Morgunblaðið - 18.12.1986, Page 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
Þekking Reynsia Þjónusta
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Sigurður Olafs-
son - Minning
Fæddur 26. janúar 1920
Dáinn 12. desember 1986
Þegar ég sest niður til að skrifa
þessi kveðjuorð, þá verður mér orð-
fátt — minningin um afa minn Sigurð
er meiri en hægt er að skrifa á blað.
En mig langar þó til að kveðja hann
hinstu kveðtju með nokkrum orðum.
Mín minning af afa er af hressum,
kátum og hlæjandi manni. Síðast kom
hann okkur til að veltast um af hlátri
I afmælinu hennar ömmu, þann 2.
desember sl. Það er sárt til þess að
hugsa að nú sé hann horfinn, að sam-
vgrustundimar verði ekki fleiri í bili.
Helsta áhugamál afa og stolt hans
var sumarbústaðurinn þeirra, Þverár-
bakki í Borgarfirði. Þar eyddi hann
öllum frístundum á sumrin og hafði
fulla ástæðu til að vera stoltur af,
því þar hefur hann'ræktað landið upp
svo ótrúlegt er á svo skömmum tíma.
Þangað fór ég oft með afa og ömmu
þegar ég var yngri og á góðar minn-
ingar frá þeim tíma. Einnig hafði
hann mikla unun af fallegum munum
og bera heimili þeirra og sumarbú-
staður þess glögg merki.
Man ég vel eftir öllum jólunum sem
við eyddum hjá þeim, þegar afi sat
og hjálpaði mér að fínna nöfn á
dúkkulísumar mínar, þegar hann
leiddi mig um bæinn til að versla og
skoða í búðarglugga og svona mætti
lengi telja.
Eg vil þakka fyrir þann tíma sem
ég átti með afa og bið Guð að styrkja
ömmu mína, Þórunni og aðra ástvini
í söknuði sínum.
Brynja
Það er erfitt að trúa því að hann
afi á Lokó, eins og við kölluðum hann,
sé dáinn. Hann sem var alltaf svo
hress og gantaðist oft við okkur þeg-
ar við komum í heimsókn til hans og
ömmu niðrá Lokastíg. Við viljum
minnast hans hér með nokkrum orð-
um.
Afi hafði mörg áhugamál og má
þar á meðal nefna áhuga hans á sum-
arbústaðnum sínum í Borgarfírði. Þar
eyddi hann flestum sínum frístundum
í ræktun og umönnun gróðursins, og
hann hafði oft gaman af því að labba
með okkur um garðinn og sýna okk-
ur hvað plöntumar hefðu vaxið síðan
í fyrra. Og það var meira í garðinum
en fallegar plöntur, því innan um þær
voru hin ýmsu listaverk, styttur og
steinar. Við gátum líka farið á hest-
bak hjá afa, því að hann var ætíð
með tvo eða þrjá hesta í hesthúsinu
sínu, sem er snyrtilegasta hesthús
sem við höfum komið inn í. En afí
hafði alltaf nóg fyrir stafni þó ekki
væri hann í sumarbústaðnum. Hann
safnaði alls konar gömlum munum
og hafði mikinn áhuga á öllu því sem
gamalt var og eyddi hann oft miklum
tíma í það áhugamál.
Núna stendur jólaundirbúningur
sem hæst hjá fólki og ekki lét afi það
fram hjá sér fara. Hann var alltaf
tímanlega með allan jólaundirbúning,
jólagjafimar voru tilbúnar upp á skáp
og hans síðasta verk var að skrifa á
jólakortin, en það gerði hann kvöldið
áður en hann lést. Minningin um afa
lifir og kveðjum við hann með sökn-
uði.
Við viljum votta ömmu okkar og
öðrum aðstandendum okkar innileg-
ustu samúðarkveðju og biðjum Guð
að styrkja þau á sorgarstund.
Eygló, Þóra og Siggi Óli.
Sigurður Ólafsson andaðist á heim-
ili sínu 12. desember sl. Við hjónin
komum í heimsókn til þeirra hjóna
Sigurðar og Sigríðar ekki alls fyrir
löngu, og þá var Sigurður kátur og
hress eins og hann var alltaf. En þó
sá ég það þegar að var gáð, að hann
gekk ekki heill til skógar þó hann
léti ekki á því bera. Og það vissum
við sem til þekktum að síðastliðið
eitt og hálft ár hefur Sigurður verið
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Siml 695550
Raftækja- og heimilisdeild
Kenwood „Blenders".
Handhægt og notadrjúgt tæki
til að blanda drykki, súpur og
deig, mylja súkkulaði, möndlur
og hnetur, útbúa rasp og siðast
en ekki slst til að útbúa eigin
ungbarnamat.
Verð frá kr. 2.420.
Viðgerða- og
varahlutaþjónus ta.
Kenwood Mini.
Kraftmikil en fyrirferðalltil,
borð- og handhrærivél, sem
léttir eldhússtörfin ótrúlega.
Borðhrærivél verð kr. 2.630.
Handhrærivél verð kr. 1.985.
^KENWOOD
ÞAÐ VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGÐUM MEÐ KENWOOD HEIMILISTÆKIN
Kenwood Chef-inn
— síungi og ósigrandi, er nú
kominn i nýjan búning.
Hjálparkokkurinn ómissandi
hefur aldrei verið betri né
glæsilegri.
Verð kr. 11.400.
með skál, þeytara, hnoðara,
hrærara, loki og mæliskeiö.
Fáanlegir fylgihlutir:
Hakkavél, sitrus safapressa,
grænmetis- og ávaxtakvörn,
ávaxtapressa, grænmetis- og
ávaxtarifjárn, pastadeigs-
formari, kartöfluafhýðari, þrýsti-
sigti, kaffikvörn, pylsufyllir,
dósahnífur, o.fl.
Kenwood Gourmet
fyrir sælkerana.
Hún sker, raspar, rffur, blandar,
hnoðar, hrærir og þeytir.
Gourmet hefur frábært nota-
gildi og er skemmtileg I
notkun, hvort sem þú ert að
framreiða smárétti eða flnar
stórmáltíöir.
Verð frá kr. 5.300.