Morgunblaðið - 30.09.1986, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
35
þennan stóra, dýrlega helgidóm
okkar að verðleikum i smáu og
stóru. Kennarar allt frá smá-
bamaskóla til háskóla mega helzt
aldrei gleyma, að minna bömin
bæði með orðum og eftirdæmi á
það, að borgin þeirra er þeim
helgidómur með öllum sínum
söfnum, kirkjum og skrauthýsum,
heimilum og skólum.
Þar eru biðskýli strætisvagna
einna minnst, en samt hin falleg-
ustu sum þeirra, sem sjást mega
í nokkurri borg veraldar.
Þau — jafnvel þau — skal ekki
vanhelga með ógeðslegum mynd-
um, kroti og kjaftæði.
Sama er að segja um strætin
í borginni. Þau skulu vera hrein,
en ekki þakin sorpi og drasli, tób-
aksstubbum og glerbrotum, sem
gefa vægast sagt vondar einkunn-
ir, jafnvel þeim, sem fá hæstu
prófin í skólunum.
íslenzkir kennarar eru mér
kærasta starfsstétt þjóðar næst
bændum og sjómönnum, en allir
þessir hópar eiga stóran hlut í
heillum Reykjavíkur.
Gleymið ekki hinu smáa í um-
gengnisháttum hversdagsins. Þar
er jarðvegur hins æðsta í menn-
ingu fólksins.
Og að síðustu, þótt margs
þyrfti að minnast til hversdags-
heilla í okkar „Davíðsborg", þá
nefni ég aðeins til viðbótar vernd
handa bemsku og æsku, hinum
sígildu gjöfum Sólarföður til
framtíðar og fagnaðar og lífs.
Sú vemd þarf að veitast af öll-
um, en einkum foreldmm og
forystuliði borgarinnar, ásamt
lögreglu og leiðtogum á vegum
guðstrúar og góðra siða, prestum,
kennumm og fóstmm. — Þar skal
fyrst og fremst minnst á vemd
gegn slysum, tjóni og dauða á
götum og strætum. Þar verða svo
ailir að gæta sín gegn öðmm, en
einkum samt gegn því að valda
öðmm skaða, sjúkleika, þjáning-
um og dauða, hörmungum og
hryllingi.
Sagt er að umferðarslys og tjón
í okkar yndislegu og ágætu höfuð-
borg nálgist að hundraðshluta það
mannfall, sem verður í milljóna-
löndum í styijöldum. Það er
hræðileg fullyrðing, en telst samt
sönnuð með vísindalegum athug-
unum.
Sem betur fer virðist einmitt
tveggja alda afmælið auka þama
áhuga og opna leiðir fyrir átak
lögreglu og mannkostamanna,
sem vilja vaka og vinna til að
efla öiyggi og mannúð í stað
frekju og heimsku. „Akið var-
Iega“ em stór orð.
Og að síðustu á sama vettvangi
vemdar og mannréttinda ein
spuming: Hvemig geta konur
sætt sig við að eytt sé lífi 700
bama árlega, af félagslegum or-
sökum, í landi allsnægta, þar sem
bæði karlar og konur kunna eða
geta lært að nota bæði pillur og
tæki til að koma í veg fyrir getn-
að bama sér til handa á auðveldan
hátt? Hugsið ykkur hundmð
bama á fermingardegi, sem þyrmt
hefði verið gegn slíkum ofsóknum
af sínum nánustu, ófæddum?
Hvarf þessa hóps er einn svart-
asti skuggi yfir Alþingi Islands
frá upphafi. Hvílík gjöf höfuðborg
til handa. Fóstureyðing getur
verið ill nauðsyn þegar heilsa og
líf móður er í veði, annars ekki.
Þar eiga læknar að hafa síðasta
orðið.
Gleymum aldrei eigin heiðri og
hugsun, þegar velja skal gjafir
eða vernd tl aukins þroska og
menningar.
Hin frjálsa þjóð, íslendingar,
á friðarvegum er ein hin skær-
asta perla mannkyns með
Reykjavík sína fógm 200 ára
ungu ömmu, sem enga elli þekkir
í broddi fylkingar. Megi framtíð
hennar verða undir yfírskrift og
óskum skáldsins, sem bezt hefur
lýst viðleitni göfugs samfélags í
þessum ljóðlínum:
„Líkt og allar landsins ár
leið til sjávar þreyta -
svo skal fólksins hugur hár
hafnar sömu leita.
Höfnin sú er sómi vor,
sögufoldin bjarta.
Láfni vilji, vit og þor
vaxi trú hvers hjarta."
Sú trú er traustið á Sólarföður
kærleikans í fótspor Meistarans
frá Nazaret.
Reykjavík, 21. ágúst 1986,
Árelíus Níelsson.
Tvítug stúlka í Ghana með áhuga
á íþróttum, tónlist, bókalestri o.fl.
K. Dartey Adiamah,
Box 419 Agona Swedru,
Ghana.
Fimmtug dönsk bóndakona, hef-
ur áhuga á náttúmlífi, dýmm,
tónlist og teikningu. Vill skrifast á
við konur á svipuðum aldri.
Annelise Hansen,
Bredkildegaard,
Forlewej 7,
4241 Vemmelev,
Danmark.
Nítján ára franskur háskólanemi
með áhuga á tónlist ýmiss konar,
íþróttum og ferðalögum. Safnar
frímerkjum.
Jean-Noel Tocfiche,
51 bis Avenue de la
Kepublique,
75011 Paris,
France.
Sextán ára piltur í Ghana með
áhuga á íþróttum.
Isaac Nanak Graham,
c/o Box 64,
Trade Fair Site,
Labadi,
Accra,
Ghana.
VUtþú
slástí
hópínn?
Fyrirsætan h.f. er fyrirtæki sem sér
um að ráða fólk tíl fyrirsætustarfa
vegna blaðaauglýsinga, tímarita,
bæklinga, sjónvarpsauglýsinga og
hverskonar kynningarstarfsemi.
Til að geta sinnt þessu hlutverki sem
best og uppfyllt þær kröfur sem
auglýsendur og aðrir sem leita til okkar
gera vantar okkur fjölda fólks sem hefur
áhuga á að taka þátt í skapandi starfi. Við
leitum jafnt að þekktum andlitum sem
óþekktum, fólki af báðum kynjum og á
öllumaldri.
Ef þú hefur einhvemtíma látið þig
dreyma um að prófa fyrirsætustörf eða
vilt takast á við ný og spennandi verkefni
þá er þetta kjörið tækifæri til að láta
drauminn rætast.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í
síma 621852 eða 621980
milli kl. 9:00 og 17í)0 til 1. okt.,
eða senda mynd með upplýsingum til
okkar í Borgartún 27.
Anna Björk
Eðvarðsdóttir
framkvæmdcistjóri
Fyrirsætan