Morgunblaðið - 28.09.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1986
B 21
Þá datt mér í hug að láta söguna gerast fyrr
á öldinni, og fjórum dögum síðar hafði ég
hugsaö mér allan söguþráðinn. Ég skrifaöi
svo 192 blaðsíðna drög að sögunni og
Doubleday-útgáfufélagið keypti útgáfurétt-
inn. Þá sagði ég við sjálfa mig: „Guð minn
góður, hvað hef ég nú gert? Hvernig var
Leeds árið 1904? Og af hverju er fataiðnað-
ur þar? Og af hverju er ullariönaður þar?"
Svo ég flýtti mér heim í fimm vikna ferð,
skoðaöi öll stórfyrirtækin og 'alaöi við
frænda og frænkur. Svo fór ég til London
og las allt sem ég gat um fyrri heimsstyrjöld-
ina á þremur dögum, og hálfu öðru ári síðar
hafði ég lokið við bókina." Þegar svona
stendur á er ekki lítils virði að vera gift manni
í kvikmyndaiönaðinum. Bob Bradford vildi
ekki sjálfur gera kvikmynd um „Kjarnakonu",
þar sem hann taldi það geta valdið vandræð-
um á heimilinu, en hann sá til þess að
enginn keypti kvikmyndaréttin og drægi svo
að taka myndina. Margir kvikmyndaleikstjór-
ar, þeirra á meðal Otto Preminger, sem nú
er látinn, komu til tals, en valið var erfitt.
Lee Langley var álitin hæfust til að semja
handritið, og hún hafði vit á þvi að taka flest
samtölin beint úr bókinni og láta söguþráð-
inn haldast."
Það gekk ekki svona auðveldlega þegar
kom að því að semja handrit eftir bókinni
„Hold The Dream". Til að byrja með þá var
Barbara hætt að reykja. Hún hafði, eins og
faðir hennar, alla tíð verið ánetjuð tóbaksjurt-
inni. En hún sá að sér þegar maöurinn
hennar benti henni á að sennilega væri hún
að drepa hundinn sinn, sem svaf undir skrif-
borðinu hennar, þegar hún var að vinna og
aðallega í rúminu hennar, þegar hún var
ekki að vinna. Svo var það handritið. Þrír
handritahöfundar fengu að spreyta sig, en
ekkert handritanna þótti nothæft. Að lokum
neyddist Bradford til aö biðja konu sina að
skrifa sjálfa handritið aðeins mánuði áður
en myndataka hófst.
Bradford-hjónin eiga íbúð á 47. hæð há-
hýsis með útsýni yfir Austur-á (East River).
Þau eiga engan bíl, ekkert sveitasetur og
þau slá ekki mikið um sig. Barbara bendir
á að hún eigi aðeins einn minkapels, nokkra
látlausa skartgripi sem séu tengdir sérstök-
um endurminningum. Eins og glitrandi
páfagauksnælan sem hún keypti þegar hún
lauk við „Act of Will" til að minnast þess
þegar foreldrar hennar hittust í fyrsta sinn
„Ég fékk hugmyndina að þessari
sögu vorið 1981. Foreldrar mínir
voru háaldraðir og veikburða, og
mér varð skyndilega Ijóst hve hjóna-
band þeirra var sérstætt. Ég var vön
að líkja því við tenniskeppni vegna
þess að þau voru sífellt að skiptast
á skoðunum, fram og aftur. Ég sagði
eitt sinn við móður mína: „Þið voruð
ýmist að úthúða hvort öðru eða
fallast ífaðma.“
og fóru í gæludýrabúð til að kaupa sel-
skapspáfagauk. Jú, hún viðurkennir að þau
hafi alls ekki endilega þurft að hreinsa allt
úr íbúöinni áður en þau fluttu inn. Það var
ekki nauösynlegt að leggja marmara á gólf-
in, eða klæða stofuveggina með gul-bleiku
leðri og speglum frá gólfi til lofts. Allar millj-
ónirnar virðast ekki hafa valdið frú Bradford
neinum sálarraunum: „Ég á mann sem vill
að ég sé nákvæmlega það sem ég er. Hon-
um finnst það dásamlegt að ég skuli skrifa
og vera ánægð. Hann er mjög hreykinn af
mér. Ég spilli honum. Ef hann vill fá kvöld-
verðinn klukkan átta, borðum við klukkan
-átta. Skyrturnar hans eru eins og hann vill
hafa þær. Ekki vegna þess að ég þvoi þær.
Við höfum ráðskonu, og við höfum einnig
þvottakonu eins og er, en hún er að hætta.
Það væri kjánalegt að bera á móti því að
ég eigi mikla peninga, og ég vildi bara að
foreldrar mínir væru lifandi og gætu notið
þess. Það bezta við það er til dæmis að ég
gæti keypt mér þrjá silkikjóla frá Louis Fer-
aud á leið í vinnuna. Bob finnst ekki hann
eiga í neinni samkeppni við mig. Við erum
félagar við gerð allra myndanna, svo hann
hefur góðar tekjur af þeim, en hann hefur
alltaf haft góðar tekjur. Ef umboðsmaðurinn
minn hringir og segir, „þeir vilja borga tvær
milljónir dollara fyrir nýja bók," þá svarar
Bob: „Það er ekki nóg. Hún er meira virði."
Hann hefur stjórnað allri kynningu á mér,
og varið tíma sínum, orku og fjármunum í
því skyni. Hann hefur hjálpað til að gera
mig að stjörnu..!
3 Vestfrost
FRYSTIKlSrUR
DÖNSKgœóavara
VESTFROST frystikisturnar eru búnar
hinum viðurkenndu Danfoss frysti-
kerfum.
Hverri VESTFROST frystikistu fylgja
1-2 geymslukörfur. Aukakörfur fáan-
legar á hagstæðu veröi.
VESTFROST frystikisturnar eru allar
búnar sérstöku hraðfrystihólfi og
einnig má læsa kistunum. Innrabyrði
er úr rafgalvanhúðuðu stáli með inn-
brenndu lakki.
VESTFROST verksmiðjurnar i Esbjerg
er ein af stærstu verksmiðjum sinnar
tegundar á Norðurlöndum.
201 Itr kr. 22.549,-
271 Itr kr. 24.716,-
396 Itr kr. 28.024,-
506 Itr kr. 32.692,-
LÍTRAR 201 271 396 506
BREIDD cm 72 92 126 156
DYPT |Cm án HANDFANGS: 65 65 65 65
HÆÐ cm 85 85 85 85
FRYSTIAFKÖST pr SÓLARHRING |kg 15 23 30 30
ORKUNOTKUN pr. SÓLARHRING kWh 1,2 1,4 1,6 1,9
SJÁLFSTÆÐIR VINN
FRA
UHÓPAR:
MLEIÐNI
OG
GÆÐAAURNING
Námskeiöið kynnir hvernig unnt er aó bæta framleiöni, gæói og heildarárangur
fyrirtækis með þvi aö koma á fót sjálfstæóum vinnuhópum. Kennslan fer fram bæði í
formi fyrirlestra og verkefna ( þeim tilgangi aó gefa þátttakendum innsýn í gagnsemi
sjálfstæöra vinnuhópa.
Efni:
Skilgreining á sjálfstæöum vinnuhópum.
Mismunandi vinnukerfi.
Tæknilegar æfingar — „Hollow Squares".
Mótun og val í samstarfshópa.
Skipulegt aóhald.
Stofnun vinnuhópa.
Hvar eru vinnuhópar hagkvæmir.
Sjálfstæöir vinnuhópar á skrifstofum.
Árangur, kostnaður og framtíó sjálfstæöra vinnuhópa.
Þátttakendur: Námskeiðiö er ætlað ráögjöfum og stjórnendum fyrirtækja sem bæta
vilja framleiðni og gæöi I fyrirtæki sínu meö auknu sjálfstæöi starfsmanna þess.
Leiðbeinandi: Stuart Winby, en hann er aðstoöarframkvæmdastjóri ráógjafadeildar American Productivity
Center. Stuart Winby stundaði sálfræðinám við San Jose State University og Stanford háskólann I Kalifornlu
og lauk einnig námi frá Columbia háskólanum I stjórnunarfræðum. Hann hefur unnió sem ráðgjafi við mörg
fyrirtæki s. s. Kaiser Aluminum & Chemical Corporation, ITT, General Foods Corp., Amoco Oil Corp., Rauða
Kross samtökin I Bandarikjunum, Hafnaryfirvöldin i New York/New Jersey og Lockheed flugvélaverk-
smiójurnar. Stuart Winby hefur einnig setið I nefndum um framleiðslumál á vegum Hvíta hússins.
Námskeiðiö fer fram á ensku.
Timi og staöun 1. október, kl. 08.30—16.00 á Hótel Loftleiðum.
Námseiningan 0,6.
Stjórnunarfélag
islands
Ánanauslum 15 • S'tmi: 6210 66