Morgunblaðið - 08.03.1987, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987
t
Konan mín,
RAGNHILDUR BJÖRG METÚSALEMSDÓTTIR,
Þingholtsstræti 21,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. mars kl. 15.00.
Bjarni Konráðsson
og fjölskylda.
t
Faðir minn,
JÓHANN KR. ÞORSTEINSSON,
Eggjavegi 3,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. mars kl.
13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Þorstelnn Jóhannsson.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN K. SIGURÐSSON,
Langholtsvegi 31,
sem lést 1. mars 1987 veröur jarðsunginn frá Áskirkju mánudag-
inn 9. mars 1987 kl. 13.30.
Guðmundína Kristjánsdóttir,
Sigurður Þorsteinsson, Þórdfs Brynjólfsdóttir,
Kristján Þorsteinsson, Hrefna Jónsdóttir,
Ragnar Þorsteinsson, Steinvör Bjarnadóttir,
Hallgrfmur Þorsteinsson, Jónfna Friðfinnsdóttir,
börn og barnabörn.
Útför eiginkonu minn.ar, t móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÁSLAUGAR ÓLAFSDÓTTUR, Álfaskeiði 82, Hafnarfirði,
fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 10. mars kl. 15.00.
Árni Bjarnason, Árni Össur Árnason,
Rut Árnadóttir, Guðmundur Jónsson,
Ása Árnadóttir, Gylfi Kjartansson,
Guðný Árnadóttir, Guðleifur Guðmundsson,
Haraldur Árnason, Valgerður Bjarnadóttir og barnabörn.
t
Eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
HULDA BÖÐVARSDÓTTIR,
Sólheimum 23,
er lést 1. mars sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudag-
inn 9. mars kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameins-
félagiö.
Siggeir Blöndal Guðmundsson,
Sigrún Þorláksdóttir,
Garðar Siggeirsson, Erla Ólafsdóttir,
Sigrún Siggeirsdóttir, Björgvin Björgvinsson,
Ómar Bl. Siggeirsson, Sigurborg Sigurjónsdóttir,
Kristfn Siggeirsdóttir, Ólafur Hafsteinsson,
Snorri Bl. Siggeirsson, Guðbjörg Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þorsteinn Kr. Sig-
urðsson - Minning
Fæddur 2. ágúst 1904
Dáinn 1. marz 1987
Mig langar með nokkrum fátæk-
legum orðum að minnast afa
konunnar minnar og vinar míns,
Þorsteins Kr. Sigurðssonar. Þegar
ég hugsa til baka til þeirra
ánægjuríku stunda, sem við áttum
saman koma upp í huga minn ótal
myndir. Það er einmitt á svona
stundu sem maður verður var við
hvað orð eru í raun fátækleg við
hliðina á þeim myndum, sem maður
geymir í minningu sinni af liðnum
atburðum.
Þorsteinn fæddist og ólst upp á
Hellissandi á Snæfellsnesi. Hann
var sonur hjónanna Steinunnar
Magnúsdóttur og Sigurðar Þor-
steinssonar skipstjóra og útgerðar-
manns. Systkini Þorsteins voru
Jónína, sem er elst, næst kom Sól-
borg og yngst var Sigríður. Einnig
áttu þau tvo hálfbræður, Jónas og
Kjartan Lárussyni, frá fyrra hjóna-
bandi Steinunnar. Sigurður faðir
Þorsteins lést af veikindum, þegar
Þorsteinn var á unglingsárum. Það
segir sig sjálft að erfítt hefur verið
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BJARNI VILHJÁLMSSON,
fyrrverandi þjóðskjalavörður,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriöjudaginn 10. mars kl.
13.30.
Blóm eru afþökkuö með vinsemd en þeir sem vilja minnast hans
láti Hjartavernd eða aðrar líknarstofnanir njóta þess.
Kristfn Eirfksdóttir,
Kristfn Bjarnadóttir, Elfsabet Bjarnadóttir,
Eiríkur Bjarnason, Vilhjálmur Bjarnason.
t
Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim er auösýndu samúö og
vináttu við fráfall og útför móður minnar,
JÓNÍNU MAGNÚSDÓTTUR,
Hátúni 10A,
Viggó Pálsson.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er vottuöu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
KOLBRÚNAR KARLSDÓTTUR,
Dvergabakka 14,
Reykjavfk.
GunnarS. Karlsson,
Karl E. Gunnarsson, Margrét Kolbeins,
Helga Gunnarsdóttir, Jón Hermannsson,
Kristjana Dögg Gunnarsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa-
langamma
GUÐMUNDA VILHJÁLMSDÓTTIR,
Hofsvallagötu 22,
verður jarðsungin miðvikudaginn 11. mars frá Fossvogskirkju kl.
13.30.
Hlöðver Guðmundsson,
Ólafur Guðmundsson,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Vilhjálmur Guðmundsson,
Gfsli Guðmundsson,
Ellen Guðmundsdóttir,
Ásta Guömundsdóttir,
Jósep Guðmundsson,
Sigriður Guðmundsdóttir,
Dagbjört Guðmundsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
Esther Ingimundardóttir,
Alma Hansen,
Reynir Guðbjörnsson,
Alda Guðbjörnsdóttir,
Þóra Elfa Björnsson,
Ólafur Stephensen,
Baldur Skaftason,
Ólöf Björg Karlsdóttir,
Þorlákur Jóhannsson,
Haraldur Slgurðsson,
og barnabarnabarnabörn.
Lokað
Allar verslanir SS verða lokaðar á morgun, mánudag,
frá kl. 13.00-16.00 vegna útfarar GÍSLA ANDRÉSSONAR,
stjórnarformanns Sláturfélags Suðurlands.
SS-búðirnar.
Lokað
vegna jarðarfarar HULDU BÖÐVARSDÓTTUR mánu-
daginn 9. mars milli kl. 13.00 og 16.00.
Herragarðurinn,
Aðalstræti 9.
Lokað
Skrifstofur, sölu- og framleiðsludeildir fyrirtækisins
verða lokaðar á morgun, mánudag, frá kl. 13.00 vegna
útfarar GÍSLA ANDRESSONAR, stjórnarformanns Slátur-
félags Suðurlands.
Sláturfélag Suðurlands.
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar eftir hádegi mánudag
vegna jarðarfarar Gísla Andréssonar bónda á Hálsi.
Stéttarsamband bænda,
framleiðsluráð landbúnaðarins,
Búnaðarfélag íslands.
fyrir Steinunni að framfleyta heim-
ili við þessar aðstæður, en með
aðstoð bama sinna og einstæðs
dugnaðar og skapfestu gekk það
vel og minntist Þorsteinn þessara
ára með þakklæti. Þorsteinn varð
eins og aðrir unglingar á þessum
tíma að byrja að vinna um leið og
hann gat vettlingi valdið og hefur
það ásamt stórbrotnu umhverfí,
sem hann elst upp í, átt sinn þátt
í að móta hann. Náttúrufegurðin á
Snæfellsnesi átti alla tíð sterk ítök
í honum og hef ég fáa hitt, sem
jafn mikla tilfínningu og næmni
höfðu fyrir fegurð landsins og því
ríkidæmi, sem móðir náttúra er, ef
maður aðeins gefur sér tíma til að
skynja umhverfí sitt. Fljótlega eftir
lát föður síns fer Þorsteinn suður
til að leita vinnu og fæst við ýmis
störf í landi. Einnig dvaldist hann
um stund í Vestmannaeyjum þar
sem hann fékkst við sjósókn.
í kringum 1928 er Þorsteinn í
vinnu við fiskverkun í Viðey hjá
Kárafélaginu, sem stundaði þar
umfangsmikla útgerð. Býr hann þar
ásamt móður sinni og systrum. Þar
hittir hann eftirlifandi eiginkonu
sína, Guðmundínu Kristjánsdóttur,
sem var þar að aðstoða bróður sinn,
Kristin við heimilishald í veikindum
konu hans. Kristinn var netagerðar-
meistari og sá um verkstæðið fyrir
Kárafélagið. Gengu Þorsteinn og
Guðmundína í hjónaband í október
árið 1930 og er það eitt gæfurí-
kasta spor sem Þorsteinn steig um
ævina. Var hjónaband þeirra í alla
staði óvenju farsælt. Fyrstu hjú-
skaparárin áttu þau í Viðey, en er
atvinna þar fór minnkandi, þegar
halla fór undan fæti hjá Kárafélag-
inu og útgerð lagðist niður neyddust
þau eins og aðrir að flytja annað
og fluttust þau árið 1933 í Hákot
á Alftanesi þar sem þau bjuggu um
eins árs skeið. Var Þorsteinn einn
af síðustu starfsmönnum Kárafé-
lagsins. Minntust þau hjónin oft
tímanna í Viðey með söknuði og
töldu það einn besta tíma ævinnar.
Þar var margt ungt fólk á þessum
tíma og því félagslíf mikið og blóm-
legt og oft dansað og skemmtanir
haldnar. Það var framandi að heyra,
að aðeins fyrir fímmtíu árum hafí
verið þar nokkur hundruð manna
byggð, þar sem aðeins stnda örfá
hús í dag og í eyði. Af Álftanesi
fluttu þau í eitt ár á Akranes til
æskustöðva Guðmundínu og svo
þaðan til Reykjavíkur þar sem þau
bjuggu síðan.
Guðmundína og Þorsteinn eign-
uðust fjóra syni, elstur er Sigurður,
vélstjóri að mennt, gifur Þórdísi
Brynjólfsdóttur. Næstelstur er
Kristján, vélstjóri, giftur Hrefnu
Jónsdóttur. Þá kemur Ragnar, vél-
virki, giftur Steinunni Bjamadóttur,
og yngstur er Hallgrímur, endur-
skoðandi í Reykjavík, giftur Jónínu
Friðfínnsdóttur. Bamabömin em
orðin 16 að tölu og bamabamaböm-
in 21, allt hið vænlegasta fólk.
Þegar Sólborg systir Þorsteins
missir eiginmann sinn af slysfömm
taka þau Guðmundína að sér eitt
bama hennar, Sigurð Hallgrímsson,
sem nú býr í Vík í Mýrdal og reynd-
ist þeim sem besti sonur.
Þorsteinn byggði fjölskyldu sinni
Blömastofa
Friöfinns
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- elnnig um helgar.
Skreytingar við ðll tilefni.
Gjafavörur.