Morgunblaðið - 28.09.1986, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1986
B 15
Löndunartörnin
stóð í tvo sólarhringa
hvíldarlaust
— rætt við Signrð J. Jónasson pípulagningameistara
Sigurður J. Jónasson pípulagn-
ingameistari, sem átti níræð-
isafmæli fyrir skömmu, var
fyrsti bílstjórinn hjá
Reykjavíkurborg. Margt hef-
ur drifið á daga hans eins og
fram kemur í viðtalinu sem hér fer á eft-
ir. Sigurður og kona hans, Rannveig
Eyjólfsdóttir, eignuðust fjögur böm og era
þijú þeirra á lífi, en afkomendur þeirra
era nú hátt á fjórða tug. í upphafi viðtals
okkar rifjaði Sigurður ýmislegt upp frá
fyrri áram.
Ég er fæddur hér í Reykjavík árið 1896,
hinn 10. september, og fæddist í húsi í
Gijótaþorpinu sem ennþá stendur, Mjó-
stræti 4, sagði Sigurður.' Foreldrar mínir
vora Sigríður Sigurðardóttir frá Björk í
Grímsnesi og faðir minn Jónas Jónasson
trésmiður frá Keldnakoti í Stokkseyrar-
hverfi. Þau fluttust austur á Stokkseyri
þegar ég var þriggja ára en þar fékk fað-
ir minn atvinnu hjá verslunarfélaginu
Ingólfi. Þar bjuggum við allt þar til móðir
mín dó árið 1902. Þá var ég fimm ára.
Heimilið var leyst upp og við systkinin
send sitt í hveija áttina.
Reimleikar
Mér var komið fyrir að Vorsabæjar-
hjáleigu í Flóa, þar sem ekkjan Kristín
Magnúsdóttir bjó. Þar var ekki laust við
reimleika og varð ég sjálfur var við ýmis-
legt undarlegt, en fátt var um þetta rætt
á heimilinu. Maður Kristínar, Ivar Guð-
mundsson, hafði horfíð á leiðinni milli
heimilisins og Eyrarbakka. Það þótti und-
arlegt að ekki fannst tangur né tetur af
honum þó_ mikið væri leitað.
Þegar Ivar varð úti minntust margir
þess að nokkram áram áður, árið 1865,
hvarf Guðmundur Gestsson þáverandi
bóndi í Vorsabæjarhjáleigu, er hann var
á leiðinni milli Eyrarbakka og Stokks-
eyrar. Lík hans fannst aldrei. Sumir töldu
að dauði Guðmundar hefði orðið af völdum
Skerflóðsmóra, eða Selsmóra, eins og
draugur þessi var einnig nefndur. Móri
þessi var sögð mögnuð óvætt og trúði
hjátrúarfullt fólk því að hann hefði orðið
mörgum að bana.
- Varðst þú sjálfur var við þennan
draugagang?
Já, ég varð vitni að ýmsu undarlegu sem
gerðist á Vorsabæjarhjáleigu. Eitt kvöldið
vora vinnumaðurinn og vinnukonan að
fara út og var ég með þeim. Þama vora
löng göng sem lágu frá baðstofunni og
fram úr bænum. Þegar við eram komin
fram í göngin snýr vinnukonan við inn í
eldhúsið til að ná sér í hnokka sem hún
ætlaði að hafa með sér. Við hinkram í
göngunum á meðan en heyram hana þá
æpa upp yfir sig. Komum við svo að henni
þar sem hún liggur í öngviti við dyrnar.
Hún hafði verið í tvennum sokkum en það
undarlega var að þeir vora báðir skomir
að endilöngu og skómir sem hún hafði
verið í fundust aldrei. Sjálf sagðist hún
hafa verið komin að baðstofudyranum
þegar gripið var harkalega til hennar en
ekkert vissi hún frekar.
Ströng löndunartörn
Það er kannski ekki vert að vera að
segja frá þessu. A bænum var jafnan fátt
um þessa atburði talað og spurðist lítið
út, og var það sjálfsagt í og með vegna
þess hve vinsæl Kristín fóstra mín var.
Um það leyti sem ég fermdist var
Kristín orðin öldrað og brá hún búi þess
vegna. Guðmundur stjúpsonur hennar tók
þá við jörðinni og gerðist ég vinnumaður
hjá honum. Skyldi ég hafa 50 krónur í
árskaup, sem var nú ekki stór peningur í
þá daga fremur en nú. Um veturinn réði
Guðmundur mig á vertíð hjá Guðsteini
Einarssyni frá Skildinganesi og fékk ég
50 krónur í hlut sem húsbóndinn minn tók
auðvitað allan. Ekki leist mér svo á að
ég efnaðist nokkum tíma með þessu móti.
Sigurður J. Jónasson
Réði ég mig því sjálfur til Guðsteins næsta
ár og skyldi þá fá 200 krónur í árskaup.
Síðar réðst ég svo til íslandsfélagsins
sem þá hafði töluverð umsvif hér í
Reykjavík í togaraútgerð og fískverkun.
Hafnaraðstaðan var engin og flytja varð
aflann úr skipunum þar sem þau lágu á
ytri höfninni og varð uppskipun að ganga
hratt og snurðulaust. Þetta þýddi að mað-
ur varð að vinna þar til uppskipun var
lokið og fyrr varð ekki farið heim. Mér
er minnistæð ein löndunartöm sem stóð
tvo sólarhringa. Þá unnum við 48 klukku-
tíma hvíldarlaust og er það í eina skiptið
sem ég hef sofnað á gangi. Þá var ég að
skakklapast heim til mín út í Skeijafjörð
og var að fara þar yfir brú. Þá hlýt ég
að hafa sofnað þvi allt í einu ramba ég
niður í lækinn í stað þess að fara veginn
frá brúnni. Kynlegt þótti mér að líta til
baka því eldsbjarmi og mikill reykur var
yfir miðbænum, en ég skeytti því ekki
heldur dreif mig í bælið. Svaf ég svo sólar-
hring i beit. En þegar ég vaknaði var mér
sagt að Hótel Reykjavík hefði brannið
ásamt 11 öðram húsum og var miðbærinn
orðinn að einni branarúst.
- Varst þú aldrei atvinnulaus á þessum
áram?
Það kom fyrir en sjaldan lengi í einu.
Um tíma vann ég við byggingu hússins
þar sem Reykjavíkur Apótek er núna. Þar
þótti nýlunda að steypan var hífð með
spili og sá Stefán Þorláksson vélstjóri um
að halda því gangandi. Ég var hins vegar
að taka á móti steypunni uppi á húsinu.
Það var oft kalsamt verk, en útsýnið gott
yfir lífíð í miðbænum.
Þá vora fáir lögregluþjónar hér í borg-
inni og höfðu þeir ærinn starfa. Oft lentu
þeir í ryskingum við drakkna menn og
áttu þá stundum fullt í fangi með að hafa
þá undir. Svo urðu þeir að aka þeim á
handvagni upp í Steininn á Skólavörðu-
stígnum og var oft skondið að sjá þær
aðfarir. Það var ekki þrautalaust að vera
í lögreglunni á þeim tíma.
Bílstjórastarf
Svo var ég kaupamaður tvö sumur í
Morgunblaðið/Bjami
Borgarfirði og var t.d. tvær vertíðir í Vest-
mannaeyjum. Ég réðst í að læra á bfl hjá
Jóni Sigmundssyni árið 1919. Var bflpróf-
ið mitt númer 176 og má á því sjá að
ekki vora bflstjórar margir þá. Fyrir bragð-
ið varð ég fyrsti bístjórinn hjá Rafveitu
Reykjavíkur og þar með fyrsti bflstjórinn
sem starfaði hjá borginni.
- Þótti bflstjórastarfið ekki ævintýraleg
atvinna á þessum áram?
Þú getur nú nærri - allir strákar vora
þá vitlausir í að verða bflstjórar. Ég sótti
um ásamt mörgum öðram og hreppti
hnossið - ég þóttist auðvitað hafa himinn
höndum tekið. Bíllinn sem ég ók var Max-
well-skúffubíll og var hann síðar keyptur
af fyrirtæki Natans Olsen. Þeir vildu vera
alveg vissir um að bfllinn væri í lagi áður
en gert var út um kaupin. Var það gert
þannig að farið var á bflnum út í gryfjur
og sandi mokað á pallinn eins og á hann
komst. Svo hengdu þeir aftan í hann tengi-
vagn og var mér sagt að keyra bílnum
þannig upp Ártúnsbrekkuna, en þá var
vegurinn á öðram stað og brekkan brött.
Þetta gekk samt ágætlega og keyptu þeir
bflinn.
- En þú flentist ekki í bflstjórastarfinu
þó fínt væri?
Nei, allt frá bamsaldri hafði ég lesið
Noregskonungasögur og það hafði kveikt
í mér mikla útþrá. Ég svaraði því auglýs-
ingu frá bónda í Noregi sem auglýst hafði
eftir starfsmönnum. Við fórum svo utan
tveir saman árið 1920. Kaupið var nú
ekki mikið, 1.200 kr. á ári, en uppihaldið
frítt. Þegar ég hafði verið þama í ár sá
ég auglýsingu þar sem auglýst var eftir
fjárgæslumönnum. í Noregi verður víða
að gæta að fénu allt árið því ef það fer inn
í skógana er það hrein heppni ef það finnst
aftur.
Við fjárgæslu í Noregi
Ég skrifaði þessum bónda og bauðst til
að starfa að þessu í 3 mánuði fyrir 1.200
kr. á mánuði. Þegar ég hafði sent bréfið
minntist ég á þetta við bóndann sem ég
vann hjá og sagði hann mér að ég fengi
aldrei þetta starf nema ég minnkaði
kaupkröfumar, einungis vönum mönnum
væri borgað svona mikið fyrir þetta. Ég
ákvað samt að láta slag standa - og viti
menn, ég fékk starfið.
Það varð einhver skemmtilegasti tími
ævi minnar þama á afréttinni. En ein-
kennilegt þótti mér að það var eins og ég
kannaðist við allt þama á norsku afréttun-
um rétt eins og ég hefði séð það áður í
draumi. Þama hafði ég einnig á hendi
eftirlit með veiðivötnum og seldi veiði-
leyfí, en mátti sjálfur veiða mér til matar.
Ég hafði sjálfur orðið að leggja mér til
hund, og var hann svo stór að hann gat
rétt framlappimar upp á axlimar á mér.
Þama var fjallakofi sem ég svaf í á nótt-
inni. Einhvemtíma var það að Svíi sem
var að veiða þama í vötnunum bað mig
um að fá að sofa í kofanum yfír nótt. Ég
sagði að það væri velkomið og fór hann
til kofans. Þar var hundurinn hins vegar
fyrir og þorði Svíinn ekki fyrir nokkum
mun inn því hundurinn var svo illilegur.
Hann passaði mig vel þessi hundur - það
mátti enginn snerta mig. Ef mönnum varð
það á að klappa á öxlina á mér svona í
gamni þá rauk hann strax á þá.
Ég var við fjárgæslu þama í þijú sum-
ur en stundaði skógarhögg og ýmsa
íhlaupavinnu á vetuma. Einn vetur var
ég svo á Vors-lýðháskólanum.
- Hvemig fannst þér vistin í Noregi?
Mér líkaði yfirleitt vel. Helst var það
að mér leiddist í vinnumennskunni hjá
stórbændunum. Þeir þóttust miklir stór-
bokkar sumir og litu niður á vinnufólkið.
Hjá þeim tíðkaðist að húsbóndinn og fjöl-
skylda hans borðaði sér en vinnufólkið
borðaði í eldhúsinu. Margir stórbændur
vora knappir á mat og lenti ég í vist hjá
einum þar sem maturinn var bæði naumt
skammtaður og lélegur. Einu sinni þegar
maturinn var óvenju lélegur tókum við
okkur saman og keyptum egg á næsta
bæ til að fá einu sinni sæmilega maga-
fylli. Kom húsbóndinn fram í eldhús þegar
eggjaveislan stóð sem hæst og þótt hann
léti ekki á neinu bera sáum við að undar-
legur svipur kom á hann. Eftir það batnaði
viðurgemingurinn að miklum mun.
Heim til Islands
Það undarlega var að miklu betra var
að vera í vist hjá smábændunum. Þar var
maturinn ekki sparaður og maður fékk
yfirleitt miklu meiri mat heldur en maður
gat torgað. Kunni ég miklu betur við mig
hjá þeim heldur en þessum hofmóðugu
stórbændum.
Ég tók meirabílpróf í Stafanger og gilti
það fyrir um öll Norðurlönd. Einhvemtíma
var það að ég var fenginn til að aka bfl
heim fyrir bónda; Hann hafði keypt bflinn
í Drammen en treysti sér ekki til að keyra
hann. Þegar við voram lagðir af stað ókum
við fram á annan bfl sem var á sömu leið
og var þar góðkunningi bóndans á ferð.
Bóndinn fór yfir í hinn bílinn því kunningi
hans var með nóg af bjór og drakk hann
ósleitilega undir stýri. Ég var á undan en
þótti það ekki einleikið hve þeir drógust
mikið afturúr. Ég fór því að athuga málið
og hafði kunninginn þá ekið út af vegin-
um. Eftir það vildi ég fá að hafa þá á
undan mér til að geta fylgst betur með
þeim. Sjálfur ók ég aldrei undir áhrifum
þó lítið væri með slíku fylgst á þessum
áram.
- Datt þér aldrei í hug að setjast að í
Noregi?
Jú, ég var að hugsa um það á tímabili
en þar átti ég ekki kost á öðra en íhlaupa-
vinnu því Norðmenn gengu fyrir í öll störf.
Ég hélt því til íslands aftur. Þegar ég
kom heim var verið að stofna Vélsmiðjuna
Héðin í Reykjavík og var hún starfrækt í
húsi er stóð þar sem Morgunblaðið er
núna. Ég vann hjá Héðni um nokkurn tíma
og einnig hjá vélsmiðjunni Hamri. Á þess-
um árum fór ég að vinna í pípulögnum
en fagið var ekki gert löggilt fyr en 1932.
Ég var 9 ár í stjóm sveinafélagsins og
11 ár í stjórn Meistarafélags pípulagninga-
manna. Undanfarin ár hef ég verið
heiðursfélagi og aldursforseti í Meistarafé-
lagi pípulagningamanna.
- Hvemig líst þér á nútímann og fram-
tíðina?
Ég veit nú ekki hvað segja skal - það
hefur mörgu farið fram en svo er annað
sem ekki gengur eins vel. Merkilegt er
það til dæmis að þeim tekst hvorki að
selja kjötið né mjólkina með hagnaði,
hvorki hér innanlands né úr landi. En svo
era aftur menn sem geta selt blávatnið
úr landi með gróða. Þetta hefði mörgum
þótt undarleg útkoma í gamladaga og
líklega hefði enginn trúað því að þetta
gæti gerst.
-bó.