Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 23

Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 23 Moliére, Á heitu sumri og Beckett Sjónvarp Arnaldur Indriðason Moskva 1935. Síminn hringir hjá rithöfundinum Mikhail Bulgakov (Meistarinn og Margaríta) klukkan þijú um nótt og svefndrukkinn rís Bulgakov á fætur og tekur upp símann. „Þetta er Stalín hér,“ segir rödd í símanum og Bulgakov trúir ekki sínum eigin eyrum. Stalín rausar við hann dágóða stund og spyr svo hvað hann sé að fást við þessa dagana. Bulgakov segir að hann sé að skrifa um franska leik- ritaskáldið Moliére. Stalín kemur af íjöllum. „Það er maður sem ég hef samúð með,“ segir Búlgakov. Þennan formála að leikriti Bulg- akovs, Moliére eða hræsnarafé- lagið, setti Dusty Huges í leikgerð sína, sem sýnd var í sjónvarpinu í gærkvöldi og átti að undirstrika ennfrekar og minna á samsvörunina sem Bulgakov fann í listamannsæfi Moliéres á tímum Sólkonungsins í Frakklandi á 17. öld og sinni eigin í Rússlandi Stalínstímans (Stalín bannaði Moliére eftir sjö sýningar). Leikstjóri var Bill Alexander, sem einnig leikstýrði leikriti Moliéres, Tartuffe að hræsnarinn, sem sjón- varpið sýndi fyrir nokkru, og með titilhlutverkið fór Anthony Sher, sem lék Tartuffe svo eftirminnilega. Sem fyrr var uppfærslan í öruggum höndum Konunglega Shakespeare- hópsins. Anthony Sher var engu síðri í hlutverki Moliére en þegar hann lék Tartuffe hér um daginn. Leikritið hefst á því að hann er kampakátur leikari/leikritahöfundur að sýna gleðileiki sína fyrir ánægðan kon- unginn en Tartuffe olli reiði kirkj- unnar manna og þeir gerðu Moliére umsvifalaust að óvini sínum og bönnuðu leikrit hans. Hjónaband Moliére og Armande Béjart, sem sagt var að væri dóttir ástkonu hans, Madeleini, þykir hneyksli og konungurinn lætur af öllum velvilja í hans garð. Eftir stendur Moliére sjúkur og hjálparþurfi og deyr í sýningu á einu verka sinna. Leikrit Bulgakovs er um árekstra listarinnar við ríkið hvort sem er í Rússlandi eða við hirð Sólkonungs- ins. Bulgakov fór nokkuð fijálslega með staðreyndir (hann lætur Loðvík 14. banna Tartuffe en konungurinn leyfði sýningar á verkinu þrátt fyr- ir mótmæli kirkjunnar) til að draga upp skoplega mynd af einræði, valdahroka, uppljóstrunum, hræsni og mikilmennskubijálæði, blönduðu gleði og harmi Moliéres og kald- hæðnislegu háði. „í dag mátt þú búa um rúmið mitt,“ segir Sólkon- ungurinn við Moliére líkt og það sé ódauðlegur heiður og strunsar til djmgju sinnar og andstæðingam- ir, kardinálinn og foringi skyttn- Bæjarstjórn Vestmannaeyja: Vill þriggja mílna landhelgi við Eyjar Vestmannaeyjum. BÆJARSTJORN Vestmannaeyja samþykkti einróma á fundi sin- um síðasliðinn fimmtudag að leggja eindregið til við Sjávarút- vegsráðuneytið að hið fyrsta verði sett reglugerð sem banni allar veiðar með flotvörpu og botnvörpu, aðrar en humartroll, í 3ja sjómílna fjarlægð frá fjöru- borði Heimaeyjar. Þá viU bæjar- stjóm einnig að dregið verði verulega úr óhóflegum heimild- um til dragnótaveiða við Vest- mannaeyjar. Miklar umræður hafa verið í Eyjum um þriggja mflna landhelg- ina og hafa skoðanir verið nokkuð skiptar. Flestir hafa þó verið sam- mála um að til einhverra aðgerða þyrfti að grípa í friðunarmálum og þörf væri á ítarlegum rannsóknum á lifríki sjávar við Vestmannaeyjar. Atvinnumálanefnd kaupstaðarins undir forsæti Magnúsar H. Magn- ússonar hefur unnið mikið að þessum málum og fundað með ýmsum hagsmunaaðilum um málið. Um 370 Vestmannaeyingar skrif- uðu undir áskorun til bæjarstjómar um að hún beitti sér fyrir friðun veiðisvæða allt að þremur milum umhverfis Vestmannaeyjar fyrir öllum veiðum með botnvörpu og dragnót. A bæjarstjómarfundi sl. fimmtu- dag var lögð fram og samþykkt tillaga frá atvinnumálanefnd um þessi mál. Þar er lagt eindregið til við Sjávarútvegsráðuneytið að hið fyrsta verði sett reglugerð sem banni allar veiðar með fiotvörpu og botnvörpu, aðrar en humartroll, I þriggja sjómflna fjarlægð frá fjöru- borði Heimaeyjar. Þó verði bátum sem em gerðir út frá Vestmanna- eyjum og hafa minni en 400 hestafla aðalvél veitt undanþága frá þessu banni 1. febrúar til 31. ágúst anna, hrækja án afláts hvor á annan í fyrirlitningu fyrir framan hásæti konungs. Sjónvarpið bryddaði upp á ánægjulegri nýbreytni um helgina þegar það sýndi míniseríuna On a Long Hot Summer eða A heitu sumri með Don Johnson, Jason Robards, Ava Gardner og Sybil Shepherd í aðalhlutverkum. í stað þess að klippa seríuna niður í þijá hluta og sýna t.d. á þremur sunnu- dagskvöldum var hún sýnd á föstudags- og laugardagskvöldi og var mun athyglisverðari fyrir vikið. Míniseríur eins og Á heitu sumri hafa löngum verið með vinsælasta efni á myndbandaleigum og það væri gaman ef ríkissjónvarpið héldi áfram að sýna slíkar á sama hátt og það gerði um helgina. Á heitu sumri var ágætis skemmtunvvel leikið, spennandi og sterkt fjölskyldudrama frá Suð- urríkjunum, kryddað með mikilli ást, framhjáhaldi og morði, brennu- vargi og æstum múg, sem heimtaði blóð. Myndin var byggð á sögu eft- ir William Faulkner og sagði frá Ben Quick (Don Johnson úr Miami Vice) sem kemur sér svo vel við Anthony Sher í hlutverki Moli- Samuel Beckett landeigandann Vamer (Robards) að hann lofar að gefa honum allt sem hann á ef hann vill kvænast dóttur hans og eignast með henni erfingja. Sonurinn á Vamerheimil- inu er ekkert alltof sáttur við þessa samkeppni, en hún reif hann þó úr aumingjaskap og volæði. Quick og sonurinn voru á endanum ekkert svo ólíkir, báðir þurftu að losna undan áhrifamætti feðra sinna og í hádramatískum endapunkti stóð sonurinn með Quick sem múgurinn vildi hengja fyrir morð sem hann ekki framdi. Það voru allir talsvert æstir þetta ianga heita sumar; Johnson er athyglisverður Ieikari, svolítið eins og fullorðinn James Dean, Robards fór auðveldlega í gegnum þetta á breiðu glotti og hortugheitum og Gardner, Shep- herd, Judith Ivey í hlutverki dóttur Vemons og William Russ sem son- urinn sýndu ágætis leik. Helgardagskránni lauk með merkilegri og skemmtilega gerðri heimildamynd um írska rithöfund- urinn Samuel Beckett, sem hlaut Nóbelsverðlaunin árið 1969. Beck- ett er maður svartsýnn á lífið og aðeins öruggur um fjóra hluti: Hann fæðist, lifir, deyr og getur ekki þagað. Þar skildi með honum og James Joyce, að Joyce leitaðist við að hafa allt inni í sínum verkum, en Beckett vildi hafa ekkert eins og það var orðað. Tómleiki nútíma- mannsins er hans yrkisefni en hann vakti litla eftirtekt þar til hann skrifaði Beðið eftir Godot i afslöpp- un frá stærri verkum. ár hvert og gildi þessi undanþága fyrir árin 1987 og 1988. Þá er í samþykkt bæjarstjómar hvatt til þess að reglugerð verði sett til að tryggja að sumarhrygn- ing sfldar við Vestmannaeyjar verði fyrir sem minnstum tmflunum af botnvörpuveiðum og að nýstofnuðu útibúi Hafrannsóknarstofnunar í Vestmannaeyjum verði falið að heíja rannsóknir á lífríki sjávar við Eyjar, innan og utan 3ja sjómflna marka. Lagt er til að strax verði dregið verulega úr óhóflegum heimildum til dragnótaveiða við Vestmanna- eyjar og telur bæjarstjóm að dragnótaveiðar eigi aðeins að leyfa bátum sem em með minni aðalvélar en 400 hestöfl og aðeins á vel af- mörkuðum svæðum þar sem koli heldur sig helst og eingöngu á þeim timum árs þegar gæði kolans em mikil. I samþykkt bæjarstjómar er einnig fjallað um fjölgun sels i Surt- sey sem margir hafa miklar áhyggjur af. Skorar bæjarstjóm á ráðuneytið að gera ráðstafanir til að stöðva óhóflega ijölgun sels í Surtsey, en þar er nú talið að um 1000 útselir kæpi og veldur það miklu og ört vaxandi tjóni fyrir físk- iðnað í Vestmannaeyjum og viðar á suðurströndinni. Einnig þarf að fækka sel á Markarfljótsaumm vemlega, segir I samþykkt bæjar- stjómar Vestmannaeyja. Það kom fram á bæjarstjómar- fundinum að atvinnumálanefnd vildi ganga lengra í friðunaraðgerð- um en fram kemur i samþykkt bæjarstjómar sem send verður Sjávarútvegsráðuneytinu. En til að ná fram sem mestri samstöðu um aðgerðir taldi nefndin þó rétt að ganga ekki lengra að sinni. -hkj. Hvergi er annað eins úrval húsgagna og hjá okkur húsgagna höllin BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK 91-681199 og 681410

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.