Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIEUUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ODDGEIR JÓNSSON,
matsvsinn,
Arnarhrauni 7,
Hafnarfirði,
andaðist föstudaginn 26. september.
Þorbjörg Georgsdóttir,
Jón Guðmundsson, Áslaug Garðarsdóttir,
Lára Guðmundsdóttir, Guðbjartur Daníelsson,
Jenný Guömundsdóttir, Gunnar Guðmundsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
frá ísafiröi,
Ásvailagötu 61,
lést í Landspítalanum 26. september 1986.
Katrfn Fjeldsted Jónsdóttir,
Arna Ólafsdóttir, Ragnhildur Ölafsdóttir,
Lára Veturliöadóttir, Guðmundur M. Ólafsson,
Lára F. Hákonardóttir.
Faðir okkar.
t
GUÐMUNDUR ÞÓRARINSSON,
Hrafnistu,
lést 28. september.
Lydia Guömundsdóttir,
Jensfna Guðmundsdóttir,
Hrefna Guðmundsdóttir,
Kristján Guðmundsson.
Eiginmaður minn,
STEFÁN HANNESSON,
Hringbraut 37,
lést laugardaginn 27. september í Landspítalanum.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna,
Björg Ingþórsdóttir.
Faðir okkar,
GÚSTAF A. ÁGÚSTSSON,
endurskoðandi,
Laugavegi 70b,
lést í Vifilsstaðaspítala aðfaranótt mánudagsins 29. september.
Börnln.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
VALGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
Sörlaskjóli 58,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. september
kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjálfsbjörg eða Rauöa-
kross íslands.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Sigrún S. Waage, Hróömar Gissurarson,
Gunnar Reynir Antonsson, Steinunn Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður,
GUÐMUNDAR ILLUGASONAR,
fyrrv. lögregluþjóns og hreppstjóra,
Bollagörðum 7, Seltjarnarnesi,
sem andaðist 25. september, fer fram frá Reykholtskirkju í Borgar-
firði miðvikudaginn 1. okt. nk. kl. 3 e.h.
Rútuferöir verða frá BSl kl. 12.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuö.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Laufey Guðmundsdóttir,
Lilja Guömundsdóttir,
Sveinbjörg Guömundsdóttir,
Kristfn Guðmundsdóttir,
Albert Sœvar Guðmundsson,
Halla G. Markúsdóttir,
Kjartan Markússon,
Óiafur H. Þorbjörnsson,
Sigurbjörn Haraldsson,
Eysteinn J. Jósefsson,
Margrét Ragnarsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SÓLVEIG HELGADÓTTIR,
verður jarösungin frá Dómkirkjunni miövikudaginn 1. október kl.
15.00
Ragnar Aðalsteinsson,
Anna Hatlemark,
Unnur Aðalsteinsdóttir,
Ólafur Frlöfinnsson,
Ása Aðalsteinsdóttir,
Guðjón Guðmundsson
og barnabörn.
BjameyE. Narfadóttir
ogPéturM. Oskarsson
Fædd 19. mars 1909
Dáin 19. september 1986
Fæddur 3. júlí 1912
Dáinn 14. apríl 1982
Dagur líður, fagur, fríður,
flýgur tíðin í aldaskaut.
Daggeislar hníga, stjörnumar stíga
stillt nú og milt upp á himinbraut.
Streymir niður náð og friður,
nú er búin öll dagsins þraut.
(Vald. Briem)
Oft hef ég fengið betri afmælis-
kveðju en þá sem barst mér að
kvöldi 19. september. Síminn
hringdi og systir mín bar mér and-
látsfregn Betu frænku. Þó voru
fyrstu viðbrögðin þau að þakka
Guði fyrir að hún hafði fengið hvíld.
Engum duldist hvert stefndi sein-
ustu vikumar og raunar fannst mér
er ég sá hana síðast að hún væri
þegar horfin úr okkar heimi.
Bjamey Elísabet hét föðursystir
mín fullu nafni, en frá því ég fyrst
man var hún einfaldlega Beta
frænka, ljóshærð, léttlynd og hlát-
urmild. Hún var innfæddur Hafn-
firðingur, fædd á Bala, sem nú er
Austurgata 43. Foreldrar hennar
vom þau Narfi Jóhannesson sjó-
maður og Sigríður Þórðardóttir.
Þau eignuðust sjö böm, sem öll em
nú látin nema Sveinsína, sem lengi
hefur búið á Bala, en dvelur nú á
Sólvangi, 86 ára gömul. Manni
finnst ótrúlegt að litla húsið á Bala
skuli hafa rúmað svo stóran hóp
en hjartarúmið var svo mikið að
þar komust reyndar miklu fleiri
fyrir.
Beta var yngst systkinanna. Hún
var heilsuveil frá bamæsku en vann
þó við ýmis störf eins og kraftamir
leyfðu. Annað þekktist ekki á þeim
ámm. Hún bjó hjá foreldmm sínum,
og fór ekki frá Bala fyrr en hún
gifti sig. Árið 1932 eignaðist hún
soninn Hörð með unnusta sínum,
Hallberg Halldórssyni, síðar kaup-
manni í Vestmannaeyjum. Svo fór
að leiðir þeirra Hallbergs skildi, og
ólst Hörður upp með móður sinni
og móðurforeldrum á Bala. Hann
býr í Hafnarfirði og er kvæntur
Dúfu Kristjánsdóttur. Þau eiga þrjú
myndarleg böm en þau em Bjamey
Elísabet, hún býr í Noregi, er gift
og á tvö böm; Sigurjón og Jó-
hanna, sem nú býr á Bala með
nýjan, lítinn Hörð. Þannig er hring-
rás lífsins. Kynslóðir koma, kyn-
slóðir fara.
Beta var komin yfir fertugt þeg-
ar hún giftist Pétri Óskarssyni sem
lengi vann hjá bæjarútgerðinni.
Hann var einnig borinn og bam-
fæddur í Hafnarfírði. Þau bjuggu
í nokkur ár á ýmsum stöðum í Firð-
inum en byggðu síðan húsið að
Móabarði 22 í félagi við Hörð. Ungu
hjónin bjuggu á efri hæðinni en þau
eldri niðri. Þama er mér nær að
halda að Beta hafi átt sín bestu ár.
Pétur var vænn maður og vildi allt
fyrir hana gera. Þau áttu sameigin-
leg áhugamál, höfðu mikið yndi af
ferðalögum og fóm víða um landið,
störfuðu í stúku og vom í Kvæða-
mannafélaginu svo eitthvað sé
nefnt. Þá tóku þau til sín systur-
dóttur Péturs, Ingibjörgu Sigríði,
aðeins 9 mánaða gamla og ólst hún
upp hjá þeim til 15 ára aldurs. Hún
er nú gift kona á Þingeyri.
Eins og áður getur var Beta ekki
heilsuhraust. Hún dvaidi oft á
sjúkrahúsum og gekkst undir stóra
uppskurði. En það sem háði henni
mest var þó sjónleysið. Hún tapaði
snemma sjón og var að heita má
alblind seinasta áratug ævinnar og
jafnvel lengur. Samt fór hún flestra
sinna ferða og sinnti sínu heimili
svo að undravert var. Pétur gerði
allt til að létta henni þessa byrði,
var henni augu ef svo má segja.
Það má því nærri geta hvílíkt áfall
það hefur verið henni þegar hann
lést skyndilega 14. apríl 1982, tæp-
lega sjötugur, en þá stóð svo á að
þau hjónin höfðu bæði verið á
sjúkrahúsi.
Oft heyrir maður talað fijálslega
um hetjur hversdagslífsins. Alltaf
þegar ég heyri þau orð dettur mér
Beta í hug. Aldrei man ég eftir að
hafa heyrt hana kvarta yfir kjömm
sínum eða æðrast. Hún vildi standa
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
STEFANÍA ÁSTRÓS SIGURÐARDÓTTIR,
Nýlendugötu 4,
verður jarösungin miövikudaginn 1. október kl. 13.30 frá Foss-
vogskirkju.
Kristín Jónsdóttir og börn,
Sigurður Jónsson og börn,
Rögnvaldur Jónsson, Ásdfs Guömundsdóttir,
Þórir Jónsson, Jóna Guðnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlaát og
útför,
RAGNARS JÓHANNSSONAR,
Hlógerði 19,
Kópavogi.
Gyöa Waage,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
á eigin fótum meðan stætt var og
aldrei láta hafa neitt fyrir sér. Með-
fædd lífsgleði hennar og glaðværð
smitaði út frá sér. Komin á efri ár
gat hún hlegið og skríkt eins og
ung stúlka, og hún hafði til dæmis
mjög gaman af nýjum fötum, jafn-
vel eftir að hún sá þau ekki lengur.
Hún unni fjölskyldu sinni af heilum
hug, og þau aftur á móti og bjó
hjá þeim meðan hægt var.
Seinustu árin dvaldi Beta á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Þar undi
hún sér vel þó heilsan væri lítilfjör-
leg. Hún gladdist yfír því þegar
Hörður flutti aftur í Hafnarfjörð
eftir þriggja ára búsetu í Garðbaæ
og hún lifði það að geta heimsótt
þau í nýju íbúðina þó það yrði að
bera hana í hjólastól upp marga
stiga.
Nú er hún sjálf flutt í ný heim-
kynni. Friður Guðs fylgi henni þar,
þakkir fyrir samfylgdina og bless-
unaróskir. Minningamar um hana
munu alltaf ylja mér um hjartaræt-
ur.
Fyrir hönd systkina minna, bama
Jakobs bróður hennar votta ég
Herði, Dúfu, bömum þeirra og öll-
um öðrum vandamönnum innilega
samúð.
Arndís G. Jakobsdóttir
Okkur langaði að rita nokkur orð
um afa okkar og ömmu, Bjameyju
Elísabetu Narfadóttur og Pétur
Marinó Óskarsson. Amma Beta lést
19. september sl. á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Hún var orðin heilsulít-
il og var rúmföst sl. mánuð. Amma
Beta fæddist og ólst upp í Hafnar-
fírði, nánar tiltekið á Bala (Austur-
götu 43.) 23ja ára gömul eignaðist
hún pabba okkar, Hörð Hallbergs-
son, og ól hann upp með aðstoð
foreldra sinna og systkina. Alltaf
var hún dugleg og lét sig sjaldan
vanta í vinnu. Arið 1951 giftist hún
fósturafa okkar, Pétri Marinó
Óskarssyni frá Skógarströnd.
Bjuggu þau á Strandgötu 50 fyrstu
hjúskaparár sín, síðan byggðu þau
tvíbýlishús á Móabarði 22, með for-
eldrum okkar og bjuggu þar, þar
til afí dó. Það var alltaf gott að
koma heim úr skólanum og fara
niður til ömmu og afa og fá sér að
borða og taia við þau. Bæði störf-
uðu þau mikið í stúkunni í Hafnar-
firði, og tóku okkur með á fundi.
Þau kenndu okkur margt sem kem-
ur sér vel nú þegar við erum orðin
eldri. Amma og afí tóku að sér
systurdóttur afa, Ingibjörgu Sigríði
Jónsdóttur, og ólu hana upp, hún
er nú búsett á Þingeyri, maki henn-
ar er Sigurður P. Jónsson, og eiga
þau tvö böm sem nú sakna afa og
ömmu sárt. Afí vann í Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar í mörg ár, eða þar
til heilsan brast, en þá var hann
heima hjá ömmu og hjálpaði henni
við hin daglegu störf, því sjónin
hennar ömmu var orðin slæm. Það
var því eitt það fallegasta sem við
sáum þegar afí leiddi ömmu er þau
vom úti á gangi. Við vitum að
amma er búin að hitta afa okkar
aftur og kveðjum við hana nú með
þakklæti fyrir allt.
Bjarney Elísabet Harðardóttir,
Siguijón Harðarson,
Jóhanna Elínborg Harðardóttir.
Blomastofa
Friöfinm
Suöuilandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öllkvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
*Sk