Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
55
Flísar eftir Sigrúnu
framleiddar í Þýskalandi
Eg hef unnið með
margvísleg efni í gegnum
tíðina. Ég teikna mikið og vinn
líka í steinleir. Svo byijaði ég
að mála myndir á flísar frá
þessu fyrirtæki þegar ég
komst að því að þær hentuðu
vel, sagði listamaðurinn
Sigrún Guðjónsdóttir í samtali
við blaðamann
Morgunblaðsins. Þýska
fyrirtækið Villeroy und Boch
keypti í fyrrahaust rétt til að
framleiða baðherbergisflísar
með myndskreytingu eftir
Sigrúnu. Komu þær á markað
nú í sumar, en þetta mun vera
í fyrsta sinn sem verk norræns
listamanns piýða flísar
fyrirtækisins.
Að sögn Sigrúnar byijuðu
þessi viðskipti með því að hún
sendi litskyggnur með mynd-
um af verkum sínum til Vill-
eroy und Boch. Það vakti
áhuga forráðamanna fyrir-
tækisins og kom fulltrúi þeirra
hingað til lands í fyrrasumar
til þess að kynna sér vinnu
hennar betur. Hann samdi við
Sigrúnu um nánari útfærslu á
nokkrum myndum og varð úr
að ein skreytinganna yrði sett
í framleiðslu. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Sigrún selur
þekktu fyrirtæki myndir sínar,
því fyrir nokkrum árum fram-
leiddi Bing og Gröndahl
postulín með einu verka henn-
ar.
Flísamar með myndum Sig-
rúnar eru stórar, 30 sm á
hvem veg. Úr þeim má búa
eina heild, eða nota þær í
skreytingar eftir eigin höfði.
Sigrún sagði að til tals hefði
komið að hún ynni fleiri mynd-
ir fyrir fyrirtækið, en það biði
þangað til viðbrögðin við þess-
ari skreytingu væru komin í
ljós. Villeroy und Boch selur
að eigin sögn framleiðslu sína
í öllum löndum heims. Verk-
smiðjur þess em einar 17
talsins. Flísar Sigrúnar eru
gerðar í mjög fullkominni
verksmiðju í Liibeck, sem sér-
hæfir sig í gerð innbrenndra
steinflísa.
Sigrún sagðist hafa nóg fyrir
stafni þessa stundina. Hún og
eiginmaður hennar, Gestur
Þorgrímsson myndhöggvari,
hafa nýlokið uppsetningu
' útilistaverks í Ólafsvík sem
þau gerðu saman, og í sumar
keypti Landsbankinn vegg-
mynd af henni, en hún kemur
til með að prýða ráðstefnuhús
bankans í Selvík við Álftavatn.
Og nú geta íslendingar sem
aðrir skreytt baðherbergi sín
með myndum hennar.
Baðherbergisflísar Sigrúnar
fúst nú i verslunum hérlendis.
Ljósmyndari Morgunblaðsins
tók þessa mynd aflistamann-
inum við verk sitt.
Caine strangur
aidsLajs
COSPER
- - Hver hefur blásið þig upp?
COSPER 9557
) PIB
UfflMtlM
faðir
Gamla brýnið, Michael Caine,
sem oftast fer með
hlutverk miðaldra drykkfelldra
manna, ertalinn mjögstrangur
faðir. Hann hefur ákveðið að
dóttirin Natasha, sem er 13 ára,
skuli send í gamaldags breskan
kvennaskóla, þar sem stúlkumar
þurfa að ganga í
einkennisbúningum og þar sem
viðhafður er strangur agi.
Dóttirin fær ekki að komast upp
með neitt múður og gæta
foreldramir hennar mjög vel.
Þessi mynd var tekin af
fjölskyldunni þar sem hún var á
leið til Bretlands, kannski til að
skoða skóla fyrir Natöshu.
Caine-ljÖlskyldan á hús bæði í Los
Angeles og í Bretlahdi og lætur
sig ekki muna um að skjótast yfir
Atlantshafíð um helgar.
Vz SVÍN
NÝTTEÐA
REYKT
VIAMC Jeep
} p / / ! A / T ,
r • / ’A /
Þjónusta
er veturinn
nálgast
6tor- og
Ijósastillum
Yfirförum bílinn og bendum á
hvað þarf að lagfæra til að fyrir-
byggja tafir og óþörf vandræði.
Hafið samband við verk-
stjóra í síma: 77200.
A.M.C. umboðið.
EGILL VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77395
/ ....... A
llílllót
SÉRVERSLUN MEÐ ELDHÚS- OG B0RÐBÚNAÐ
r \
• 18/10 STÁL • ÞREFALDUR BOTN
• HÁLEIÐANDI • 10 ÁRA ÁBYRGÐ
• ÓKEYPIS POTTABÆKLINGUR Á ÍSLENSKU
v J
NÝBÝLAVEGI24-SÍMI41400
HEILDSÖLUDREIFING
S. MAGNUSSON HF.
NÝBÝLAVEGI24 - POB 460 - 202 KÓPAVOGI - S: 41866
*