Morgunblaðið - 18.12.1986, Side 4

Morgunblaðið - 18.12.1986, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 Kammersveit Reykjavíkur á æfingu í Hallgrímskirkju í gær. Morgunblaðið/RAX Kammersveit Reykjavíkur: Jólatónleikar í Hallgrímskirkju KAMMERSVEIT Reykjavíkur efnir til jólatónleika í Hallgrimskirkju nk. sunnudag, 21. desember, kl. 17. Þetta eru fyrstu tónleikar kammersveitarinnar á þessu starfsári. Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1974 og er þetta því 13. starfsár hennar. Á efnisskránni á sunnudaginn eru þrír konsertar fyrir tvö einleikshljóð- færi, Konsert fyrir tvo trompeta eftir F. Manfredini, Konsert fyrir tvær fiðlur eftir J.S. Bach og Konsert fyrir fiðlu og óbó eftir J.S. Bach. Þá verða einnig flutt hin þekktu verk Adagio I g-moll eftir T. Albinoni og Jólakonsertinn eftir A. Corelli. Þetta verða fyrstu tónleikamir í Hallgrímskirkju, þar sem eingöngu er leikin hljóðfæratónlist. Einleikarar á tónleikunum verða: Lárus Sveinsson, trompetleikari, Ásgeir H. Steingrímsson, trompetleik- ari, Rut Ingólfsdottir, fíðluleikari, Unnur María Ingólfs- dóttir, fíðluleikari, Kristján Þ. Stephensen, óbóleikari, og Hörður Áskelsson, orgelleikari. Alls koma 18 hljóðfæraleikarar fram á tónleikunum. Forsala aðgöngumiða verður í ístóni. VEÐUR ÍDAGkl 12.00: Heimild: Veðurslofa Islands (Byggl á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegl f gœr: Um 300 kílómetra austur af Langanesi er 985 millibara lægð sem hreyfist vestur og síðar suðvestur. Á suðvestanverðu Grænlandshafi er hægfara 973ja millibara lægð. Hiti verður víðast hvar nálægt frostmarki. SPÁ: í dag er gert ráð fyrir norðaustan golu eða kalda um norðan- vert landið, en fremur hægari breytilegri átt um landið sunnanvert. Dálítil él á víð og dreif um mest allt land. Hiti verður um eða rétt undir frostmarki. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR: Á föstudag verður minnkandi norðanátt um austan- vert landið meö éljum norðaustanlands en björtu veðri á suöaust- urlandi. Vestantil á landinu verður hæg breytileg átt og smáél á víð og dreif. LAUGARDAGUR: Á laugardag verður víðast hægviðri og él á víð og dreif um allt land. Talsvert frost báða dagana. Heiðskírt TÁKN: 0 ■á Léttskýjað A Hálfskýjað A m Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / 10 Hitastig: 10 gráður á Celslus Skúrir * V E' — Þoka = Þokumóða * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður * , +■ VEÐUR VIÐA UMHEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 2 þokumóða Reykjavfk 1 skýjað Bergen 1 snjóól Helsinki -10 snjókoma Jan Mayen 1 skýjað Kaupmannah. 5 léttskýjað Narssarssuaq -18 léttskýjað Nuuk -7 snjókoma Osló -1 snjókoma Stokkhólmur -1 snjókoma Þórshöfn 4 léttskýjað Algarve 18 heiðskfrt Amaterdam vantar Aþena 18 skýjað Barcelona 13 léttskýjað Berlín 4 úrkJgr. Chicago 3 alskýjað Glasgow 6 rigning Feneyjar 1 þokumóða Frankfurt 6 rlgning Hamborg 5 skúr Las Palmas vantar London 7 alskýjað Los Angoles 11 heiðskfrt Lúxemborg 3 skýjað Madrfd 7 þokumóða Malaga 17 heiðskfrt Mallorca 14 Wttskýjað Miami 20 skýjað Montreal -8 alskýjað Nice 17 léttskýjað NewYork 3 mlstur Parfs 7 skýjað Róm 11 heiðskfrt Vfn 3 léttskýjað Washington 2 þokumóða Winnipeg -4 alskýjað Könnun Vinnuhóps um sifjaspell: Algengast að stúlku- böm verði fyrir árás- um náskyldra karla KÖNNUN Vinnuhóps um sifja- spell hefur leitt i ljós að það eru einkum ókynþroska stúlkubörn sem verða fyrir árásum ná- skyldra karla innan veggja heimilisins. Ofbeldið varir oft í mörg ár. Vinnuhópurinn gekkst fyrir símakönnun vikuna 8.-13. desemb- er sl. á tíðni siíjaspella á íslandi. Alls bárust 27 símhringingar frá konum með sifjaspellareynslu. Voru konumar á aldrinum 16-60 ára og jafnt af höfuðborgarsvæðinu sem landsbyggðinni. Af þessum 27 kon- um höfðu tíu orðið fyrir árás föður, tvær fyrir árás fóstur- eða stjúp- föður, þtjár fyrir árás afa, fjórar fyrir árás frænda og jafn margar urðu fyrir árás bróður eða manns sem tengdist fjölskyldu. Af þessum hópi höfðu tíu konur orðið fyrir árás fleiri en eins aðila, þar af ein af hálfu sex mismunandi fjölskyldu- meðlima, manna sem hafði verið falin forsjá hennar, auk „vina“. Fimm konur skýrðu frá því að árás- armennirnir hefðu einnig leitað á önnur böm í fjölskyldunni. Konurnar vom á aldrinum 4-12 ára þegar áreitni byijaði, en meðal- aldur var 6,8 ára. Árásir á heimilum vom algengastar og urðu 21 kona fyrir þeirri reynslu, en 6 konur urðu fyrir árásum utan heimilis og þá oftast á heimilum skyldfólks sem falin hafði verið forsjá þeirra. Þegar konumar vom spurðar hversu lengi þetta hefði staðið sagði ein það óvíst, fjórar sögðu það hafa verið mörg ár, fímm konur að þetta hefði staðið skemur en eitt ár og ein kona að þetta hefði verið í eitt skipti. Tíu konur sögðu að það hefði verið frá einu og upp í tíu ár, en meðaltal var 4,6 ár. Það var einnig kannað hvort konurnar 27 hefðu rætt þessi mál við einhvem. Eitt mál varð opinbert vegna kæm annarra fórnarlamba, fímm höfðu rætt við eiginmenn, fimm við vinkonur, fjórar höfðu rætt við mæður sínar, fjórar við sálfræðinga, tvær við geðlækna og ein ræddi þetta við systur sína. Fimm höfðu aldrei trúað neinum fyrir þessu. Auk kvennanna 27 sem höfðu orðið fyrir sifjaspellareynslu hringdu tvær konur sem urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku af hálfu óskyldra aðila, móðir ungrar konu sem hafði orðið fyrir kynferð- islegu ofbeldi og ungur drengur sem sagði frá líkamlegu ofbeldi föður gegn móður. Flestar konumar sem talað var við kvörtuðu um erfíðleika í kynlífí og mikla sektarkennd. Nokkrar höfðu gert sjálfsvígstilraunir sem unglingar og margar lýstu þung- lyndi og tímabundinni óreglu. í janúar ætlar Vinnuhópur um sifla- spell að bjóða upp á sjálfshjálpar- hópa fyrir fómarlömb sifjaspella þar sem þátttakendur fá tækifæri til að ræða þessa sameiginlegu reynslu og áhrif hennar á líf sitt. Þetta hópstarf verður auglýst síðar. Uppsagnarfrestur meinatækna á Borg- arspítalanum rennur út 1. janúar: Utlit fyrir að meina- tæknar gangi út ALLT bendir til að meinatæknar á Borgarspítalanum gangi út 1. janúar en þá rennur út endanlegur uppsagnarfrestur þeirra. Meina- tæknarnir halda fast við kröfu sina um 45% álag á dagvinnulaun, en starfsmannastjóri Reykjavíkur- borgar segir að ekki verði samið við meinatækna sérstaklega og þeir verði að fylgja með öðrum starfshópum sem Starfsmannafé- lag Reykjavíkur hefur samnings- rétt fyrir í aðalkjarasamningum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Meinatæknar á Borgarspítalanum eru um 40 talsins í 27 stöðugildum. Þeir sögðu upp störfum 1. júlí með þriggja mánaða fresti og var upp- sagnarfrestur þeirra framlengdur um 3 mánuði. í samtali við Morgunblaðið sagði Valborg Þorleifsdóttir meina- tæknir að lítið sem ekkert hefði verið rætt við meinatæknana þessa sex mánuði utan að framkvæmdastjóri spítalans hefði haldið með þeim einn fund. Hinsvegar hefði ýmislegt annað gerst, þar á meðal væntanleg eig- endaskipti á spítalanum og einnig hafa ný samningsréttarlög verið lögð fyrir Álþingi sem gera ráð fyrir að starfsgreinafélög fái sjálfstæðan samningsrétt. Valborg sagði þó, að ekkert hefði verið rætt um að falia frá uppsögnun- um á þessum forsendum og því væri ekkert af þessum málum að frétta, utan að meinatæknamir héldu enn fast við kröfur sínar um 45% áhættuálag á dagvinnu og 16 daga vetrarorlof. Meinatæknamir gerðu einnig kröfu um deildarmeinatækna- kaup á vöktum, en sú krafa náðist fram á Landspítalanum og var síðan samræmd við Borgarspítalann. Jón Kristjánsson starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar sagði í samtali við Morgunbiaðið að af borgarinnar hálfu hefði ekkert breyst. Meinatæknum á Borgarspítalanum hefði verið boðin sú tveggja launaflokka hækkun sem meinatæknar á Landspítalanum sam- þykktu í haust en því hefði verið hafnað. Jón sagði að allir væru sam- mála um að ekki væri hægt að bijóta upp aðalsamningana í sjálfstæðar einingar að svo komnu máli, þótt ein- hveijir hópar séu óánægðir, og því væri aðeins hægt að bíða eftir aðal- samningaviðræðum BSRB héðan af. Jónhildur Halldórsdóttir yfírmeina- tæknir á Borgarspítalanum, og sá eini sem ekki hefur sagt upp, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki yrði hægt að gera neinar meiriháttar aðgerðir á spítalanum ef meinatækn- amir ganga út þar sem þeir sjá um allar rannsóknir og undirbúning að- gerða. Þeirra hlutverk er meðal annars að taka og rannsaka blóð- sýni, framkvæma lifrarpróf og sýklaræktun, gera krosspróf fyrir aðgerðir og þvagrannsóknir. Eldur í fangelsi Varnarliðsins Vogum. KLUKKAN 3 I fyrrinótt var slökkvilið Keflavikurflugvallar kvatt að fangelsi Varnarliðsins þar sem eldur var i hvíldarherbergi starfsmanna. Eldsupptök voru þau að ljóskastari sem losnaði í óveðrinu um síðastliðna helgi lagðist uUn í gluggakarm úr tré og kveikti loks í honum. Eldurinn barst ( gardfnu og síðan í kojur í hvíldarherbergi starfsmanna fangels- ins. Tjón varð töluvert, en fangelsið var mannlaust. Fljótiega tókst að ráða niðurlögum eldsins. EG

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.