Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 Hulda Böðvars- dóttir - Minning Fædd 24. ágúst 1924 Dáin I.mars 1987 Ég minnist ömmu Huldu fyrir hennar breiða og hlýlega bros, þó sérstaklega fyrir hversu vel hún ilmaði. Við skildum svo vel hvor aðra, án margra orða. Hún var ávallt verndari minn, traustur vin- ur, en þó alltaf fyrst og fremst amma Hulda á Islandi. Hún er horf- in okkur núna, en ég finn nálægð hennar nú og ávallt. Eg mun sakna 4%tiu leyndarmálanna okkar, sem við einar áttum saman. Ég mun geyma minninguna um ömmu Huldu í hjarta mér og ég er þess fullviss að hún vakir yfir velferð minni. Ég mun reyna að vera verðugur arf- taki nafns hennar. Blessuð sé minning ömmu minnar. Guð styrki afa Geira í sorg hans. Hulda Á morgun, mánudag, fer fram jarðarför Huldu Böðvarsdóttur, Sól- heimum 23. Strax í æsku var ég svo lánsöm að kynnast Huldu og heímilisfólki hennar, en á þeim tíma fcyó hún ásamt eiginmanni sínum, Siggeir Blöndal Guðmundssyni, og bömum sínum á Bókhlöðustíg 6b í Reykjavík. Ég kynntist Huldu í gegnum dóttur hennar, Sigrúnu, sem var bekkjarsystir mín í Miðbæjarskól- anum og mín besta vinkona í yfir 30 ár, þrátt fyrir að hún hafi búið í Bandaríkjunum sl. 18 ár. Sem bami fannst mér Hulda vekja hjá mér óttablandna virðingu. Við nánari kynni hvarf óttinn, en jyrðingin hélst. Hulda var glæsileg ~ kbna, ekki eingöngu í útliti, heldur einnig hennar innri maður. Mér fannst ávallt birta yfir þegar hún brosti, en oft var ákaflega stutt í glettni og hlátur í okkar langa vin- skap. í mörg ár var heimili Huldu mér sem mitt annað heimili, fullt af hlýju, snyrtilegt og þar var ávallt allt í röð og reglu. Skömmu eftir 1960 fluttu Hulda og Geiri ásamt bömum sínum fimm, Garðari, Sigrúnu, Ómari, Kristínu og Snorra, í nýja, glæsilega íbúð í Sólheimum 23 og þar var heimili hennar þar til yfir lauk. Úr Sól- heimum á ég einnig ótal yndislegar minningar, sem nú koma upp í huga mér. Hulda var alltaf til staðar, og með opnu, jákvæðu hugarfari, hvatningum og áhuga tók hún þátt í mörgu, sem við vinkonumar tók- um okkur fyrir hendur. Hún deildi með okkur vonum okkar og þrám og því myndaðist sérstakur vin- skapur milli okkar, en ég tel það til forréttinda að hafa fengið að eiga hana að vini í yfír 30 ár. Eftir 45 ára hjónaband, hjá sér- lega samrýndum hjónum, eins og Hulda og Geiri voru, hlýtur missir- inn að vera ákaflega sár fyrir hann. Ég vil votta Geira, eiginmanni Huldu, bömum þeirra, aldraðri móður hennar og barnabömum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Huldu Böðv- arsdóttur. Lára Kjartansdóttir Hún Hulda, amma mín, er dáin. Á ég erfítt með að skilja af hveiju hún amma mín er tekin frá mér, hún amma sem ég elskaði svo mikið. Amma átti svo mikið að gefa, hún studdi við bakið á mér í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Aldrei skorti faðmlög og kossa þegar við hittumst, hún átti alltaf nóg af hlýju í minn garð. Ef mig skorti sjálfstraust þá hafði ég bara samband við ömmu og allt varð gott á ný. Veit ég að ekki voru öll böm eins heppin og ég að eiga svona yndis- lega ömmu og hafa vinkonur mínar oft haft orð á því hve lánsöm ég væri. En eitt er þó gott að ég hef þó hann afa minn og hann heldur áfram að vera besti vinur minn eins og hann er vanur og getum við verið saman í sorg og gleði, því að hann veit að ég elska hann mest af öllum. Ég kveð elsku bestu ömmu mína og þakka henni fyrir hennar hluta af uppeldi mínu. Minningamar um hana geymast margar og góðar og verða aldrei frá mér teknar. _ Rúna íris Mánudaginn 9. mars kveðjum við hinstu kveðju elskulega konu, Huldu Böðvarsdóttur, Sólheimum 23, sem kölluð var burt frá okkur 1. mars sl. eftir aðeins 5 vikna sjúkralegu. Hulda fæddist 24. ágúst 1924 og ól mestan aldur sinn hér í Reykjavík. Hún var mjög glæsileg kona og bar sín 62 ár með reisn. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Siggeir Blöndal Guðmundsson og eignuðust þau 5 böm. Á heimili Huldu var snyrti- mennskan ávallt í fyrirrúmi og naut hún þess að halda heimili fyrir sinn stóra bamahóp, en án efa hefur verið erilsamt á stundum. Eftir að böm hennar fluttust eitt af öðru að heiman hóf hún að starfa við hlið manns síns í verslun þeirra hjóna og gat hún þá veitt sér frístundir án skuldbindinga við heimili og böm, skuldbindingar sem við húsmæður einar þekkjum. Hún ferðaðist með eiginmanni sínum bæði hér heima og erlendis og voru famar ófáar ferðimar til dóttur hennar, sem búsett er í New York. Hulda var dul á eigin hagi, en lét sér því meira annt um eigin- mann sinn, böm og bamaböm, en ömmubömin voru henni eitt og allt. Er ég fyrst kynntist ömmu Huldu, eins og hún var oftast köll- uð, þá sem verðandi tengdadóttir hennar fyrir liðlega 20 árum, fann ég fljótlega þann hlýhug og ástúð sem hún ávallt sýndi mér og síðar þeim er áttu eftir að mynda hennar stóru fjölskyldu. Þegar ung hjón stofna heimili er notalegt að fínna trausta og styrka hönd, sem leiðbeinir án yfirgangs og kemur hljóðlega færandi henni með nytsama hluti, sem óreynd húsmóðir hefði jafnvel ekki talið nauðsynlega í búskap. En slík var tengdamóðir mín. Hljóðlega gaf hún góð ráð sem ávallt voru gefín frá góðu hjarta og með breiðu brosi. Dætur mínar minnast ömmu Huldu með sámm söknuði, því þær hafa misst góðan vin sem vafði þær ást og umhyggju. Hjá henni áttu þær góðar stundir í Sólheimunum, þar sem þær geymdu sín leyndar- mál sem amma ein vissi um. Mikil var tilhlökkun ömmubams- ins, þegar amma og hún voru að ráðgera fyrirhugaða ferð til frænku í Ameríku á komandi sumri. Ferð sem hún eit átti eftir að fara með ömmu Huldu, því stóru frænkumar höfðu farið slíkar ferðir á liðnum ámm. Þær voru fullvissar um að með hækkandi sól mundi amma Hulda ná fullri heilsu á ný. Við biðjum góðan Guð að styrkja afa Geira og aldraða móður, sem nú sér á eftir öðm bami sínu á aðeins tveim mánuðum, en bróðir Huldu, Hafsteinn, fórst með ms. Suðurlandi á jóladag. Ég kveð tengdamóður mína með þakklæti fyrir allt sem hún hefur verið mér og fjölskyldu minni og við munum geyma bjarta minningu um hana í hugum okkar. Guð blessi minningu Huldu Böðv- arsdóttur. Tengdadóttir Reuter Frakkar heiðra Connery ogHepburn PHILIPPE de Villiers, aðstoðarmenningarmálaráðherra Frakka, heiðraði á föstudag kvikmyndastjörnurnar Sean Connery og Audrey Hepburn fyrir framlag sitt til bókmennta og lista. Þetta er ein helsta viðurkenning, sem Frakkar veita fyrir framúrskar- andi starf í þágu lista. De Villiers óskaði Hepburn og Connery til hamingju með að hafa komist hjá því að festast í sama far- inu, þrátt fyrir heimsfrægð. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar fundir — mannfagnaðir Seyðfirðingar í Reykjavík Leikritið „Síldin kemur og síldin fer“ eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur verður frum- sýnt 13. mars nk. í félagsheimilinu Herðu- breið á Seyðisfirði. Farin verður helgarferð með Flugleiðum síðdegis á föstudag ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar gefnar í þessum símum: 38760, 43075, 36217, 41153, 71882, 611147 og 92-7125. Stjórnin. Krani óskast Góður bílkrani eða stór hjólakrani 35-40 tonn óskast til kaups. Uppl. í síma 91-687787. Aðalfundur Hávöxtunarfélagsins hf. verður haldinn þriðjudaginn 17. mars 1987 kl. 17.30. Fundasrstaður: Litla-Brekka við Bankastræti (bakvið veitingahúsið Lækjarbrekku, 2. hæð) Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillaga að útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Starfsemi félagsins. 4. Erindi: Nýjungar á verðbréfamarkaði. Dr. Pétur H. Blöndal frkvstj. Reykjaneskjördæmi Aðalfundur kjördæmisráðs SJálfstœðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi veröur haldinn í Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1, Kópavogi, laugardaginn 14. mars 1987 og hefst kl. 9.00 fyrir hádegi. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Breyting á lögum kjördæmisráðs. 3. Alþingiskosningarnar. Frummælandi Matthias Á. Mathiesen, utanríkisráðherra. Stjórn kjördæmisráðs. IIIIMDAIIi'K t ■ U S Mannúð og markaös- búskapur Fyrirhugað er að fara af stað með les- og umræðuhring á vegum Heimdallar, félags ungra sjálfstæöismanna í Reykjavik. Þar veröa tekin fyrir stefnuatriöi Heimdallar og Sjálfstæöisflokksins og þau reifuð. Fengnir verða í rabb ýmsir kunnáttumenn i stjórnmálum, einn- ig veröur stuðst viö ákveðnar bækur um sjórnmál. Hér er tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á þvi aö ræöa vítt og breitt um frjálslyndar stjórnmálakenningar o.fl. Áhugasamir geta skráð sig eða leitaö upplýsinga hjá Sjálfstæöis- flokknum i síma 91-82900 á skrifstofutíma fyrir þriðjudaginn 10. mars nk. Keflavík Kosningaskrifstofa Sjálfstæöisflokksins Hafnargotu 46 verður opin mánudaga til föstudaga kl. 16.30-18.30, laugardaga og sunnudaga kl. 15.00-17.00, sími 2021. Starfsmaður skrifstofu er Sigurður Ingva- son, Miögaröi 3. Formaöur skipulagsnefndar er Erla Sveinsdóttir, Vatnsnesvegi 23. Stjórn fulltrúaráðsins. Akranes — bæjarmálefni Almennur fundur um bæjarmálefni verður haldinn i sjálfstæðishúsinu við Heiðargerði mánudaginn 9. mars kl. 21.00. Bæjarfulltrúar flokks- ins mæta á fundinn. Stjórn fulltrúaráðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.