Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 2

Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 Eins og kunnugt er lokuðu verk- fallsverðir BSRB Háskólanum eftir að háskólarektor hafði opnað dyr skólans er húsverðir voru í verk- falli. í dómi Hæstaréttar segir að hvorki hafi ákvæði laga um kjara- samninga BSRB né ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur eða aðrar réttarreglur staðið í vegi fyr- ir því að rektor Háskóla Islands væri heimilt að opna hús háskólans svo að fullnægt yrði þar lögbund- inni starfrækslu enda þótt hafið væri allsherjarverkfall BSRB. Þá segir að ágreiningslaust sé að kennsluna hafi kennarar utan BSRB átt að inna af hendi. „Að- gerðir á vegum stefnda til að koma í veg fyrir aðgang nemenda og kennara að húsakynnum háskólans og hindra þannig lögboðna kennslu, voru því ólögmætar. Ber stefndi af þeim sökum fébótaábyrgð á því tjóni, er áfrýjandi varð fyrir," segir í dómnum. Einnig kemur fram að Háskólinn telur tjón sitt nema 314.609 krón- um, sem er, auk launatengdra gjalda, sú fjárhæð, er hann þurfti að greiða stundakennurum sam- kvæmt samningum fyrir þær kennslustundir er niður féllu dag- ana 4.-9. október 1984 vegna hinna ólögmætu aðgerða á vegum BSRB. Þessi fjárhæð hefur ekki sætt reikningslegum andmælum af hálfu BSRB og var samtökunum Kjarvalsstaðir: 45 til 50 þús- und gestir á sögusýningu UM 45 til 50 þúsund manns sóttu sýninguna „Reykjavík í 200 ár- svipmyndir mannlifs og byggða“, sem lauk um helgina. Að sögn Stefáns Halldórssonar starfsmanns á Kjarvalsstöðum var skólafólki boðið á sýninguna sem stóð í 6 vikur. „Aðsóknin var mjög góð og margir komu oftar en einu sinni. Allir sem stóðu að sýningunni eiga hrós skilið," sagði Stefán. því gert að greiða þessa upphæð með dómvöxtum frá 1. nóvember 1984 til greiðsludags auk máls- kostnaðar fyrir héraði og fyrir Hæstarétti samtals 130 þúsund kr. Þeir fimm hæstaréttardómarar sem dæmdu í þessu máli voru allir sammála um sekt BSRB, en tveir þeirra skiluðu sératkvæði þar sem þeir töldu að hæfilegar bætur vegna tjóns Háskólans væru 157.304,50 krónur, eða helmingur þeirrar fjár- hæðar sem Háskólinn krafðist. Frá slysstað við Stekkjarbakka í gærkvöldi. Morgunblaðið/Júlíus. Fernt á slysadeild eftir árekstur HARÐUR árekstur varð á mótum Stekkjarbakka og Álfabakka í Breiðholti um klukkan 21.30 i gærkvöldi. Þrir bílar lentu þar saman með þeim afleiðingum að ökumenn tveggja þeirra og far- þegar úr sitt hvorri voru flutt á slysadeild. Meiðsli þeirra voru ekki talin alvarleg. Slysið vildi til með þeim hætti að jeppabifreið var ekið norður Stekkjarbakka í veg fyrir fólksbíl, sem var á leið vestur Alfabakka. Stöðvunarskylda var á jeppann, sem ökumaður kvaðst hafa sést yfir vegna slæms skyggnis. Við áreksturinn köstuðust báðir bílamir á kyrrstæða bifreið sem beið við gatnamót- in. Ökumaður kyrrstæða bíslins slapp ómeiddur, en ökumenn hinna beggja, svo og tvær konur sem vom farþegar í þeim voru flutt á slysadeild. Bílamir tveir skemmdust mikið og vom fluttir burt með kranabíl, en litlar skemmdir urðu á kyrrstæða bílnum. Síldarverksmiðjur ríkisins: Fresta gildistöku nýrra sýnatökureglna um viku Sjómenn áformuðu að setja ríkis- verksmiðjurnar út í kuldann STJÓRN Síldarverksmiðja ríkisins ákvað á fundi sinum í gær að fresta gildistöku nýrra reglna um sýnatöku á loðnu um eina viku. Mikil óánægja hefur verið meðal loðnusjómanna um hinar nýju regl- ur, sem komu til framkvæmda í byrjun siðustu viku. í mótmælaskyni neituðu sjómenn að landa loðnu á Siglufirði og í Reykjavík og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins var einnig áformað að setja ríkisverksmiðjumar á Raufarhöfn og Seyðisfirði út i kuldann. Stjóm Síldarverksmiðja ríkisins fundaði um málið í gær og var nið- urstaða fundarins sú, að rétt væri að fresta gildistöku nýju sýnatöku- reglanna um eina viku. Ætlunin er að nota þessa viku til að ræða við fulltrúa sjómanna um stöðu mála, þar sem báðir aðilar skýri sín við- horf og menn freisti þess að komast að sameiginlegri niðurstöðu um lausn mála. Á þessari viku verða sýni tekin bæði með gömlu og nýju aðferðinni, það er við lúgu um borð og við vigtina. Að viku liðinni verð- ur síðan tekin endanleg ákvörðun um hvaða aðferð verður notuð við sýnatökuna. Þá var ákveðið á fund- inum að gera sjávarútvegsráðherra og ríkisstjóminni grein fyrir rekstr- arstöðu verksmiðjanna. „Við viljum ná samkomulagi við sjómenn um þetta mál og ræða við þá í rólegheitunum áður en frekari ákvörðun verður tekin“, sagði Helgi Laxdal, fulltrúi Farmanna- og fiski- mannasamdands íslands í stjóm SR að loknum fundinum í gær. Helgi sagði að borist hefði bréf undirritað af 28 áhöfnum í loðnuflotanum þar sem gerð er grein fyrir hversu mikla tekjurýmun hinar nýju sýnatöku- reglur hefðu í för með sér fyrir sjómenn, og hefði afrit af bréfinu verið sent sjávarútvegsráðherra. „Það má því segja að viðbrögð sjó- manna séu skiljanleg og eðlileg krafa þeirra um að menn reyni einn- ig að skoða aðra þætti í rekstri verksmiðjanna með spamað og ha- græðingu fyrir augum", sagði Helgi. Loðnusjómenn ákváðu um helg- ina að neita að landa á Siglufirði og í Reylqavík í kjölfar þessarar deilu. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins voru einnig uppi áform um að sniðganga ríkisverksmiðjum- ar á Raufarhöfn og Seyðisfirði. Raunar eru fullyrðingar þess eðlis að finna í forsíðuviðtali við Lárus Grímsson, skipstjóra á Hilmi II, í tímaritinu „Fiskifréttir", sem út kom síðastliðinn föstudag. Þar er haft eftir Lárusi að til hafi staðið að setja ríkisverksmiðjumar út í kuldann enda muni sjómenn „aldrei sætta sig við aðferðir SR“, eins og Lárus orðar það. Hvalvertíðinni lokið: Ekki tókst að fylla langreyðakvótann HVALVERTÍÐINNI er nú lokið og veiddust alls 117 hvalir, 76 langreyðar og 40 steypireyðar. Ekki tókst að fylla langreyða- kvótann, sem eru 80 hvalir, þar sem langreyðurin er nú að mestu Póstur- og sími 80 ára: Tækni- og sögusýning sím- ans í gamla Sjálfstæðishúsinu TÆKNI- og sögusýning í tilefni af 80 ára afmæli pósts- og síma var opnuð í gamla Sjálfstæðis- húsinu við Austurvöll í gær. Sýningin stendur til mánudags- ins 6. október. Á sýngunni eru sýndar ýmsar tækninýjungar í símamálum, auk þess sem saga símans er rekin í máli og myndum. Þar kennir ýmissa grasa, t.d. er til sýnis elsta símsíööir. á Isiar.ái, sem tekin var í notkun á Seyðisfirði árið 1906. Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri flutti ávarp við opnun sýningarinnar í gær og einnig Matthías Bjamason, sam- gönguráðherra. Sýningin verður opin almenningi alla daga fram á MorRunblaðið/Ámi Sæberg Jóhann Gretar Einarsson stöðvarstjóri sýnir forsætisráðherra og fieiri gestum gömlu símstöðina á Seyðisfirði. mánudag frá kl. 16 til 20. Að- gangur er ókeypis. Jóhann Hjálmarsson, blaðafull- trúi Pósts- og síma, sagði að þess væri minnst á ýmsan máta að 80 ár eru liðin frá því að símasam- band var fyrst tekið upp á íslandi. Auk sýningarinnar í gamla Sjálf- stæðishúsinu, verður gefin út bók um sögu símans, „Söguþræðir sem Heimir Þorleifsson, sagnfræðingur tók saman. Einnig hefur verið gerð kvikmynd um póst- og símaþjónustu, sem Vald- imar Leifsson tók og loks verður gefinn út bæklingur um símaþjón- ustu, sem ber heitið „Lífæð við heiminn" og fæst hann ókeypis á öllum póst- og símstöðvum. farin af miðunum og of skugg- sýnt er orðið til veiða, að sögn Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf. „Þegar best áraði í sumar og nóttin var björt, vorum við beðnir að liggja í Reykjavíkurhöfn, en þar er lítið um hval,“ sagði Kristján í samtali við Morgunblaðið í gær, en að hans áliti hafði stöðvun hval- veiða í sumar nokkur áhrif á að ekki tókst að veiða upp í allan lang- reyðakvótann. Einnig setti þoka á miðunum í lok júní og byijun júlí strik í reikninginn. „Við hófum veiðamar einni viku síðar en áætlað var og þurftum að stöðva þær tveimur vikum fyrr en ráðgert var í júlílok. Við ætluðum að veiða langreyðamar þar til um miðjan ágúst, meðan bjart er að nóttu til, en sandreyðurin kemur yfirleitt ekki á miðin fyrr en seinni hluta águstmánaðar, eða í byrjun september. Nú er skammdegið orð- ið það mikið að blástramir sjást ekki nógu vel, og einnig er orðið fremur lítið um þessa hvalategund á þessum tíma árs,“ sagði Krislján. Hann sagðist eiga von á því að það hvalkjöt, sem selt verður er- lendis, færi að mestu til Japans og sagðist Kristján ekki vita til þess að sala þess yrði erfiðleikum háð. Hins vegar yrði tíminn að leiða í ljós hvemig gengi að koma út þeim hluta afurðanna, sem selja verður innanlands. Hæstiréttur: um ólögmætar Aðgerðir BSRB gegn Háskólan- HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Bandalag starfsmanna ríkis og bæja ,til að greiða Háskóla íslands 314.609 krónur og málskostnað vegna ólögmætra aðgerða sem BSRB stóð fyrir við Háskólann í verkfalli sínu haustið 1984.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.