Morgunblaðið - 28.09.1986, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDA'GtJR 28.‘ SEPTEMBER 1986
Texti/Vilborg Einarsdóttir
Myndir/Bjarni Eiríksson
Grímur og Búbbi í dyrum
sportvöruverslunarinnar. F.v.
Þórarinn Óskar Þórarinsson
og Eggert Guðmundsson.
Hugmyndin að
Skyttunum er
leikstjórans,
Friðriks Þórs,
sem segir hana
hafa fæðst fyrir
allmörgum
árum, breyst ogþróast þar til hann
settist niður með Einari Kárasyni,
rithöfundi við handritaskrif á liðnu
ári. Friðrik Þór ákvað svo að ráðast
í töku myndarinnar á þessu ári og
hlaut til þess fimm milijón króna
styrk frá Kvikmyndasjóði. Það er
fyrsti styrkurinn sem sjóðurinn
veitir honum til að gera kvikmynd,
en ráðgerður kostnaður við
Skyttumar eru 12 milljónir króna.
Friðrik Þór á að baki sér nokkrar
myndir, þeirra á meðal Eldsmiðinn,
Rokk í Reykjavík, Hringinn og
Kúreka norðursins, myndir sem
flokkast í raðir heimildamynda.
Skyttumar eru því fyrsta leikna
mynd Friðriks, þó tengslin við
heimildamyndagerðina séu ekki
langt undan, a.m.k. á ofangreint
atriði sér samsvörun í
raunveruleikanum, þó langt sé um
liðið.
„Hann er bamssál í
tröllslíkama." þannig lýsir
Þórarinn Óskar Þórarinsson
hlutverki mótleikara síns, Eggerts
Guðmundssonar og sammála segja
þeir að Grímur, sá sem Þórarinn
Óskar túlkar sé í stuttu máli sagt
ruddi, kvennhatari og
glæpamaður. Sem sé ólíkir menn
sem kannski eiga það eitt
sameiginlegt að hafa verið saman
á sjó - og að vera báðir mjög
ánægðir með Grím, eins og Ámi
Páll, tæknibrellumaður
Ámi Páll bendir einnig á að við
fyrsta lestur handritsins hafí hann
ímyndað sér hvemig þessar tvær
aðalpersónur myndarinnar litu út
og sú ímynd hafi verið
nákvæmlega eins og það sem við
honum blasti í fyrsta sinn sem
hann hitti þá Eggert og Óskar.
Það er nú reyndar ekki af
tilviljun, því Friðrik Þór hafði
nákvæmlega þessa tvo menn sem
nú spreyta sig á kvikmyndaleik í
fyrsta sinn, í huga við
handritasmíðina. Og hugmyndin
var reyndar komin til ennþá fyrr,
eins og Eggert bendir á:
„Fyrir sautján ámm unnum við
Friðrik saman og höfum hist af
og til síðan þá. Hann spurði mig
svo fyrir einum átta ámm hvort
að ég væri ekki til í að leika í
kvikmynd fyrir sig og ég sagði já.
Sit svo uppi með það svar núna!
En ég viðurkenni að ég varð mjög
spenntur eftir að hafa lesið
handritið og hef trú á að myndin
verði góð.“
Svipaða sögu er að segja um
Óskar, þó svo að Já-ið“ hans hafi
ekki komið fyrir átta ámm, en
hann segir það hafa heyrst um
leið og hann lauk lestri handritsins.
„Ég var viss um að ég gæti leikið
hlutverkið og skilað mínu, sem
auðvitað kemur ekki í ljós fyrr en
myndin verður sýnd, en það var
ekkert mál að taka tilboðinu."
Hvomgur hefur staðið fyrir
framan kvikmyndavélamar áður,
Óskar reyndar ekkert leikið sem
talandi er um, að eigin sögn, en
Eggert á að baki sér hlutverk hjá
áhugaleikhópnum Hugleik, annars
vegar í Skugga Björgu og hins
vegar í Sálum Jónanna „þar sem
ég lék sjórekið lík með miklum
tilþrifum!“.
Um reynsluna nú þegar
kvikmyndatökum er nánast lokið
segir Eggert það eins sem sér hafi
fundist erfitt hafi verið að
„rembast við að vera eðlilegur í
byijun."
En þó að það séu áhugamenn
með litla leikreynslu að baki sér
sem em máttarstólpar
myndarinnar, Skyttumar sjálfar -
og ber þó að bæta hér inn í
hugrenningum leikstjórans um
hvort ekki séu allir í raun jafn
óreyndir - em aukahlutverkin í
höndum faglærðra jafnt sem
ófaglærðra leikara. í þeim hópi
má nefna Baldvin Halldórsson,
Guörún Pálsdóttir skrifta og
Jón Karl Helgason.
Það er víðar en úr
Breiðhoitinu sem fréttir
berast af skothvellum á
g’ötum úti. Ibúar við
Vesturgötu hafa ekki farið
varhluta af slíkum hljóðum
undanfarnar nætur, en
hvellirnir í vesturbænum
tilheyra
kvikmyndagerðamönnum
með Friðrik Þór Friðriksson
í forsvari. Hann er nú að
leggja síðustu hönd á
plöginn við tökur á mynd
sinni Skyttumar, sem svo
er kölluð, sögunni af
hvalveiðisjómönnunum
tveimur sem nota
landleguna til að bregða sér
á bæjarrall með ýmsum
ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Það var
einmitt eitt atvikið í ferðinni
og „hápunktur“ hennar skv.
handriti sem verið var að
taka þegar
Morgunblaðsmenn mættu á
Vesturgötuna. A horai
hennar og Garðarsstrætis
voru þeir Búbbi og Grímur,
aðalpersónur myndarinnar,
sem leiknir eru af Eggerti
Guðmundssyni og Þórarai
Óskari Þórarinssyni, komnir
kannski lengra en ráð var
gert fyrir í upphafi ferðar,
eðainn í
sportvöruverslunina Spörtu
um miðja nótt - með brotna
glugga að baki sér.