Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 4

Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður „Mjög alvarlega ásakanir á Hjálparstofnunarinnar“ Menntamálaráðherrar Norðurlanda undimta samkomulagið í Reykjavík í gœr. Stefnt að sameiginlegum vinnumarkaði fyrir kennara RÍKISSTJÓRNIR Norðurland- anna hafa sameinast nm að gera fagkennurum í grunnskólum og menntaskólum mögulegt að vinna í skólum á öðrum Norðurl- öndum jafnt og í eigin heimal- andi. Menntamálaráðherrar Norðurlandanna undirrituðu samkomulagið í gær á fundi sínum í Reykjavík. Samkomulagið er til komið vegna þess að stefnt er að sameiginlegum vinnumarkaði kennara á Norðurl- öndunum, en síðan 1982 hefur slíkt samkomulag verið í gildi hvað varð- ar almenna kennara. Samkomulag- ið tekur gildi eftir mánuð. JÓHANNA Sigurðardóttir al- þingismaður fór sl. laugardag fram á það við Jón Helgason dóms- og kirkjumálaráðherra að hann hlutaðist til um að rannsókn fari fram á meintum ásökunum á starfsemi Hjálparstofnunar kirkjunnar. Jón Helgason hefur svarað þingmenninum á þann veg að eðlilegast sé að hún beini tilmælum sínum tíl ríkissaksókn- ara, og segir Jóhanna þessi svör ráðherrans út í hött. Jóhanna var í gær spurð hvort þessi beiðni hennar byggðist á ein- hveiju öðru en grein sem birtist í síðasta tölublaði Helgarpóstsins: „Nei, ég hef ekkert fleira í höndun- um, en þessa grein Helgarpóstsins. Þetta eru náttúrlega mjög alvarleg- ar ásakanir sem þama koma fram, á starfsemi Hjálparstofnunarinn- VEÐUR í DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurslofa islands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gaer) VEÐURHORFURIDAG: YFIRUT á hádegi í gœr. Um 800 km vestsuðvestur af Reykjanesi er 974 millibara víðáttumikil lægð sem hreyfist í norðnorðaustur. SPÁ: Suðvestlæg átt og víða strekkingsvindur. Skúrir verða um sunnan- og vestanvert landiö en þurrt að kalla noröaustanlands. Með kvöldinu snýst vindur meira í vestur. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Norðan- og síöan norðvest- anátt og kalt í veðri. Skýjað verður og víða skúrir eða slydduél um norðanvert landið. Suðvestanlands verða smá skúrir en líklega þurrt og bjart á suður- og suðausturlandi. TAKN: Heiðskírt a Léttskýjað a Hátfskýjað , Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. f r r r r r r Rigning r r r * r * r * / # Slydda r * r * -* * * * * * Snjókoma * * * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus y Skúrir V Él = Þoka = Þokumóða », » Súid OO Mistur —|. Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12.00 í aær að ísl. tíma hhi veóur Akureyri 9 alskýjað Reykjavik 9 rigning Bergen 11 skýfaó Helsinki 10 skúr ian Mayen 3 snjóél Kaupmannah. 17 skýjað Narsaarssuaq 3 hetósktrt Nuuk 2 Mttskýjað Ostó 1B skýjað Stokkhólmur 15 hálfskýjað Þórshðfn vantar Algarve 26 Mttskýjað Amsterdam 19 Mttskýjað Aþena 26 akýjað Barceiona 23 skýjaðV Beriín 17 mistur CMcago 24 alskýjað Glasgow 15 súld Feneyjar 22 hetóskirt Frankfurt 19 Mttskýjað Hamborg 16 súld Las Palmas 26 Mttskýjað London 15 mlstur Los Angeles 13 helðskírt Lúxemborg 17 Mttskýjað Madrfd 20 Mttskýjað Malaga 26 Mttskýjað Mallorca 17 rignlng Miaml 29 skýjað Montreal 13 súld Nice 24 Mttskýjað NewYork 19 alskýjað Paris 16 þokumóða Róm 24 skýjað Vin 19 Mttskýjað Washington 21 atskýjað . Winnipeg 11 skúr ar,“ sagði Jóhanna, „og það hefur komið í ljós að Hjálparstofnunin er mér sammála um að rétt sé að óvil- hallir aðilar rannsaki þetta mál. Tilgangur minn með þessari beiðni er fyrst og fremst að reyna að tryggja áfram þann trunað sem ríkt hefur á milli fólksins og Hjálpar- stofnunarinnar." Jóhanna var spurð hvort hún teldi að skrif eins og þau sem birtust í Helgarpóstinum, um Hjálparstofn- unina, gætu stofnað hjálparstarfínu í hættu: „Ég hef ekki nokkra trú á öðru, en þeir aðilar, sem láta svo alvarlegar ásakanir frá sér fara, hljóti að hafa eitthvað fyrir sér í þessu máli. Sjálf hef ég ekki lagt nokkurt einasta mat á þessar ásak- anir,“ sagði Jóhanna. Dóms-og kirkjumálaráðherra svaraði Jóhönnu á þann veg í gær, að óljóst væri, hvaða rannsókn hún væri að meina. Ef hún væri að meina opinbera rannsókn, þá væri eðlilegra fyrir hana að vísa málinu til ríkissaksóknara. í annan stað vísaði ráðherra til beiðni Hjálpar- stofnunar kirlqunnar, og sagðist hafa sent þá beiðni til umsagnar Ríkisendurskoðunar. Jóhanna sagðist telja svar dóms- og kirkjumálaráðherra út +i hött. Kvaðst hún telja að það væri um mjög óeðlilega málsferð að ræða, ef hún snéri sér til ríkissaksóknara. „Ég hef ekki lagt mat á þær ásak- anir sem fram hafa komið," sagði Jóhanna, „en þegar leitað er til ríkissaksóknara þá er það fyrst og fremst vegna gruns ásaknæmu at- hæfí og broti á refsilöggjöfínni. Þess vegna eru þessar ábendingar hjá kirkjumálaráðherra alveg út f hött, og raunar furðulegt að dóms- málaráðherra setji þær fram við slíkar aðstæður." Jóhanna kvaðst draga í efa að um óvilhalla rannsókn yrði að ræða, ef að farið yrði að tilmælum Hjálp- arstofnunarinnar um að fela Ríkisednurskoðun þá rannsókn. „Hjálparstofnun vill láta rannsaka bókhald stofnunarinnar fyrir árin 1984 og 1985. Það hlýtur að vakna sú spuming hvort eðlilegt sé að þeir sem ásakanimar beinast að, fái að ráða ferðinni," sagði Jó- hanna, „í fyrsta lagi um það hver rannsaki málið og í annan stað til hvaða tímabils rannsóknin eigi að ná.“ Jóhanna kvaðst ekki eiga ann- arra kosta völ en taka málið upp á vettvangi Alþingis, ef hún yrði ekki sátt við þá niðurstöðu sem dóms- málaráðherra kæmist að. Athugasemd vegna fréttar í DY MORGUNBLAÐINU barst í gær svohljóðandi athugasemd frá Erling Aspelund stjómarform- anni Hjálparstofnunar kirkjunn- „Yfír þvera forsíðu DV í dag er haft eftir mér að stjóm Hjálpar- stofnunar kirkjunnar hafí staðið í þeirri trú að Ríkisendurskoðun fari yfír bókhald stofnunarinnar. Rit- sfjóri DV hefur staðfest að vegna misskilnings þess er samdi fyrir- sögn þessa, á gmndvelli viðtals sem annar blaðamaður hafði við mig, hafí þessi alranga staðhæfíng birst. I viðtalinu er rætt um árítaða áreikninga, að þeir hafi verið send- ir Ríkisendurskoðun, en aldrei talað um bókhald, enda ekki í verkahring Ríkisendurskoðunar, heldur löggilts endurskoðenda. Því er alrangt, að stjómin hafi nokkum tíma staðið í þeirri trú að bókhaldið hafi farið í Ríkisendurskoðun, heldur er hér átt við staðfestan ársreikning. Sama misskilnings virðist hafa gætt í fréttum sjónvarps í gær, þar sem í umræðunum um reikninga stofnun- arinnar leggi menn tvíþættan skilning í það orð. Þ.e. staðfestan ársreikning annars vegar og allt bókhaldið hins vegar. Ég vil því rækilega undirstrika að þegar stoftiunin ræðir um reikninga sína er hátt við staðfestan ársreikning, ekki bókhaldið í heild. Ég harma að frétt þessi skuli hafa valdið misskilningi og hugsan- lega varpað skugga á ummæli framkvæmdastjóra stofnunarinnar og ítreka fyrir yfírlýsingu um fullt traust til hans og hans verka. Sjálfstæðisflokkurinn á Austurlandi: Ákveðið að efna til prófkjörs AÐALFUNDUR lgördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austur- landi var haldinn i Valaskjálf dagana 26. og 27. september sl. Þar var tekin ákvörðun um að efnt skyldi til prófkjörs fyrir næstu alþingiskosningar. Ákveðið var að próflg'örið skuli fara fram helgina 31./október og 1. nóvember nk. Framboðsfrestur til prófkjörsins er til 10. október. Á aðalfundinum var kosin sérstök pró- kjörsnefnd, sem starfar með stjóm kjördæmisráðs. Þingmennimir Sverrir Her- mansnson og Egill Jónsson lýstu því báðir yfír á fundinum að þeir myndu taka þátt I prófkjörinu. Þá var Albert Kemp endurkosinn form- aður kjördæmisráðs Sjáflstæðis- flokksins á Austurlandi. Haustmót Sjálfstæðisfélaganna á Austurlandi var svo haldið f Vala- skjálf sl. laugardagskvöld og var ágætlega mætt til mótsins. Aðal- ræðumaður kvöldsins var Halldór Blöndal, alþingismaður og að sögn viðstaddra, var mikil stemmning ríkjandi á mótinu, sem fór í alla staði vel fram. Albert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.