Morgunblaðið - 18.12.1986, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
• Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • .Ráðgjöf • O.fl. o.fl.
VILDARKJÖR
Svíþjóð:
Lögreglan slepp-
ir fjórum Kúrdum
Stokkhólmi, AP.
FJÓRIR Kúrdar, sem handteknir
voru í Stokkhólmi á föstudag ,
fengn að fara fijálsir ferða sinna
í gær. Sænskir fjölmiðlar hafa
fullyrt að mennirnir hafi verið
handteknir vegna morðsins á
Olof Palme. Einn maður situr
enn í gæsluvarðhaldi.
Hans Holmer lögregluforingi
sagði í gær að það myndi engu
breyta um rannsókn málsins þótt
Kúrdunum hefði verið sleppt. Hann
kvað enn vera næsta víst hvaða
hópur manna hefði ráðið Palme af
dögum. Sænskir fjölmiðlar hafa
sagt lögregluna gruna meðlimi
öfgasamtaka Kúrda í Svíþjóð um
ódæðið en Holmer hefur enn ekki
viljað láta neitt uppi um það.
Kúrdamir fimm voru handteknir
á föstudagskvöldið eftir handalög-
mál á knæpu sem lyktaði með
skotbardaga við lögreglumenn. Að
sögn sænska útvarpsins voru menn-
imir fjórir ekki formlega ákærðir.
Lögfræðingar þeirra vönduðu
sænsku lögreglunni ekki kveðjumar
og sögðu hneykslaniegt hvemig
skjólstæðingar þeirra hefðu verið
bendlaðir við morðið á Palme. Þá
gagnrýndu þeir einnig lögreglu-
menn fyrir að hafa yfirheyrt
Kúrdana að lögfræðingunum fjar-
stöddum.
Ákæruvaldið krafðist þess í gær
að fimmta Kúrdanum yrði ekki
sleppt úr gæsluvarðhaldi. Hann var
handtekinn eftir skotbardaga við
lögreglumenn og verður líklega
kærður fyrir vopnaburð og tilraun
til manndráps.
Barcelona:
i fran vill reka
i: írak úr OPEC
Genf. AP.
ÍRANSSTJÓRN krefst þess, að
írak verði rekið úr samtökum
olíusöluríkja, OPEC, fyrir að
neita að draga úr olfufram-
leiðslu, að þvf er franska frétta-
stofan IRNA sagði f gær.
Fréttin þykir benda til þess, að
fulltrúar OPEC-ríkjanna á fundin-
um í Genf geti ekki náð samkomu-
lagi um samdrátt heildarframleiðsl-
unnar í því skyni að hækka olíuverð
um fjóra dollara á tunnu.
Fréttastofan sagðist hafa það
eftir háttsettum írönskum embætt-
ismönnum, að írönsk stjómvöld
hefðu hvatt önnur aðildarríki OPEC
að verða við kröfunni um brott-
rekstur íraks.
Sprengt í frönsk-
um fyrirtækjum
ETA lýsir yfir ábyrgð
Barcelona, AP.
TVÆR öflugar sprengjur
sprungu í Barcelona snemma á
þriðjudag með þeim afleiðingum
að 28 menn slösuðust. Sprenging-
amar beindust gegn fyrirtækj-
um i eigu franskra aðila. í gær
lýsti Aðskilnaðarhreyfing Baska
ábyrgðinni á hendur sér.
Fyrri sprengjan sprakk skömmu
eftir miðnætti í skrifstofum ölgerð-
arverksmiðju franska fyrirtækisins
Ricard. Einn vegfarandi slasaðist
er glerbrotum og öðm braki rigndi
yfír hann.
Skömmu síðar sprakk 15 kg
flísasprengja í húsgagnaverzlun í
eigu franskra aðila. Hún var á jarð-
hæð sex hæða íbúðahúss. Eftir
sprenginguna kviknaði í húsinu.
Öllum íbúum 30 íbúða á næstu
hæðum fyrir ofan verzlunina var
bjargað, en 27 þeirra slösuðust eða
fengu reykeitrun.
Sprengjumar spmngu aðeins
nokkmm klukkustundum eftir að
franska lögreglan afhenti þeirri
spænsku meintan ETA-mann.
Hreyfingin hefur jafnan svarað
framsali hryðjuverkamanna með
sprengjuherferð gegn frönskum
fyrirtækjum á Spáni. Síðustu tvo
mánuði hafa samtökin lýst yfir
ábyrgð á 23 sprengjutilræðum þar
í landi.
í síðustu viku sprakk sprengja í
Citroen-sýningarsal í Barcelona og
í Renault-sýningarsal 1 borginni
Zarauz. Ung kona missti báðar
hendur og sjónina í sprengingunni
í Zarauz.
Gorbachev treystir
tökin í flokknum
Formanni flokksins í Kazakhstan vikið frá
Moskvu, AP, Reuter.
FORMANNI kommúnistaflokks-
ins í Kazakhstan og nánum
samverkamanni Brezhnevs heit-
ins var á þriðjudag vikið úr
embætti. Við starf i hans tók sam-
heiji Gorbachevs, Sovétleiðtoga,
sem hefur með þessu enn treyst
tök sin á sovéska stjómkerfinu.
Miðstjóm kommúnistaflokksins í
Kazahkstan ákvað á fundi f Alma
Ata, að Dinmukhamed Kunayev,
sem er 74 ára að aldri, skyldi .láta
af störfum sem formaður flokksins.
Við embætti hans tók Gennady
Kolbin, flokksritari í Ulyanovsk, en
hann hefur gengið hart fram í bar-
áttu Gorbachevs gegn drykkjuskap,
leti og spillingu. Frá því Gorbachev
komst til valda hefur hann rekið
mörg hundruð embættismanna,
sem komust til metorða á Brez-
hnev-tímanum, tímabili stöðnunar
og afturfarar á öllum sviðum
þjóðlífsins að hans sögn.
í frétt Tass-fréttastofunnar um
formannsskiptin sagði, að Kunayev
hefði verið settur á eftirlaun og
vom honum ekki þökkuð vel unnin
störf eins og þó er venjan.
AP/Símamynd
Bokassa lætur sér fátt
um finnast
RÉTTARHÖLD eru hafin að nýju yfir Jean-Bedel Bokassa, fyrr-
um keisara Mið-Afríkulýðveldisins. Hann er m.a. ákærður fyrir
fjöldamorð og mannát en hefur neitað öllum sakargiftum. „Ég
er enginn dýrlingur. Ég er breyskur eins og aðrir menn,“ sagði
Bokassa fyrir réttinum en kvaðst ekki „muna eftir“ að hafa
fyrirskipað morð á valdaferlinum.
London, AP.
GENGI Bandarílcjadollars lækk-
aði gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum. Gull lækkaði í verði.
í London kostaði sterlingspundið
1,4305 dollara (1,4297) þegar
gjaldeyrisviðskiptum lauk í gær.
Gengi dollarans var annars þannig
að fyrir hann fengust: 2,0155 vest-
ur-þýsk mörk (2,0220), 1,7007
svissneskir frankar (1,7058),
6,6055 franskir frankar (6,6145),
2,2795 hollensk gyllini (2,2835),
1.397,50 límr (óbreytt) 1,3785
kanadískir dollarar (1,3795) og
163,60 yen (163,68). Gull lækkaði
í verði og kostaði únsan 392,00
dollara (394,00).
HOBBr-HAÞRfSIIIIBUB
I Bráðsnjaiit hjálpartæki fyrir
heimilið og smærri fyrirtæki.
KEIl/
Með allt að
sex jöfnum
mánaðargreiðslum.
Með K.E.W. Hobby ganga öll þrif fyrir sig á mettíma og erfið verk verða
leikur einn. Þú getur þvegið bflinn, bátinn, húsið, gluggana, eða nánast
hvað sem er. Einnig getur þú sandblásið t.d. gamla málningu og ryð o.fl.
Verð kr. 25.450.-
Gengi
gjaldmiðla