Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 25

Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 25 Framtíðardraumur borgarskipulags — húsið á horninu horfið uppá þijár hæðir með mun flatara þaki, eitthvað sem trúlega átti að verða algild regla svæðisins. En svo bregst deiliskipulag, sem annað skipulag, sem betur fer má því miður oft bæta við. En snúum okkur nú að nútíman- um: í ágústmánuði síðastliðins árs, voru fbúar hússins boðaðir á kynn- ingarfund, ásamt öðrum íbúum hverfísins, þar sem mönnum voru kynntar hugmyndir skipulagsfræð- inga. Álitu einfaldir að þar ætluðu höfundar tillögunnar að ráðfæra sig við íbúana, hlusta á athugasemdir þeirra um einstaka þætti tillögunn- ar, og ef til vill að vinna eitthvað út frá skynsamlegum athugasemd- um, er kynnu að koma þar fram. Það var að vísu ekki tilgangur fund- arins, þar sem menn máttu aðeins bera fram almennar athugasemdir í lok fundarins, og þar sem flestir voru í persónulegu áfalli þar sem enginn hafði verið undirbúinn undir tillöguna fyrir fundinn, urðu þær fáar og heldur kraftlitlar. Með litskyggnusýningu fengu menn einhveijar útskýringar um fyrirhugaðar breytingar og ástæður þeirra. Hvað mér og konu minni viðkemur fengum við að vita að húsið okkar ætti að víkja af svæð- inu, ekki vegna þess að það væri fyrir í skipulaginu, né heldur vegna þess að það væri í lélegu ástandi, þar sem ástand þess væri ágætt, heldur vegna þess að það hefði enga lóð, eða einungis aðkomu að dyrum frá Lindargötu, og því væru „aðstæður ófullnægjandi fýrir eðli- lega útiveru á einkalóð þess!" Höfundar skipulagsins höfðu að vísu rangnefnt húsið Lindargötu 18, en það hús hefur ekki verið til, að sögn þeirra sem til þekkja, f að minnsta kosti 30 ár. Óneitanlega læddist að manni sá grunur að þama væri um einhvem misskilning að ræða, þar sem eðli- legt má teljast að hús sem ekki er til (Lindargata 18) hafí enga lóð. Reyndar fékkst sá grunur okkar að nokkru staðfestur, þar sem höf- undum tillögunnar var ekki kunn- ugt um að húsið (Klapparstígur 13A) stæði á 300 m2 sameiginlegri eignarlóð með steinhúsinu, sem byggt var (af sama eiganda) 1939, eins og ég hef áður vikið að. Auk þess þótti okkur nokkuð djarft að fullyrða, án þess að spyija okkur og aðra íbúa lóðarinnar um okkar álit, að „aðstæður til eðlilegr- ar útiveru" væm ekki fyrir hendi. Það hlýtur jú að vera íbúum hú- sanna næst að ákveða slíkt. Ennfremur eigum við erfítt með að skiija að lóð þessi sé of lítil fyrir íbúa timburhússins, með sínar tvær. íbúðir, en öldungis fullnægjandi fyrir íbúa steinhússins, sem hefur að geyma sjö íbúðir, sem allar nema ein hafa aðkomu beint inn af gang- stétt við Klapparstíg (og íbúamir þurfa því flestir að taka á sig nokk- um krók til að komast inná lóðina). Og til að kóróna ákvörðun þessa, skal svæði það sem losnar ekki „bætast“ við útivistarmöguleika lóðarinnar, heldur eiga þar að koma fjögur bílastæði. Eins og menn geta séð á meðfylgjandi mjmd, þar sem ég hef „þurrkað út“ timburhúsið, græðast ekki nema tvö bílastæði þar sem tveim bílum er alla jafnan lagt við hlið hússins. Sum sé, kaupverð tveggja íbúða og hálfrar eignarlóðar, fyrir tvö bílastæði, með tvo „glæsilega" blinda húsgafla í kaupbæti. Bréfa-„skipti“ við skipulagsyfirvöld Við sömdum mótmælabréf og sendum til skipulagsyfírvalda borg- arinnar, áður en skipulagið kom til endanlegrar samþykktar, þar sem við krefjumst þess að ákvörðun þessi verði opinberlega dregin til baka þar sem „engin frambærileg rök hafi komið fram, sem réttlæta hana“. Er það skemmst frá því að segja að enginn lét svo lítið að senda okkur, (né öðrum sem sendu inn athugasemdir innan löglegs skila- frests, að því er ég best veit), hið minnsta svar. Skipulagið var svo samþykkt án breytinga síðastliðið vor. Það var fyrir tilviljun að við sáum ljósrit úr greinargerð Borgarskipu- lagsins vegna innsendra athuga- semda, og satt að segja fínnst okkur þar settur punkturinn yfír i-ið í þessari skrýtnu sögu: Þar er sett inn sú skarplega at- hugasemd „að húsið Klapparstígur 13, sem samþykkt var í byggingar- nefnd í júlí 1939, var jafnframt samþykkt sem fyrri áfangi af húsi sem byggja átti fyrir götuhomið að lóðarmörkum nr. 6 við Lindar- götu“ (nú nr. 20, innskot höf.) „í raun hefur nr. 13A því átt að víkja allt frá þeirri samþykkt. Seinni áfangi er enn óbyggður. Þar af leið- andi stendur nr. 13A, með þeim breytingum sem á suðurhlið þess voru gerðar, svo það mætti standa fram að framkvæmdum við síðari áfangann." Okkur er því spum: Á húsið okk- ar að fá að standa, þar til seinni áfanginn verður ekki byggðuri? Greinarhöfundur er að ljúka námi í arkitektúr í Frakklandi. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: „Ekki tíma- bært að hugsa um kosningar“ „ÞAÐ ER septembermánuður nú og fjarri því að timabært sé að hugsa um kosningar nú. Það verður ekki kosið á næstu mán- uðum,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra er blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann á föstudag hvenær hann teldi ákjósanlegt að kosið yrði. „Ef sjálfstæðismenn hafa gaman af að álykta um hvenær verði ko- sið, þá er það þeim vitanlega frjálst," sagði forsætisráðherra, „en ég hef um miklu stærri og þýðingar- meiri mál að hugsa nú, og eftirlæt þeim því þann þankagang." Forsætisráðherra sagðist vilja hafa víðtæka samstöðu, stjómar- flokka og stjómarandstöðu um kjördag, þegar þar að kæmi, en nú næstu mánuðina væri réttara að snúa sér að þeim miklu verkefnum sem biðu stjómvalda, og láta íhug- un um hugsanlega kjördag lönd og leið. ★ 828, 206 kæliskápur, Electrolux. ★ KE-282-124 Gaggenau helluborð ★ CF-6484 Electrolux, íullkomin eldavél, í drapplit. ★ CF-6484 Electrolux eldavél, í rauðu. ★ R-281 klukkuborð fyrir Electrolux eldavélar. ★ CF-6472 Electrolux blásturs-eldavél í drapplit. ★ CK-260 Electrolux vifta fyrir útblástur. ★ TC-550 150 ltr. frystikista Electrolux. ★ NF-3244 tveggja hæða Electrolux örbylgjuofn. ★ N-15 Electrolux hrærivél. Einnig mikið úrval af lítið útlitsgölluðum kæli- og frystiskápum á niðursettu verði. Bjóóum 10% útborgun í öllum húsgögnum, sjónvörpum, vídeótækj- um og einnig í heimilistækjum. & Vðrumarkaðuringhi. Eiöistorgi 11 - sími 622200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.