Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík:
Utankj örstaðakosn-
ing vegna prófkjörs
UTANKJORSTAÐAKOSNING
vegna prófkjörs umskipan fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavik við næstu Alþingis-
kosningar hefst mánudaginn 29.
september nk. kl. 9.00. Kosningin
fer síðan fram á virkum dögum
frá kl. 9.00 til 17.00 og á laug-
ard. frá kl. 10.00—12.00. Kosiðp
er á skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Utankjörstaðakosningunni lýkur
föstudaginn 17. október og er þeim
ætluð sem fjarverandi verða úr
borginni prófkjörsdaginn 18. okt.
nk., eða geta ekki kosið þá af öðrum
ástæðum.
Atkvæðisrétt í prófkjörinu eiga
ailir félagsbundnir sjálfstæðismenn
í Reykjavík sem þar eru búsettir
og náð hafa 16 ára aldri á próflqörs-
daginn. Jafnframt mega þeir
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks-
ins taka þátt í prófkjörinu sem eiga
munu kosningarétt í Reykjavík við
Alþingiskosningamar og undirritað
haifa inntökubeiðni í sjálfstæðis-
félag í Reykjavík fyrir lok kjörfund-
ar.
15 manns taka þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Samkvæmt reglum þeim sem um
prófkjörið gilda skal hluta til um
röðun nafna á atkvæðaseðlinum
með þeim hætti að dregið ér út
nafn þess sem skal vera efstur á
seðlinum og síðan er stafrófsröð
látin ráða. Samkvæmt þessu eru
eftirtaldir í framboði í prófkjörinu:
Jón Magnússon lögmaður, Malarási
3; María E. Ingavdóttir viðskipta-
fræðingur, Vallabraut 20; Ragn-
hildur Helgadóttir ráðherra,
Stigahlíð 73; Rúnar Guðbjartsson
flugstjóri, Selvogsgrunni 7; Sólveig
Pétursdóttir lögfræðingur, Bjar-
malandi 18; Vilhjálmur Egilsson
hagfræðingur, Sólvalagötu 51; Al-
bert Guðmundsson ráðherra,
Laufásvegi 68; Ásgeir Hannes
Eiríksson verlsunarmaður, Klapp-
arbergi 16; Bessí Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri, Hvassaleiti 93;
Birgir ísl. Gunnarsson alþingismað-
ur, Fjölnisvegi 15; Esther Guð-
mundsdóttir markaðsstjóri,
Kjalarlandi 5; Eyjólfur Konráð
Jonsson alþingismaður, Brekku-
gerði 24; Friðrik Sophusson al-
þingismaður, Skógargerði 6; Geir
H. Haarde hagfræðingur, Hraunbæ
78; Guðmundur H. Garðarsson við-
skiptafræðingur, Stigahlíð 87.
Kjósendur skulu greiða atkvæði
með því að kjósa fæst 8 frambjóð-
endur og flest 12. Skal það gert
með því að setja tölustarf fyrir
framan nöfn frambjóðenda í þeirri
röð sem óskað er að þeir skipi end-
anlegan framboðslista.
Norska nefndin skoðar litla salinn í Borgarleikhúsinu.
Vilja auka menningartengsl
Islands og Rogalandsfylkis
Aðalbjörg komin úr
sínum síðasta róðri
— Hugmyndir um að setja
hana á Sjóminjasafnið
FISKIBATURINN Aðalbjörg
RE-5 kom til hafnar í Reykjavík
í gær úr sinum siðasta róðri.
Aðalbjörg er frægur fiskibátur.
Hún var smiðuð i Reykjavík árið
1935 fyrir fegðana Sigurð Þor-
steinsson og Einar Sigurðsson
og hefur alltaf verið í eigu ættar-
innar og ávallt verið gerð út frá
Reykjavík. Núverandi eigendur
eru skipstjórarnir Stefán og Guð-
bjartur Einarssynir.
Að sögn Stefáns er verið að úr-
elda skipið vegna þess að verið er
að smíða nýtt skip fyrir þá bræður
á Seyðisfirði Mikið af tækjunum
úr Aðalbjörgu verða notuð í nýja
bátinn. Honum sagðist vera illa við
að eyðileggja bátinn og því hefði
hann lagt til við Þjóðminjasafnið
að skipið yrði sett á Sjóminjasafnið
í Hafnarfirði. Ekki vissi hann þó
hvort eitthvað yrði úr því.
Aðalbjörgin er 30 lesta eikarbát-
ur. Hefur hún komið víða við á
þessum 50 árum sem liðin eru frá
því henni var hleypt af stokkunum.
Hún var einn af fyrstu togbátum
landsins og fyrsti humarbáturinn
að sögn Stefáns. „Hún hefur verið
happafleyta alla tíð," sagði Stefán
í samtali við Morgunblaðið í gær.
MENNINGARNEFND Roga-
landsfylkis í Noregi er stödd hér
á landi um þessar mundir og er
það fyrsta skrefið í að auka
menningarsamskipti íslands og
Rogalandsfylkis.
„Við höfum verið að skipuleggja
viðfangsefni okkar á sviði menning-
ar í Rogalandsfylki og kom þá í hug
að leita út fyrir landsteinana, bæði
til að sjá hvað þjóðir eru að gera
og sjá hvað við getum gert til að
auka tengslin," sagði Roald Háland,
jrfírmaður menningarmála í Roga-
landsfylki.
Rogalandsfylki er í suðvestur-
hluta Noregs og stærsta bæjarfé-
lagið þar eru Stavanger.
„Okkur datt í hug að hafa sam-
band við vestnorrænar eyþjóðir,
sem líklega eiga margt sameigin-
legt með okkur og kom þá í hug
Færeyjar, Orkneyjar og íslands.
Þeir stjómmálamenn sem sæti eiga
í nefndinni vildu eindregið fara til
Roald Háland, yfirmaður menn-
ingarmála í Rogalandsfylki.
íslands, enda munu önnur fylki
Noregs hfa sérstakt menningar-
samband við Færeyjar og Orkneyj-
ar. Ég skipulagði þvf þessa ferð í
samráði við norska sendiherrann á
íslandi."
Roald sagði ennfremur að hann
teldi ísland og Rogalandsfylki hafa
sérstök tengsl sögulega séð, ef mið-
að er við staðsetningu fylkisins í
Noregi. Líklegt sé að íslendinga í
útleið á víkingatímanum hafi dva-
list i hafnarborgum Rogalands.
Hann sagði mikinn áhuga vera á
að fá íslenska listamenn til Roga-
lands og þá væntanlega að hafa
listamannaskipti. Roald minnti
einnig á menningarleg samskipti
skóla- og íþróttahryefínga og taldi
að á því sviði mætti vinna mikið.
Nefndin kom hingað sl. föstudag
og hefur m.a. séð „II Trovatore",
og „Uppreisn á ísafirði" og skoðað
Borgarleikhúsið. Heimsókninni lýk-
ur nk. föstudag.
„Bjóst ekkí víð að átta
vinningar myndu nægja“
- segir Margeir Pétursson, nýbakaður skákmeistari íslands
Morgunblaðið/Þorkell
Aðalbjörgf RE-5 við bryggju í
Reykjavik, nýkomin úr sinni
síðustu veiðiferð.
„ÉG tel mig nú ekki hafa verið í neitt sérstaklega góðu formi
þrátt fyrir þennan sigur. Ég hafði sett mér hærra vinningshlut-
fall og bjóst alls ekki við að 8 vinningar af 11 myndu nægja til
sigurs i þessu móti,“ sagði Margeir Pétursson, nýbakaður skák-
meistari íslands i samtali við Morgunblaðið. Þetta er i fyrsta
skipti sem Margeir vinnur þennan titil, en hann hefur einu sinni
áður hafnaði í efsta sæti á Skákþingi Islands ásamt öðrum. „Það
var þegar ég var 15 ára, árið 1975, en þá tók ég þátt í mótinu
í fyrsta skipti", sagði Margeir. „Við voru fjórir efstir og jafnir
og ég lenti siðan i þriðja sæti eftir aukakeppni. Það var næst
því sem ég hef komist til að hreppa þennan titil þar til nú.“
Margeir kvaðst vera ánægður
með aðstöðuna á Grundarfirði.
„Það var gott að tefla þama.
Meira næði heldur en þegar mað-
ur teflir hér í bænum. Þama sátu
allir við sama b orð og hvorki
vinna né skóli sem truflaði eins
og svo oft áður", sagði hann.
Aðspurður sagði Margeir að
Iíklega hefði þetta verið sterkasta
Skákþing íslands til þessa, miðað
við titla þáttakenda og skákstig.
„Það var líka barist af mikilli
hörku og færri jafntefli nú en til
dæmis 1984, sem hefur líklega
komið næst þessu móti hvað
styrkleika snertir".
Margeir sagði að eftirminnileg-
asta skákin sín á á þessu móti
hefði verið skákin á móti Guð-
mundi Siguijónssyni, sem var
úrslitaskákin á mótinu. „Fyrr um
daginn hafði ég farið illa með
möguleika mína í biðskák á móti
Jóni L. Ámasyni. Líklega hef ég
verið þar með unna stöðu sem ég
Margeir Pétursson, skákmeist-
ari Islands 1986.
missti svo niður, þannig að ég var
ekkert of bjartsýnn þegar ég
mætti til leiks í skákina á móti
Guðmundi. Skákin einkenndist
síðan af strögli þar til hann lék
af sér í tímahraki. Honum yfír-
sást mjög óþægilegur peðsleikur
og þetta þróaðist mér í hag“, sagði
Margeir Pétursson.
Lokastaðan á Skáþingi íslands
var þessi:
1. Margeir Pétursson 8 vinn-
inga. 2.-3. Guðmundur Sigurjóns-
son og Jóhann Hjartarson 7
vinninga. 4.-6. Þröstur Þórhalls-
son, Karl Þorsteins og Jón L.
Ámason 6 og hálfan. 7. Hannes
Hlífar Stefánsson 6 vinninga. 8.
Davíð Ólafsson 5 vinninga. 9. Dan
Hansen 4 og hálfan. 10.-11. Sæv-
ar Bjamason og Björgvin Jónsson
4 vinninga. 12. Þröstur Ámason
1 vinning.