
endurtekin að einhveijum tíma liðn-
um.
Hvað sem því líður virðist svo
sem Bylgjan hafí farið vel af stað.
Langt á hún þó í land að geta skák-
að Ríkisútvarpinu í fréttaflutningi
og sumir fréttamannanna þurfa að
vanda betur upplestur sinn á frétt-
unum.
Áhugavert verður einnig að fylgj-
ast með því, hver áhrif Bylgjan
hefur á auglýsingar ljósvakamiðl-
anna. Allt í einu standa auglýsendur
frammi fyrir því að eiga ekki vísa
nema mjög takmarkaða hlustun á
auglýsingum í Ríkisútvarpinu og
hlýtur það að leiða til þess að verð
auglýsinga lækkar þar. Auglýsing
í Ríkisútvarpinu nær ekki til jafn-
margra og áður, þar sem engin
trygging er fyrir því að menn hlusti
endilega á Ríkisútvarpið. Svo líður
einnig að því að einokun Ríkisút-
varpsins í sjónvarpssendingum
verði rofín og hefst þá væntaníega
mikil samkeppni á því sviði.