Morgunblaðið - 30.09.1986, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEBIBER 1986
Ferðalag eldri borg-
ara í Stykkishólmi
Stykkíshóimi í septcmber.
ÞAÐ er margt gert fyrir gamla
fólkið í dag og gamla fólkið í
dag er mikið unglegra en gamla
fólkið var fyrir svona 40—50
árum. Þá var talað um að fara
„í hornið", en það þýddi að
varla var þá til heilt herbergi
fyrir aldraða á venjulegu heim-
iM. Svona hefir breytingin orðið
mikil. Þrældómur fyrri alda
gerði það að verkum að gamall
var maður talinn um sextugt.
Nú eru byggð þessi glæsilegu
dvalarheimili. Sú þróun byijaði í
jsmáum stíl og skömmtuðu plássi
fyrir hvem og einn en nú er þetta
komið svo að menn hafa bæði
stofu, svefnherbergi og eldhús eða
eldunaraðstöðu, því svo er sameig-
iniegt mötuneyti. Þetta eru fram-
farir og þjóðinni til sóma.
í Stykkishólmi hefir margt verið
gert eldri borgurum til gagns og
ánægju. Hér er gott dvalarheimili
og möguleiki til stækkunar. Vel
rekið gott bókasafn og stór stofa
til samkomu og spilakvölda. Þá
hafa félögin héma, klúbbamir og
önnur félög staðið fyrir skemmti-
legum stundum í félagsheimilinu
með kaffiveitingum og hefur tekist
mjög vel. Rotarykiúbburinn hefír
boðið í ferðalög og nú í september
var farin ein slík ferð kringum
Snæfellsnes. Farið var á sunnu-
dagsmorgni í tveim langferðabif-
reiðum Gunnars Hinrikssonar frá
Helgafelli og með leiðsögn Rotaiy-
félaga, sveitarstjórans, skrifstofu-
stjórans, tannlæknisins og svo
dýralæknisins. Veður var hið
ákjósaniegasta, sól og sumaiylur.
Fyrst var komið við í Gmndarfírði
og skoðuð hin veglega og ágæta
krikja þeirra Gmndfírðinga. Sókn-
arpresturinn séra Jón Þorsteinsson
sýndi hana og sagði sögu hennar
og kirkjumuna. Organistinn lék á
hið nýja og glæsilega pípuorgel í
öllum mögulegum tóntegundum,
orgelverk snillinganna. Ekið var
um bæinn og framfarimar skoðað-
ar.
í Ólafsvík biðu Rotaryfélagar
með mat handa ferðamönnum og
var það ánægjulegt að vera í boði
þeirra og rausnarskapurinn þakk-
aður hjartanlega. Þá var leiðsögn
um sjómannagarðinn, þennan
fagra stað í hjarta bæjarins og
síðan skoðað dvalarheimili aldr-
aðra og dáðust menn að þeirri
byggingu. Það var vígt fyrir nokkr-
um dögum og tekið í notkun. Á
Hellissandi var stutt dvöl og þar
skoðuð helstu mannvirki og gamlar
brimlendingar og þeirra minnst í
stuttum frásögum. Skúli Alexand-
ersson var með í förinni. Síðan
ekið fyrir Jökul og alla leið að
Amarstapa, þar sem kaffí og
kræsingar biðu fólksins í hinu veg-
lega hóteli „baðstofunni" sem
Hjörleifur Kristjánsson hefír komið
upp og stýrir. Kvað hann vel hafa
til tekist og aðsókn verið góð í
sumar og hefði ferðafólk vel kunn-
að að meta þessa nýbreytni í
hótelrekstri. Húsið er bæði
skemmtilegt og veitingastofan sér-
stök og vom menn ánægðir með
komuna þangað.
Eftir að hafa farið skoðunarferð
um „Stapa" var haldið til Stykkis-
hólms og lauk þessum ánægjulega
degi með góðri heimkomu. Þá skai
þess getið að laugardaginn 13.
september hafði Pétur Ágústsson
sem er einn af eigendum Eyjaferða
boðið eldri borgurum bæjarins í
einu blíðasta veðri sumarsins í ferð
um eyjasund, eins og farið hefír
verið í sumar. Um eyjasundin með
viðkomu á sérkennilegum og sögu-
legum slóðum. Var þátttaka í þeim
ferðum ágæt og menn ánægðir og
þakklátir sem að þeim stóðu.
Og þá skulu að iokum Rotary-
klúbb Stykkishólms færðar þakkir
fyrir ferðina í kringum Nes svo sem
að framan er skráð. Já það er
margt gert fyrir eldri borgara í
dag og það ekki að ástæðulausu.
Hafa þeir ekki rutt brautina fyrir
þessu góða lífí sem við eigum kost
á að taka þátt í í dag.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Lærið vélritun
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Ný
námskeið hefjast mánudaginn 6. okt. Engin
heimavinna.
Innritun og upplýsingar í símum 36112 og
76728.
Vélritunarskólinn,
Ánanaustum 15,
Sími 685580.
Myndbandanámskeið
2.-18. október - 20 tímar.
Þú lærir að gera þínar eigin myndir. Farið
er yfir helstu grundvallaratriði, svo sem
handritagerð, myndatöku, klippingu, hljóð
og fjölföldun. Vinna með myndband er
skemmtilegt og fjölbreytt starf sem gefur
framtíðarmöguleika. Takmarkaður fjöldi.
Upplýsingar og innritun í síma 40056.
í
myndmiölun
Box 452, 200 Kópavogur, slmi: 40056
Námsflokkar
Kópavogs
Sími 44391
Innritun stendur yfir í síma 44391 kl. 16.00.
- 19.00.
Kennslugreinar: Erlend tungumál, skraut-
skrift, myndlist, vélritun, trésmíði (f. konur),
sníðar og saumar og tölvuvinnsla.
Verð frá kr. 1700-2500.
ítalska, spænska, enska, danska
f. byrjendur. Uppl. og innritun í síma 84236,
föstud., laugard. og sunnud.
RIGMOR.
Söngskglinn í Reykjavík
Söngnámskeið
Næsta kvöldnámskeið
Öldungadeild
Hefst 13. okt. nk. Námskeiðið er ætlað fólki
á öllum aldri. Kennt er utan venjulegs vinnu-
tíma. Innritun til 7. okt. nk.
Uppl. á skrifst. skólans, sími 27366 kl.
15.00-17.30 daglega.
Skólastjóri.
Endurskoðendur
Hádegisfundur verður hjá Félagi löggiltra
endurskoðenda í Þingholti, Hótel Holti, á
morgun, 1. október.
Björn Friðfinnsson, form. Sambands ísl.
sveitarfélaga, flytur erindi sem hann nefnir:
Ákvæði nýju sveitarstjórnarlaganna um
fjármál sveitarfélaga.
Komum öll stundvíslega.
Stjórnin
Herrafataverslun
í verslanamiðstöð í austurbænum selst með
eða án húsnæðis sem hægt er að fá leigt.
Ágæt velta. Góð viðskiptasambönd.
26600f
Fa$teigiuþj6nustan
Aimtmtrmti 17,«. 2U00
Þorsteinn Steingrímsson
lögg. fasteignasali
Sjálfstæðisfólk á Húsavík
Aðalfundur sjálfstæðisfélags Húsavikur verður haldinn að Árgötu
14 (kosningaskrifstofu) þriðjudaginn 30. september kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestir fundarins verða frambjóðendur til prófkjörs D-lista kjördæmis-
ins. Mætum öll.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Landsmálafélagið Fram boðar til aöalfundar miðvikudaginn 1. októ-
ber kl. 20.30 í Sjálfstseðishúsinu að Strandgötu 29, Hafnarfirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Landsmálafélagið Fram.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík
Utankjörstaðakosning
Utankjörstaðakosning vegna prófkjörs um skipan framboöslista Sjálf-
stæöisf lokksins í Reykjavík við næstu alþingiskosningar fer f ram virka
daga á skrifstofu Sjálfstæöisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1, frá
kl. 9.00-17.00 og laugardögum frá kl. 10.00-12.00.
Utankjörstaðakosningin er þeim ætluð sem fjarverandi verða úr
borginni prófkjörsdaginn 18. október nk. eða geta ekki kosiö þá áf
öðrum ástæðum.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins
i Reykjavik.
Austurlandskjördæmi
Almennir stjórn-
málafundir i Austur-
landskjördæmi
veröa haldnir sem
hér segir: Reyðar-
firði Hótel Búðar-
eyri, þriðjudaginn
30. sept. kl. 20.30.
Seyðisfirðí í Herðu-
breið, miðvikudag-
inn 1. okt. kl. 20.30.
Fáskrúðsfirði i
Skrúð, fimmtudag-
inn 2. okt. kl. 20.30.
Alþingismennirnir Friðrik Sophusson og Egill Jónsson ræða um
stjórnmálaviðhorfiö. Allir velkomnir.
Sjálfstæðisflokkurinn.