Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 63

Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 Síldveiðar leyfðar frá 5. október: Enn óljóst með hag nýtingu síldaraflans - Heildaraf li allt að 65 þúsund lestir. Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að heimila síldveiðar frá klukkan 18.00, hinn 5. október næstkomandi. Gert er ráð fyrir að heildarsíldaraflinn verði allt að 65 þúsund lestir, en ennþá er óljóst hvemig aflinn verður hag- nýttur. Á síðastliðnu vori gaf ráðuneytið útgerðarmönnum síldveiðiskipa kost á að afsala sér síldarkvótum skipa sinna í skiptum fyrir botn- fiskskvóta í því skyni að auka hagkvæmni síldveiðanna. 34 skip hafa nú nýtt sér þessa tilhögun og eru þá eftir 108 sfldveiðiskip og í hlut hvers koma um það bil 600 lestir af sfld. Ennþá er óljóst hvemig tekst að hagnýta sfldaraflann að þessu sinni og einsýnt að hluti aflans fer til mjöl og lýsisvinnslu, að því er segir í tilkynningu frá sjávarútvegsráðu- neytinu. Þar segir ennfremur að í viðræðum við hagsmunaaðila hafi komið í ljós að lítill rekstrargrun- dvöllur sé talinn fyrir öll þessi skip við veiðamar, jafnvel þótt heimilt verði að sameina sfldarkvóta. Ráðu- neytið vill því ítreka að fram til 5. október er skipum heimilt að skila inn sfldarkvótum í skiptum fyrir botnfiskskvóta í samræmi við reglur sem áður hafa verið birtar. í tilkjmningu ráðuneytisins segir að nánari tilhögun veiðanna og regl- ur um nýtingu aflans verði tilkynnt- ar síðar. Fundur iðnráðgjafa í landshlutum: Hlúð verði að uppbygg- inguí landshlutum FIJNDUR iðnráðgjafa í lands- hlutum sem haldinn var 12. september sl. í Keflavik, vill benda á að Iögin um iðnráðgjöf í landshlutum frá árinu 1981 gengu úr gildi i lok ársins 1985 en voru framlengd óbreytt til loka þessa árs. Þar sem ekki hefur verið gengið frá nýjum lögum hafa iðnráðgjafar í lands- hlutum sent frá sér eftirfarandi ályktun: „Fundur iðnráðgjafa ályktar að þau drög að lagafrumvarpi sem fram hafa komið frá endurskoðun- amefnd iðnaðarráðuneytisins komi til með að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu iðnráðgjafastarfsins. Fundurinn bendir á að mikiivægt sé að fjármunum sé markvisst var- ið til þessarar starfsemi og þess gætt að hlúa vel að þeim svæðum þar sem frumkvæði heimamanna hefur leitt af sér umtalsverðan ár- angur. Bent er á að öflug starfsemi iðnráðgjafa leiði af sér aukna at- vinnuuppbyggingu, fleiri atvinnu- tækifæri og aukna hagsæld". í Kaupmannahöfn FÆST j BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI Þaðerdýrt rafmagnið sem þú dregur að borga Rafmagn er svo snar þáttur í lífi okkar að við veitum því varla athygli. Flest heimilistæki og vélar á vinnustað ganga fyrir rafmagni og við erum svo háð þeim að óbeint göngum við sjálf fyrir rafmagni. Þessu ,,sjálfsagða“ raf- magni er dreift til okkar af rafmagnsveitu. Rafmagnsveita Reykjavíkur leggur metnað sinn í stöðuga og hnökralausa dreifingu til neytenda. Dreif- ingarkostnaður greiðist af orkugjaldi. Ógreiddir reikningar hlaða á sig háum vaxtakostnaði sem veldur því að rafmagnið er nær þriðjungi dýrara hjá þeim skuldseigustu — þar til þeir hætta að fá rafmagn. Láttu orkureikninginn hafa forgang! c; RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222 ARGUS/SiA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.