Morgunblaðið - 28.09.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGUR 28.' SEPTEMBER 1986
'*B 29
VELVAKANDI
SVARAR (SÍMA
691100 KL. 11-12
FRÁ MÁNliDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hefur ráðherrann gleymt loforðinu?
Helgi Kristjánsson skrifar:
Velvakandi góður.
Mig langar að biðja þig fyrir
skilaboð til Halldórs Ásgrímssonar,
sjávarútvegsráðherra. Á atvinnu-
málaráðstefnu sem haldin var í
Ólafsvík fyrir tajpu ári lofaði hann,
úr ræðustóli, að birta á ný í dag-
blöðum aflamörk allra fiskiskipa.
Sagði hann það raunar sjálfsagt
mál. Ég hef ekki orðið var við, að
við þetta hafi verið staðið. Kannski
hefur ráðherrann gleymt loforðinu?
Bið ég hann að bæta úr því.
í mars 1984 birti Morgunblaðið
skrá yfír öll aflamörk. Eftir það
hafa orðið margar s.k. leiðrétting-
ar. Með því að bera saman getur
maður séð hvar viðbótin liggur. Ég,
og margir aðrir, kalla hana geð-
þóttatónnin. Það er líka svo að sem
sjálfstæðismaður roðna ég af
skömm yfír því að minn flokkur
skuli standa að þessari ofstjóm og
þar með óstjóm. Aðrar leiðir að
markmiðinu em betur færar og
geðþekkari, leiðir sem ekki ganga
þvert á það viðhorf sjálfstæðis-
manna að hver maður skuli njóta
verðleika sinna.
Kvótinn var í byijun samþykktur
til skamms tíma sem reynsluúr-
ræði. Á síðasta vetri var hann svo
barin gegnum Alþingi til framleng-
ingar. Kvótamenn hafa síðan hælst
um og sagt kvótann komin til að
vera. Yrði þá öll rangsleitni endan-
Iega negld niður og landkrabba-
skessur með braskáráttu kasta á
milli sín fjöreggi þjóðarinnar.
Kvótamenn hafa skellt skollaeyrum
fyrir öllum ágöllum, sem komið
hafa í ljós á þessu geðþóttakerfi.
Árátta þeirra minnir á gömlu
vísuna, sem ég vona að ég fari rétt
með:
Þó brotni stafur og slitni jörð
slettunum ekki kvíddu.
Hugsaðu hvorki um himin né jörð
en haltu þér fast og ríddu.
Já, jörðin er svo sannarlega slitin
og mínir flokksbræður, sem hafa
kvótaglýjuna í augum, ættu að
koma sér af merinni áður en meira
er orðið.Ég læt svo, Velvakandi,
fljóta að lokum vísu, sem ég sá í
dálkum þínum ekki alls fyrir löngu:
Kvótinn elskar aumingjann
öðrum veldur tjóni.
Gerir sérhvem mætan mann
að meðalskussajóni.
Filma tapaðist
í Suður-Þing-
eyjarsýslu
Ágúst Guðmundsson skrifar:
Laust eftir miéjan ágúst í sumar
var ég á ferð um Norðurland og
varð þá fyrir því hvimleiða óláni
að tapa átekinni filmu. Filman var
35 mm af gerðinni Kodachrome 64
slides og var hún í fílmuboxinu í
upprifnum umbúðum sínum ásamt
sendingarumslagi til framköllunar.
Líklega varð hún viðskila við eig-
anda sinn einhversstaðar á leiðinni
frá Fnjóská, örskammt neðan við
og á bak við verslunina í Vagla-
skógi, nálægt Bamafossi í Skjálf-
andafljóti, um Ystafellsskóg og
síðan eftir þjóðveginum norður til
Húsavíkur. Það er að segja tapið
uppgötvaðist á Husavfkurfjalli. Ef
að einhver hefur fundið þessa til-
nefndu fílmu og sent hana til
framköllunar má þar líta landslag
í blómlegum byggðum Eyjafjarðar
og veggjahleðslur eftir hagleiks-
manninn Áma Tómasson á Knarr-
areyri á Flateyjardal. Hafí einhver
orðið einhvers áskynja um afdrif
téðrar fílmu væri mér mikil þökk
ef hann léti mig vita.
Bréfritari segir sjávarrútvegsráðherra hafa ekki staðið við það lof-
orð sitt, að birta aftur í dagblöðum aflamörk allra fiskiskipa.
Seg-ðu mér söguna aftur
„Aldraðir úr Langholtssöfnuði"
voru með fyrirspum í Velvakanda
4. september s.l., um hvort ein-
hver kannaðist við framhaldið á
kvæði sem byijaði á þessa leið:
„Segðu mér söguna aftur, söguna
frá því í gær, um litlu stúlkuna
ljúfu með ljósu fléttumar tvær“.
Tveir aðilar höfðu samband við
Velvakanda nú í vikunni, sem
könnuðust við þetta kvæði. Það
heitir „Litla stúlkan" og er úr ljóð-
mælum Jóhanns Magnúsar
Bjamasonar.
Velvakandi þakkar viðkomandi
aðilum fyrir aðstoðina.
Litla stúlkan
Hér birtist kvæðið Litla stúlkan með aldamótastafsetningu.
Litla stúlkan
Segðu mér söguna aptur — söguna þá í gær —
um litlu stúlkuna, með ljúfu augun og ljósu fléttumar tvær.
Var hún ekki fædd út’ á íslandi, og alin þar upp á sveit,
og send hingað vestur á sveitarinnar fé — með saknaðartárin heit?
Hún var þrettán ára, eða þar um bil. — Jú, það vom þín orð.
Þú sagðir, að sárt hefði ’ún grátið, er settu þeir hana um borð;
og þá gusumar geng’ yfír skipið, sem gnötraði og veltist á hlið,
þá bað hún svo vel, og þá bað hún svo heitt: „æ, blessaðir
snúið þið við!
Aumingja bam! Það var ósköp sárt! En átakanlegra var hitt,
þegar vestur hún kom til Vinnipeg og vildi sjá skyldfólkið sitt,
að fólkið hennar var farið — hún fann það ekki þar.
Þú sagðir, að þér hefði mnnið til riíja, hve raunaleg hún var
í innflyténda-salnum, er sat hún svo sakleysisleg og hljóð
og reyndi að hylja með hymunni sinni ’ið heita táraflóð.
Var kyn þó væri ’ún döpur? Og víst var það nokkuð hart,
að segja við ’ana: „Hættu að hrína! — Hestamir koma nú snart. —
Með karlinum keyrirðu út á land, og kemst þar í góða vist.
Skæld’ ekki meira! — Skárr’ er það! — Jeg skal nú verða bist!“
Svo fór hún einhverja langa leið út á land — Eða var ekki svo?
Og fremur gott var fólkið við hana fyrstu dagana tvo.
En svo þmtu gæðin meir og meir; og maigsinnis var það hún grét,
þá kerlingu kreppti hnefann og karlhróið fólslega lét.
Þau börðu hana trúi jeg, svo bólgin hún var og blædd’
undan svipunni þrátt:
Þau létu hana vinna, þó hún væri sjúk — já, vinna allt stórt og smátt.
Henni leiddist svo mjög; hana langaði heim. Já, láttu mig
heyra um það,
þegar hún tók til þess bamslega bragðs að búast um nótt af stað.
Hún komst út um gluggann með kistilinn sinn; — en koldimm
var nóttin og löng —
svo hljóp hún til skógar, eins hart og hún gat. — Hún hræddist
ei myrkviðar-göng.
Hún þekkti enga leið, eins og vonlegt var. Hún villtist. Hún
missti þrótt.
Og hver getur sagt, hvert hún lenti, eða hvað hún leið þá nótt?
En líklegast hefur hún lagt sig til svefns, þá lúin hún orðin var,
og ef til vill aldrei vaknað — já andast í skóginum þar.
Já, hver getur sagt, hvaða þrautir hún leið, eða hvemig hún
lífinu sleit?
Opt hefur verið að því sþurt, en enginn maður það veit.
Æ segðu mér söguna aptur — söguna þá í gær —
um litlu stúlkuna, með ljúfu augun og íjósu fléttumar tvær.
Með kveðju,
Ein á Akranesi.
v2 SVÍNKT
Napoleon gædi 235 kr. kg.
Minni fita Tilbúið ' kistuna-
Betra eldi
Lægra verð
| |
KJÖTMIÐSTÖÐIN Simi 686511
n AMC Jeep
'F I A T
Þjónusta
er veturinn
nálgast
Mótor- og
Ijósastillum
Yfirförum bílinn og bendum á
hvað þarf að lagfæra til að fyrir-
byggja tafir og óþörf vandræði.
Hafið samband við verk-
stjóra í síma: 77200.
A.M.C. umboðið.
EGILL VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77395
Plliffl^Jogginggallar
með endurskinsmerkjum
Litir: grátt/rautt, blátt/rautt
Stærðir: 3—8
Verð kr.
•Senduntí9
PÓSTKRÖFU
SPORTVORUyERSLUN
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
Á HORNIKLAPPARSTIGS
06 GRETTISGÖTU
S: 11783