Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 6

Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 Þyrnirós | á er gangverk samfélagsins tek- ið að skrölta á ný en hvað er að frétta af helgardagskrá ríkisfjöl- miðlanna? Helgarmyndimar Þeir sjónvarpsmenn brydduðu upp á þeirri nýbreytni um síðustu helgi að sýna sjónvarpsmynd í tveimur hlutum, á föstudags- og laugardags- kveld. Nefndist myndin A heitu sumri, bandarísk að ætt og uppruna og sniðin eftir sögu Williams Paulkn- er. Ég hafði gaman af þessari mynd þótt síðarí hlutinn væri æði reifara- kenndur. Finnst mér vel koma til greina að hafa svipaðan hátt á í framtíðinni svona annað veifið en í guðs lifandi bænum sleppiði þriðja flokks gamanmyndum á borð við Laumufarþega þeirra Marx-bræðra. Nú harðnar senn á dalnum hjá ríkissjónvarpinu og þá verða menn á þeim bæ að endurskoða kvik- myndavalið. Ég fæ ekki séð að sú stefna að hirða ruslið úr kvikmynda- pökkunum og læða því saman við góðgætið gangi öllu lengur. Annars verður spennandi að fylgjast með dagskrár rásar 1 og bera hana saman við dagskrá ríkissjónvarpsins. Eink- um verður samkeppnin hörð á kvikmyndasviðinu. Þó er náttúrulega ekki gott að spá fyrir um hvemig þessi mál þróast því eins og Ellert B. Schram ritstjóri DV bendir á í ágætri grein helgarblaðsins er hann nefnir Bannsett frelsið þá er æðsta yfirvald ríkisútvarpsins/ sjónvarps útvarpsráðið blessaða til ails víst eða eins og Ellert kemst að orði í greininni: Stundum kom það fyrir að hugrakkir útvarpsráðsmenn sem skildu ekki tilverustig sitt í þess- um staðfesta heimi, gerðu tillögur um lengingu dagskrár, vildu til að mynda útvarpa fram yfír miðnætti eða sýna fleiri bíómyndir um helgar eða þá setja upp svæðisútvarp tii hlið- ar við útvarp Reykjavík. Þeir vom umsvifalaust skotnir í kaf af biyn- vörðu heimavamarliði sem sá hættur og hindranir í hverju fótmáli. Venju- legast vom róttækar breytingartillög- ur afgreiddar með einföldu svari. — Ríkisútvarpið hefur ekki efni á að lengja dagskrána ... Nú hafa risið upp nýjar útvarps- og sjónvarpsstöðv- ar sem þjóðin leyfir sér að hlusta á og ég heyrði það um daginn að Ríkisútvarpið hefði ákveðið að færa til fréttimar f sjónvarpinu. Ætlaði líka að byija fyrr og hætta seinna. Og hvað heyrði ég meira? Að nú væri meiningin að útvarpa á rásinni allan sólarhringinn! Vikuskammtur í Vikuskammti Einars Sigurðsson- ar, útvarpsstjóra Bylgjunnar, sem er að finna í sunndagsdagskránni milli 11.00 og 12.30 var einmitt rætt um fyrirhugaðar dagskrárbreytingar ríkisútvarpsins sem hafa náttúmlega orðið til vegna þess að „bansett frels- ið“ hreyfði við Þymirósinni f út- varpsráði. í símatíma er Einar efndi til sögðu lesendur álit sitt á fréttum liðinnar viku. Að sjálfsögðu bar ríkisútvarpið á góma. Þannig lýsti einn hlustandi yfir óánægju með að sjónvarpsfréttir ríkissjónvarpsins og rásar 2 hlypu á skjáinn á sama tíma. Þá hringdi útivinnandi húsmóðir er kvaðst óánægð með að sjónvarps- fréttir hæfust klukkan 19.30 en ekki tuttugu því hún væri einfaldlega ekki búin að ganga frá eftir matinn fyrr en að verða átta á kvöldin. Þá hríngdu tveir hlustendur og lýstu furðu sinni á því að fréttir á táknmáli færðust nú svo iangt fram að þær tengdust á engan hátt aðalfréttatfmanum og stakk svo einn hlustandi upp á þvf að innlendir þættir á borð við Stiklur yrðu textaðir. Ég vona að yfirmenn ljósvakaflölmiðlanna íhugi vendilega þessar ábendingar hiustenda. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / SJÓNVARP Kimmi vatns- fælni ■■■■ í kvöid verður 91 30 annar lestur á “ A smásögunni „Tvenns konar andlit Kimma vatnsfælna“ eftir brasilíska höfundin Jorge Amado. Hann fæddist árið 1912 og er þekktur fyrir ljóðrænan og myndríkan stíl á sögum sínum. Amado er upprunninn í norðaust- urhluta Brasilíu og hefur skrifað margt um það hér- að og fátæktina þar í borg og sveit. Þaðan er einnig sprottin sagan um Kimma vatnsfælna. Ein bók þessa höfundar hefur verið gefín út á íslensku. Það er bókin Ást- in og dauðinn við hafið, sem gefin var út 1957. Það er Sigurður Hjartar- son sem hefur þýtt og les söguna um Kimma vatns- fælna. Sjónvarpið 20 ára ^■■R Rfkissjónvarpið 91 05 er tuttugu ára í dag, þriðjudag- inn 30. september. Af því tilefni verður á dagskrá sérstakur liður í kvöld er nefiiist „Gegnum tíðina". í þættinum verður brugðið upp brotum úr dagskrár- efni sem flutt hefur verið á þessu tímabili og litast verður um bak við tjöldin á Laugavegi 176. Á mynd- inni sjáum við þá séra Sigvalda og Hjálmar tudda í leikritinu Manni og konu. Umsjón með þættinum hef- ur Andrés Indriðason. Vilborg Halldórsdóttir Bylgjan: Stoneskvöld 2122 í kvöld kl. 21-23 mun Vilborg Halldórsdóttir ijalla um hljómsveitina Roiling Stones á Bylgjunni. Gestur hennar og aðalráð- gjafi verður Ólafur Jónsson frá Stonesvinafélaginu (sem var stofnað 1981). Þetta er fyrsta Stones- kvöldið að þremur og verður næsta Stones-kvöid næsta þriðjudagskvöld á sama tíma. /2 UTVARP ...' y dóttir, Lilja Þórisdóttir, Helga Þ. Stephensen og Grétar Skúlason. Jón Viðar Jónsson leiklistarstjóri flytur formálsorð. {Endurtekiö frá fimmtudagskvöldi). 24.10 Fréttir. Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 30. september 7.00 Veðurfregnir. Fréttir Bæn. 7.16 Morgunvaktin. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.30 Fréttir á ensku. 8.16 Veðurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund bam- anna: „Rósalind dettur ýmislegt í hug" eftir Christ- ine Nöstlinger. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir og Jóhann Einarsdóttir þýddu. Þórunn Hjartardóttir les (5). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.36 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.46 Veöurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 (dagsins önn — Heiisu- vernd. Umsjón: Jón Gunnar Grétarsson. 14.00 Miödegissagan: „Ma- hatma Gandhi og lærisvein- ar hans" eftir Ved Mehta. Haukur Sigurðsson les þýö- ingu sina (24). 14.30 Tónlistarmaður vikunn- ar — Django Reinhardt. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Landpósturinn — Á Vestfjarðahringnum. Um- sjón: Finnbogi Hermanns- son. 18.00 Fréttir. Dagskrá. 16.16 Veðurfregnir. 16.20 Síödegistónleikar a. „Les Préludes", tónaljóð eftir Franz Liszt. Filharm- oníusveitin í Berlín leikur: Herbert von Karajan stjóm- ar. b. Fiðlukonsert nr. 2 í d-moll op. 22 eftir Henryk Wieniawski. Itzhak Perlman og Fílharmoníusveit Lund- úna leika; Seiji Ozawa stjómar. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpiö Stjómendur: Vernharður Linnet og Sigurlaug M. Jón- asdóttir. 17.45 Torgið — Bjarni Sig- tryggsson og Adolf H.E. Petersen. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.46 Daglegt mál. Guðmund- ur Sæmundsson flytur þáttinn. 19.60 Fjölmiölarabb Ólafur Þ. Haröarson talar. 20.00 Ekkert mál Ása Helga Ragnarsdóttir, Bryndís Jónsdóttir, Halldór N. Lárusson og Sigurður Blöndal sjá um þátt fyrir ungt fólk. 20.40 Nornin í Ijósi sögunnar. Annað erindi af þremur eftir Lisu von Schmalensee. Auöur Leifsdóttir þýðir og les. 21.06 Periur Ellý Vilhjálms og Lill Lind- fors. 21.30 Útvarpssagan: „Tvenns konar andlát Kimma vatns- fælna" eftir Jerge Amado. Sigurður Hjartarson les þýð- ingu sína (2). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.16 Veðurfregnir. 22.20 Leikrit: „Kappinn , að vestan” eftir John M. Synge. Þýöandi: Böðvar Guð- mundsson. Leikstjóri: Stefán Baldursson. Leik- endur: Edda Heiörún Backman, Kristján Franklín Magnús, Erlingur Gíslason, Karl Ágúst Úlfsson, Krist- björg Kjeld, Jón Sigurbjöms- son, Kjartan Bjargmunds- son, Flosi Ólafsson, María Sigurðardóttir, Rósa Þórs- SJÓNVARP 17.55 Fréttaágrip á táknmáli 19.00 Afmælisboð Endursýning. Barnaleikrit eftir Jón Hjartar- son með ævintýrum eftir H.C. Andersen. Leikstjóri Guðrún Ásmundsdóttir. Leikendur auk leikstjóra og höfundar: Kjartan Ragnars- son, Soffia Jakobsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson og Þórunn Siguröardóttir. Frumsýnt í Stundinni okkar árið 1969. 18.25 Paddington á afmæli Bresk brúðumynd um vin- sælan bangsa og vini hans. Þýðandi Þrándur Thorodd- sen. Sögumaður Margrét Helga Jóhannsdóttir. 18.50 Auglýsingarogdagskrá ÞRIÐJUDAGUR 30. september Sjónvarpið 20 ára 19.00 I fullu fjöri (Fresh Fields) Nýr flokkur — Fyrsti þáttur. Breskur gamanmyndaflokk- ur í sex þáttum um nýjunga- gjarna konu og eiginmann hennar. Aöalhlutverk: Julia Mackenzie og Anton Rod- gers. Þættir um þessi sömu hjónakorn voru sýndir I sjón- varpinu sumariö 1984. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. 19.30 Fréttir og veöur 20.00 Auglýsingar 20.10 Vitni deyr (Death of >1 Expert Wit- ness). Annar þáttur Breskur framhaldsmynda- flokkur í sex þáttum, gerður eftir samnefndri sakamála- sögu eftir P.D. James. Roy Marsden leikur Adam Dalgliesh lögregluforingja sem grefst fyrir um morð í rannsóknarstofnun. Þýð- andi Kristrún Þórðardóttir. 21.05 Gegnum tíöina Dagskrá í tilefni þess að liö- in eru 20 ár síöan sjónvarpið hóf útsendingar. Brugðið er upp brotum úrdagskrárefni, sem flutt hefur verið á þessu tímabili, og litast verður um bak við tjöldin í sjónvarpshúsinu að Lauga- vegi 176. Umsjón: Andrés Indriðason. Stjórn upptöku: Tage Ammendrup. 23.25 Fréttir I dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 30. september 9.00 Morgunþáttur í umsjá Gunnlaugs Helgason- ar, Kristjáns Sigurjónssonar og Sigurðar Þórs Salvarsson- ar. Guðriður Haraldsdóttir sér um barnaefni kl. 10.03. 12.00 Létt tónlist 13.00 Skammtað úr hnefa Stjórnandi: Jónatan Garðars- ÞRIÐJUDAGUR 30. september 6.00- 7.00 Tónlist í morg- unsáriö. Fréttir kl. 7.00. 7.00- 9.00 Á fætur með Sig- urði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 8.00 og 9.00. 9.00-12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur öll uppáhaldslögin og ræðir við hlustendur til há- degis. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00-14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Harðar- dóttur. Jóhanna leikur létta tónlist, spjallar um neyt- 16.00 Hringiðan Þáttur í umsjá Ólafs Más Björnssonar. 17.00 ( gegnum tiöina Ragnheiöur Davíðsdóttir stjórnar þætti um íslenska dægurtónlist. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagöar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00 16.00 og 17.00. SVÆÐISUTVARP REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæðisútvarp fyr- ir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyr ir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. endamál og stýrir flóamark- aði kl. 13.20. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Péturspil- ar og spjallar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Hallgrímur Thor- steinsson i Reykjavík síðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, lítur yfir fréttimar og spjallar við fólk' sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00 og 19.00 19.00-20.00 Tónlist með létt- um takti. 20.00-21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi Rúnar Óskarsson kynnir 10 vin- sælustu lögin. 21.00-22.00 Vilborg Halldórs- dóttir spilar og spjallar. Vilborg sníður dagskrána við hæfi unglinga á öllum aldri. Tónlistin er i góðu lagi og gestirnir lika. 23.00-24.00 Vökulok. Frétta menn Bylgjunnar Ijúka dagskránni með frétta tengdu efni og Ijúfri tónlist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.