Morgunblaðið - 08.03.1987, Page 43

Morgunblaðið - 08.03.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 43 hús á Langholtsvegi 31 á krepp- utímum og hygg ég að mörgum húsbyggjandanum þættu vandamál húsbyggjenda í dag smávægileg ef þeir þyrftu að horfast í augu við brot af þeim vandamálum, sem Þorsteinn þurfti að yfirstíga á þeim tíma. Þá var ekki um lán að ræða né úrval byggingarefna og innrétt- inga heldur skortur og kreppa í algleymingi og kassi, sem hægt var að nota fjalir úr gulls ígildi. Þótt ekki hafí verið hátt, til lofts og vítt til veggja á Langboltsvegi var það sannkölluð höll. Höll þar sem sam- hent fjölskylda bjó og gladdist í sameiningu yfir hverjum áfanga sem náðist, þar var áfangi hvers og eins fram á við, sigur allra. Á Langholtsveg var gott að koma og þar var alltaf nægur tími, þægilegt og hlýlegt andrúmsloft og ekki síst, þegar horfið var aftur til fyrri tíma með skemmtilegum og lifandi sög- um þeirra hjóna. Þorsteinn var hagleiksmaður í höndum og mátti sér aldrei una nema að hafa eitthvað fyrir stafni. Var hann eftirsóttur starfskraftur eins og sést á því að þrátt fyrir krepputíma hafði hann ávallt vinnu, enda vann hann sín störf af sam- viskusemi og trúnaði. Eftir að til Reykjavíkur kom hóf hann störf hjá Kol og salt hf. og starfaði þar í um 25 ár,.lengst af sem bifreiðastjóri. Eftir að Kol og salt er lagt niður hefur hann störf hjá Eimskipafélagi Islands, þar sem hann starfaði til ársins 1977 og hætti störfum, sjötíu og tveggja ára gamall. Þorsteinn eignaðist marga góða vini og kunn- ingja meðal vinnufélaga og minntist hann ætíð vinnufélaga sinna og stjórnenda með virðingu og hlýhug. Þorsteinn hafði mikla ánægju af veiði og útiveru. Eru þeir ófáir veiðitúrarnir, sem hann fór með vinum og kunningjum og kom þá oft í ljós þessi einstaka næmni hans fyrir náttúrunni. Hann virtist skynja lífríkið í kringum sig og rat- aði því ósjaldan í bestu veiðistaðina en magnið var honum ekki kapps- mál, heldur sportið. Þessi næmni hans fyrir umhverfinu kom ekki síst í Ijós í garðinum á Langholts- vegi, þar sem þau hjónin bytjuðu með beran melinn, sáðu fræjum og í dag gnæfa þar trén við himin. Var Guðmundína enginn eftirbátur hans í þessum efnum og virtist allt þar sem hönd þeirra snerti verða að hinum fegursta gróðri. Er það eini garðurinn þar sem ég hef séð stórar rósir skarta sínu fegursta á kafi í snjó. Á efri árum byggðu þau sér sumarbústað við Þingvallavatn, og dvöldust þar löngum á sumrin sér til mikillar ánægju og yndis- auka. Ferðalög voru þeim mikið áhugamál og leið nánast ekkert sumar án þess að ekki væri lagt land undir fót og keyrt hvert á land sem er og gist í tjöldum og sæluhús- um. Eg minnist Þorsteins, sem hæg- láts og hógværs manns, ríkan af hlýju og góðvild, nægjusamur og þakklátur út í tilveruna. Það eru stórkostlegir breyting- artímar, sem hans kynslóð hefur upplifað og okkur nútímabömunum hættir til að gleyma að við eigum þessari kynslóð að þakka þá vel- sæld og velferð, sem við búum við í dag. Sá grunnur, sem við byggjum á í dag, var byggður af þeim, með berum höndunum, svita og tárum, í kreppu og farsóttum. Mér fannst Þorsteinn alltaf svo ríkur, hann hafði svo mikið að gefa. Verðmæti, sem við nútímabömin erum alltof fátæk af, mitt í allri auðlegðinni og lífsgæðakapphlaupinu. Verð- mæti, sem ekki verða lögð inn á bankabók með hæstu lögleyfðu vöxtum, heldur verðmæti, sem koma frá einlægu og hlýju hjarta- lagi, kærleik og þakklæti til h'fsins. Ég veit að við eigum eftir að hitt- ast aftur og þakka fyrir þær stundir, sem við hjónin áttum með afa Þorsteini. Elsku Guðmundína, ég votta þér innilegustu samúð mína, missir þinn er mikill, en um leið mikils að þakka. Sonum Þorsteins og fjöl- skyldum þeirra votta ég samúð mína svo og eftirlifandi systmm og öðrum nánum ættingjum. Guðmundur Guðmundsson Birting af- mælis og minningar- greina Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta Ijóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, SNJÓLAUGAR SIGURÐARDÓTTUR, Snjólaug Bruun, Knútur Bruun, tengdabörn, börn og barnabörn. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf _______um gerð og val legsteina. SB S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA ■ ....■ SKEMMUVEGI48 SlMI 76677 ÚRUALS FILNUR Kvnninaarverd ,, Drerfing: TOLVUSPIIHF. simi: 68-72-70 MALLORKA VIÐ BJÓDUM YKKIIR „KIASSV HÖTEL" SEIVI GERA FERÐINA ÁIMÆGJELEGRI Royal Magaluf Royal Torrenova Royal Playa dePalma Royal Jardln del Mar Ohætt er að fullyrða að Atlantik býður upp á bestu gisti- og dvalaraðstöðu á MALLORKA sem völ er á. Það eru (búðarhótelin góðkunnu í Royal hótelhringnum. Tvö þeirra eru f Magaluf og annað þeirra, Royal Magaluf, býðst íslendingum nú aftur eftir nokkurra ára hlé. Eitt er í Santa Ponsa og eitt á Playa de Palma. Reynslan hefur sýnt okkur að fólk vill aðeins það besta. Við viljum að farþegum Atlantik Ifði vel f frfinu. LÁTTUÞÉR LÍÐA VEL BROTTFARARDAGAR: Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október 15 23 1 4 3 5 5 29 13 13 15 14 22 25 24 26 4TC44VTMC Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580 INTERNATIONAl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.