Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
31
Bandaríkjamaður og Frakki gíslar:
Mennirnir sagðir
vera njósnarar
Beírút, Líbanon, AP.
SAMTÖK, sem nefnast „Bylting-
arsveitir réttlætisins" segjast
halda frönskum ríkisborgara og
Bandaríkjamanni í gíslingu í
Líbanon. Fréttastofa í Beirút
hefur fengið sendan handskrif-
aðan miða, sem sagt er að
Frakkinn hafi ritað. Einnig hef-
ur dagblað í Beirút fengið senda
mynd af Bandaríkjamanninum.
Samtökin segja mennina vera
njósnara á vegum ríkisstjórna
Bandaríkjanna og Frakklands.
Bandaríkjamanninum, Joseph
James Cicippio, var rænt 12. sept-
ember síðastliðinn en „Byltingar-
sveitir réttlætisins" eru fjórðu
samtökin, sem segjast bera ábyrgð
á hvarfí hans.
Talsmenn franska utanríkisráðu-
neytisins segja að franska ríkis-
borgarans hefði verið saknað frá
því í febrúar. Maðurinn heitir Marc-
el Khodari og hefur verið búsettur
í Beirút um skeið. Engar fréttir
höfðu borist af hvarfi hans og í
fyrstu neituðu yfirvöld í Frakklandi
að kannast við málið. í orðsendingu
sem Khodari hafði ritað eigin hendi
er nafn hans, fæðingardagur og ár
og nöfn bama hans sem búsett eru
í Frakklandi.
Líbanskt dagblað fékk sendar
tvær ljósmyndir sem sagðar eru af
mönnunum tveimur. Eiginkona
Cieippios hefur staðfest að myndin
sé af eiginmanni hennar.
í yfirlýsingu frá „Byltingarsveit-
um réttlætisins“sagði ennfremur að
samtökin hefðu tvo franska ríkis-
borgara til viðbótar í haldi. Sagt
var að mennimir hefðu allir verið
leiddir fyrir „byltingardómstól" og
verið ákærðir fyrir hermdarverka-
starfsemi og njósnir.
Vilja opna
flóttafólki
allar gáttir
Ntirnberg, AP.
FLOKKUR græningja í Vestur-
Þýskalandi gagnrýndi í gær
harðlega stjórnina í Austur-
Þýskalandi fyrir að hafa heitið
að draga úr straumi flóttafólks
frá þriðja heiminum inn í Vest-
ur-Þýskaland. Jafnframt skoraði
hann á stjórnina í Bonn að opna
allar gáttir fyrir flóttafólkinu.
Græningjaflokkurinn, sem berst
fyrir umhverfisvemd og er mjög
andsnúinn Atlantshafsbandalaginu,
skoraði á vestur-þýsku stjórnina að
hleypa öllum flóttamönnum inn í
iandið hvort sem þeir væm að flýja
pólitískar ofsóknir í landi sínu eða
bág kjör. Var þetta samþykkt á
þingi flokksins nú um helgina.
Blikur á lofti
á Azoreyjum
AZOREYJAR eru í augum
margra Evrópubúa staðurinn,
þaðan sem hæðirnar er færa
þeim gott veður, koma. En í
sumar hefur verið óveðursblika
á lofti í stjórnmálum eyjanna,
sem eru hluti af Portúgal, en
hafa vissa sjálfstjórn.
Fyrir skömmu neitaði Mario
Soares, forseti Portúgals, að sam-
þykkja endurskoðuð lög um sjálf-
stjóm eyjanna, er þjóðþingið í
Lissabon hafði samþykkt sam-
hljóða í júlí, þar sem ágreiningur
hafði komið upp um stöðu fána
og þjóðsöngs Azoreyja. Þetta var
í fyrsta skipti sem Portúgalsfor-
seti beitti neitunarvaldi og var
Soares tekið heldur fálega er hann
kom í opinbera heimsókn til eyj-
anna, til þess að vera viðstaddur
hátíðahöld í tilefni þess, að 10 ár
voru liðin síðan Azoreyjar fengu
sjálfstjóm.
I hinum nýju lögum var gert
ráð fyrir því, að fáni og þjóðsöng-
ur eyjanna yrðu jafnréttháir
portúgalska fánanum og þjóð-
söngnum við opinberar athafnir.
Portúgalski herinn mótmælti
þessu og hélt því fram, að siíkt
væri skaðlegt samheldni þjóðar-
innar. íbúar Azoreyja sögðu að
þama bryddaði á nýlendustefnu,
en herforingjarnir ásökuðu þá um
aðskilnaðarstefnu. Margir herfor-
ingjanna eru sagðir óánægðir með
að Azoreyjum skyldi hafa verið
veitt sjálfstjóm árið 1976 og einn-
ig minnast þeir þess, að á árunum
1974-5 var starfandi hreyfing á
eyjunum er krafðist algers sjálf-
stæðis þeim til handa.
Er Soares beitti neitunarvaldi
sínu sagði hann, að þjóðþingið
hefði afgreitt lögin í of miklum
flýti, þau þyrftu nánari skoðun.
Þingið verður nú beðið um að
athuga hvort rétt sé að sam-
þykkja lögin öðru sinni eða
lagfæra þau. Leiðtogi stjómar
Azoreyja, Joao Bosco Mota Amar-
al, mislíkaði svo ákvörðun forset-
ans að hann klæddist svörtum
sorgarklæðum við móttökuat-
höfnina er Soares kom til eyjanna.
Menn hafa velt því fyrir sér
hvers vegna herinn kýs að mót-
mæla nú, þar sem fánar Azoreyja
og Portúgals hafa undanfarin 7
ár blakt við hún hlið við hlið og
þjóðsöngvar beggja verið leiknir
við opinberar athafnir. Svarið
gæti verið að herinn sé að hefna
fyrir kuldalegar móttökur sem
Rocha Vierra, hershöfðingi, fékk
er hann tók við embætti sem full-
trúi Portúgals á eyjunum. íbuar
Azoreyja vildu ekki að hermaður
gengdi embættinu og höfðu þar
að auki gert sér vonir um að ein-
hver innfæddur hreppti hnossið.
Endursagt úr The Economist.
/ / / / l.........L...1. 1.1 1.......1 L....l...1.11.......1...\ \ v......V....V \ \
» ♦ ♦ ♦ ♦ * <*> ♦ ♦ ♦ ' ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
g s s
a a 2.
| i i
wts'œwttwtswcscBOíwtöwwðswwwsswwœ
2. 3. 3. a 3. 2. 3. 3. 3. 2. 3. 3. 3. 2. 2. 2. 3- 3. 3- 2. 2. 2. 2-
rf-sr»'CtcíCTctff*r* sr rt er rtr* rfr*r* r* rt r? rr rt P?
I f g
P 3 3
2 c p ff ff tr
| i I I § I
6: I I f II
*?sr *’55v Sér *!t3r 'vSc 'rxx 'rxx vg-
I3_ »4 15 16 17 »8 1« 20 21 22 23 24
— Enn gagnlegri og dýrmætari en áður
Encycbpædia
l\lý sending komin af 1986-útgáfunni.
32 stór bindi, yfir 30.000 bls., + nýja árbókin 1986, sem inni-
heldur nú „World Data“.
Nýtt tilboð:
Verð kr. 52.600.oo, útborgun aðeíns kr. 8.200.OO og kr.
3.700.00 á mánuði I 12 mánuði + vextir.
Staðgreiðsluverð kr. 47.340.oo.
Fjárfesting sem vit er í.
Bókabúð Steinars,
Britannba 1986
PARIS
NUTRIBEL
Nærandi
rakagefandi
dag- og næturkrem
gefur húÖ þinni það sem hún
þarfnast
Með því að nota Nutribel daglega fær
húð þín næringu og raka ... allan sólar-
hringinn.
* NÆRINQAREFNI
Á efnasamsetningu Nutribel er einkaleyfi, en í
kreminu eru efnasambönd sem meðal annars
innihalda línólsýru, eitt mikilvægasta næringar-
efni ungrar og heilbrigðrar húðar.
* RAKI
i Nutribel eru valin rakagefandi efni sem ganga
inn i dýpstu lög húðarinnar, þar sem endurnýjun
fruma á sér stað.
* TEYGJANLEIKI
Nutribel eykur eðlilegan teygjanleika húðarinnar,
svo að hún verður sveigjanleg og gefur auðveld-
lega eftir við hreyfingu andlitsvöðva. Eiginleikar
sem sannaðir hafa verið á tilraunastofum okkar.
Nutribel Nourishing Hydrating Emulsion nærandi
og rakagefandi dag- og næturkrem, léttfljótandi
og silkimjúkt krem sem gefur húð þinni nauðsyn-
legan raka og næringu.
M 1