Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 61 Hvað er „línu- leg bestun“? Utbreidd aðferð sem leysir mörg vandamál SJÁLFSAGT hefur einhveijum lesendum komið fyrirsögn í blaðinu siðastliöinn fimmtudag spánskt fyrir sjónir en þar var boðuð ráð- stefna í „línulegri bestun". Frétt þessi greindi frá því að Aðgerðar- rannsóknarfélag íslands myndi halda ráðstefnu um notkun „línulegrar bestunar“, yrði þar boðið upp á hraðnámskeið í títtnefndri „bestun“ og fjallað um hvernig nýta megi hana í íslensku atvinnu- lífi. „Þetta hugtak er notað í tengslum við svokallaða aðgerðar- gp-einingpi og á við aðferð til að finna bestu lausn á tilteknu vandamáli," sagði Snjólfur Ólafsson, formaður félagsins, í samtali við blaðamann. Snjólfur sagði að þegar leyst væru vandamál með aðferðum stærðfræðinnar eða hagfræðinnar litu vísindamenn svo á að leysa mætti sum vandamál á ótal vegu, en ein lausnanna reyndist þó best miðað við gefnar forsendur. „Þá tölum við um það að við séum að besta vandamálið. Betra orð yfír þetta hugtak hefur ekki fundist, en það er þýðing á enska hugtakinu „optimization," sagði Snjólfur. Til glöggvunar nefndi Snjólfur dæmi um vandamál sem þægilegt væri að „besta": Við gerð fóður- blöndu fyrir hænsnarækt þarf að taka tillit til þess hvemig uppfylla megi kröfur um næringargildi hennar með minnstum tilkostnaði. Ur mörgum hráefnum er að velja. Hvert þeirra inniheldur ákveðin næringarefni og er selt við ákveðnu verði. Til þess að leysa vandamálið væri hægt að prófa allar hugsanleg- ar blöndur úr þessum efnum og fínna þannig hina einu réttu, en á þeirri aðferð er sá galli að blöndum- ar em óteljandi og verkið myndi sækjast seint. Vísindamenn hafa fundið leið til að komast hjá til- raunastarfseminni með reikniregl- um sem kallaðar em „bestunarað- ferðir". Þannig má með einföldum reikningi fínna einu réttu blönduna. Ástæðu þess að talað er um „línu- lega bestun" sagði Snjólfur þá að „línulegt" samband væri á milli stærða í fóðurblöndunni. Tvö kílógrömm af loðnumjöli kosta til dæmis tvisvar sinnum meira en eitt kg af loðnumjöli. Hið sama má segja um aðrar stærðir sem tekið er tillit til. Á ráðstefnunni fengu þátttak- endur að spreyta sig á léttum æfíngum í „línulegri bestun" undir handleiðslu Þorkels Helgasonar stærðfræðings. Þá var kynntur sá hugbúnaður sem til er á markaðn- um fyrir tölvur til að leysa vanda- mál með „línulegri bestun". Einnig var fjallað um hagnýtingu „línu- legrar bestunar" í atvinnulífínu. Ásgeir Harðarson kynnti dæmi um notkun hennar hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur, og Pétur Maack kynnti tölvukerfi sem notað er í ftystihúsum. Með aðstoð „línulegr- ar bestunar" geta verkstjórar í frystihúsum nú ákvarðað í hvaða pakkningar fiskur er unninn á hveijum degi þannig að vinnuaflið nýtist best og mestur arður hljótist af hráefninu. Mót hjá vottum Jehóva TVEGGJA daga mót votta Je- hóva á íslandi hefst í Reykjavík laugardaginn 20. desember og fer það fram í húsakynnum Fjöl- brautarskólans i Breiðholti við Austurberg. Mót þetta er liður í alþjóðlegri biblíufraeðslu votta Jehóva og er á dagskrá fjöldi erinda um hagnýta notkun biblíuþekkingar, auk um- ræðna og viðtala. Aðalræðu mótsins flytur Jóhann Sigurðsson á sunnu- dag kl. 14.00 og nefnist hún Verk af hendi Guðs — hver eru þau? Mótið er opið öllu áhugafólki. (Fréttatilkynning) Kodak myndavélar á einstaklega hagstœðu (fyrir 35 mm íilmur) irá kr. 2.950. 5áraábyzgö HflNS PETERSEN HF UMBOÐSMENN UM LAND ALLT! Gott grænmeti og ódýrt. Hentugt að eiga í frystinum og taka úr pokanum það sem þarf, geyma svo afganginn. Engin rotvarnarefni! Ekkert salt! Ekkert óþarfa vatn! Aðeins hreint, hollt og girni legt grænmeti fyrir alla fjölskylduna. SOLHF Þverholti 17, Reykjavík Úrvalsvörur á lágmarksverði <50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.