Morgunblaðið - 18.12.1986, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
Rannsóknaferðír
Stefáns skólameistara
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefið út ritið Rannsókna-
ferðir Stefáns Stefánssonar
skólameistara, en Steindór
Steindórsson frá Hlöðum býr það
til prentunar, ritar inngang og
tengir kafla þess með skýringum
og upplýsingum.
Á bókarkápu segir: „Rannsókna-
ferðir þær er hér segir frá tókst
Stefán Stefánsson skólameistari á
hendur 1888-1896 þegar hann ferð-
aðist víða um héruð og óbyggðir
til að kanna grasafræði íslands.
Dró hann saman með þeim rann-
sóknum föng að hinu merka riti
sínu Flóru íslands sem opnaði al-
menningi innsýn í leyndardóma eins
þáttar íslenskrar náttúru. Gerðist
Stefán einna víðförlastur samtíðar-
manna um ísland. Bókin grundvall-
ast á ferðaþáttum hans og
dagbókum, en Steindór Steindórs-
son frá Hlöðum hefur búið hana til
prentunar. Ritar Steindór og inn-
gang að bókinni og tengir kafla
hennar með skýringum og upplýs-
ingum svo að glögg heildarmynd
fæst af rannsóknaferðum Stefáns
úr dreifðum heimildum.
Stefán Stefánsson (1863-1921)
frá Heiði í Gönguskörðum var þjóð-
kunnur á sinni tíð sem vísindamað-
ur, kennari, skólastjóri og alþingis-
maður. Hann var einnig snjall og
gagnfróður rithöfundur. Flóra ís-
lands þykir enn stórvirki og tryggir
Stefáni Stefánssyni óumdeilda við-
kenningu í sögu íslenskra náttúru-
fræða. Auðsýnir Steindór Stein-
dórsson frá Hlöðum minningu þessa
forvera sins drengilega ræktarsemi
með því að búa rit þetta til prentun-
ar og gefa íslendingum kost á að
relqa vísindastarf Stefáns Stefáns-
sonar. Það einkennist af einlægri
Steindór Steindórsson
hrifningu og fræðilegri könnun á
íslenskri náttúru, svo og brennandi
trú á menningu og framtíð þjóðar-
innar er birta tók af nýjum degi
eftir svartnætti hörmunga og kúg-
unar. Flóra íslands kom út á morgni
þessarar aldar sem skipti sköpum
á íslandi vegna hugsjóna og dáða
ágætra manna af kynslóð Stefáns
Stefánssonar."
Rannsóknaferðir Stefáns Stef-
ánssonar skólameistara eru 132
bls. að stærð. Kápu gerði Sigurður
Öm Brynjólfsson, en bókin er unnin
í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
Hafnir:
Sveitarfélagið kaupir þrjú hálfbyggð hús
Grindavík.
Sveitarstjórn Hafnahrepps hefur
að undanförnu keypt þijú hálf-
byggð íbúðarhús sem verið hafa
í byggingu í mörg ár en voru
komin á uppboð vegna greiðslu-
erfiðleika húsbyggjenda.
Að sögn Þórarins St. Sigurðssoar
sveitarstjóra í Höfnum var tekin
um þetta ákvörðun í sveitarstjóm-
inni með tilliti til þess að tilfinnan-
lega vantaði leiguhúsnæði á
staðnum. Tvö þessara húsa em nær
fullbyggð en eitt er fokhelt. Samið
var við viðkomandi lánastofnanir
um greiðslufyrirkomulag og lætur
nærri að hreppurinn greiði um 1
milljón króna fyrir hvert þeirra.
Ekki liggur fyrir hver kostnaður
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Eitt af hálfbyggðu liúsunum sem sveitarstjórnin i Höfnum hefur
fest kaup á.
verður við að fullgera húsin. þau eða seljum. Aðalatriðið er að
„Ekki hefur verið tekin endanleg þau klárist að lokum," sagði Þórar-
ákvörðun um hvort við gemm húsin inn St. Sigurðsson.
að verkamannabústöðum, leigjum Kr. Ben.
Hutschenreuther býður gesti velkomna, með
margskonarveisludiskum og skálum úrhvítu gæða
postulíni.
Glæsileg hönnun. I
| Póstkröfuþjónusta.
CL
CORUS
HAFNARSTRÆT117 - REYKJA VÍK
SÍMI22850
GOÐVERÐ A
SKÍÐAVÖRUM
Barnaskíði 80-110 cm. Kr: 3.590,00 Svigskíöi irá KNEISSI Austurríki
* Unglingaskíðapakki 120-140 cm. Kr: 9.500.00 Skíðafalnaöui frá LHUTA Finnlandi.
* Unglingaskíðapakki 150 -170 cm. Kr: 9.900.00 Barnaskiöagallar frá Danmörku og Italíu.
Byrjendaskíði fullorðinna frá Kr: 5.500,00 Skíöahanskar og skíöalúffur fra Sviþjóð.
Loftpuðaskiðaskór No. 5—11VL Kr: 6.995,00 Skíðastretchbuxur frá Austurrfki.
Gönguskíðapakki 180 -215 cm. frá Kr: 7.200,00
* í pakka eru skiði, stafir, skór, bindingar og ásetning