Morgunblaðið - 30.09.1986, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 30.09.1986, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 53 Adolf Alberts- son — Minning Fæddur 30. sept. 1901 Dáinn 22. nóvember 1985 Í dag þann 30. september hefði afi minn, Adolf Albertsson vélvirki, fýllt 85. aldursárið. Hann lést þann 22. nóvember sl. eftir skamma sjúkrahúslegu. Þegar ég horfi um öxl og minnist samverustunda okk- ar, bæði í leik og starfi, sem og í sorg og gleði, verður mér ljðsara hvílíka gersemi af manni hann hafði að geyma. Hann var mér ekki bara afi, heldur miklu meira. Alltaf var hann reiðubúinn að rétta hjálpar- hönd, hverjum þeim sem til hans leitaði, og þeir voru ekki svo fáir. Afi reyndist mér jafnframt sá besti kennari sem ég hef kynnst, hvort sem var til hugar eða hand- ar. Hann var slíkur hagleikssmiður, að allt virtist leika í höndum hans. Margar ánægjustundir áttum við saman í bílskúmum við ýmiskonar föndur, og þar var líka margt skraf- að og skeggrætt sem ekki var rætt annars staðar. Þó að liðið sé næstum ár síðan afi dó, stendur hann mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum, enn í dag. Það er ekki ósjaldan, þegar ég sjálf- ur er eitthvað að föndra, og upp kemur vandamál, að ég hugsa; „hvemig hefði afi farið að“, og þá er engu líkara en hann komi til hjálpar. A þessum tímamótum er mér efst í huga þakklæti fyrir allar góðu stundimar sem við áttum saman; fyrir það ástríki og góðmennsku sem hann sýndi fjölskyldu minni, og síðast en ekki síst fyrir þá fá- dæma þolinmæði sem hann hafði, þegar ég átti í hlut. Þó afi sé farinn mun minningin um hann alltaf lifa með þeim, sem voru þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast honum. Guð blessi minningu hans. Deyr fé, deyja frændur. En orðstýr deyr aldrei hveim sér góðan getur. AÖK Minning: ValgerðurSigurðar- dóttirfrá ísafirði Fædd 30. júlí 1913 Dáin 18. september 1986 Vala, eins og við kölluðum hana lést á öldrunardeildinni Hátúni lOb í Reykjavík á 74. aldursári. Hún fæddist vestur á ísafirði og ólst upp í dalnum inn af Skutuls- fírði, í faðmi fjalla blárra. Hún giftist Antoni heitnum Ól- afssyni búfræðingi, bróður mínum. Þau byggðu sér fagurt heimili á ísafirði, með ómældri elju og þraut- seigju. Við húsið gerðu þau fagran garð, með blómskrúði og birkiang- an. Þau eignuðust fjögur böm, eina dóttur og þrjá syni. Vala átti áður dóttur með fyrri unnusta sínum, Sigrúnu Waage Sigurðardóttur, sem ólst upp með systkinahópnum. Lífsganga Völu var ekki ætíð greið eða létt. Þung ský veikinda og ástvina- missis dundu yfir. Heilsu eigin- mannsins tók að hraka og læknar gátu lítið að gert. Þau fluttu frá Isafirði til Reykjavíkur ef verið gæti að í höfuðborginni væra meiri möguleikar á lækningu. Hann var lagður inn á sjúkrahús og þaðan átti hann ekki aftur- kvæmt. Hinn 16. júní 1965 lést hann á sjúkrahúsinu. Sorgarskýin vora þó ekki öll að baki. Dóttirin Ólöf Bjamveig lést skyndilega sumarið 1969, myndar- kona. Jóhannes, elsti sonurinn, lést svo árið 1975. Guðfinnur yngsti sonurinn lést árið 1984. Hann hafði alla sína ævi verið heilsuvana hjá móður sinni. Þar með hafði hún misst fjóra nána ástvini á besta aldri. Nokkra áður en seinni sonur hennar lést var hún sjálf lögð inn á sjúkrahús nær dauða en lífí. Þar gekk hún undir hættulega skurðað- gerð. Skurðaðgerðin tókst vel, en á eftir var hún lengi rúmliggjandi og ekki sjáanlegt hvort hún kæmist á fætur aftur. Viljastyrkur hennar var óbugaður og því tókst henni að ná þeirri heilsu að hún gat geng- ið um meðal fólks. Síðast þegar ég sá hana á gangi var á Skólavörð- ustígnum og dásamaði hún þá veðurblíðuna. Hún fylltist aldrei beiskju þó sorgarskúrimar væra bæði dimmar og þungar. Hennar sterka skapgerð er mér ógleymanleg. Hún sýndi þar líka þrek í raun. „Far þú í ffiði. Friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir alit og allt. Gekkst þú með guði. Guð þér nú fylgi. Hans dýrðar-hnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Rúna og Reynir, þið hafið ætíð og ævinlega staðið við hlið mömmu ykkar í sorginni. Ykkur sendi ég mínar bestu sam- úðarkveðjur. Guð styrki ykkur og styðji. Bjarni Móðir mín, HALLDÓRA HALLBJARNARDÓTTIR, Arnarhrauni 19, Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi 27. september. Guðlaug Hauksdóttir. t Fósturmóðir mín og móðursystir, KARLA INGIBJÖRG HELGADÓTTIR frá Ásbyrgi Skagaströnd, andaðist í Héraðshælinu, Blönduósi, 25. september. Ólöf Konráðsdóttir Samúelsen, Helga Berndsen. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir Blaine Harden blaðamann The Washington Post IÐRUMST EINSKIS — segir John Garang, foringi skæruliða í Súdan HANN nefnir sjálfan sig Dr. John. Hann er riðvaxinn, sköllótt- ur, með gráyrjótt skegg, 43 ára gamall og menntaður í Banda- rikjunum. Uppreisnarher hans, Frelsisfylking alþýðu Súdans (SPLA), hefur svo að segja komið í veg fyrir að matvælasending- ar hjálparstofnanna komist til Suður-Súdan og hungurdauðinn ógnar lífi tveggja milljóna manna. „Við iðrumst einskis“ í skugga risavaxins akasíutrés í búðum uppreisnarmanna við eina hliðará Nílar, sat John Garang, ofursti, og veitti viðtal, sem er sjaldgæfur viðburður. Hann bar tignarmerki og var vopnaður vél- byssu af AK-47 gerð, skamm- byssu og löngum hníf. „Við iðramst einskis," sagði hann um hungursneyðina og far- þegaflugvél með 60 manns innanborðs, sem uppreisnarsveitir hans skutu niður í síðasta mán- uði. „Við gáfum út aðvöran um að lofthelgi svæðisins væri lokuð. Það ætti að lofa okkur fyrir hvem- ig við hegðum stríðsrekstrinum og aðvöram fólk svo að sakleys- ingjar lendi ekki í skotlínunni," bætti hann við. Hann réttlætti borgarastyijöldina, sem er bar- átta milli íbíua suðursins, þar sem kristni og framstæð trúarbrögð era ráðandi, og norðursins, þar sem múhameðstrú er ríkjandi og rætur valdanna í landinu er að finna. Flest hérað í Suður-Súdan era nú undir stjórn skæraliða. Garang fullyrti að skæraliðafylk- ing hans myndi aldrei bíða ósigur á hemaðarsviðinu og sagði að bardögum lyki ekki fyrr en ríkis- stjómin í Khartoum, höfuðborg Súdans, hefði farið frá völdum; „Við berjumst ekki til þess að komast að kjötkötlunum. Við beij- umst til þess að endurskipuleggja stjómmálavaldið í landinu og geta þannig fengið að taka þátt í ákvarðanatökunni í föðurlandi okkar," sagði Garang. 170 þúsund manns innilokaðir í Wau Þó uppreisnarforinginn axli ábyrgðina af borgarastyijöldinni stoltur, neitar hann að bera ábyrgðina á hungursneyðinni í landinu. Hann bar sig illa undan því að alþjóðlegar hjálparstofnanir hefðu villt umheiminum sýn og fengið fólk til þess að halda að samtök hans bæra ábyrgð á því að hafa komið í veg fyrir að mat- vara næði til fómarlamba hungursneyðarinnar. Allt of mikið hefði verið gert úr matvælaskorti í borgum eins og Wau, sem stjóm- arherinn hefur enn á valdi sínu í suðurhluta landsins. Uppreisnar- menn halda þar 170 þúsund manns innikróuðum og talsmenn hjálparstofnanna halda því að fyöldi fólks hafi þar soltið í hel. „Herramennirnir í Wau með háls- tau era í fréttum fyölmiðla, en þeir era ekki nema mjög lítill minnihluti,“ sagði Garang. „Við eram ekki andsnúnir þeim og er- um tilbúnir til þess að ræða neyðarhjálp fyrir fólkið í borgun- um. En grandvallaratriðið er það að enginn ber fólkið í sveitunum fyrir bijósti," sagði hann enn- fremur. Suður-Súdan er stórt vanþróað hérað, sem er nær án sam- gangna. Flestir íbúanna búa í sveitunum. Þriggja ára borgara- styijöld, auk tveggja þurrkaára hafa eyðilagt uppskeru og drepið hundraðir þúsunda nautgripa bænda og hirðingja. Fulltrúar hjálparstofnanna, sem nú eiga í samningaviðræðum við uppreisn- armenn, segja að ástandið fari stöðugt versnandi og ekki sé hægt að koma matvöra til tveggja millj- óna manna eftir þeim vegum sem fyrir hendi era í landinu. Þeir segja að stórar flutningaflugvélar verði að fá að lenda á stærri flug- völlum í héraðinu, sem stjómar- herinn hefur á valdi sínu, til þess að hægt sé að dreifa matvælum til bæja og nágrannasveitahéraða, sem uppreisnarmenn hafa á valdi sínu. Garang sagðist vera tilbúin til þess að ræða það að flugvélum með matvöra og önnur hjálpar- gögn yrði leyft að fljúga óáreittum til þessara flugvalla. Það væri hins vegar skýr stefna hreyfmgar hans að ef hjálparstofnanir hefðu ekki skýrt leyfi til þessara flutn- inga yrðu flugvélar þeirra skotnar niður. John Garang, ofursti og svæðið sem hann ræður að mestu yfir í Súdan. Ekki teknir alvarlega Þau ár sem Garang hefur bar- ist gegn stjómvöldum í Khartoum, hefur barátta hans ekki verið litin alvarlegum augum Jjar á bæ, að hans eigin sögn. A þeim fimm áram sem liðin era frá upphafí baráttunnar, hefur skæraliða- hreyfíng hans, sem telur 12 þúsund hermenn að því er talið er, náð miklum árangri, einkum hvað varðar að lama efnahagslíf landsins. Olíuborunarfyrirtæki hraktist brott frá suðurhluta landsins vegna aðgerða skæraliða og hætta varð framkvæmdum við risavaxinn skurð, sem veita átti vatni til norðurhluta landsins. í 30 ára sögu Súdans, er skæra- liðaher Garangs sá annar í röð- inni. í fyrri borgarastyrjöldinni, sem stóð í 17 ár og endaði árið 1972 þegar suðurhluta landsins var veitt ákveðið sjálfstæði, var baráttumálið sjálfstæð þjóð í suð- urhluta landsins. Garang segir að þetta baráttumál sé úr sögunni nú. „Síðastliðin þijú ár höfum við sagt að þetta sé ekki barátta milli araba annars vegar og Afríku- manna hins vegar, ekki barátta milli múslima og kristinna manna. Þetta er ekki trúarbragða- eða kynþáttastyrjöld. Við eram að reyna að skapa hér eina þjóð,“ sagði Garang við fréttamenn. Einn megin þröskuldurinn í veginum fyrir því er, að sögn Garangs, tilraunir stjómvalda til þess að neyða lögum Múhameðs- trúarmanna upp á alla landsmenn. Slík lög vora sett á árinu 1983 af fyrram forseta landsins, Gaafar Nimeiri, sem steypt var af stóli 1985. Núverandi stjómvöld hafa lofað að afnema sum þessara lagaákvæða, en Garang segir að ekkert annað komi til greina en að þessi lög verði algerlega numin úr gildi, áður en vopnahlé verður samið. Þá gerir hann einnig kröfu um það að vamarsamningar við Egypta og Líbýumenn, sem hvort tveggja era arabaþjóðir, verði numdir úr gildi. Ólíklegt er að stjómvöld í Khartoum komi til móts við nokkurt þessara skilyrða og því er vopnahlé milli hinna stríðandi aðila ekki í sjónmáli. (Endursagt)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.