Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
9
SJÁLFSTÆÐISMENN!
BESSÍ í 6. SÆTI
Af þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík er nú aðeins
ein kona.
Sinnum kalli tímans, kjósum
BESSÍ JÓHANNSDÓTTUR
í 6. sæti í prófkjörinu í Reykjavík.
Aukum hlut kvenna í flokknum.
Kosningaskrifstofan er í Hafnarstræti 19, sími 621514.
Opið klukkan 17—21 daglega.
Stuðningsmenn.
Þakka velunnurum mínum er sýndu mér vel-
vild á 70 ára afmœli minu 14. september sl.
Sérstakar þakkir til Guðmundar Tyrjingssonar
og Sigríðar Benediktsdóttur.
Sigurgeir Sigurðsson,
Framnesvegi 54.
Ryðvarnarþ j ónusta
— Lakkvernd
Góð umhirða, meiri ending.
Pantið tíma.
Ryóvarnarskálinn hf.
SIGTÚNI5-SIM119400
Sudurland
Þriðjudagur 23. september 1986
Stöðugleiki eða verðbólga
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar for-
ystugrein í Suðurland nýverið, sem fjallar um tvo valkosti,
stöðugleika í þjóðarbúskapnum eða nýja verðbólguöldu. Þessi
hugleiðing er birt í Staksteinum í dag.
Góður árang-
ur fyrir hendi
Hér fer á eftir forystu-
grein úr Suðurlandi eftir
Þorstein Pálsson, for-
mann Sjálfstæðisflokks-
ins:
„Alþingi íslendinga
kemur saman i byijun
októbermánaðar að
venju. Þetta verður
síðasta þing kjörtíniabiLs-
ins. Nálægð væntanlegra
Alþingiskosninga mun
vafalaust setja mark sitt
á störf og málflutning á
Alþingi næsta vetur.
Þetta þinghald mun
fremur snúast um það,
hvort menn vilja áfram-
haldandi stöðugleika i
efnahagsmálum eða
ganga á vit verðbólgu-
draugsins á ný, sem yrði
óhjákvæmileg afleiðing
af myndun vinstri stjóm-
ar að kosningum loknum.
Kostirnir em skýrir.
Með breyttri stjórnar-
stefnu og batnandi
árferði hefur tekist að
vinna bug á verðbólgu.
Núverandi ríkisstjóm
var mynduð til þess að
ná þessum árangri. Þeg-
ar hún tók við var
óðaverðbólgan komin
upp í 130%. Nú sjáum við
hins vegar fram á að
geta búið við nokkuð
stöðugt verðlag með
þeim miklu umskiptum
sem það hefur í för með
sér, bæði fyrir heimili og
atvinnulíf. Kjami málsins
er sá, að þetta ætlunar-
verk hefur tekist. Fyrst
og fremst vegna þess að
fólkið í landinu vildi að
rikisstjómin næði þess-
um árangri og var tilbúið
til þess að leggja nokkuð
á sig til að svo mætti
verða. Og í annan stað
hafa batnandi viðskipta-
kjör og aukin þjóðar-
framleiðsla stuðlað að
þvi að þetta mætti
verða."
Hlutur ríkis-
insíþjóðar-
sátt
„Veigamikill þáttur i
baráttunni við verðbólg-
una var sú þjóðarsátt
sem náðist á vinnumark-
aðinum í byijun þessa
árs. Ríkisvaldið tók þátt
i þeirri lausn, í samræmi
við tilboð sitt þar að lút-
andi frá þvi í september
1984. Þáttur rikisins var
fyrst og fremst í því fólg-
inn, að lækka neyzlu-
skatta og ýmsa skatta á
atvinnufyrirtækjum.
Þessi ráðstöfun hefur
leitt til verulegs halla-
rekstrar á ríkissjóði, en
engum vafa er undirorp-
ið að sú pólitíska ákvörð-
un, að ganga til
samninga við aðila vinnu-
markaðarins með þess-
um hætti, var lykillinn
að þvi að þjóðarsáttin
tókst. Þó að halli á
rekstri rikissjóðs sé ekki
æskilegur til langframa,
verður í þessu tilviki að
horfa til þess, að það var
forsenda fyrir þvi, að við
erum i dag að tala um
stöðugleika í verðlags-
málum en ekki nýja
verðbólguholskeflu, sem
skollið hefði yfir ef þjóð-
arsáttin hefði ekki tek-
ist“
Eini vegur-
inn . . .
„Ýmis teikn eru á lofti
um það, að vinstri flokk-
amir hyggi á myndun
ríkisstjómar að loknum
næstu kosningum.
Reynslan hefur hins veg-
ar sýnt, að slikar ríkis-
stjómir hafa án
nokkurra undantekninga
kynnt svo undir verð-
bólgunni, að efnahagslíf-
ið hefur nánast veríð ein
öskustó þegar þær hafa
hrökklast frá. Dæmin um
þetta eru of mörg til þess
að nokkur maður geti
trúað öðru en að sú saga
endurtalti sig. Eini veg-
urinn til þess að koma í
veg fyrir myndun nýrrar
vinstri stjómar er að
styrkja stöðu Sjálfstæðis-
flokksins. Ef hann kemur
með aukið afl inn á Al-
þingi að kosningum
loknum, verður á hinn
bóginn unnt að mynda
ríkisstjóra sem getur
haldið áfram á þeim
grundvelli, sem nú hefur
verið lagður.“
Afram eða
aftur á bak?
„Það Alþingi, sem
kemur saman nú í haust,
þarf að leggja þær linur
sem unnið verður eftir
til þess að tryggja stöð-
ugleika í íslenzkum
efnahagsmálum til fram-
búðar, styrkja atvinnu-
vegina og efla félagslega
þjónustu i mennta- og
heilbrígðismálum. En
farí verðbólgan úr bönd-
um á nýjan leik, er eins
vist að hjól framfaranna
stöðvist. Þá verða ekki
fluttar fréttir af stöðugrí
kaupmáttaraukningu,
heldur kaupmáttar-
skerðingu. Þá verður
ekki rætt um nýjungar í
atvinniimálnm, eins og
t-a.m. ferðaþjónustu og
fiskeldi, svo minnst sé á
greinar, sem með undra-
skjótum hætti hafa
blómgast hér á Suðuður-
landi.“
Fyrstaskref
framfara-
sóknar
„Þó að árangurinn i
baráttunni við verðbólg-
una sé mikilvægur, er
hann í raun og vem að-
eins fyrsta skrefið til
nýrrar framfarasóknar.
Á þeim grundvelli er
unnt að hefja umbætur,
ekki einasta í atvinnulif-
inu sjálfu, heldur einnig
opinbera kerfinu. Fyrir
liggur að byggja þarf
upp nýtt tekjuöflunar-
kerfi fyrir rikissjóð.
Koma þarf við margs
konar endurskipulagn-
ingu og hagræðingu í
opinberum rekstrí, og
hlúa þarf að margvíslum
merkilegum menningar-
gróðri. Þannig telra ný
verkefni við þegar önnur
em að baki. En komist
menn aldrei út úr víta-
hring verðbólgunnar er
vonlitið um að menn nái
í alvöru að vinna að um-
bótum á öðrum sviðum.
Þegar horft er til baka
yfir starfstima núver-
andi ríkisstjómar, er það
auðvitað ekki svo, að
menn geti verið ánægðir
með allt sem gerst hefur.
Hitt er þó aðalatriðið, að
það verkefni sem ríkis-
stjómin var mynduð til
þess að takast á við hefur
verið leyst, og nú sltiptir
öllu að þeim árangri
verði eklti glutrað niður.
Um það munu pólitisk
átök á síðasta þingi
kjörtímabilsins snúast
öðm fremur.“
Volvo-
þjónustuferðin
1986
Eins og undanfarin ár verða starfsmenn okkar frá varahluta- og þjónustudeild
á ferð um landið og verða staddir hjá eftirtöldum umboðsaðilum sem hér segir:
Þriðjudaginn 30. sept.: Bílverkst. Sigurðar og Stefáns
og Bílaverkstæði ísafjarðar 10—12 og 2—4.
Miðvikudaginn 1. okt.: Vélsmiðju Bolungarvíkur 10—12 og
Vélsmiðjunni Þór (Penta) 3—5.
Fimmtudaginn 2. okt. Vélsmiðju Tálknafjarðar 1—4.
Föstudaginn 3. okt. Dalverki, Búðardal 10—12.
v'£B3l>lí3
TSítamatkadutLnn
Toyota Twin Cam 1985
Blásans. álfelgur Lo-profile dekk. 16
ventla vól. Meiriháttar sportbíll verð til-
boð.
Citroen CX 2,4 automatic
1981
Dökkgrár bíll með beinni innspýtingu.
Rafm. í rúðum o.m.fl. Sérstakur bíll.
Verð tilboð.
Mazda 626 GLX sport 1983
Blár 2ja dyra sportbíll m/framdrifi. 5
gíra ekinn 65 þ.km. Verð 355 þús.
Citroen BX 16 TRS 1985
Blásans. ekinn 28 þ.km rafm. i rúðum,
litað gler o.fl. Sem nýr. Verð 480 þús.
M. Benz 190 diesel 86
Einn m/öllu ekinn 86 þ. v. 950 þ.
BMW 728 '81
Bíll fyrir vandláta v. 680 þ.
Suzuki Fox pick-up (SJ
410) ’84
Yfirbyggður hjá R.V. V. 490 þ.
Honda Civic '83
Rauður ekinn 45 þ.
Subaru station 4x4 '86
Afmælistýpan ekinn 8 þ.km.
Daihatsu Charade '81
Ekinn 77 þ.km v. 180 þ.
Subaru station 4x4 '82
Ekinn 85 þ. km v. 280 þ.
Honda Civic shuttle '86
Grásans. ekinn 12 þ. km.
Suzuki Fox yfirb. '84
Ekinn 37 þ. km 5 manna v. 490 þ.
Mazda 323 1,3 LX ’86
5 gíra nýr bíll. V. 370 þ.
Saab 900 GL '82
Skutbíll ekinn 42 þ. km.
Citroén CSA Palias '84
Hvítur útvarp + segulband.
Volvo 740 GL '85
M/öllu ekinn 37 þ. km v. 720 þ.
Suzuki bitabox '85
Ekinn 26 þ. v. tilboð.
Fiat Uno 45 '86
Ekinn 4 þ. v. 270 þ.
Honda Accord EX '85
Beinsk. m/öllu ekinn 5. þ. km v.
600 þ.
Kaupendur ath.
Höfum talsvert úrval góðra bíla
á 12—18 mán. greiðslukjörum.