Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 l Sr. Kjartan Jónsson, kristniboði, skrífar frá Kenýu: Nýr söngnr í Pókot Söngurinn hljómar, svo að það undirtekur í fjöllunum í kring. Und- irleikurinn er kraftmikið og taktfast lófatak fólksins. Sönggleðin skín út úr andlitum viðstaddra, svo að það glittir í hvítar tennumar ffá daufri skímu olíulampans, sem ætl- að er að lýsa upp skólastofuna. Þetta er nýr söngur hér um slóðin „Borwe dsja, Borwe dsja“, „sýndu okkur veginn, sýndu okkur veginn". Inni í litlu skólastofunni eru eins margir og framast er hægt að troða á 30mz gólfflöt. Sú fregn hafði far- ið um hreppinn, að kristniboðinn myndi koma í heimsókn og að hann ætlaði að sýna bíó, þ.e. litskyggnur m.þ.a. nota rafmagn bflgeymisins. Það er ekki á hveijum degi, sem slíkur viðburður á sér stað og því eins gott, að missa ekki af þessu mikla undri. Það, sem hann kenndi var skrýtið. Hann sagði, að fólk gæti þekkt Guð, að honum þætti vænt um það og vildi taka þátt í lífí þess. Gat það verið satt, að ef maður tryði á Jesúm, væri allt hið illa úr fortíðinni fyrirgefið, gleymt og grafíð? Þetta var eitthvað annað en að þurfa að óttast særingar svartagaldursmanna eða að vera hræddur um að bijóta svo af sér gagnvart öndunum, að það leiddi af sér veikindi og jafnvel dauða einhvers í fjölskyldunni eða ætt- inni. í lok samkomunnar auglýsti Júlíus, samferðamaður kristniboð- ans, að hægt væri að kaupa Biblíur, nýja-testamenti og ýmsa bæklinga á vægu verði. Margir stöldruðu við til að líta á úrvalið og kaupa bókina góðu, sem hafði svo góðan boðskap um kærleika og sannleika, sem samsvaraði innstu þrám manns- hjartans. Þessi svipmynd er frá einni af nýjustu útstöðvum lúthersku kirkj- unnar í Pókot-héraði f V-Kenýu Chroway. Það var í lok síðasta árs, að beiðni kom frá fólkinu þar um aðstoð við að byggja bamaskóla fyrir hreppinn og koma á fót kirkju. Þrátt fyrir mikla Ijarlægð og væg- ast sagt slæman veg, var vel brugðist við beiðninni og nú er búið að byggja fyrstu skólastofuna, og skólinn er í fullum gangi. Hreppurinn er í um 2.000 m hæð yfír sjó. Loftslagið er því svalt og mikil úrkoma gerir það kleift, að rækta næstum því hvað sem er. Góðar mjólkurkýr þrífast þar einnig vel. Gallinn er bara sá, að það skort- ir bæði vegi og bfla til að koma afurðunum á markað. Fólkið er duglegt og er tilbúið til að leggja mikið á sig til að bæta lífskjör sín. Það vill einnig leggja mikið á sig til að kynnast hinum kristna boð- skap betur. Það er ánægjulegt og uppörvandi að starfa með og hjálpa slíku fólki. Reyndar njóta kristni- boðar hvarvetna mikils velvilja í þessu landi, og þeim er oft sýnt þakklæti fyrir þá hjálp, sem þeir veita. Ef allt fer að óskum, verður stofnaður kristinn söfnuður þama einhvem tíma á næsta ári. íslensk kristniboðsstöð Chorway er ein af 7 aðalútstöðv- um íslensku kristniboðsstöðvarinn- ar í Chepareria í Pókot-héraði. Þegar hafa 3 söfnuðir verið stofnað- ir með á §órða hundrað meðlima, en væntanlega verða einnig stofíi- aðir söfnuðir á öllum þessum stöðum með tímanum. Starf kristniboðsins er fjölþætt, meðal annars hjálpar það til við að byggja og reka 5 grunnskóla í hér- aðinu með á sjöunda hundrað nemenda, og hjálpa á þann hátt til við að byggja upp menntakerfí hér- aðsins. Allt þetta starf á rætur sínar að rekjá til íslands, til samtaka fólks innan íslensku þjóðkirkjunnar, Sambands íslenskra kristniboðs- félaga (SÍK), sem hefur séð ábyrgð sína í því að leggja sitt af mörkum Morgunblaðið/Kjartan Jónsson Útisamkoma i Chorway. Hér hefur myndast vísir að nýjum söfnuði. f upphafí eru samkomur haldnar undir skugga tijáa. Síðar meir, er starfinu vex ásmegin, verður ráðist í að byggja kirkju. Sama þróun á sér stað við myndun allra annarra safnaða í Pókot-héraði. slenska kristniboðsstöðin í Chepareria í Pókot-héraði. Allt starfíð þar er mannað og fjármagnað frá slandi. til þess, að hinn kristni boðskapur nái út fyrir landsteinana og hlýðn- ast á þann hátt boði herra kirkjunn- ar, um að boða „fagnaðarerindið öllu mannkyni". Starfíð er að lang- mestu leyti fjármagnað af ftjálsum framlögum kristniboðsvina og allir kristniboðamir eru íslenskir. Norðmenn Hér, eins og í Konsó í Eþíópíu, hefur starfíð verið í mjög nánum tengslum við Norska lútherska kristniboðssambandið, sem er stærsta lútherska kristniboðsfélag í heimi og hefur starf í tíu löndum Kristniboðið hefur byggt marga skóla i Pókot-héraði. Hér sést hluti af heimavistarskóla fyrir stúlkur, sem verið er að byggja um þessar mundir. Samstarf við í þremur heimsálfum. Það hefur haft kristniboða á sínum vegum í um 100 ár og hefur því öðlast geysimikla reynslu. Tala starfandi kristniboða félagsins er nú vel yfír 500. Við íslendingar höfum tekið að okkur að reka kristniboðsstöðina í Chepareria, sem er reitur á starfs- svæði Norðmanna í Pókot-héraði. Nú eru §órar kristniboðsstöðvar starfræktar í héraðinu, auk biblíu- skóla fyrir almenna safnaðarmeð- limi. Vegna slæms ástands heilbrigðismála, hafa sjúkraskýli verið byggð í tveimur stöðvum Norðmanna. Þeir hafa, eins og við, reynt að hjálpa til við að bæta menntun Pókot-manna. Samtals eru grunnskólar studdir af SÍK og Norðmönnum um 30 talsins, þar af einn stór heimavistarskóli fyrir stúlkur í byggingu. Þróunarhjálp norska ríkisins, NORAD, fjármagn- ar að mestu byggingu skóla og sjúkraskýla Norðmanna, enda hafa ráðamenn stofnunarinnar komist að þeirri niðurstöðu, að Qármagn, sem veitt er í gegnum kristniboðs- félög, nýtist mjög vel og að það komist allt til skila. Hjálparstofnun íslensku kirkjunnar hefur veitt fé til skólabygginga íslenska kristni- boðsins. Upphaf starfsins Það var árið 1978, að Kjellrún og Skúli Svavarsson fóru frá ís- landi til Kenýu til þess að hefja kristniboðsstarf á meðal Pókot- manna, þjóðflokki, sem hafði farið á mis við mikið af þeirri nútímaþró- un, sem átt hafði sér stað annars staðar í landinu. Hann var í hópi fárra þjóðflokka landsins, þar sem lítið kristniboð hafði verið stundað. Þegar þau fóru að svipast um eftir hentugum stað fyrir væntanlega kristniboðsstöð, komu margir staðir til greina. Yfírvöld margra hreppa vildu mjög gjaman gefa stórt land undir kristniboðsstöð, því að þau vissu, að með kristniboðinu fylgdi margvísleg hjálp. En Chepareria varð fyrir valinu, því að það lá mið- svæðis og auðvelt var að fá vatn. Þau hjónin fengu góðar viðtökur af fólkinu, sem streymdi til kirkju. En það tekur mörg ár að byggja upp innlenda leiðtoga, sem geta borið starfið uppi. A þeim árum, sem liðin eru, hefur starfíð vaxið smátt og smátt og innlendir safnað- armeðlimir taka síaukna ábyrgð á sig. Þau hjón eru nú heima á Fróni, en tvær aðrar fjölskyldur hafa bæst við, undirritaður og fjölskylda og Ragnar Gunnarsson kennari og Hrönn Sigurðardóttir hjúkrunar- kona ásamt sonum. Þau síðar- nefndu eru nu sem stendur stödd á íslandi. Hluti af lúthersku kirkjunni í Kenýu Starf SÍK er rekið í nafni Evang- elísku lúthersku kirkjunnar í Kenýu (Evangelical Lutheran Church in Kenya) og kristniboðamir eru prestar hennar. Kirkjan á uppmna sinn að rekja til Norðurlanda. Það var árið 1948, að sænskir kristni- boðar hófu starf á meðal Kisii- fólksins, sem er fjórði stærsti þjóðflokkur landsins. Heimkynni hans er í vesturhluta landsins, ná- lægt Viktoríuvatninu. í tímans rás hafa síðan fleiri kristniboðsfélög frá Norðurlöndum bæst við, og nú em fulltrúar frá öllum löndunum fímm að störfum í kirkjunni (Færeyjar og Álandseyjar eiga ekki fulltrúa). Starfað hefur verið á „hefðbundinn" hátt, þ.e. aðaláherslan hefur verið á uppbyggingu safnaða, en einnig hafa margir skólar verið byggðir og Qórar heilsugæslumiðstöðvar, auk sjúkraskýlanna í Pókot-héraði. Tala lútherskra manna er nú um 30.000. Fyrir allmörgum ámm var aðal- stjóm kirkjunnar fengin í hendur innfæddum mönnum. Enn á kirkjan töluvert langt í land að geta staðið á eigin fótum án aðstoðar erlendra kristniboðsfélaga, en það er mark- miðið, sem stefnt er að. Andlegnr skyrbjúgnr á íslandi? Stundum heyrast þær raddir á Islandi, að kristniboð vinni meira ógagn en gagn. Ég lagði þessa spumingu fyrir forseta lúthersku kirkjunnar, sr. John Momanyi Kur- uria, og spurði hann, hvort kristni- boðar væm ekki óþarfír. Hann svaraði: „Á meðan til er fólk, sem enn hefur ekki heyrt fagnaðarerind- ið um hinn upprisna og lifandi frelsara heimsins, er þörf á kristni- boðum. Kristniboðar frá Afríku em nú að störfum víðs vegar í Evrópu og fer fjölgandi." Ef kristniboð væri uppfinning manna, væm fáir, ef nokkrir, sem væm fúsir til þess að rífa sig upp með rótum frá kæm föðurlandi, fjölskyldu og vinum og lifa við oft og tíðum erfíð skilyrði, þar sem þeir em framandi og misskildir og einmanaleiki er af þeim sökum oft erfiður fömnautur. Kristniboð á upphaf sitt í boði Jesú Krists um, að lærisveinar hans eigi að fara og boða fagnaðarerindið öllu mann- kyni og sjálfu eðli trúarinnar, sem er það, að þeir, sem hafa upplifað það að mæta Kristi sem lifandi vemleik í eigin lífí, eignast löngun til að gefa öðmm hlutdeild í því. Enn em margir á íslandi og út um gjörvallan heim, sem þekkja ekki vemleikann um nýja lífið í Kristi, sem öllum stendur til boða. Því er mikilvægt að láta ekki deig- an síga heima á Fróni, en stundum fínnst mér lítið fara fyrir áhersl- unni á því að heiðingjum sé boðað fagnaðarerindið. Það er gott að gefa sveltandi fólki að borða og hjálpa „vanþróuðu" fólki til að „þró- ast“, en upphaf alls slíks starfs kristinna manna er kærleiksboð- skapur Krists. Hann er gmndvöllur- inn að lífi kirkjunnar. Ef hann er ekki boðaður, deyr allt hjálparstarf smám saman út. Lesandi góður. Vemm saman í því að axla þá ábyrgð kirkjunnar, að láta boðskap hennar ná til sífellt fleiri meðbræðra. Látum kristniboð- ið ekki vera framandi þátt í kirkju íslands, því að það veitir blessun þeim, er að því standa. Kirkja án kristniboðs þjáist af andlegum skyr- bjúg- Höfundur er kristniboði í Kenýu og skrifar greinar í Morgunblaðið um land og þjóð. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.