Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
45
Áætlun Lufthansa
enn ekki staðfest
ÞÝSKA flugfélagið Lufthansa
hefur ekki sent íslenskum flug-
málayfirvöldum staðfestingu á
fyrirhuguðu áætlunarflugi þess
frá Milnchen um Diisseldorf til
Keflavíkur næsta sumar. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins gerir bráðabirgðaáætlun
Lufthansa ráð fyrir því að flogið
verði á þessari leið einu sinni í
viku, á sunnudögum, frá því í
maí þar til í lok ágúst. Til flugs-
ins yrðu notaðar þotur af gerð-
inni Boeing 737. Heildar
sætarframboð á leiðinni yrði
samkvæmt þessu aðeins um 1600
sæti. Flugfélagið þarf að til-
kynna um áætlunarflugið með
mánaðar fyrirvara.
Með áætlunarfluginu nýtir Luft-
hansa gagnkvæman loftferðar-
samning ríkjanna sem gildir um
flug íslensku flugfélaganna til
Þýskalands. ísland hefur gert slíka
samninga við ellefu lönd, Banda-
ríkin, Norðurlöndin öll, Bretland,
Luxemborg, Þýskaland, Holland,
Spán ög Thailand.
í Bretlandi hefiir flugféiagið
British Midland falast eftir ónotuð-
um rétti British Airways til að
fljúga hingað til lands en að sögri
Birgis Guðjónssonar, skrifstofii-
stjóra í samgöngumálaráðuneytinu,
er umsókninn enn á leið í gegnum
breska ríkiskerfíð. Aðspurður um
hvemig samningur um áaétlunar-
flug til Thailands sé til kominn sagði
Birgir hann eiga rót sína að rekja
til hugdettu forráðamanna Loftleiða
á sjötta áratug aldarinnar.
Náttúrufræði-
kynning í anddyri
Háskólabíós
KYNNING á nýútkominni bók
Ara Trausta Guðmundssonar,
Islandseldar, verður á náttúru-
fræðikynningu i Háskólabíói í
dag, fimmtudag.
Sett hefur verið upp sýning á
bergtegundum og útskýring á því
hvemig bókin varð unnin stig af
stigi.
Ari Trausti kynnir bókina og
sýnir litskyggnur kl. 16.30 og kl.
20.30 í dag.
80 krónur
fyrir þorsk
úr gámum
GOTT verð hefur verið á fiskmnrk-
uðunum { Bretlandi og Þýzkalandi
undanfama daga. Verð á þorski
úr gámum fór á þriðjudag upp i
79,41 krónu að meðaltali á kíló og
fiskiskipin fengu einnig gott verð
fyrir afla sinn.
Á þriðjudag seldi Hegranes SK
183,7 lestir, mest karfa i Cuxhaven.
Heildarverð var 11.604.200 krónur,
meðalverð 63,17. Höfrungur 11 GK
seldi 55,2 lestir, mest ufsa í Bremer-
haven. Heildarverð var 3.251.100
krónur, meðalverð 58,95. Loks seldi
Albert Ólafsson KE 59,3 lestir, mest
þorsk í Grimsby. Heildarverð var
4.060.500 krónur, meðalverð 68,51.
Á þriðjudaginn voru seldar í Hull
og Grimsby 311,6 lestir af fiski úr
gámum héðan. Heildarverð var 23.
450.000 krónur, meðalverð 75,26.
147,5 lestir vora af þorski að meðal-
tali á 79,41 krónur hvert kíló. Af kola
vora 85,3 lestir á 64,16 og 51,3 lestir
af ýsu á 81,58 krónur á kíló.
Isafjörður:
Hólmadrangnr
á flot fyrir
eigin vélarafli
taafirði.
FRYSTITOGARINN Hólma-
drangur frá Hólmavik komst á
flot fyrir eigin vélarafli á morg-
unflóðinu i gærmorgun. Tilraun-
ir skuttogarans _ Júlíusar
Geirmundssonar frá ísafirði við
að draga togarann á flot í fyrri-
nótt mistókust, enda orðið mjög
lágsjávað. Skipveijar notuðu
nóttina til að dæla olíu og vatni
úr stefnistönkum í skuttanka og
rétt fyrir klukkan 8 rann skipið
af sandrifinu og hélt til hafnar
á Isafirði.
Kafari skoðaði botn skipsins í
gær og kom í ljós að engar skemmd-
ir höfðu orðið. í fyrrakvöld, þegar
óhappið varð, var Hólmadrangur á
leið til ísafjarðar til að taka olíu,
en aflinn er fullunninn um borð
fyrir Ameríkumarkað.
Að sögn skipstjórans, Gests Sig-
urðssonar, hefur hann marg oft
siglt þama inn og gjörþekkir sigl-
ingarleiðina. En nú var stormur á
og mikið misvindi. Lendi harður
vindhvirfíll á bakborðssíðu skipsins
í miðri rennunni og sneri því á
stjómborða og þótt þegar væri sett
á fulla verð afturábak varð ekki við
neitt ráðið vegna þrengslanna
þama í Sundunum og rann stefni
skipsins upp á sandrifíð, Eyrarmeg-
in. Torgarinn fer til veiða strax og
veður lægir.
Úlfar.
Höfundar „Hjúlpum
þeim“ vilja lagið út
úr áramótaskaupinu
BRÉF hefur borist fram-
kvæmdastjórn sjónvarpsins frá
Eiríki Tómassyni, lögfræðingi,
þar sem höfundur lagsins „Hjálp-
um þeim“, Axel Einarsson, og
höfundur texta, Jóhann G. Jó-
hannsson, óska eftir þvi að lagið
verði fellt út úr áramótaskaupi
sjónvarpsins þar sem texta þess
hefur verið breytt og skerði þar
með „óyggjandi hætti höfundar-
heiður þeirra beggja", eins og
segir í bréfinu. Að öðrum kosti
verði farið fram á lögbann á
þessum hluta skaupsins.
„Það er kannski komið að þvi
Grindavík:
Samningarnir
samþykktir
Grindavik.
Á FUNDI hjá Verkalýðsfélagi
Griundavíkur síðastliðið mánudags-
kvöld vora nýgerðir kjarasamningar
samþykktir. Að sögn formanns félags-
ins, Benónýs Benediktssonar, mættu
18 manns á fundinn af um 230 félags-
mönnum. 11 samþykktu, 2 vora á
móti en 5 sátu hjá. „Fólk var ekkert
yfir sig ánægt með þessa samninga,"
sagði Benóný, „premían hjá fókinu i
rækjunni lækkar til dæmis um 40%
frá siðustu samningum."
. Kr. Ben.
að dómstólar fjalli um áramóta-
skaupið og ég vona svo sannarlega
að það verði einhver til að hjálpa
þeim í sambandi við höfundarheið-
ur,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson,
dagskrárstjóri innlendrar dagskrár-
gerðar, í samtali við Morgunblaðið.
Hrafn sagði að það yrði ákaflega
erfitt í framtíðinni að búa til svona
skemmtiþætti ef beita ætti lögbanni
sem einskonar ritskoðun. Menn
yrðu einfaldlega að hafa „húmor"
fyrir sjálfum sér þegar verið væri
að sprella með hlutina. Hrafn sagð-
ist ekki búast við að lagið yrði fellt
út úr skaupinu, en hann bætti því
við að vissulega yrði reynt að hjálpa
þeim svo að höfíindarheiður þeirra
særðist ekki umfram almennt vel-
sæmi þetta kvöld.
Eiríkur Tómasson lögfræðingur
sagðist búast við að mál þetta leyst-
ist án þess að til lögbanns þyrfti
að koma. „Verið er að ræða við
forráðamenn sjónvarpsins um mál-
ið. Höfundar telja að flutningur
„Hjálpum þeim“ í áramótaskaupinu
gangi þvert á markmið lags þess
og texta og að verið sé að misnota
verkið með því að gera grín að
máiefnum Hjálparstofnunar kirkj-
unnar. Það hefði hinsvegar ekkert
verið sagt við því ef textinn hefði
ekki verið úr lagi færður og tel ég
sjálfsagða kurteisi af Ríkisútvarp-
inu að leita til höfunda ef nota á
verk þeirra í tilgangi sem þessum,"
sagði Eiríkur.
ASEA Cylinda
uppþvottavélar ★ sænskar og sérstakar
Taka 14 manna borðbúnað og fá hæstu
neytendaeinkunnir fyrir þvott, þurrkun, hljóð-
leika og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi
einkenna ASEA. Þú færð ekki betri vélar!
/FQniX
HATUNI 6A SlMI (91)24420
„BIONDAU
WILKEIMS
(y9)SILFURBÚÐ1N
XXJ LAUGAVEG 55 SÍMI 11066
SÉRVERSLUN MEÐ BORÐBÚNAÐ129 AR