Morgunblaðið - 18.12.1986, Qupperneq 70
88ei aaaMaaaa .81 HUOAauTMMia .aiaAjauuonoM
MORGUNBLÁÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
ÍY
70----
r------
Minning:
Stefán H. Guðmundsson
frá Fáskrúðsfirði
Fæddur 29. nóvember 1916
Dáinn 10. desember 1986
Sigð dauðans hefur lostið góðan
vin svo óvænt og skyndilega.
Hugur minn hvarflar til baka um
rúm 30 ár austur til ættarslóða
Stefáns á Fáskrúðsfirði, þar sem
hann þá bjó með fjölskyldu sinni.
Þar eystra_ bar fundum okkar
fyrst saman. Á heimili hans átti ég
margar ánægjulegar stundir, þar
sem alúð og höfðingslund húsráð-
enda beggja réði ríkjum. Þar
' myndaðist sú vinátta sem haldist
hefur æ síðan.
Stefán var einlægt prúðmenni,
sannur drengskaparmaður, er hafði
að vegamesti í lífi sínu heita og
staðfasta trúarsannfæringu, sem
veitti honum lífsfyllingu, en hann
naut einnig hamingju f sínu einka-
lífi og var gæfumaður, sem gekk
þannig um meðal samferðafólks,
að hann ávann sér vináttu og traust
allra er honum fengu að kynnast.
Hann var hins vegar dulur maður
og flíkaði lítt sínum tilfínningum,
en hann var vinur vina sinna, hlýtt
og traust var handtakið, sem lýsti
skaphöfn hans vel. Hann var maður
ærinnar alvöru, en átti létt með að
slá á gleðinnar strengi, ekki sízt
þegar hann gaf sig söngnum á vald,
en hann var hinn ágætasti söng-
maður, hafði hreimfagra og sterka
rödd, sem hann kunni að beita af
æmu listfengi.
Stefán var starfsins maður alla
tíð, ungur fór hann að stunda sjó-
mennsku, fór í verið vetur eftir
vetur svo sem títt var um Aust-
firðinga á þeim árum, en hér syðra
annaðist hann lengst af húsvörzlu
af stakri samvizkusemi og trú-
mennsku þess, sem f engu vildi
vamm sitt vita. En hann var líka
maður heimilisins, þar undi hann
bezt í faðmi fjölskyldu sinnar, sann-
ur veitandi umhyggju og alúðar.
Stefán var greindur maður og
gott við hann að ræða, hann fylgd-
ist með öllum þjóðmálum og var
einlægur sósíalisti að lífsskoðun alla
tíð. Lítilmagninn átti hug hans,
samúð hans var með hinum kúguðu
og undirokuðu, hann þekkti krepp-
una í austfirzku sjávarþorpi, þar
sem fátæktin blasti hvarvetna við.
í þeim eldi verkalýðsbaráttu þeirra
ára skfrðist hugsjón hans og mót-
aði lífsviðhorf hans og allt fór þetta
ágæta vel saman við ákveðna trúar-
skoðun, sem honum var heilög.
Stefán var ævinlega sjálfum sér
samkvæmur, heill og óskiptur í
hveiju því sem hugur eða hönd
vann að.
Stefán var fæddur 29. nóv. 1916
á Fáskrúðsfirði og var því nýorðinn
sjötíu ára, er hann lézt. I góðra
vina hópi hélt fjölskyldan afmæli
hans hátíðlegt og engan óraði þá
fyrir slíkum umskiptum. Feginn
hefði ég viljað vera þar til að sam-
fagna honum með árin liðnu.
Foreldrar Stefáns voru hjónin
ií
\
I
Litli ljosalfurinn slær
birtuá næturlífið. Elskan
Litli ljosalfurinn kemur
víðar að góðum notum.
Hvert sem leið liggur,
hafðu þennan upplýsta
félaga með í för. Litli ljós-
álfurinn getur líka notast
við rafhlöður og þannig
varpað Ijósi sínu — hvar
sem er.
við hliðina svífur ótruflúð
á vit ljúfra drauma. Á með-
an festir þú litla ljósálfinn
á bókina góðu. Þín bíður
langur næturlestur í frá-
bærum félagsskap.
HILDU, Borgartúni 22. Einnig getur pu
9 og fengið hann sendan um hæl í póstkröfu
liILDA
Borgartúni 22, Reykjavik
Björg Pétursdóttir og Guðmundur
Erlendsson er bjuggu á Fáskrúðs-
firði. Árið 1937 gengu þau í
hjónaband Aldfs Kristjánsdóttir og
Stefán og þar fólst lífsgæfa hans
mest að eiga þessa glaðbeittu og
geislandi hlýju konu að lífsföru-
naut. Dætur þeirra urðu tvær, Elsa
og Fjóla, báðar búsettar hér í borg.
Þær voru nemendur mínir vetrar-
langt á Fáskrúðsfírði og urðu mér
einkar kærar. Bamabömin em orð-
in 9 og bamabamabömin 6. Þar
er stór hópur sem sárlega saknar
í dag.
Farsælum lífsferli er lokið og
komið að kveðjustund.
Veitula vináttu og kær kjmni um
langan veg hlýt ég að þakka heilum
huga. Órofatryggð við sameiginleg-
an málstað má ég til með að þakka
sérstaklega. Um leið og ég sendi
Aldísi, Eisu og Fjólu og öðmm ást-
vinum einlægar samúðarkveðjur
veit ég að minning um sannan
dreng mun milda tregann og varpa
birtu fram á veginn í gegnum myrk-
urmóðu þessara desemberdaga. Sú
mæta minning um vammlausan hal
og góðan vin er blessuð í dag.
Megi Stefáni verða vistin góð á
þeim ódáinsakri eilífðarinnar, sem
hann trúði á af svo mikilli einlægni
og vissu.
Helgi Seljan
Neytendasamtökin;
Mótmæla
málflutningi
forsætis-
ráðherra
um fram-
leiðslu
stjórnun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Neytendasam-
tökunum:
„Neytendasamtökin mótmæla
málflutningi forsætisráðherra, um
framleiðslustjómun í alifuglafram-
leiðslu, sem hafður er eftir honum
í frétt í Morgunblaðinu, þann 12.
desember sl.
Ráðherrann gefur Stéttarsam-
bandi bænda undir fótinn með það,
að hægt sé með endurgreiðslu fóð-
urgjalds að ná fram framleiðslu-
stjómun fuglaafurða. Þetta gerir
hann þrátt fyrir loforð ríkisstjómar-
innar í tengslum við kjarasamning-
ana, að framleiðslustjómun verði
ekki komið á í þessari grein.
Neytendasamtökin vekja athygli
á því að beiting endurgreiðslu
kjamfóðurgjalds til þess að stjóma
framleiðslunni em svik við forsend-
ur kjarasamningana og í raun
furðuleg tilraun til útúrsnúnings,
enda hreinræktuð opinber fram-
leiðslustjómun í reynd.
Neytendasamtökin munu leita
eftir samvinnu við aðila vinnumark-
aðarins til þess áð þvinga stjómvöld
til að standa við loforð sín, ef þeim
dettur í alvöm í hug að bijóta þau.“