Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 64

Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 64
STERKTKORT m Þórshöfn: Fyrsta loðn- an í nýju verksmiðiuna Þórshöfn. jpTEKIÐ hefur verið á móti fyrstu loðnunni til bræðslu í nýju loðnu- verksmiðjunni á Þórshöfn. Það var Þorshamar GK, sem kom með 600 tonn af loðnu síðdegis á mánudag, og var búist við að bræðsla gæti hafist á þriðjudag. Verksmiðjan var keypt notuð frá Noregi og hefur verið unnið við uppsetningu hennar síðan í febrúar síðastliðinn. Afkastageta verk- smiðjunnar er um 500 til 600 tonn á sólarhring. í sumar hefur verið unnið að stækkun á löndunarkanti við höfnina, um 31 metra, og er þeim framkvæmdum nú lokið. Þá hefur verið unnið að dýpkun hafnar- innar þannig að þar er nú komin ^Hgæt aðstaða til að taka á móti loðnu. - Ó.Þ. Grundfirðingar: Heita tveim- ur miUjónum á olympíu- -liðið í skák ÚTGERÐARMENN og fískverk- endur í Grundarfirði hafa heitið tveimur milljónum króna á sigur íslensku sveitarinnar á Olympíu- mótinu i skák, sem háð verður í Dubai í Sameinuðu arabísku fur- stadæmunum í nóvember næst- komandi. Soffanías Cecilsson, útgerðar- maður í Grundarfirði, gerði grein fyrir þessari ákvörðun á lokahófi Skákþings íslands á laugardags- kvöldið. Samkvæmt þessu fær íslenska skáksveitin tvær milljónir króna fyrir sigur í mótinu, en síðan lækkar upphæðin um 200 þúsund \Jöðnur fýrir hvert sæti þar fyrir neðan þannig að ef sveitin lendir neðar en í 12. sæti fær hún ekki neitt í sinn hlut. Soffanías sagði í samtali við Morgunblaðið að með þessu vildu útgerðarmenn og fiskverkendur í Grundarfirði hvetja íslensku skák- mennina til dáða og aukinna afreka á sviði skáklistarinnar. „Við eigum marga snjalla skákmenn, sem standa í frémstu röð og þeir hafa alla burði til að verða mjög framar- lega á þessu móti, jafnvel sigra", sagði Soffanías. „Með þessu viljum við ýta undir þá að drífa sig áfram á mótinu og vera 'ekki með neitt hálfkák heldur ná fyrsta sætinu. vff að þeir standa fyrir sínu sem stórmeistarar munum við Grund- fírðingar standa við okkar hlut“, sagði Soffanías. Sjá viðtal við nýbakaðan íslandsmeistara í skák, Mar- geir Pétursson, á bls. 26. Ölvaður olli umferðarslysi ÖLVAÐUR ökumaður ók á konu Tryggvagötu Iaust eftir mið- nætti í nótt. Konan var flutt á slysadeild, en meiðsli hennar voni ekki talin alvarleg. Ökumaðurinn hafði reynt að flýja er hann varð var við að lögreglan veitti ferðum hans athygli. Ok hann fyrst á umferðarskilti og síðan á konuna með fyrrgreindum afleið- ^ipgum. Hann var áberandi ölvaður. BRESKIR hermenn, gráir fyrir járnum, höfðu búið sér þetta víghreiður í Öskjuhlíðinni þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kom aðvífandi í gærdag. Sandpokavígi voru hlaðin milli klappanna og neðar i hlíðinni öslaði ellimóður herflutningabíll upp brekk- una. Ekki er þó öll sagan sögð þvf allt var þetta sett á svið fyrir kvikmyndagerðarmenn Sjónvarpsins. Að sögn Viðars Vikingsson- ar, leikstjóra, standa nú yfir tökur á myndinni „Tilbury" sem gerð er eftir sögu Þórarins Eldjárns. Frumsýning er áætluð í mars á næsta ári. Búningar hermannanna eru fengnir að láni frá Bretlandi, en loftvarnarbyssuna léði Landhelgisgæslan. Bandalag jafnaðarmanna lagt niður á sögulegum fundi í nótt: Þingmenn BJ í Morgunblaðið/Ámi Sæberg Við upphaf fundar þingflokks Bandalags jafnaðarmanna í gær- kveldi, en framkvæmdastjórn flokksins sat einnig þennan fund. SOGULEGUR fundur var hald- inn í þingflokki, landsnefnd og framkvæmdastjóm Bandalags jafnaðarmanna í gærkveldi, en þar var tekin ákvörðun um að íeggja niður Bandalag jafnaðar- manna, stofna Félag frjálslyndra jafnaðarmanna og ganga til liðs við þingflokk Alþýðuflokksins. Þau Guðmundur Einarsson, Kol- brún Jónsdóttir og Stefán Bene- diktsson, þingmenn Bandalags jafnaðarmanna héldu í gærkveldi fund með helstu frammámönnum BJ þar sem til umræðu var að leggja niður Bandalag jafnaðar- manna og að þeir sem gegna trúnaðarstörfum fyrir BJ gangi til liðs við þingflokk Alþýðuflokksins. Fundurinn varð mun lengri en gert hafði verið ráð fyrir, þar sem honum lauk ekki fyrr en að ganga 2 í nótt. Þá höfðu fundarmenn samþykkt yfirlýsingu, þar sem segir að nú hafí myndast grundvöllur fyrir sam- vinnu Bandalags jafnaðarmanna og Alþýðuflokksins. „Þess vegna ákveða þeir sem gegna trúnaðar- störfum á vegum Bandalags jafnað- armanna nú, að segja af sér þeim störfum. Þess í stað hafa einstakl- ingar úr röðum þess myndað Félag frjálslyndra jafnaðarmanna sem gengur til liðs við Alþýðuflokkinn á næstu dögum,“ segir í yfirlýsing- unm. Þingmennimir þrír munu hyggja á áframhaldandi stjómmálaþátt- töku innan vébanda Alþýðuflokks- ins. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að Stefán Benediktsson hyggist taka þátt í prófkjöri Al- þýðufiokksins í Reykjavík fyrir næstu alþingiskosningar, og stefna á þriðja sætið. Talið er að Guð- mundur muni taka þátt í prófkjöri fiokksins í Reykjaneskjördæmi. Guðmundur Torfason fer til Berlínar GUÐMUNDUR Torfason knatt- spyrnumaður úr Fram, leikmað- ur íslandsmótsins og marka- kóngur þess, mun fara til viðræðna við forráðamenn þýska 1. deildar félagsins Blau Weiss Berlin síðar í þessari viku. Guðmundur fór til Póllands í morgun ásamt félögum sfnum úr Fram þar sem þeir leika við Katowice í Evrópukeppninni en eft- ir þann leik ætlar hann til Berlínar þar sem hann mun athuga aðstæð- ur hjá félaginu. Sjá nánar á blaðsíðu 1B f dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.