Morgunblaðið - 08.03.1987, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987
atvirma — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
IAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
1. Staða forstöðumanns við skóladagheimil-
ið Hólakot v/Suðurhóla er laus til
umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Um-
sóknarfrestur er til 20. mars.
2. Fóstrur óskast við dagh. Bakkaborg v/
Blöndubakka, dagh./leiksk. Hálsaseli 27,
dagh./leiksk. Hraunborg Hraunbergi 10,
leiksk. Leikfelli Æsufelli 4 og leiksk. Brá-
karborg v/Brákarsund.
Upplýsingar gefa umsjónarfóstrur á skrif-
stofu Dagvistar barna, í síma 27277 og
forstöðumenn viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
PÓST- OG SlMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
Svæðisumsjónar-
mann
á Suðurnesjum
Viðkomandi þarf að vera: Símvirki/símavirkja-
meistari eða rafeindavirki/rafeindavirkja-
meistari. Laun skv. launakjörum ofan-
greindra stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjórinn í
Keflavík, sími 92-1000.
Kjötiðnaðarmaður
Kjötiðnaðarmaður óskast sem fyrst til að
veita kjötvinnslu Kaupfélags Vestur-Hún-
vetninga forstöðu. Húsnæði til staðar.
Uppl. hjá kaupfélagsstjóra í síma 95-1370.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga,
Hvammstanga.
PÓST- OG SiMAMÁLASTOFNUNIN
óskar eftir að ráða starfsfólk við vaktavinnu
eða dagvinnu hjá böggladeild Póststofunnar í
Reykjavík.
Upplýsingar hjá skrifstofu póstmeistara Ár-
múla 25.
Hárgreiðslusveinn
óskast á hárgreiðslustofu í miðbænum.
Upplýsingar í símum 12274 og 36574.
_,3^’ fjArmálarAouneytið
C; ríkisbokhald
Lausar stöður
Hjá Ríkisbókhaldi eru eftirfarandi störf laus
til umsóknar:
1. Staða fulltrúa til ýmissa verkefna í tekju-
bókhaldsdeild stofunarinnar. Æskilegt er
að umsækjendur hafi stúdentspróf, Sam-
vinnuskólapróf eða Verslunarskóla-
menntun.
2. Staða skrifstofumanns í skráningardeild,
við tölvuskráningu bókhaldsgagna auk
ýmissa annarra verkefna.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf um nk.
mánaðamót. Laun skv. kjarasamningum
BSRB og ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist ríkisbókara, c/o Ríkis-
bókhald, Laugavegi 13, 101 Reykjavík fyrir
13. mars nk.
RIKISSPITALAR
LAUSARSTÖÐUR
Aðstoðarlæknar
óskast í ársstöður við lyflækningadeild
Landspítalans. Um er að ræða fjórar stöður
sem veitast frá 1. júní nk. þar af ein sem
tengist göngudeild sykursjúkra og blóðskil-
unardeild. Ennfremur veitist ein staða frá
1. ágúst nk.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum fyrir
lækna sendist skrifstofu ríkisspítala fyrir 7.
apríl nk.
Upplýsingar veita yfirlæknar lyflækninga-
deildar í síma 29000.
Meinatæknir
óskast í hálft starf á rannsóknastofu Vífils-
staðaspítala.
Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir í síma
42800.
Matráðsmaður
með hússtjórnarkennarapróf óskast við eld-
hús Landspítalans.
Matartæknar
óskast við eldhús Landspítalans.
Starfsmenn
vanir eldhússtörfum óskast til starfa við eld-
hús Landspítalans bæði í fullt og 75% starf.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir yfir-
matráðsmaður Landspítalans í síma 29000.
Fulltrúi
félagsráðgjafa óskast við geðdeild Landspít-
alans til tímabundinna starfa. Um er að ræða
fjölbreytilegt starf sem krefst góðrar
íslensku- og vélritunarkunnáttu.
Umsóknir sendist yfirfélagsráðgjafa geð-
deildar Landspítalans sem veitir nánari
upplýsingar í síma 29000-631.
Starfsmaður
óskast nú þegar við dagheimili ríkisspítal-
anna að Kleppi. Vaktavinna.
Einnig óskast starfsmaður í u.þ.b. 2 mánuði
á sama stað.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimil-
isins í síma 38160.
Reykjavík 8. mars 1987.
Lauststarf til
umsóknar
— bankastofnun —
Bankastofnun auglýsir eftir viðskiptafræðingi
til starfa á fjármálasviði.
Megin verkefni eru störf við áætlanagerðir
og uppgjör bankans.
Umsóknum sé skilað til auglýsingadeildar
Mbl. merktar: „Bankastofnun — 813“.
Starfsfólk óskast
til starfa í eldhúsi.
Upplýsingar veittar á staðnum mánudaginn
9. mars kl. 14.00-17.00.
Veitingahúsið Naust,
Vesturgötu 6, Reykjavik.
Kynningarstörf
Öflug bankastofnun, staðsett í miðbænum,
vill ráða starfsfólk til kynningarstarfa næstu
2-3 mánuði, í nokkra tíma á viku, eftir sam-
komulagi.
Leitað er að fólki með góða almenna mennt-
un, aðlaðandi og örugga framkomu.
Starfsþjálfun í upphafi starfs.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
(rtTÐNT TÚNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐNI NCARÞJÓN LISTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Byggingarverk-
fræðingur óskast
Byggingarverkfræðingur með nokkra starfs-
reynslu óskast til starfa við útibú okkar á
Reyðarfirði.
Starfið er fjölbreytt og felur í sér bæði hönn-
un, eftirlit með framkvæmdum svo og gerð
tilboða og aðra verktakaþjónustu.
Við leitum að röskum manni, sem getur unn-
ið sjálfstætt og er reiðubúinn að takast á
við margvísleg verkefni.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
okkar í Reykjavík.
hönnun hf
Ráðgjafarverkfræðingar FRV
Síðumúla 1-108 Reykjavík • Sími (91) 84311
Þýðir ekki að
auglýsa?
Við viljum ráða áhugasamar Ijósmæður og
sjúkraliða til sumarafleysinga a.m.k. til að
byrja með (getum rætt framhald seinna).
Bjóðum góða starfsaðstöðu og húsnæði.
Frábær tilbreyting — ótæmandi möguieikar
á stuttum eða löngum skoðunarferðum um
sumarfallegan Borgarfjörð.
Nánari upplýsingar um laun og annað hjá
yfirljósmóður og Sigríði Lister hjúkrunarfor-
stjóra, sími 93-2311.
Heilsuhæli
NLFÍ
Hjúkrunarfræðingar/sjúkraliðar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða til sumarafleysinga. Sex stöðugildi
hjúkrunarfræðinga og átta stöðugildi sjúkra-
liða eru setin. Hálft stöðugildi sjúkraliða
verður laust frá 1. apríl 1987. Húsnæði og
frábært hollustufæði á staðnum. Hveragerði
með hreint loft, gróðurhúsastemningu og
útisundlaugum, er stutt frá Reykjavík (42 km)
en þó mátulega langt frá skarkala höfuð-
borgarinnar.
Sjón er sögu ríkari, komið á staðinn eða
hringið og fáið nánari uppl. hjá Hrönn Jóns-
dóttur, hjúkrunarforstjóra, í síma 99-4201,
þriðjudaga-föstudaga kl. 9.00-19.00, eða
heima í síma 91-33324.
Heilsuhæli NLFÍ.