Morgunblaðið - 18.12.1986, Page 43

Morgunblaðið - 18.12.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 43 Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs Alþingis og Páll Pétursson, formaður þingflokks framsóknarflokksins, ræða málin. Allt óljóst enn um staðgreiðslu skatta ALLAR líkur benda til þess að launamenn þurfi ekki að borga skatt af tekjurn næsta árs, verði staðgreiðslukerfi skatta tekið upp í ársbyrjun 1988. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um hvernig breytingin verður útfærð að sögn Geirs H. Haarde, aðstoð- armanns fjármáiaráðherra. „Við erum famir að vinna í málinu hér innanhúss, en allt er þetta frekar óákveðið enn sem komið er,“ sagði Geir. Geir sagði, að reynt yrði að tryggja það að menn misnotuðu ekki skattfrelsið á næsta ári. „Mér þykir líklegt að staða eigna og skulda þurfi að liggja fyrir í árslok 1987, og ólíklegt að menn geti komist hjá framtalsskyldu, “ sagði hann Aðspurður hvort til greina kæmi að hafa fleiri en eitt skatt- þrep í nýja kerfinu sagði Geir að ráðuneytið væri nú að athuga hvort það gæti fallist á tillögur aðila vinnumarkaðarins um eina álagsprósentu. „Þetta er um- fangsmikið og flókið mál sem við erum að skoða núna, enda skammur tími til stefnu því frum- varp þarf að liggja fyrir á fyrstu dögum þingsins eftir áramót,“ sagði hann. Friálst fiskverð ákveðið í dag? LÍKUR eru nú taldar á því, að Verðlagsráð sjávarútvegsins ákveði fijálst fiskverð á helztu nytjategundum frá og með næstu áramótum. Fulltrúar í ráðinu voru sammála um þetta á fundi í gær og reiknað er með endan- legri ákvörðun í dag. Fari svo, verður þetta í fyrsta sinn, sem almennt fiskverð verður frjálst. Menn telja enn ekki séð fyr- ir hverjar afleiðingar ftjálst fiskverð getur haft, en telja þó flest hafa þróazt í átt til frelsis á undanfömum missemm. svipaðar eða nokkm meiri en árið 1986. Ailt eftir viðmiðun gefur 8'/2-9% útsvar sömu tekjur fyrir sveitarfélagið á næsta ári og 10,2% í ár. í töflunum sem hér fylgja kem- ur þetta skýrt fram. Málefnaleg rök fyrir lækkun útsvars Niðurstaðan af framangreindri yfirferð er sem sagt að 9% útsvar árið 1987 muni skila sveitarfélaginu svipuðum eða hærri tekjum að raunvirði árið 1987 en 10,2% árið 1986. Útsvarið er einn þeirra þátta sem ákvarða ráðstöfunartekjur almenn- ings. Til þess að tryggja tekjumar í lækkandi verðbólgu er óhjákvæmi- legt að sveitarfélögin lagi sig að breyttum aðstæðum og lækki út- svarsprósentuna. Ekki virðist óeðli- legt að þau setji sér það mark að lækka útsvarsprósentuna niður fyr- ir 9%. Áætlað raungildi útsvarstekna sveitarfélaga 1985-1987 I Miðað við lánskjaravisitölu Vlsit. Vísit Raung. Útsv. Raun- Vísit. launa- % útsv. Lánsk. útsv. tekjur raunt. Ár tekna f.f.á. stofns vísit. stofns prós. af útsv. af útsv. 1984 100 1985 142 42 100 100 100,0 10,8 10,80 100,0 1986 192 35 142 125 113,6 10,2 11,59 107,3 1987 230 20 192 140 187,1 10,2 13,99 129,5 1987 230 20 192 140 137,1 8,5 11,66 107,9 II Miðað við launavísitölu Vísit. Visit. Raung. Útsv. Raun- Vísit. launa- % útsv. Lánsk. útsv. tekjur raunt. Ár tekna f.f.á. stofns vísit. stofns prós. af útsv. af útsv. 1984 100 1985 142 42 100 100 100,0 10,8 10,8 100,0 1986 192 35 142 128 110,9 10,2 11,32 104,8 1987 230 20 192 154 124,7 10,2 12,72 117,7 1987 230 20 192 154 124,7 9,1 11,35 105,1 Höfundur er foraeti Alþýðuaambanda talanda. Athugasemd frá Þjóðhagsstofn- un vegna fréttar um gjald- skrárhækkun Landsvirkjunar Vegna fréttar í Morgunblaðinu ákvörðun rafmagnsverðs og fram sem nemur 350 m. kr. Nettóvaxta- í dag, 17. desember 1986, um gjaldskrárhækkun Landsvirkjun- ar og umsögn Þjóðhagsstofnunar um hækkunarþörf fyrirtækisins vill Þjóðhagsstofnun taka fram eftirfarandi: 1. í frétt er meðal annars haft eftir forstjóra Landsvirkjunar, að í umsögn Þjóðhagsstofnunar séu at- riði, sem gangi þvert á stefnu stjómvalda, eins og hún kemur fram í frumvarpi til lánsfjárlaga 1987j hvað varðar erlendar lántökur. I þessu sambandi er rétt að benda á, að hvorki er sjálfgefið að lánsfjár- þörf Landsvirkjunar sé eingöngu sinnt með erlendum lántökum né að framkvæmdaáform hennar séu óhagganleg. Ennfremur má minna á, að í athugasemdum með fjárlaga- frumvarpi fyrir árið 1987 segir meðal annars um fiárhag ríkisfyrir- tækja: „I greinargerð frumvarpsins felst sú nýjung að gerð er grein fyrir fjárhag ríkisfyrirtækja með fyllri hætti en áður. í ríkisstjóminni hefur verið rætt um að fyrir af- greiðslu fjárlaga verði sérstaklega fjallað um fiármál þessara fyrir- tækja, fiárfestingu þeirra, rekstr- arumsvif og verðlagningu á næsta ári. Þannig er ríkisstjómin reiðu- búin að leggja sitt af mörkum til þess að verðbreytingar á árinu 1987 verði innan viðunandi marka.“ 2. Umsögn Þjóðhagsstofnunar byggist fyrst og fremst á 13. gr. laga nr. 42/1983, um Landsvirkjun, þar sem segir meðal annars: „Stjóm Landsvirkjunar setur, að fenginni tillögu Þjóðhagsstofn- unar, gjaldskrá fyrir Landsvirkj- un. 1 gjaldskrá skal raforkuverðið við það miðað að eðlilegur af- rakstur fáist af því fjármagni sem á hveijum tíma er bundið í rekstri fyrirtækisins. Einnig skal að því stefnt að fyrirtækið skili nægileg- um greiðsluafgangi til þess að það geti jafnan með eigin fármagni og hæfilegum lántökum tryggt notendum sínum næga raforku." í umsögn Þjóðhagsstofnunar, sem fylgir hér á eftir, kemur fram, að mat á hækkunarþörf Landsvirkjunar sé fyrst og fremst háð því, hversu ört eigi að byggja upp eiginfjárstöðu hennar. Landsvirkjun gefur sér þá forsendu, að langtímalán skuli end- urgreiða á 20 árum. Óumdeilt er, að þessi endurgreiðslutími er mun skemmri en endingartími orkumann- virkja. Gjaldskrárstefna af þessu tagi leiðir til verulegrar eiginflár- myndunar, en ræður jafnframt úrslitum við mat á hækkunarþörf hveiju sinni. 3. í frétt Morgunblaðsins koma einnig fram ýmsar fullyrðingar um umsögn Þjóðhagsstofnunar, sem hafðar eru eftir löggiltum endur- skoðanda Landsvirkjunar, Stefáni Svavarssyni. Þessar athugasemdir — séu þær rétt eftir Stefáni hafðar — virðast slitnar úr samhengi og eru um leið villandi. Þjóðhagsstofnun hefur óskað eftir því, að Stefán geri opinberlega grein fyrir sjónarmiðum sínum. Rétt er að taka fram, að á einum stað í umsögn Þjóðhagsstofnunar stendur fyrir pennaglöp orðið greiðsluafkoma í stað rekstraraf- komu. Talsmenn Landsvirkjunar virðast byggja málflutning sinn að verulegu leyti á þessari misritun, sem leiðréttist hér með. Þessi misrit- un breytir alls ekki ályktunum eða niðurstöðum, eins og glögglega má sjá af samhenginu: Landsvirkjun, b.t. Halldórs Jónatanssonar, forstjóra Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík. Með bréfi, dags. 30. október 1986, óskið þér eftir umsögn Þjóðhags- stofnunar um þörf Landsvirkjunar fyrir hækkun á gjaldskrá til almenn- ingsrafveitna með hliðsjón af þeim sjónarmiðum, er virða ber við koma i 13. gr. laga nr. 42/1983 um Landsvirkjun. Jafnframt kemur þar fram, að stjóm Landsvirkjunar tel- ur, að gjaldskrá þurfí að hækka um 16,4% frá 1. janúar næstkomandi til þess að ná greiðslujöfnuði á næsta ári. Þjóðhagsstofnun hefur kynnt sér rekstraráætlun Landsvirkjunar fyrir árið 1987 og helstu forsendur henn- ar, meðal annars með hliðsjón af ársreikningi fyrir árið 1985 og áætl- uðum rekstrar- og efnahagsreikn- ingi fyrir árið 1986. Hér á eftir er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum þessarar athugunar. 1. í rekstraráætlun Landsvirkj- unar fyrir næsta ár er reiknað með því, að innlent verðlag hækki um 5% frá upphafi til loka ársins, en um 12% að meðaltali milli áranna 1986 og 1987. Þetta er í samræmi við þjóðhagsáætlun ríkisstjómarinn- ar, síðarí talan þó í efri mörkunum. Hins vegar er rétt að vekja athygli á því, að í áætlun Landsvirkjunar er gert ráð fyrir 50 milljónum króna til að mæta ófyrirséðum olíukostn- aði, ef bilun verður á raforkukerfí hennar. Þessi liður veldur því, að rekstrar- og viðhaldskostnaður Landsvirkjunar hækkar mjög mikið milli 1986 og 1987, eða um 20%, en að honum frátöldum nemur hækkunin 12%. Þetta er vitaskuld óviss þáttur og verður að telja eðli- legra, að hann komi ekki fram í hærra raforkuverði fyrr en slíkur kostnaður fellur til. Að teknu tilliti til þessa má segja, að gjaldskrá þyrfti aðeins að hækka óverulega til þess að ná rekstraijöfnuði, eða innan við 1%. 2. í áætlun Landsvirkjunar um greiðslujöfnuð á árinu 1987 er gert ráð fyrir þvi, að reksturinn standi undir endurgreiðslu á 5% af skuldum fyrirtækisins. í því felst, að Lands- virkjun hyggst greiða langtímalán sín á 20 árum, sem er mun skemmri tími en líklegur endingartími þeirra eigna, sem fiármagnaðar hafa verið með þessum lánum. Gjaldskrár- stefna, sem byggir á þessari for- sendu, bætir því eiginfiárstöðu fyrirtækisins verulega á komandi árum. Til marks um áhrif þess á hækkunarþörf fyrirtækisins má nefna, að unnt er að ná greiðslujöfn- uði á árinu 1987, án hækkunar á gjaldskrá, með því að fresta nálægt 300 milljóna króna afborgunum af lánum frá þvi sem gert er ráð fyrir í áætlun Landsvirkjunar. Þrátt fyrir þetta stæði reksturinn undir endur- greiðslu á tæplega 4% af skuldum fyrirtækisins, sem þýddi að endur- greiðslutími langtímalána yrði 26 ár. Þjóðhagsstofnun telur rétt að vekja athygli á þessu atriði, sem snertir fyrst og fremst greiðslustöðu fyrirtækisins á næsta ári, þar sem þetta hlýtur að koma til álita, þegar hækkunarþörfín er metin hveiju sinni. 3. Áætlun Landsvirkjunar fyrir árið 1987 gerir ráð fyrir 67,7 millj- óna króna rekstrarhalla, miðað við óbreytta gjaldskrá, eða sem svarar til 2,1% af áætluðum rekstrartekj- um. f hliðstæðri umsögn Þjóðhags- stofnunar frá því í fyrra er meðal annars vakin athygli á tveimur álita- málum, sem tengjast gjaldfærslu afskrifta og vaxta, en þessir tveir rekstrarliðir nema nálægt 80% af heildargjöldum í rekstraráætlun Landsvirkjunar fyrir árið 1987. Þar sem gjaldfærsla þessara þátta skipt- ir sköpum við mat á rekstrar- greiðsluafkomu fyrirtækisins — og þar af leiðandi við mat á gjaldskrá — er rétt að ítreka fyrri ábendingar. í rekstraráætlunum sínum leitast Landsvirkjun við að gjaldfæra raun- vexti með því að færa fyrst til gjalda alla nafnvexti af lánum, sem tengj- ast rekstri. Sú fjárhæð er áætluð 1.618 m. kr. á næsta ári, en það felur í sér tæplega 8% vexti af um- sömdum lánum í árslok 1986. Á móti þessum vöxtum stendur tekju- færsla vegna verðbreytinga, þótt hún sé ekki færð í rekstraryfírlit, gjöld eru því 1.268 m. kr. I reynd felur þessi aðferð í sér, að gjald- færðir eru 6% raunvextir af lánum, auk afskrifta að fjárhæð 1.230 m. kr. Alls er gjaldfærður fiármagns- kostnaður því 2.498 m. kr. En fjármagnskostnað má einnig færa með öðrum hætti eins og Þjóð- hagsstofnun hefur raunar gert um nokkurt skeið í rekstraráætlunum sjávarútvegsfyrirtækja með því að reikna svonefnda árgreiðslu vaxta og afborgana. Árgreiðslan er þannig reiknuð, að fyrst er fundið verð- mæti allra óafskrifaðra eigna í rekstri. Á grundvelli gefinna for- sendna um endingartíma þessara eigna er árgreiðslan reiknuð sem sú fiárhæð, sem reksturinn þyrfti að skila árlega til þess að standa undir endumýjun þeirra miðað við tiltekna ávöxtunarkröfu fjármagns. Sé þess- ari aðferð beitt, kemur í ljós, að gjaldfærðar afskriftir og vextir sam- kvæmt rekstraráætlun Landsvirkj- unar standa að óbreyttri gjaldskrá undir endumýjun eignanna miðað við 4% ávöxtun fjármagns og 40 ára endingartima. Enda þótt það sé álitamál, hvað telst eðlileg ávöxtun fjármagns, þegar til lengri tíma er litið, getur þessi ávöxtun varla talist óviðunandi. Af þessu tilefni er fróðlegt að skoða eignamyndun og afkomu fyr- irtækisins yfír lengra tímabil. Frá árinu 1971 hefur eigið fé Landsvirkj- unar samkvæmt efnahagsreikningi vaxið úr 900 milljónum króna á verð- lagi ársins 1985 upp í 11 milljarða 1985. Á sama tímabili nemur upp- safnað bókfært tap fyrirtækisins samkvæmt rekstrarreikningi 157 milljónum króna og framlag eigenda 1.022 milljónum króna, hvort tveggja á verðlagi ársins 1985. Þannig hefiir eigið fé fyrirtækisins aukist á þessu tímabili um nálægt 10 milljarða króna umfram hagnað og framlag eigenda. Skýringar á þessari aukningu eru margþættar. í fyrsta lagi þarf ekki að vera beint samband milli endurmetinna eigna og skulda. Endurmat eigna umfram uppfærðar skuldir leiðir beinlfnis til aukins eigin fiár, án þess að það hafí nokkru sinni komið fram f rekstrarreikningi sem hagnaður. í öðru lagi má nefna, að hátt metinn rekstrarkostnaður getur einnig skýrt meiri eignaaukningu að raungildi en nemur uppsöfnuðum hagnaði að við- bættum framlögum eigenda. Hér er sérstaklega haft í huga hátt mat á afskriftum og vöxtum eins og nefnt var hér að framan, þar sem hátt mat afskrifta felst í styttri afskrift- atíma en nemur 'raunverulegum endingartíma fiármuna, en hátt mat vaxta felst í því að gjaldfæra nafn- vexti að fullu. Þessa hefur gætt í rekstraráætlunum Landsvirkjunar en hefur þó nú síðustu árin að ein- hveiju leyti verið leiðrétt í ársreikn- ingum með tekjufærslu vegna verðbreytinga. Líklega má rekja aukið fé umfram hagnað og framlög eigenda að mestu til þessa háa mats, sérstaklega þegar þess er gætt, að á umræddu tímabili voru raunvextir af erlendum lánum lágir og hverf-. andi á fyrri hluta þess. 4. Niðurstaða Þjóðhagsstofnunar er sú, að áætluð rekstrarafkoma Landsvirkjunar á næsta ári gefi að svo stöddu aðeins tilefni til óveru- legrar hækkunar á gjaldskrá til almenningsrafveitna. Jafnframt virðist ljóst af framansögðu, að mat á hækkunarþörf nú tengist fyrst og fremst þeirri spumingu, hversu hratt eigi að byggja upp eiginfjárstöðu fyrirtækisins, svo það geti staðið undir frekari uppbyggingu orku- veitna. Loks má nefna, að eðlilegt virðist að bíða með ákvörðun um hugsanlegar breytingar á gjaldskrá fram á næsta ár, þegar launa-, verð- lags- og gengisþróun hefur skýrst. Virðingarfyllst, Þjóðhagsstofnun, Bolli Þór Bollason, aðstoðarforstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.