Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 37
BIFREIÐ, eins og- þeirri á með-r fylgjandi mynd, var stolið kl. 1 aðfaranótt laugardagsins 13. september frá Gránufélagsgötu 16 á Akureyri. Númer bifreiðar- innar er A-10604. Hún er af Lancer-gerð, ljósdrapplituð, ár- gerð 1981. Hún hefur enn ekki fundist. Geti einhver gefið upp- lýsingar um það hvar bifreiðin er niðurkomin er sá hinn sami vinsamlega beðinn að hafa sam- band við rannsóknarlögregluna á Akureyri. INNLENT MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 Missti fjóra fingxir Menntaskólinn á Akureyri: Akureyri. UNGUR madur slasaðist mikið á hægri hönd á föstudag er hann lenti með höndina i sútunarvél í skinnaverksmiðju Sambandsins á Akureyri. Hann var þegar í stað fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið þar sem hann fór í aðgerð. Hann skaddaðist mjög mikið á öllum fingrum handarinnar — og held- ur líklega aðeins einum þeirra. Menntaskólinn á Akureyri eftir „andlitslyftingu" framhliðar hússins. Morgunblaðið/Skapti upprunalega mynd - hluti þess fauk fyrir tæpum 50 árum! „VIÐ ERUM að reyna að koma þessu gamla virðulega húsi í upprunalegt horf hvað ytra útlit varðar," sagði Jóhann Siguijóns- son, skólameistari Menntaskól- ans á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið, en að undanförnu hafa staðið yfir lagfæringar á húsinu — og hefur meðal annars verið sett upp skraut á miðburst hússins; en hluti upprunalega skrautsins þar fauk af í suð- austan stórviðri fyrir tæpum 50 árum! Nú er því skrautið á öllum þremur burstum hússins eins og það var upprunalega. Að sögn Jóhanns var verið að skipta um jám á framhlið skóla- hússins „og við notuðum því tækifærið meðan vinnupallamir voru uppi og lagfærðum skrautið. Við endumýjuðum skrautið í von um að fá styrk úr húsfriðunarsjóði. Við höfum sótt um og vonumst til að fá styrk. Okkur fannst þurfa að laga þetta og spömðum stórfé með því að þurfa ekki að setja pallana upp aftur," sagði Jóhann. Menntaskólinn er friðaður í flokki B og „er eitt fallegasta hús á íslandi. Það var byggt 1904 og svona gamalt hús þarf mikið við- hald — en við fáum allt of litla peninga til að gera allt sem okkur fínnst nauðsynlegt," sagði Jóhann. En það er ekki bara í framannefnt sem Jóhann segir peninga vant: „Eldvama- og rafmagnseftirlitið er á eftir okkur. Við emm með hita- skynjara í byggingunni; úrelt kerfí sem orðið er 25 ára. Það er bráð- nauðsynlegt að koma upp nýtísku eldvamakerfí með reykskynjumm. Það kostar fleiri hundmð þúsund — eða milljónir, en er engu að síður nauðsynlegt," sagði Jóhann. Skólameistari hefur látið gera áætlun um viðhald, endurbætur og nýbyggingar við Menntaskólann á Akureyri 1987-1994 — áætlun sem alþingismönnum kjördæmisins hef- ur verið afhent með von um að hún nái fram að ganga. í áætluninni felst meðal annars að sett verði eldvarnakerfí í hús skólans og að byggð verði ein hæð ofan á Möðra- velli, raungreinabyggingu skólans. „Þetta er markviss áætlun um hvem lið sem þarf að gera í skólan- um á næstu átta ámm. Það er minn draumur að komast inn á fasta áætlun fyrir þetta tímabil þannig að hægt verði að skipuleggja fram í tímann — ekki að peningar fáist í slumpum annað slagið," sagði Jóhann. Ályktun félagsfundar Bandalags kennara: Varað við mismunun í grunnskólakennslu — einkum varðandi stuðnings- og sérkennslu Horgunblaðið/Skapti Hallgrlmsson Jóhann skólameistari Siguijóns- son fyrir framan gamla skóla- húsið — miðburstin sem nú er komin í upprunalega mynd eftir tæplega 50 ára „biðM er í baksýn. A FJOLMENNUM félagsfundi í Bandalagi kennara á Norður- landi eystra síðastliðinn föstu- dag er varað „sterklega við þeirri mismunun sem felst í vinnubrögðum menntamála- ráðuneytis við afgreiðslu á áætlun vegna kennslu í grunn- skólum næsta skólaár". I ályktuninni segir að munurinn sé einkum áberandi varðandi stuðnings- og sérkennslu og lýsi sér í því að sum umdæmi hafi fengið samþykkt 16-17% til við- bótar heildarkennslukvóta á sama tfma og önnur umdæmi hafí ein- ungis fengið 6-7% til þessara þarfa. Síðan segir „Á það má benda að sérstofnanir á vegum ríkisins til þjónustu við fatlaða og atferlis- tmflaða nemendur eru fyrst og fremst í Reykjavík og í almennum grannskólum utan Reykjavíkur em margir nemendur sem myndu njóta þjónustu sérstofnana ríkis- ins ef þeir væru búsettir í Reykjavík - þannig væri raunhæft að ætla að meðaltalsþörf al- mennra gmnnskóla í Reykjavík fyrir stuðningskennslu og sér- kennslu væri minni en víða úti á landi.“ Fundurinn segist harma þá af- stöðu menntamálaráðuneytisins að ekki skuli tekið tillit til sér- stakra þarfa skólahverfa varðandi stundafjölda til að uppfylla ákvæði námsskrár og auglýsingar um skiptingu kennslustunda. Enn- fremur er því mótmælt að ráðu- neyti menntamála skeri niður „raunhæfar áætlanir fræðslu- stjóra um kennslu og rekstur skóla án þess að forsendum þeirrar þjónustu, sem skólamir eiga að veita, sé breytt". í ályktuninni er fullyrt að fram- kvæmd reglugerðar um sér- kennslu hljóti að vera háð fjárveitingum alþingis, „en meðan þangað berst engin vitneskja um raunvemlegan j^ölda sérkennslu- nemenda einstakra fræðsluum- dæma og greinda þörf þeirra fyrir sérkennslustundir verður aldrei jafnræði milli allra bama óháð búsetu“. í ályktuninni segir enn- fremur að um árabil hafí skólar utan Reykjavíkur verið vanbúnir til að sinna sérkennslu vegna þess að ekki hafí verið vilji til að byggja þar upp sérfræðiþjónustu í sama mæli og í Reykjavík - „og í þeim umdæmum sem hafa náð að byggja upp þjónustu sálfræðinga og sérkennara hefur menntamála- ráðuneytið tafíð framkvæmd gmnnskólalaga og reglugerðar um sérkennslu að þessu leyti". Ennfremur segir að verði ekki bætt úr því misræmi sem nú sé fyrir hendi sé ekki hægt að tala um sambærilegar aðstæður til skólahalds um land allt. Bíllinn enn ófundinn Hlutavelta í Hjallalundi: Gáfu Rauða krossinum fé ÞESSIR krakkar héldu á dögunum hlutaveltu í Hjallalundi 9 og söfnuðu þar 971 krónu sem þau gáfu Rauða krossinum á Akureyri. Á myndinni eru, frá vinstri: Ómar Amarson 10 ára, Erla María Hauksdóttir 10 ára og Svanhildur Björgvinsdóttir sem er aiveg að verða 10 ára. Valgarður Sigurðsson, 8 árá, var með þeim í að halda hlutaveltuna en hann komst ekki með þeg- ar krakkamir litu við á ritstjómarskrifstofu Morgunblaðsins með peningana. AKUREYRI Vinnuslys á Akureyri: Skraut á burstum í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.