Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 16

Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 EFÞÚÁTT \ SPARISKIRTEINI RÍKISSJÓÐS SEM ER HÍNLEYSANLEGT 1. OKTÓBER Á SKALTU VERJAST aLLRIASOKN í ÞAÐ ÞVI RIKISSJOÐUR BÝÐUR ÞER NY SKÍRTEINI MEÐ 6.5% ÁRSVÖXTUM UMFRAM VERÐTRYGGINGU OG ADEINS TIL TVEGGJA ÁRA Þú skalt hugsa þig um tvisvar áður en þú fellur fyrir einhverjum þeirra tilboða sem nú rignir yfir þig. Það er þinn hagur að ríkissjóður ávaxti peningana þína áfram - í formi nýs skírteinis; ávöxtunin er góð og skírteinin eru laus eftir rétt rúmlega tvö ár (gjalddagi er 10. janúar 1989). En það segir ekki alla söguna. Pótt sumir bjóði álitlegri vexti en ríkissjóður eru spariskírteinin engu að síður um margt betri kostur. Pau eru innlent lánsfé og draga því úr erlendri skuldasöfnun, þau eru eign- arskattsfrjáls (eignarskattur er nú 1,2% á ári) og þau eru öruggasta fjárfesting sem völ er á; þeim fylgir engin áhætta. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS íslendingaútvarp í Kaupmannahöfn: „Byggist upp á efni, sem tengist líf i og til veru Islend- ingu í Höfn“ - segir Sigrún Björns- dóttir, einn aðstand- enda útvarpsins ÍSLENDINGAFÉLÖGIN í Kaup- mannahöfn, íslendingafélagpð og Námsmannafélagið, hafa gerst aðilar að svæðisútvarpinu Sokke- lund Radio í Kaupmannahöfn og útvarpa íslendingarnir efni sínu á laugardagskvöldum frá kl. 20.00 til 21.30. „Það eru ýmsar grasrótahreyfíngar sem standa að útvarpsstöðinni, svo sem kvennahreyfingar, umhverfís- vemdarhópar, samtök _ samkyn- hneigðra, Færeyingar og fslending- ar,“ sagði Sigrún Bjömsdóttir, einn aðstandenda útvarpsins, í samtali við Morgunblaðið. Útsendingar ís- lendinganna hófust 17. júní sl. með viðtali við forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur og er ætlunin að taka fyrir efni sem tengist lífi og tilvem íslendinga í Kaupmanna- höfíi. Einnig verða á dagskrá fréttaþættir að heiman og viðtals- þættir úr þjóðlífínu og úr stjóm- málaheiminum á íslandi. „Við höfum reynt að taka fyrir efni sem okkur fínnst tengjast Islendinganý- lendu í Kaupmannahöfn. Sending- amar ná um allt Kaupmannahafn- arsvæðið og búa þar um 3.000 íslendingar. Þétta er breiður aldurs- hópur sem býður upp á fjölbreytta dagskrárgerð." Sigrún sagði að kynningar allar væm á íslensku, en þó væru leikin íslensk lög á milli atriða og þau kynnt á dönsku. Samkvæmt dönsk- um lögum um svæðisútvarp, em auglýsingar bannaðar. Allir þátta- gerðarmennimir vinna í sjálfboða- vinnu auk þess sem íslendingafé- lögin styrkja starfsemina. „Við vonumst til að útvarpið geti verið tengiliður við landann og jafnframt frétta- og skemmtimiðill." íslend- ingafélögin hafa jafnframt með höndum útgáfu tímarits sem heitir „Nýr Hafnarpóstur" og er ætlunin að fækka tölublöðunum frá sex nið- ur í fjögur í vetur vegna tilkomu útvarpsins. Þann 20. september sl. vom stofnuð Samtök íslendingaútvarpa erlendis og eiga þar aðild Islending- ar í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Lundi og Uppsölum, en á öllum þessum stöðum er starfrækt útvarp. Sigrún sagði að starfsemin væri mjög ódýr - það kostaði ekki nema 1.000 krónur á mánuði að vera aðili að svæðisútvarpinu. Svæðisútvarpið í Kaupmanna- höfn er á bylgjulengdinni FM 101,7 Mhz. Akureyri: Brotist inn íbil Akureyri. BROTIST var inn i bifreið sem stóð við iþróttahúsið i Laugagötu á föstudagskvöldið. Rúður voru brotnar og skjalatösku stolið úr bilnum. í henni voru ekki fjár- munir. Nokkuð hefur borið á smáinnbrotum i verslanir á Ak- ureyri að undanfömu - einmitt þar sem rúður hafa verið brotnar en sllkt þekktist varla til skamms tima hér i bæ að sögn lögreglu. Þetta er þó fyrsti billinn sem farið er inn i á þennan máta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.